Tíminn - 06.10.1974, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
Sunnudagur 6. október 1974.
Á VETTVANGI
Umsjón Hjólmur W. Hannesson og Jón Sigurðsson
Verkalýðshreyfing ó krossgötum
Um fátt er nú meira rætt en þær
ráöstafanir, sem nú eru I ráöi i
efnahagsmálum. Þaö er aö visu
vitaö aö hugsanleg vinstristjórn
hefði gripiö til mjög álíkra aö-
gerða, enda nokkuö seint aö gripa
á vandanum þegar svigrúm góð-
ærisins er liöið hjá. Þaö er þungur
áfellisdómur,sem hinir svonefndu
verkalýösflokkar hafa kveöið yfir
sjálfum sér, aö hafa drepiö á drei
og eyðilagt þær tilraunir sem for-
ysta Framsóknarflokksins gerði
til að tryggja stöðuga vinstri-
stjórn i landinu. Og þaö er mál-
efni sem framsóknarmenn um
allt land verða að hafa i huga að
það er forsenda vinstristjórnar á
tslandi aö flokkurinn hafi nægan
styrk til aö knýja hina sjálfskip-
uöu verkalýðsflokka til ábyrgrar
afstöðu.
Það er aöeins eðlileg og óhjá-
kvæmileg aögerð að verkalýösfé-
lögin segja upp samningum þegar
slik röskun verður á almanna-
kjörum sem nú hefur orðið. Upp-
sögn leiöir alls ekki sjálfkrafa til
vinnustöðvunár enda þótt horfur
verði allar ótryggari á vinnu-
markaðnum, en hún er nauðsyn-
leg til þess að félögin geti betur
vakað yfir kjörum og hagsmun-
um umbjóðenda sinna. Uppsögn
gamninga segir á sama hátt ekk-
ert um réttmæti eða nauðsyn op-
inberra aðgerða I efnahagsmál-
um.
Atök á vinnumarkaðnum eru á
hverjum tima mikil raun fyrir
allan almenning og reyna mjög á
innviðu og styrk verkalýðshreyf-
ingarinnar. Það eru orð að sönnu
að engir tapa eins á verkföllum og
launþegarnir sjálfir. Við núver-
andi aðstæöur er þvi timabært aö
rætt sé almennt um aðstöðu
verkalýðshreyfingarinnar nú á
dögum og vikið að ýmsum þeim
vandamálum sem hún á við að
glíma.
Staða verkalýðs-
hreyfingarinnar
Verkalýöshreyfingin hefur náð
slikum árangri að hún er orðin
mjög sterk og máttug I þjóðfélag-
inu. Hún getur ekki lengur skotið
sér á bak við þá samúð sem hún
gat höfðað til meöan á brattann
var að sækja. Það eru meira að
segja áhöld um það hvort verka-
lýðshreyfingin er ekki sterkasta
þjóöfélagsaflið i hinum iðnvæddu
lýðræðisrikjum á Vesturlöndum.
En þessum styrk og þessu veldi
fylgir mikil áhæt'ta. 1 fyrsta lagi
kemur upp sá vandi sem fylgir
öllum árangursrikum fjölda-
hreyfingum: að hætta að vera lif-
andi hreyfing og breytast i stofn-
un, að félagslifið lognist út af og
forystan slitni úr tengslum við fé-
lagsmennina, að lýðræðið verði
að engu en I staðinn risi upp
stirönað skrifstofuvald. Og þetta
er ekkert smáatriði um svo mátt-
ugt samfélagsafl og full ástæða til
þess að þjóðarheildin og stjórn-
völd hafi á þvi gætur. 1 ööru lagi
stendur verkalýðshreyfingin og
þjóðin frammi fyrir þeim vanda
að upp getur komið sú staða að
óskir og vilji verkalýðshreyf-
ingarinnar og aðgerðir löglegra
og lýðræðislegra stjórnvalda rek-
ist á. Er það sjálfsagt aö verka-
lýðshreyfingin beygi sig umsvifa-
laust eöa ber henni beinlinis að
láta reyna á krafta sina I einvigi
gegn stjórnarvöldunum? Þessi
spurning er ekki lengur nein loft-
kennd hugleiðing, heldur brýnt
umhugsunarefni viða um lönd,
pólitisk staðreynd sem verður að
taka afstöðu til. Og menn verða
að gera sér ljóst að þetta mál
snertir sjálfan grundvöll lýð-
ræðislegs þjóðfélags: Valið
stendur um lýðræðislegt þingræði
og frjálsa fjöldahreyfingu sem
gegnir viðurkenndu hagsmuna-
hlutverki, eða ofurvald fámennr-
ar forystusveitar lokaðrar stofn-
unar og einokun einstakra smá-
hópa á vinnumarkaðnum.
Millistétt eða
verkalýður
Nú er það að visu mótsögn aö
tala um verkalýðshreyfingu án
nokkurrar frekari skilgreiningar.
Hreyfingin er i reynd sundruð
milli tveggja meginstétta sem
hafa alls ekki að öllu leyti sömu
hagsmuni. Allt að þvi helmingur
hreyfingarinnar er nú á dögum
millistétt sem nýtur betri kjara
en verkalýður, hefur aðra þjóöfé-
lagsaðstöðu og litur á sjálfa sig
öðrum augum. Þetta hefur senni-
lega aldrei komiö betur fram en i
kjarasamningunum á siðasta
vetri. Hér á landi hafa tæpast
nokkru sinni verið gerðir ótviræð-
ari millistéttarsamningar, og
sjaldan mun þaö hafa komið
skýrar fram hve aðstaða hins eig-
inlega verkalýðs er örðugri en
möguleikar millistéttanna.
Það er eðlismunur á lifskjara-
baráttu verkalýðs og láglauna-
fólks og á sérhagsmunabaráttu
velstæðra smáhópa sem I krafti
starfsþjálfunar og sérþekkingar
hafa trygga starfsaðstöðu ef ekki
einokunarvald I sinni grein. Þaö
er satt að segja ekki fyrirsjáan-
legt hvernig takst skal að tryggja
samleið svo ólikra afla til lang-
frama, eins og þróun velferöar-
og tækniþjóðfélags virðist stefna,
og það er alveg ótækt og raunar
siölaust að krefjast jafnrar sam-
úðar með báðum.
Þaöer öllum ljóst að verkalýðs-
hreyfingin hefur aðstöðu til að
tefja mjög framkvæmd opinberr-
ar efnahagsstefnu, og eins og áð-
ur var sagt eru áhöld um hvort
yröi sterkara ef þessum öflum
lenti beinlinis saman. I umræðun-
um um þessi efni hafa menn oft
haft það á orði að lausnin hljóti aö
verða sú, að sterkari miðstjórn I
verkalýðshreyfingunni tæki að
sér gerð heildarsamninga. Hitt
mun sönnu nær aö stóraukið miö-
stjórnarvald leysir á engan hátt
þann almenna vanda sem hér um
ræðir og er að auki hættulegt aft-
urhaldsspor frá þvi lýðræöi, sem
þegar er ófullkomið innan hreyf-
ingarinnar en hún hlýtur að
stefna að ef vel á að fara.
Réttur launþegans
til áhrifa
Kjarni vandans er sá að það
veröur að endurskoða þær aðferð-
ir sem tiökazt hafa um gerð
kjarasamninga og vinnudeilur.
Hjá þvi getur ekki fariö I fyrsta
lagi aö nú sé öllum almenningi
orðið þaö ljóst að það kerfi visi-
tölubóta sem hér tiökazt er ger-
samlega ófært um að tryggja
launamenn andspænis slikri
verðbólgu sem við lifum nú viö.
Svo virðist sem verðbólga megi
ekki fara yfir tiltölulega lágt
mark án þess að visitalan fari að
verka sem olia á eld og snúist
gegn þeim sem hún átti að hlifa.
Þetta á ekki sizt við um efnahags-
lif sem svo mjög er háö ytri
sveiflum sem hið islenzka. Þá má
þess geta að hér hefur aldrei ver-
ið gerð nein grein fyrir rétti
þriðja aðila i vinnudeilu svo sem
þegar litill hópur manna á stórum
vinnustað hindrar vinnu annarra.
Loks er það með ýmsum hætti
hversu lýðræðislega ákvaröanir
eru teknar um vinnustöðvanir.
Oft tekur tiltölulega fámennur fé-
lagsfundur slika ákvörðun fyrir
fjölmennt félag án þess að alls-
herjaratkvæði gangi,þar sem gert
sé ráð fyrir lágmarksþátttöku fé-
lagsmanna. Svipuðu máli gegnir
um rétt sáttasemjara, sem er
fulltrúi þjóðarheildarinnar I slik-
um deilum, til að krefjast at-
kvæðis um miölunartillögu.
í þessum efnum fer bezt á þvi
að auka og treysta lýöræðið og
rétt launamannsins til áhrifa á
eigin kjör. Fullvist má telja að
sanngirni hans og jafnframt
þekking á eigin kjörum verði
þjóðinni farsælli en ráð fárra for-
ystumanna, sem auk alls annars
verða að taka tillit til hugsan-
legra keppinauta I félaginu um
hylli, og völd. Um leið er hér um
að ræða augljós lýðréttindi.
Hlutverk verkalýöshreyfingar-
innar er og verður hið sama, en
Áfangi
Þeir flokkar er stóðu að rikis-
stjórn ólafs Jóhannessonar,
geröu með sér málefnasamning.
hluti úr varnarmálaþætti þess
samnings var, svo sem alþjóð'er
kunnugt, á þessa lund: „Varnar-
samningurinn við Bandarikin
skal tekinn til endurskoðunar eða
uppsagnar i þvi skyni, að varnar-
liðið hverfi frá Islandi I áföngum.
Skal aö þvi stefnt, að brottför liðs-
ins eigi sér stað á kjörtimabil-
inu.” Þetta ákvæði varð siöan eitt
helzta ágreiningsatriöi I hinni
stjórnmálalegu umræðu lands-
manna. Töldu sumir það ótvirætt,
að herinn ætti aö fara á kjörtima-
bilinu. Aðrir voru jafn vissir um,
að hér væri aöeins um minnihátt-
ar endurskoðunaryfirlýsingu að
ræða. Fór svo að lokum, að
„vinstri”-stjórninni entist ekki
aldur til þess að úr þessu yrði
skorið.
Aöur en þingrofið fór fram,
hafðiutanrikisráðherra lagt fram
ákveönar tillögur fyrir Banda-
rikjamenn. Þær tillögur gerðu
hlýtur þó að taka mið af breyttum
aðstæðum. Hreyfingin hefur
þannig i auknum mæli tekið að
beita sér fyrir málefnum sem
ekki snerta beint kaupgjald. Með-
al slikra mála má nefna húsnæði,
orlofsmál, öryggi og hollustu-
hætti. A siðustu árum hefur og
verið æ meira rætt um rétt starfs-
fólks til áhrifa á vinnutilhögun,
vinnutimaákvarðanir, verk-
stjórn, mannaráöningar og annað
þvi likt. Hvertum sig eru slik mál
ef til vill léttvæg en þau snerta
launþegann mjög rækilega I dag-
legu starfi og eru honum raunar
sizt minna um verö en krónutala
eins og allt er I pottinn búið.
Hreyfingin verður
að skilja hlutverk
sitt rétt
En þegar rætt er um mál sem
þessi, atriði er varöa atvinnulýð-
ræöi, verður jafnframt að hafa
það I huga að verkalýöshreyfing-
in getur ekki litið á það sem hlut-
verk sitt að binda launþegana um
of böndum ábyrgðar viö fyrirtæk-
ið. Þrátt fyrir allt er hreyfingunni
ætlað að tryggja frelsi launþeg-
anna andspænis fyrirtækjunum,
og þaö er forsenda i frjálsu þjóð-
félagi að aðilarnir haldi hver
sjálfstæði sinu um leið og fylgt er
ákveðnum leikreglum til að halda
allsherjarfriði og varanlegri vel-
megun.
Það fer ekki á milli mála að á
næstunni mun mjög reyna á styrk
verkalýðshreyfingarinnar vegna
þeirrar kjaraskerðingar sem ó-
hjákvæmileg hefur orðið og
veröa mun eins og sakir standa
um hag þjóðarbúsins. En þvi
fremur munu launþegar og
verkalýðssinnar leggja áherzlu á
það að hreyfingin verður að
þekkja sin takmörk og skilja hlut-
verk sitt rétt. Það er ekki hlut-
verk hennar að kollvarpa ákvörö-
unum löglegra yfirvalda þótt að
heröist um sinn og hreyfingin
verði að taka á styrk sinum til að
treysta kjör launafólks. Og þvi
veröurað treysta að ekki verði
lagt i tvisýn átök, eins og skamm-
sýnir menn viröast hvetja til,
enda gætu þau annars vegar leitt
af sér raunverulegt stjórnleysi i
þjóðfélagsmálum eða hins vegar
valdið hreyfingunni meiri örðug-
leikum en hún hefur staöiö
frammi fyrir um langt skeið.
—JS
annars vegar ráö fyrir brottför
varnarliðsins i áföngum, en hins
vegar, m.a. vegna þeirrar stefnu
Framsóknarflokksins, að ísland
eigi að vera i Atlantshafsbanda-
laginu, var gert ráö fyrir, að Is-
lendingar stæðu við allar skuld-
bindingar sinar við Nato. Þannig
áttu bandamenn okkar að fá að
halda héðan uppieftirlitsflugi.og I
þvi sambandi að hafa nauðsyn-
legt viðhaldslið hér. Islendingar
áttu slðan smátt og smátt að taka
I sinar hendur alla löggæzlu á
Keflavikurflugvelli. Þá átti al-
gerlega að skilja venjulegt far-
þegaflug frá þvi eftirlitsflugi,
sem fram færi frá Keflavik. Til-
lögur þessar voru svo rangtúlkað-
ar af stjórnarandstöðunni, að
undrum sætti. Þvi var jafnvel
haldið fram, að þær miðuðu að
varnarlausu Islandi og úrsögn
þess úr Nato.
Alþingiskosningarnar
Varnarmálin voru ótvirætt eitt
helzta kosningamál siðustu al-
þingiskosninga. Mikiö var um
þau ritað. Voru þau skrif oft litt
uppbyggileg eða til þess fallin að
fræða um málin. Er enginn vafi á
þvi, að minu mati, að fylgisaukn-
ing Sjálfstæðisflokksins byggðist
að verulegu leyti á þvi hvernig
málflutningur þess flokks var I
þeim sterku fjölmiðlum, sem
hann hefur aðgang að. Hvort sem
menn skýra hina miklu þátttöku
islenzkra kjósenda i undirskrifta-
söfnun „Varins lands” með
áhrifamætti fjölmiðla stærsta
stjórnmálaflokksins eða með ein-
hverju öðru, er þvi ekki að neita,
að hún var mjög mikil.
Er menn stóðu upp frá alþingis-
kosningunum, kom i ljós, að jafn-
tefli hafði orðið. Eftir tilraun for-
manns Sjálfstæðisflokksins
reyndi Ólafur Jóhannesson að
mynda nýja ,,vinstri”-stjórn með
þátttöku Alþýðuflokks. Athyglis-
vert er, að Alþýðubandalagið var
að sögn Magnúsar Kjartansson-
ar, m.a. búið að sveigja varnar-
málastefnu sina töluvert að
stefnu hinna flokkanna i
,,vinstri”-viðræðunum. Virðist
þvi Alþýðubandalagið vera farið
að sjá, að „göngustefna” þess i
hermálinu hefur litið raunhæft
gildi annað en reglubundið
„trimm” þátttakenda i göngun-
um. Forkólfum Alþýðubanda-
lagsins og Alþýðuflokks varð ekki
af nýrri „vinstri”-stjórn, og það
þrátt fyrir góðan vilja allmargra
einstaklinga i forystusveitum
þeirra.
Óþarft er að rekja aðdraganda
núverandi samstjórnar tveggja
höfuðandstæðuflokka islenzkra
stjórnmála, Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks.
Lifsregla •
Fr amsóknarflokksins
A fundi Framsóknarfélaganna i
Reykjavik nýlega lýsti Eysteinn
Jónsson yfir þvi i ræðu, að það
hefði ávallt verið lifsregla Fram-
sóknarflokksins að reyna að
starfa með flokkunum til
„vinstri”. Væri það reynt til
þrautar fyrst. Ef það hins vegar
tækist ekki, væri ekki óeðlilegt að
flokkurinn reyndi að koma sinum
stefnumálum i framkvæmd, þjóð-
inni til heilla, þótt slikt kostaði
málamiðlun til „hægri” um tima.
Með þátttöku sinni i myndun
þingræðislegrar rikisstjórnar
sýndu forystumenn Framsóknar-
flokksins lofsverða ábyrgðartil-
finningu. Stjórnarmyndun mátti
ekki dragast lengur, vegna að-
kallandi aðgerða i efnahagsmál-
um rikisins, sem öllum bar sam-
an um að gera þyrfti.
Aðeins áfangi
I stefnuyfirlýsingu núverandi
rikisstjórnar um varnarmálin er
þvi lýst yfir, að öryggi landsins
skuli tryggt með aðild að Atlants-
hafsbandalaginu. Um það atriði
hefur aldreiverið uppi ágreining
ur milli núverandi stjórnarfl.,
þótt ýmsir hafi viljað koma þvi
inn hjá kjósendum. Hins vegar er
I mörgum atriðum gengið mun
skemur I nýundirskrifuðum
samningi Einars Agústssonar og
Josephs Sisco en margir fram-
sóknarmenn hefðu kosið. Fram
hjá úrslitum siöustu kosninga,
með varnarmálið sem eitt helzta
kosningaatriðiö, varð ekki geng-
ið.
Nokkur jákvæð atriði má þó
altént benda á I nýundirrituðum
samningi. Þeir áfangar, svo langt
sem þeir ná, hefðu ekki fengizt
með ósveigjanlegri „göngu-
stefnu.” Þannig má nefna fækkun
I varnarliðinu um 400 manns. All-
ir varnarliösmenn eiga að flytjast
inn fyrir vallargirðinguna, og nú
veröur farþegaflug og herflug al-
gerlega aðskilið. Fleira mætti til
telja, en enn er eftir að ganga
endanlega frá ýmsum fram-
kvæmdaatriðum, sem skipta
máli.
Á friðartimum er það fyrst og
fremst eftirlit meö siglingum I og
á N.-Atlantshafi, sem er hlutverk
varnarstöövanna á tslandi. Um
það sannfærðist undirritaður end-
anlega i höfuðstöðvum Nato nú I
sumar. Þaðeftirlit má hafa áner-
lendra hersveita hér á landi eins
og tillögur Einars Agústssonar i
,,vinstri”-stjórn gerðu ráð fyrir.
I alþingiskonsingunum siðustu
var grundvellinum kippt undan
þvi, að tillögur i svipuðum dúr
næðu fram að ganga að sinni.
HWH
Húsavík
Hótel Húsavik óskar að ráða fram-
kvæmdastjóra frá og með n.k. áramótum
en einnig kemur til greina að hótelið verði
leigt ef viðunandi tilboð fæst.
Allar frekari upplýsingar eru veittar i
simum 4-11-21 og 4-11-37 á Húsavik, en um-
sóknarfrestur er til 31. október n.k.
Húsavik, 2. október 1974.
Framkvæmdaráð Hótels Húsavikur h/f.
Hér hleypir Timinn af stokkunum nýrri viku-
legri siðu. Um það hefur verið rætt nokkuð upp
á siðkastið, að þörf væri á meiri skrifum i blað-
ið um stjórnmál, i viðri merkingu þess orðs,
umfram daglegar fréttir og timabundnar deil-
ur. Á.þessum vettvangi verður reynt að fjalla
um þessi efni almennt og gera grein fyrir ýms-
um þeim vandamálum og sjónarmiðum, sem
gjarna vilja liggja i láginni i dægurmálabar-
áttunni. Hér munu birtast greinar, og viðtöl
verða tekin við ýmsa þá, sem þessum málum
sinna, einkum úr röðum ungs fólks.
Blaðstjórn hefur falið þeim Hjálmari W.
Hannessyni og Jóni Sigurðssyni að annast
þessa siðu i umboði ritstjóra.