Tíminn - 06.10.1974, Blaðsíða 6

Tíminn - 06.10.1974, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Sunnudagur 6. október 1974. Ingólfur Davíðsson: Byggt og búið í gamla daga xui 1 siðasta þætti var fjallað um Flateyjardal og birtar myndir frá Brettingsstöðum meðan þar var enn „lif i landi”. Skal hér ofurlitlu aukið við og einnig litil- lega minnzt Flateyjardals- heiðar. Fyrst gefur að lita Efri- Brettingsstaði ári 1971. Þar sér i kirkjuna t.v., en fyrir miðju er torfskemma með timburþili. Bæöi kirkjan og skemman nú horfnar. Onnur myndin sýnir fólkið rif ja hey á túninu sumarið 1950. Haustið 1953 er fé réttað i siðasta sinn á Nausteyri Brettingsstöðum. Vikurhöfði blasir við. A Nausteyrarlandi eru enn til búðabrot, leifar gamalla verðbúða. Þar lágu að- komumenn við til útróðra, fyrr á tið. Ein myndin sýnir sauðfé Brettingsstaðabænda tekið um borð i báta og flutt til Flateyjar, haustið 1953. Byggðin var þá að fara i eyði. Ekki veit ég hvenær myndin af ibúðarhúsinu á Jökulsá var tekin. Húsið sómir sér vel, þó jörðin væri lægst metin jarða á Flateyjardal, aðeins 4.5 hundruð að fornu mati. Fyrr á öldum var túnið þýft og fóðraði tæpast eina kú. En mikil breyting er orðin. Frá 1855—1899 eru taldir 15 búendur á Jökulsá, en siðan tveir, þ.e. Sigurður Hrólfsson bóndi og skipstjóri 1899—1921, og Grimur Sigurðsson, siðasti bóndinn á Jökulsá, 1921—1946. Grimur nytjaði einnig Vik hin siðari ár. Kona Grims Hulda Tryggva- dóttir frá Brettingsstöðum. Um Asbjörn á Knarrareyri, Urðarkött (siðar kallaðan Finnboga ramma), Brettings- staðamenn hina fornu o.fl. fólk Flateyjardals á söguöld, má lesa i Finnbogasögu ramma Flateyjardalsheiði liggur suður af Flateyjardal og er raunar framhald hans, dalur milli hárra fjalla, þrátt fyrir heiðarnafnið, og nær allt til Fnjóskadals. Strjál og fremur óregluleg byggð hefur þarna verið, enda óþurrkasamt á sumrin og snjó- þungt á vetrum. En viða all- grösugt og gott til beitar. Heiðin er nú notuð sem afréttarland Ot- Fnjóskdæla og Suður-Höfð- hverfinga. Flateyjardalsheiði er nú I óbyggð. Siðast var búið á Kambsmýrum, eða til 1929. Ey- vindará við samnefnda þverá fór i eyði 1872. Sjást þar bæjar- rústir i túni. Bærinn Heiðarhús stóð i brekkuhalla við smágil og var I byggð til 1904. Þar gistu oft gangnamenn. Nú er bærinn horfinn, en þar stendur nú ný- uppbyggt, myndarlegt sæluhús. (Fræðslu um Flateyjardalsheiði og — dal er að fá i árbók Ferða- félags íslands 1969. Suður-Þing- eyjarsýsla” eftir Jóhann Skaptason). Dalsá ber vatn þveránna út i Skjálfanda. En fyrir mörgum þúsundum ára er talið að Fnjóská hafi gegnt þvi hlutverki. Hún hafði þá ekki brotið sér leið um Dalsmynni til Eyjafjarðar, heldur beljaði út Flateyjardalsheiði og um Flateyjardal út i Skjálfanda. Á Kambsmýrum, sem lengst héldust i byggð, er mikið og fagurt engjaland, talið „tólf karla engi”, þ.e. entist tólf körlum til sláttar sumarlangt. t réttinni á Nautseyri (1953). Heyskapur á BrettingsstöAum (1950). Klrkja, skemma og fbiiftarhús á Efri-Brettingsstftftum (1041) Fé flutt frá Flateyjardal til Flateyjar (1953) Bæjarrústir á Eyvindará á Flateyjardai.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.