Tíminn - 06.10.1974, Page 5
Sunnudagur 6. október 1974.
TÍMINN
5
BLAIR ENGLAR HJALPA
FERÐAFOLKINU
Stúlkur á mótorhjólum,
Iklæddar bláum búningum, hafa
að undanförnu verið á ferö um
fimm helztu borgir Þýzkalands.
Þessum bláu englum er ætlað að
hjálpa ferðafólki i Frankfurt,
Hamborg, Kiel, Munchen og
Köln. Ekkert þarf að greiða
fyrir aðstoð bláu englanna, sem
taka gjarna að sér að leiðbeina
ökumönnum, sem farið hafa
viilirvegar, með þvi að aka á
undan þeim til þess staðar, sem
þeir hyggjast komast til.
Stúlkurnar eru vel að sér I
tungumálum, og eiga ekki i
neinum erfiðleikum með að tjá
sig á aö minnsta kosti sex
tungumálum. Þær eru flestar
stúdentar við háskóla, og eru
með þessu starfi að afla sér
ofurlitilla aukatekna, en
borgaryfirvöld greiða laun
þeirra. Lögreglan hefur séð um
þjálfum stúlknanna, og einnig
hafa þær hlotið uppfræðslu hjá
ferðaskrifstofum og umferðar-
yfirvöldum. A myndinni má sjá
Kölnardómkirkju að baki
nokkurra blárra engla.
#
Meira en 1 55
þúsund flóttamenn
Tala flóttamanna, sem komið
hafa frá Austur-Þýzkalandi
vestur yfir frá þvi Berlinar-
múrinn var reistur i ágúst 1961,
er nú orðin rúmlega 155 þúsund.
Þar af þurftu 33.973 flóttamann-
anna að leggja sig i mikla lifs-
hættu á flóttanum meö þvi að
fara yfir sprengjusvæði og
aörar hættulegar hindranir.
Flestir hinna komust til
einhvers Austur-Evrópulands,
og siöan þaðan aftur til landa
vestan hins svokallaða Ja'rn-
tjalds. Frá þvi múrinn var
reistur, hafa 164 látið lifið, er
þeir reyndu að komast vestur
yfir. Þar af dóu 69, er þeir
reyndu að komast yfir sjálfan
Berlinarmúrinn en 95 á leið yfir
til Vestur-Þýzkalands eftir
öörum leiðum.
□ B □ D □ D
Óvenjuleg
skíðakeppni
Yfir 20 skiðamenn i Munchen
tóku um daginn þátt i óvenju-
legri skiðakeppni. Ahorfendur
voru heilmargir, og ekki var
þeim kalt, eins og oft vill verða
á skiðamótum, þvi að þetta mót
fór fram um hásumar. Keppnin
fór fram á ánni Isar, og skiðin,
sem notuð voru, voru hol að inn-
an og gerð úr plasti. Þau voru
um það bil 2 metrar að lengd og
höfðu mikið flotþol, en samt
vógu þau um 7 kg.
Helmut Langer, 34 ára skiða-
kappi, sagði þetta vera miklu
erfiöara en fara á venjulegum
skiðum i snjó. Leiðin, sem þeim
var gert að fara, var 2 kilómetr-
ar, og fjórum sinnum féll hann i
ána, en komst samt á skiðin aft-
ur og lauk ferðinni á sæmilegum
tlma. Þátttakendurnir telja
þetta vera ágætis æfingu fyrir
sklöamótin að vetri til, að geta
farið slikar æfingar á vatnsskið-
um á sumrin, og segjast búast
við, að þetta verði tekið upp i á-
ætlun um þjálfun skiðamanna i
Þýzkalandi.