Tíminn - 06.10.1974, Side 13
Sunnudagur 6. október 1974.
TÍMINN
13
Eftir nokkurra ára hlé, tekur SUNNA upp Kanarieyjaferöir að nýju.
Aö þessu sinni hefur eyjan Grand Canary orðið fyrir valinu, en hún er
einn vinsælasti vetrarorlofsstaður Evrðpubúa. Sunna hefur gert
samninga við mjög göð hótel og fbúöir á hinni vinsælu suðurströnd
Grand Canary, Playa del Ingles, jjar sem loftslag og hitastig er hið
ákjósanlegasta yfir vetrarmánuðina, þegar skammdegið og rysjótt
veðrátta er sem mest hjá okkur. Hægt er að velja um fbúðir með
morgunmat eða hálfu fæði, smáhús,,bungalows” með morgunmat og
hótel með morgunmat eða hálfu fæði. Einnig bjóðum við uppá góðar
ibúðír og hótel i höfuðborginni, Las Palmas. Þar er mikið um
skemmtanalif og verslanir. Við viljum benda meðlimum launþega-
samtaka á, að þeir fá sérstakan afslátt i öllum okkar ferðum til
Kanarieyja. Flogið verður með úthafsþotum án millilendingar á
laugardögum og er f lugtiminn um fimm og hálf klukkustund.
BROTTFARARDAGAR: 23. nóvember (3 vikur), 14. desember
(fullbókað), 21. desember (fullbókað), 28. desember (örfá sæti laus),
11. janúar, 25. janúar, 8. febrúar, 22. febrúar, 8. mars, 22. mars, 5.
april.
Hvergi betri hótel og ibúöir. Hvergi betri ferðakjör. Verulegur
afsláttur fyrir hópa, 20 manns eða fleiri.
VIUKXI
ÞAÐ ER I
SE/trt ÚRVALIÐ ER
Veljið vegg
fóðrið og
málning
una á
SAMA
STAÐ
Gunnar Sveinsson skjalavöröur skoöar skoöar skrá um skjölin, sem Dagfinn Mannsaker, rikisskjala-
vörður Norömanna afhenti Þjóöskjalasafni. — Timamynd Róbert.
Skjölin komin heim
— ríkisskjalavörður Norðmanna kom færandi hendi
Á föstudaginn kom norski rikis-
skjalavöröurinn, dr. Dagfinn
Mannsáker, I heimsókn I Þjóð-
skjaiasafn islands og afhenti
skjalagögn varöandi isiand.
Skjölin hafa fram til þessa veriö
varöveitt I norska rikisskjala-
safninu, en ákveöiö var með
konungsúrskurði 14. júni þessa
árs aö færa islendingum þau.
Eðlilegt þótti aö framkvæma
þetta á þjóöhátlðarárinu 1974.
Skjöl þessi komu upphaflega til
Noregs frá Danmörku Á árunum
eftir 1814 var mikið af skjala-
göngum um norsk málefni afhent
úr skjalasöfnum stjórnarskrif-
stofanna i Kaupmannahöfn. En af
þvi að sumar skrifstofurnar
önnuðust bæði Islenzk og norsk
málefni, slæddist með allmikið af
Nýr lögreglubíll
til Ólafsfjarðar
BH—BStef. — Olafsfirði: — i gær
var fréttamönnum útvarps og
biaða, auk bæjarstjóra og héraös-
iæknis, boöiö aö sjá nýjan lög-
reglu- og sjúkrabil, sem veriö var
aö taka i notkun hér á ólafsfirði.
Þetta er traust og vönduö bifreiö,
af Chevrolet-gerö, árgerö 1974,
klædd innan meö skinnliki og sæti
meðfram hliöum bólstruö. Kostn-
aður viö bifreiöina er um 1,5
milljónir króna. Bifreiöaverk-
stæöiö Múlatindur sá um allar
innréttingar, en smiöir voru þeir
Guöni Aðalsteinsson og Jón
Sigursteinsson
Rikið er eigandi bifreiðarinnar.
Flest hjálpartæki I sambandi við
sjúkraflutninga vantar enn I bif-
reiðina. Þó eru fengnar sjúkra-
börur og mjög vönduð sjúkra-
karfa, sem hagræða má með einu
handtaki, eins og bezt á við þann
sjúka hverju sinni.
Er menn höfðu skoðað bif-
reiðina, bauð Stefán Einarsson
yfirlögregluþjónn, öllum við-
stöddum i stutta ökuferð I nýju
bifreiðinni. Ekið var út að Flagi I
Ólafsfjarðarmúla, og siðan til
baka. Rómuðu allir styrkleika og
hraðahæfni bifreiðarinnar.
Þegar komið var út úr bif-
reiðinni, óskaði Asgrimur Hart
mannsson bæjarstjóri Stefáni
yfirlögregluþjóni til hamingju.
með nýju bifreiðina, og kvaöst
vonast til, að hún mætti reynast
okkur Ólafsfirðingum vel i þeim
verkefnum, sem henni væri ætlað
að leysa af hendi
skjölum, er snertu island. Siðar
hafa skjöl þessi verið skilin frá
hinum við skráningu og varðveitt
sér i lagi. Þau ná yfir 0,2 hillu-
metra og rúmast i tveimur
skjalaöskjum.
Elzta skjalið er jarðabók frá
1597 um konungseignir á íslandi
með viðauka um eignir biskups-
stólanna á Hólum og I Skálholti
ásamt upplýsingum um tekjur
sóknarprestanna. Annars eru
skjölin frá tlmabilinu 1660-1814 og
fjalla um ýmis svið þjóðllfs,
verzlunar og umboðsstjórnar og
þá þau mál, sem stjórnvöldin
skyldu skera úr um. Hér er
brugðið upp myndum úr hvers-
dagslifi þjóðarinnar: Leiguliði
kvartar undan landsdrottni
sinum og annar biður um að vera
leystur undan landskuldar-
greiðslu, af þvl að snjóflóð hafi
fallið á bæ hans. Barnlaus hjón
sækja um að fá erfðaskrár sam-
þykktar. Presturinn á Þing-
völlum heldur þvi fram, að menn
og hestar eyðileggi kúahaga sina,
og lögmaður og prestur deila um
rétt til hvalreka. En hér eru
einnig mál, sem snerta
mikilvægari atriði Islands-
sögúnnar.
Allt fram á 18. öld var það
venja, að sýslumenn stingju
sjálfir upp á eftirmönnum
sinum. Frá dómsmálasviðinu
má geta náðunarumsókna frá
dómfelldu fólki. Þar er einkan-
lega um að ræða fólk, sem dæmt
hefur verið til dauða eöa annarra
strangra refsinga fyrir
hjúskaparbrot og annað þess
háttar. Hér er svo að sjá sem
konungur hafi alloft og smám
saman meir og meir mildað þá
hegningu, sem lögin sögðu fyrir
um.
Frá sjónarmiði Dana var efling
atvinnuhátta á Islandi með
hagnaðarvon fyrir augum lengi
mikið atriði. I skjölunum kemur
þetta i ljós i fyrirætlunum um
brennisteinsvinnslu og kornrækt,
en aðallega i bréfaskiptum við
nokkra Hafnarkaupmenn, sem
verzluðu á Islandi. Til eru
umsóknir kaupmanna, sem höfðu
misst skip sin i hauststormum,
um lækkun á leigugjöldum fyrir
hafnirnar ásamt vottorðum
starfsbræðra þeirra um, að illt
væri i efni. Frá siðasta áratugi 18.
aldar, þegar stjórninni var orðin
ljós nauðsyn þess að tryggja
nægilega flutninga til íslands, eru
til nákvæmar skrár um vöru-
birgðir á hverri höfn. Um sama
leyti fer að brydda á hugmyndum
um frjálsa verzlun.
Veggfóður- og mólningadeild
Ármúla 38 - Reykjavik
Símar 8-54-66 & 8-54-71
Opið til 10 á föstudagskvöldum
og hádegis á laugardögum
Lögtaksúrskurður
Samkvæmt beiðni sveitarstjóra Suður-
fjarðarhrepps hefur hinn 27. þ.m. verið
kveðinn upp lögtaksúrskurður fyrir gjald-
föllnum, en ógreiddum, útsvörum og
aðstöðugjöldum i Suðurfjarðarhreppi
1974.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum,
ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, mega
fara fram að liðnum 8 dögum frá birtingu
þessa úrskurðar, hafi skil ekki verið gerð
fyrir þann tima.
Sýslumaðurinn i Barðastrandarsýslu
30. september 1974.
Jóhannes Árnason.