Tíminn - 06.10.1974, Blaðsíða 26
„VIÐ HÖFUM UNDIR-
BÚIÐ ÞETTA EINVÍGI í
RÚMLEGA 2 MÁNUÐI"
FYRRI hluta ísknattleiks-
keppninnar milli Sovét-
ríkjanna og Kanada, sem
nýlokið er í Vancouver,
lauk með jafntefli 5:5.
Keppinautarnir reyndust
jafnir í einu og öllu. Stigin
voru jafnmörg (4) og liðin
töpuðu af jafnmörgum
tækifærum (17).
Eftir leikina i Vancouver sagði
Will Harris, þjálfari kanadiska
liðsins:
„Viö höfum undirbúið okkur
fyrir þetta einvigi i rúmlega 2
mánuði. Nú gætu jafnvel Phil
Espozito og Bobby Orr ekki bætt
liðið „Kanada-74”. 1 Moskvu
reynum viö að leika betur heldur
en heima.”
Bofis Kúlagin, þjálfari sóvézka
landsliðsins sagði, að leikirnir i
Kanada hefðu haft á sér herskáan
blæ, verið skemmtilegir og vakið
þá von, að keppnin i Moskvu yrði
einnig spennandi.
Bæði nú og árið 1972 sýndi
sovézka landsliðið, aö það gefur
atvinnuliöum ekkert eftir, hvað
snertir leikni og sigurhæfni. Það
mætti segja, að sigurmöguleikar
sovézka liðsins séu raunveru-
legri, þar sem það leikur fjóra
siðari leikina á heimavelli.
En loforöið, sem Will Harris gaf
um að leikur kanadiska liðsins
yrði betri i Moskvu er ekki út i
bláinn.
1 fyrsta lagi gerðu Kandamenn
„kraftaverk” fyrir tveim árum
siðan i Moskvu, er þeir sigruðu
með 3:1 og tryggðu sér góðan
árangur i keppninni.
1 öðru lagi verður leikur
Kanadamanna betri með hverri
keppni, eins oe fvrir tveim árum.
og það gefur Will Harris ástæðu
til aö biða eftir nýju „krafta-
verki” frá liöinu sinu.
Og I þriöja og siðasta lagi vitum
við, að Kanadamenn og þá ekki
aðeins atvinnumenn kunna að
berjast i úrslitakeppni, þegar allt
er komið undir siðustu kröftun-
um, undir siðustu sprengjunni I
leiknum. Þá sleppa þeir engu
tækifæri.
Sem sagt möguleikar Kanada-
manna I Moskvu eru alls ekki
minni en heimamanna.
Vafalaust mun lið Will Harris
njóta bæði hinnar mestu athygli
og gestrisni áhorfenda og þeirra,
sem skipuleggja keppnina i
Moskvu. 1 fjórum leikjum hefur
liðinu tekizt að ná vinsældum
meðal sovézkra isknattleiksunn-
enda. Fyrir keppnina i ár
heyrðust raddir meðal íþrótta-
unnenda i Moskvu um, að
„Kanda-74” væri varla eins
sterkt og „Kanada-72”. En þegar
eftir fyrstu leikina i Vancouver
hurfu allar efasemdir út I veður
og vind. Og lokaleikurinn i
Vancouver reyndist raun-
verulegur sigur ekki bara fyrir
einstaka leikmenn kanadiska
liðsins, heldur fyrir allt liöið i
heild.
Sé árangur, sem sovézka liðið
náði i „landi isknattleiksins” er
ekki aðeins vitnisburður um styrk
landsliðsins 1974, heldur einnig
staðfesting á eiginleikum sovézka
hokkeysins. Það er ekki hægt
annað en minnast á það i þessu
sambandi, að stokkað hefur verið
upp i sovézka liðinu miðað við
áriö 1972. Vjatseslav Starshikov,
Evgeni Mishakov, Vladimir
Vikulov, Alexander Ragulin,
Viktor Kúsjkin og fleiri stjörnur
hafa farið úr liðinu, en það kemur
ekki fram I almennum leik þess,
sem er mjög hraður, samræmdur
og gæddur mikilli tækni og valdi
yfir skifunni.
Þetta eru helztu niðurstöð-
urnar, sem draga má af þeim
leikjum, sem þegar eru að baki.
Ég er viss um, að þeir leikir, sem
leiknir verða I Moskvu gefa enga
ástæðu til að efast um réttmæti
þessarar niðurstöðu.
Hvernig sem keppnin fer 1
Moskvu, munu bæði liðin hafa
gagn af henni. Will Harris sagöi
meðan á leikjunum stóð i
Kanada, að sovézkur isknatt-
leikur hefði tekið geysimiklum
framförum á undanförnum tiu
árum og hvatti landa sina til að
læra af reynslu Sovétmanna. En
ég held, að sovézku leikmennirnir
horfi ekki siður á kosti kanadiska
isknattleiksins, þar sem þeir geta
haft mikið gagn af því.
Höfum til sölu tvo
MALARPALLA
með enda- og hliðarsturtum. Smiðaðir úr
sérstöku pallastáli. Sjálfvirkar lokur.
Stærð 4340x2280x812 mm.
Rúmmál 8 rúmmetrar.
Hagstætt verð og greiðsluskilmálar.
TEKKNESKA
BIFREIÐAUMBOÐIÐ
=■“ A ISLANDI H.F.
AUÐBREKKU 44-66 SiMI 42600 KÓPAVOGI
AUGLYSIÐ I TIMANUM
Ummæli Will Harris, þjálfara kanadíska
ísknattleiksliðsins, sem keppir í AAoskvu
þessa dagana