Tíminn - 20.10.1974, Qupperneq 3

Tíminn - 20.10.1974, Qupperneq 3
Sannndagur. 2«. rtMfctr. 1>74 ItMINN 3 Eftir nokkurra ára hlé, tekur SUNNA upp Kanarieyjaferðir að nýju. Aðþessusinnihefur eyjan Grand Canary orðið fyrir valinu, en hún er einn vinsælasti vetrarorlofsstaður Evrópubúa. Sunna hefur gert samninga við mjög göð hótel og ibúðir á hinni vinsælu suöurströnd Grand Canary, Playa del Ingles, þar sem loftslag og hitastig er hiö ákjósanlegasta yfir vetrarmánuðina, þegar skammdegið og rysjótt veðrátta er sem mest hjá okkur. Hægt er að velja um ibúðir með morgunmat eða hálfu fæði, smáhús„bungak>ws" meö morgunmat og hótel með morgunmat eða hálfu fæði. Einnig bjóðum viö uppá góðar ibúðir og hótel i höfuðborginni, Las Palmas. Þar er mikið um skemmtanalif og verslanir. Við viljum benda meðlimum launþega- samtaka á, aö þeir fá sérstakan afslátt i öllum okkar ferðum til Kanarieyja. Flogið verður með úthafsþotum án millilendingar á laugardögum og er flugllminn um fimm og hálf klukkustund. BROTTFARARDAGAR: 23. nóvember (3 vikur), 14. desember (fullbókað), 21. desember (fullbókað), 28. desember (örfá sæti laus), 11. janúar, 25. janúar, 8. febrúar, 22. febrúar, 8. mars, 22. mars, 5. april. Hvergi betri hótel og ibúðir. Hvergi betri ferðakjör. Verulegur afsláttur fyrir hópa, 20 manns eða fleiri. Móses ólsen, fyrrverandi þjóAþingsmaður, er einn þeirra seat standa að hinum nýja vinstriflokki á Grænlandi. Átök hægri og vinstri stefnu á Grænlandi eru langdrœg og örugg STJÓRNMALAFLOKKAR hafa verið að myndast i Grænlandi á siðustu misserum, og þegar kostð verður næst til danska þjóðþings- ins, mun f fyrsta skipti i sögu Grænlands verða háð kosninga- barátta, sem snýst um hægri- stefnu og vinstristefnu I þjóð- málum. Nikolaj Rosing þjóðþingsmaður hefur fyrir alllöngu skýrt frá þvi, að hann muni bjóða sig fram ásamt Knud Hartling, fyrrver- andi þjóðþingsmanni, Ottó Steenholt, sem á sæti i lands- ráðinu grænlenzka. Þá hefur Móses Olsen, fyrr- verandi þjóðþingsmaður, til- kynnt, að hann sé að stofna vinstriflokk, ásamt Jónatan Motzfeld, varaformanni lands- ráðsins, og Lars Emil Johansen þjóðþingsmanni. Hugmynd þeirra er, að Móses og Lars Emil Johansen verði i framboði og með þeim á lista verði ein kona, liklega Agnet Nielsen, bæjar- stjórnarforseti í Narssak, og Niels Carlo Heilmann, formaður grænlenzka fiskimannasam- bandsins. Móses Olsen og fylgismenn hans telja sig þá, sem koma skulu f Grænlandi, en bera hinum á brýn, að þeir séu fulltrúar hverfandi viðhorfa, mótaðir af áhrifum dansks embættismanna- valds, Þess er beðið af nokkurri for- vitni, að i ljós komi, hvernig straumar liggja á Grænlandi. í leit að áfengi Gsal—Rvik — i fyrrakvöld var brotizt inn i hús i Kleppsholti. tbúar hússins höfðu brugðið sér út og láðst að ioka gluggum í kjall- ara. Hafði þjófurinn eða þjófarnir skriðið inn um glugga og þannig komizt inn i kjallaraibúðina. Rótað var til i Ibúðinni, að þvi er virtist I leit að áfengi. Þegar ekkert var þar að fá, voru tvær hurðarlæsingar brotnar upp til þess að komast upp á hæðina fyrir ofan. Við rannsókn innbrotsins söknuðu húsráðendur einungis áfengis. Þeim tilmælum er aldrei of oft beint til húseigenda, að þeir gæti þess að skilja ekki svo við Ibúðir sinar, að gluggar .standi opnir. Þjófar þurfa ekki langan tima til að athafna sig, og þvi er nauðsynlegt að loka hurðum og gluggum vel, hvort sem Ibúðin er mannlaus skamma stund eða um lengri tima. í þessu tilviki voru húsráðendur að heiman I rúman klukkutlma. KR. CAR 100 — 5100 CAR 200 — 6995 CAR 300 — 8990 Skípholti 18 * Sími 23-800 Brekkugötu 9 * Sími 2-16-30 REYKJAVÍK Islenzkur listamaður í heimsókn: Sýnir grjótmyndir sínar í fyrsta sinn hérlend is — myndir hans hafa vakið mikla athygli í Astralíu þar sem hann er búsettur Gsal—Reykjavik — A laugar- daginn verður opnuð allsérstök listsýning i húsgagnaverzluninni Heimilið h.f. að Sogavegi 188. Hér er um að ræða sýningu á grjót- myndum eftir Þorstein Kristins- son Listamaðurinn hefur búið I Astraliu undanfarin ár og haldið þar fjölmargar sýningar. Ef marka má úrklippur úr dag- blöðum, hafa sýningar Þorsteins vakið verulega athygli og nokkurt umtal, en efnið i myndir sinar fann Þorsteinn i Tasmaniu, og eru steinarnir taldir vera 5-7 hundruð milljóna ára. Sýning Þorsteins i húsgagna- verzluninni Heimilið h.f. er fyrsta sýning hans hér á landi, og þetta getur jafnvel orðið eina skiptið, sem íslendingum gefst kostur á að sjá þessar sérkennilegu steinamyndir hér á landi. Sýningin verður opnuð á laugardaginn klukkan 2. TUnInner penlngar Augjýsicf iXlmanum CR0WN -bílaviðtœkin Verð er sem hér segir: ÁLFNAÐ ER VERK ÞÁ HAFIÐ ER ^ SAMVINNUBANKINN

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.