Tíminn - 20.10.1974, Blaðsíða 16

Tíminn - 20.10.1974, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Sunnudagur. 20. október. 1974 0 • ABENRA er miöstöð stjórn- sýslu I Suður-Jótlandi. Þar eru menn hreyknir af fortíð bæjar sins, og elzti hluti hans ber enn smáborgarlegan yndisþokka sinn. Þar eru götur, sem nota mætti án nokkurra breytinga sem leiksvið, er kvikmynda ætti Kardimommubæinn. Við einar dyrnar er minningar- tafla: „Hér bjó jómfrú Fann- ey”. Viö sögu þeirrar jómfrúr stöldrum við seinna. Ábenrá er gamall sjó- mannabær og þar er ágæt höfn. Fyrsta danska skútan, sem komst fyrir Góðrarvonar- höfða, var úr þessum bæ. Og þjóðsagan hermir, að einmitt hér hafi danski fáninn fyrst komið við sögu á danskri grund árið 1219. Konungurinn hafði brugðið sér suður á bóg- inn og barið þar á Vindum, og þegar verst horfði i orrust- unni, kom fáninn af himnum ofan. Dönsku sjómennirnir voru ákaflega hreyknir af himinbornum fána sínum. Þegar suður-józkar skútur lágu i kinverskum höfnum ár- ið 1864, komu boð um að draga niður fánann. Þá gengu skip- verjar i land. Hver einasti maður. 1 bæjarsafninu I Abenrá eru varðveittar margar minjar frá þeim timum, er sigling- arnar voru snarastur þáttur i lifi bæjarbúa. Þar á meðal er mikið safn flöskuskipa og ann- aö fleira af þvi tagi, er sannar, að mörgum hefur orðið stund- in löng á siglingum um heims- höfin. í innsigli bæjarins, sem er frá árinu 1450, ber mest á þrem makrilum. Og það hefur löngum veriö góð makrilveiöi i firðinum, ekki sizt á fyrri öld- um. Sagnir eru meira aö segja um það, að vinnukonurnar hjá bubbunum i Ábenrá hafi þver- neitað aö leggja sér makril til munns oftar en þrisvar i viku. ; En sé innsigli bæjarins skoðaö 1 gaumgæfilega, eykst samúð í manna meö þessum löngu / dauðu vinnukonum. Þessi fall- J egi, hraðsyndi og spengilegi fiskur er þar heldur óhrjáleg- ur, svo að manni dettur helzt I hug, að fyrirmyndin hafi veriö búin að liggja einn daginn eða tvo I varpanum hjá bátseig- andanum. 1 bæjarsafninu rekst maður aftur á nafn jómfrú Fanneyj- ar. Þar eru fallegir dúkar, sem hún hefur saumað, svo að jómfrúin hefur veriö hög á hendur. Þar er lika pyngja úr skinni, er hún hefur átt, svo að eitthvað hefur hún borið úr býtum. A þessari pyngju er ártalið 1843, og auk þess orðið Augsburg og fagurlega dregn- ir upphafsstafir Kristjáns átt- unda. Þessi pyngja hefur auö- sjáanlega átt að vera kon- ungsverölaunin i veðhlaupun- um það árið: „lstes Pferde 400 spec.”, stendur þar einnig. Jómfrúin hefur fengið peninga frá Kaupmannahöfn I þessari i pyngju — framlag frá hiröinni J sér til lifsviðurværis. 1 Kirkjugarðar eru þöglir, og L þó á þessum slóðum talandi barnið varö að senda brott og hylja þannig öll spor, að hneyksliö kæmist ekki á vitorð fólksins. Þegnarnir máttu með engu móti hafa nasasjón af þvi, hvernig þau Kristján og Karlotta höfðu hagað sér suður I höllinni I Mecklenburg. Þannig eiga Watergate- hneyksli og CIA-mál sina undanfara. Kristján Friðrik var látinn ganga að eiga Karlottu Friðrikku árið 1806. Hjóna- bandiö var skammvinnt og gleðivana, og það rann út i sandinn er drottningin fór að halla sér fullfast að franska söngkennaranum sinum. Þrátt fyrir margitrekaðar tilraunir gat hún aldrei fengið neina vitneskju um, hvað gert hafði verið af frumburði hennar. Kristján Friðrik geispaði golunni árið 1848, þegar ein- veldið var að hrynja fyrir, vindsveipum nýs aldaranda, og meðan hann lifði fékk i jómfrú Fanney og fóstra hennar lifeyri frá Kaup- mannahöfn með fullum skilum. En þessum fram- lögum var hætt, er konungurinn var fallinn frá. Eftir það naut hún aðeins stuðnings frá fáeinum vinum sinum. Annars þvoði hún „franskan þvott” sér til viður- væris. „Franskur” varð hann að vera, svo að verkið væri henni samboðið. Enn hefur verið getið um einn þátt I sögu jómfrú Fanneyjar, sem mjög jók umtal fólks um hana. Á þritugsaldri veiktist hún, bæði á sál og likama, og þegar hún komst loks á fætur aftur eftir langa legu, var hún oröin skyggn. Hún ,,sá” óoröna atburði og sagði fyrir margvisleg stórtiðindi, þar á meðal báðar styrjaldir Þjóð- verja og Dana á nitjándu öld og úrslit þeirra. Hún spáði þvi einnig, að stórstyrjöld yrði að sér látinni nokkru eftir alda- mótin. Þegar heimsstyrjöldin seinni dundi yfir og nazistar hernámu Danmörku, var enn fariö að grennslast fyrir um það, hvað hún kynni að hafa sagt um þá heljarslóðar- orrustu. Suður-Jótar voru enn reiðubúnir til þess að trúa öllu eins og nýju neti, er hún kynni 1 að hafa látið sér um munn fara, og þýzku hernáms- foringjunum stóð slikur stuggur af þessu, að þeir lögöu hald og bönnuðu litinn bæk- ling, er einhver hafði samið um jómfrú Fanneyju. Þetta bann var lagt á þegar árið 1940, þegar fariö var aö saxast á sjöundu útgáfuna. Leifar upplagsins, þrjú þúsund eintök, hurfu að mestu leyti. Þeim var dreift manna á meðal á laun, og kallaðist kverið þá á dulmáli handbók um kaninueldi. Og enn stendur litla húsiö við Persiljugötu til vitnis- buröar um suöur-józkt lang- minni og ræktarsemi við sérkennileg örlög og undar- lega duttlunga mannlifsins. Kristján 8. tákn um þaö, hvað yfir Suður- Jótland hefur gengið i langri og umhleypingasamri sögu þess. I kirkjugarðinum i Abenra eru minnismerki á leiðum fjölda soldáta, sem féllu i tveim styrjöldum Dana og Þjóðverja á fyrri öld. Þar eru griðarstórir reitir, sem geyma bein hermanna, sem offrað var i heimsstyrjöldinni fyrri — kraðak danskra og þýskra nafna, sem þó verða ekki dregnar af neinar álykt- anir um hugarfar og raun- verulegt þjóðerni þeirra, sem fengu leg. Hópur enskra og ameriskra flugmanna hvilir undir marmarasúlum en á fjöldagröf frá árinu ’45 er að- eins minningartafla, sem seg- ir, að þar hafi verið jarðaðir 246 flóttamenn og tveir þýskir hermenn. Farsóttir, hungur og örvænting hafa höggvið mikil skörö I raöir flóttafólks- ins þarna suður frá. 1 mis- kunnarlausum styrjöldum er litið svigrúm fyrir viðkvæmni. Þá er dauðinn stóriðja. Minnismerki og áletranir lúta lögmálum tizkunnar eins og annað. Iburðarmiklar og fyrirferðarmiklar súlur hrósa hetjudauða I fjarlægum Austurlöndum I þágu stærra Þýzkalands. En svo hefur smám saman orðið gengisfall á hetjudauða innan múra kirkjugarðsins, unz til sögunn- ar kom ný kynslóð, sem óx upp undir hakakrossi, til þess að punta upp á skreytingar yfir beinum vigahrappanna. I þessum sama kirkjugarði sést nafn jómfrú Fanneyjar I þriðja sinn. Legsteinninn er ekki Iburðarmikill, og á hann er letrað: Hver var eiginlega jómfrú Fanney? Þetta er dularfuil kona, og spurningunni verður ekki svarað með fullri vissu. Sú saga, sem lifað hefur ber öll rómantiskustu einkenni ungmeyjaskáldsögu frá ni- tjándu öld. Fæðingarár Fanneyjar er rækilega skrifað I kirkjubók- ina, þar sem það hefur verið letrað, er hún var skirð 19. september 1805. Skirnarvott- arnir voru kammerjúnkara- frúin Franziska von Qualen og jómfrú Elisa Heise, en guðfað- ir kammerjúkarinn Friedrich Karl Ferdinand von Qualen. Fullu nafni var telpan skirð Franziska Karólina Elisa Enger og aftan við nafn henn- ar hefur verið bætt: „Óekta barn Kristinar Heise frá Mecklenburg, sem eftir sögn móðurinnar Elvers I Ribnitz- amti i Mecklemburg þungaö- ist af völdum Friðriks Engers ráðsmanns”. Kirkjubókin lýgur samt, og - það er einmitt svo oft gallinn við kirkjubækur, að sá sem á pennanum heldur, er siðsamur um skör fram. Það er ekki ótitt, að þær kasti sökinni á ráðsmenn. Satt er það aftur á móti, að konunglegur póstvagn, fereyki, sveigöi inn á Hallar- götuna i Ábenrá siðla á septemberkvöldi áriö 1805. Út úr vagninum steig ung og skartklædd kona með kornbarn i fangi, vel dúðað. Nokkrum dögum siðar fauk plagg af barninu inn I garö grannans. Það var skreytt könúngtegum upphafsstöfum. Þar með hafði fólkið i Kardimommubænum fengið umtalsefni, sem ekki var ónýtt. Það var meira að segja svo haldgott, að það entist þvi mestalla nitjándu öldina. Hin skráða móðir Fanneyjar, Kristin Heise, var meö öðrum orðum barnfóstra, sem tekið hafði að sér móður- hlutverkið gegn fyrirheiti um lifeyri til æviloka. Hún skyldi aðeins þegja um raunverulega foreldra barnsins. Það loforö efndi hún. Tengt sögunni um jómfrú Fanneyju er skrin eitt meö traustum lási, sem „móöirin” ein gat lokið upp. Eitt sinn veiktist Kristin Heise og óttaðist um lif sitt. Þá skipaði hún barninu aö sækja skriniö og færa sér það. Hún lauk þvi upp titrandi höndum, tók úr þvi pergamentrollu meö mörgum innsiglum og skipaði Fanney að bera hana að loganum á kertinu, sem brann við sjúkrabeöinn. Eldurinn læsti sig i pergamentiö og brenndi það. Þá fyrst hallaði sjúklingurinn sér aftur á koddann. „Guði sé lof”, sagði hún — nú getur enginn komizt að þvi, hverjir voru foreldrar þinir”. En brunnar leifar perga- mentrollunnar geymdi jómfrú Fanney til æviloka. Þær fundust að henni látinni, en voru svo illa leiknar, að enginn gat ráðið i, hvað þar hafði staöiö. Hverjir voru þá foreldrar jómfrú Fanneyjar? Sagn- fræðingar segja litinn vafa leika á þvi, aö jómfrúin hafi verið dóttir prinsins Kristjáns Friðriks, siðar Kristjáns áttunda Danakonungs, og fyrri drottningar hans, Kar- lottu Friðrikku af Mecklen- burg-Schwerin. Atján ára gamall fór Kristján með föður sinum, Friðriki erfðaprins, til Mecklenburg, og þar kynntist hann frænku sinni, Karlottu Friörikku, sem var nokkrum misserum eldri. Aflakstur þeirra kynna varð sá, að hin tigna mær varð ólétt, á alþýðumáli sagt. Þetta barst til eyrna konungsins Friðriks sjötta, og varð honum ekki flökurt, eins og Þorsteinn Erlingsson ætlaði, ef hann hefði séð hinn hundflata skrælingjalýð Islands að Jörundi hunda- dagakonungi föllnum, heldur trylltist hann. Kristján Friörik var væntanlegur konungur, og Friörik sjötti mátti ækki til þess hugsa, að fyrirhuguð drottning Danmerkur stæði fyrir altarinu meö keisina út i loftið. Það varð að fresta áformaðri hjónavigslu, og FANNEY ENGER, fædd 31. ág. 1805, dáin 27. marz 1881. Hviliherrans friði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.