Tíminn - 20.10.1974, Síða 19

Tíminn - 20.10.1974, Síða 19
Sunnudagur. 20. október. 1974 ÉWf Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm). Jón Helgason. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur f Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300—18306. Skrifstof- ur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug- lýsingasfmi 19523. . Verð f lausasölu kr. 35.00. Askriftargjald kr. 600.00 á mánuði. Blaðaprent h.f. Villandi tölur Eitt af blöðum stjórnarandstöðunnar birti ný- lega útreikninga á þá leið, að 1800 milljónum króna minna sé til skipta hjá sjómönnum vegna bráðabirgðalaga, sem rikisstjórnin hefur sett. Tilgangurinn með þessum útreikningum er ber- sýnilega sá, að ýta undir kaupkröfur hjá sjómönnum. Hér skal ekki rætt um það, hvernig þessi tala er tilkomin, en hún veitir tilefni til að varpa fram spurningu, sem ástæða er til að menn velti fyrir sér. Spurningin er þessi: Hvað miklu minna væri til skiptanna, ef umrædd bráða- birgðalög hefðu ekki verið sett? Þá hefði af- leiðingin orðin sú, að fjöldi skipa hefði stöðvazt, og hjá mörgum sjómönnum væri þá ekki aðeins minna til skiptanna, heldur væri þá blátt áfram ekkert til skiptanna, þvi að skipin hefðu legið i höfn og ekkert aðhafzt. Ef menn athuga þetta mál til hlitar, kemur það i ljós, að vegna bráðabirgða- laganna verður miklu meira til skipta en ella, þvi að þau tryggja rekstur margra skipa, sem annars hefðu stöðvazt. 1 sama blaði er það einnig upplýst, að opinberir starfsmenn verði fyrir allt að 39.2% launalækkun af völdum efnahagsaðgerða, sem stjórnvöld hafa gert á þessu ári. Það leynir sér ekki hver er tilgangurinn með þessum tölum. En væri ekki ástæða til þess, að menn reyndu að gera sér grein fyrir, hvernig efnahagsástandið væri, ef laun væru um 39% hærri en þau eru nú. Þá myndi allt atvinnulif vera i rústum, þvi að ekkert fyrirtæki myndi geta risið undir slikri hækkun. Og þá yrði launalækkun ekki nein 39%, heldur myndu flestir ekki fá nein laun. Það er vafalitið hægt að beita ýmsum talna- leikjum til að sýna fram á, að svo og svo mikil kjaraskerðing hafi átt sér stað. Staðreyndin er samt sú, að Islendingar búa nú við betri lifskjör en flestar þjóðir aðrar og að kjör þeirra hafa raunar aldrei verið betri en nú. Það, sem menn hafa nú einfaldlega um að velja, er að reyna að tryggja þessi kjör áfram eða að efna til kaup- deilna, sem gætu leitt til kjarabóta á pappirnum, en myndi i reynd ekki verða til annars en að draga úr atvinnurekstrinum og auka verðbólg- una. Þegar þetta er borið saman, ætti valið ekki að verða erfitt. Allar þjóðir eiga nú I erfiðri viðureign við verð- bólguna. Yfirleitt er viðurkennt, að hún sé háski, sem þurfi að forðast, en hins vegar gengur verr að fá menn til að taka þátt i ráðstöfunum gegn henni. Þá koma fljótt til sögunnar útreikningar um svo og svo mikla kjaraskerðingu af völdum slikra aðgerða. Einkum reyna ábyrgðarlitlir stjórnarandstæðingar að fiska i sliku vatni. Hér á landi verða menn að horfast i augu við þá staðreynd, að margvislegir erfiðleikar steðja nú að þeim atvinnuveginum, sem dregur drýgstan hlut i þjóðarbúið, sjávarútveginum. Það verður að vona, að þar sé aðeins um bráðabirgðaerfið- leika að ræða, þótt ekki verði neitt fullyrt um það. Meðan svo er ástatt, verður þjóðin að sýna skiln- ing og nokkra þolinmæði. Það ætti lika að vera búið að lærast af reynslunni, að aukin verðbólga er a.m.k. launastéttunum ekki neinn gróði, heldur hið gagnstæða. — Þ.Þ. TÍMINN 19 ERLENT YFIRLIT Verður Dani kjörinn Bandaríkjaforseti Vaxandi umtal um Bentsen sem forsetaefni Lloyd M. Bentsen EFTIR að Edward Kennedy dró sig í hlé sem forsetaefni demókrata við kosningarnar 1976, rikir fullkomin óvissa um, hver frambjóðandi þeirra verður. Margir koma til greina, en enginn hefur fylgi á við Kennedy eða er eins þekkt- ur og hann. Einna oftast heyr- ast nú nefndir þrir öldunga- deildarþingmenn og eiga allir það sameiginlegt að vera af norrænu bergi brotnir. Þessir menn eru Henry Jackson öldungadeildarþingmaður frá Washingtonriki, Walter F. Mondale frá Minnesota og Lloyd M. Bentsen frá Texas. Tveir þeir fyrstnefndu, sem báðir eru af norskum ættum, hafa verið taldir likleg for- setaefni um talsvert skeið, en hvorugur þó þótt verulega sigurstranglegur. Jackson nýtur nú stuðnings hægri manna I flokknum, utan Suðurrikjanna, en Mondale þykir liklegur til að fá stuðn- ing vinstri armsins eftir að Kennedy dró sig i hlé. Það er fyrst i seinni tið sem Bentsen hefur verið nefndur sem forsetaefni og hann fer ekki dult með, að hann muni gefa kost á sér, ef hann telur sig fá sæmilegan stuðning. Upphaflega var Bentsen tal- inn frekar hægri sinnaður, en hann hefur siðan hann tók sæti i öldungadeildinni, fært sig hægt og hægt yfir á miðjuna, ef svo mætti segja, og telur sig nú vera fulltrúa miðaflanna I flokknum. Margt bendir til, að Bentsen geti aflað sér veru- legs fylgis, en hann er t.d. beztur sjónvarpsmaður þeirra þremenninganna. Þótt Bent- sen sé öldungadeildarþing- maður frá Texas, hefur hann ekki hinn hefðbundna stil Texasmannsins, sem þykir minna á kúreka og frumstætt lif. Andstæðingar Bentsen hafa það m.a. I flimtingum, að hann geri sér far um, síðan hann fór að hugsa um framboð i forsetakosningunum, að minna sem minnst á Johnson forseta. Framkoma Bentsen i sjónvarpi er látlaus og róleg. Hann gerir yfirleitt vel grein fyrir máli sinu og reynir ekki að fara fram hjá þvi, sem spurt er um. Þess vegna tekst honum að vera sannfærandi og að vinna sér traust. Það spillir svo ekki fyrir honum, að hann er myndarlegur i sjón og hefur þægilegt bros, þegar hann telur það við eiga. LIOYD M. Bentsen er af dönskum ættum. Foreldrar hans fluttu til Texas fyrir um sextiu árum. Hann er nú 53 ára að aldri. Hann var i flug- hernum á stríðsárunum, og gat sér þar gott orð. Þegar hann kom heim úr striðinu, var hann nær strax kjörinn dómari i heimabyggð sinni, þá 25 ára gamall. Tveimur árum seinna náði hann kjöri sem fulltrúadeildarþingmaður og var þá yngsti maður, sem átti sæti i fulltrúadeild Banda- rikjaþings. Hann sat I full- trúadeildinni i þrjú kjörtima- bil. Þá var hann búinn að fá nóg af stjórnmálum að sinni og gaf ekki kost á sér aftur. Hann sneri sér þá að viðskipt- um og fékkst einkum við tryggingar og lánastarfsemi. Honum farnaðist svo vel á þessu sviði, að árið 1970 voru eignir hans metnar á 2.3 milljónir dollara. Þá var hann lika búinn að fá nóg af við- skiptastarfseminni og ákvað að snúa sér að stjórnmálum aftur. Ralph Yarborough, sem var i hópi frjálslyndustu þing- manna i öldungadeild Banda- rikjaþings, sótti þá um endur- kjör og var talinn sigurviss. Bentsen ákvað að bjóða sig fram gegn honum og tókst að fella hann I prófkjöri. Bentsen naut þá mikils stuðnings Johns B. Connally fyrrv. ríkis- stjóra, sem slðar gerðist fjár- málaráðherra hjá Nixon og gekk i flokk republikana. í sjálfum þingkosningunum keppti Bentsen svo við George Bush, sem siðar varð sendi- herra Bandarikjanna hjá Sameinuðu þjóðunum og er nú sendiherra Bandarikjanna i Kina. Bush þótti mjög sigur- vænlegur frambjóðandi, enda var farið að tala um hann sem forsetaefni. Bentsen tókst samt að sigra hann og þótti það allvel gert að sigra þá Yarborough og Bush á sama árinu. MEÐAL vinstrisinna hjá demókrötum aflaði það Bentsen verulegra óvinsælda, að hann varð til þess að fella Yarborough frá þingsetu. Þvi var lika haldið fram, að Bent- sen hefði beitt áróðri gegn Yarborough, sem hefði minnt á vinnuaðferðir Nixons, þegar hann var að vinna fyrstu kosningar sinar i Kalifórniu. Af þessum ástæðum komst það orð á Bentsen að hann væri mikillhægrimaður. Þetta breyttist þó fljótt eftir að Bentsen tók sæti á þingi. Þá fylgdi hann vinstri arminum oft frekar að málum en hægri armínum. Eftir að hafa farið til Vietnam, gekk hann t.d. i lið með þeim, sem vildu hætta styrjöldinni sem fyrst. Hann reyndist jafnframt góður starfskraftur i þinginu, og vann sér þvi traust Mansfields, formanns demó- krata i öldungadeildinni. Samkvæmt tillögu Mansfield var Bentsen kjörinn formaður þeirrar nefndar, sem stjórnar baráttu demókrata i sambandi við kosningarnar til öldungadeildarinnar i haust. Þetta hefur veitt Bentsen aðstöðu til mikilla ferðalaga og fundarhalda, sem hafa komið honum I kynni við forustumenn demókrata i mörgum fylkjum. Framkoma hans hefur verið með þeim hætti, að hann heyrist nú meira og meira nefndur sem eitt liklegasta forsetaefni demókrata. Bentsen hefur enn ekki lýst yfir þvl, að hann gefi kost á sér sem forsetaefni. Hann segist ætla að nota sér tlmann fram yfir áramótin til þess að kynna sér, hvernig landið liggur. Hann muni svo fljótlega eftir áramótin gera grein fyrir þvi, hvort hann gefi kost á sér eða ekki. Almennt er þvl spáð nú, aö hann muni gefa kost á sér. Margt bendir til þess að keppnin hjá demókrötum verði mjög hörð og ströng i prófkjörunum, sem byrja ekki fyrr en I marz 1976. Senni- legast þykir, að enginn vinni endanlegan sigur i þeim, eins og McGovern tókst 1972, heldur verði háð löng og ströng lokaglfma á flokksþingi demókrata, sem útnefnir for- setaefnið endanlega. Margir munu hafa heltst úr lestinni áður en flokksþingið kemur saman. Sennilega mun sá áróður geta haft talsverð áhrif, að flokkurinn þurfi að geta sýnt eitthvert nýtt andlit og frambjóðandi megi hvorki vera of langt til hægri eða vinstri, ef hann á ekki aö biða sama ósigur og McGovern 1972. Ef þetta sjónarmið verð- ur látið ráða, getur Bentsen orðið framarlega i hópi þeirra, sem taka þátt I úrslitaglim- unni. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.