Tíminn - 20.10.1974, Síða 24

Tíminn - 20.10.1974, Síða 24
24 TÍMINN Sunnudagur. 20. október. 1974 bak við kofann. Þar hímdi hann með höfuðið niðri á bringu. Hún deplaði augunum ertnislega. „Komdu inn, faðir góður! En vertu samt dálítið hressilegri, svo að drengurinn skammist sin ekki strax fyrir föður sinn." Jóhann rölti á eftir henni fyrir húshornið, en enn var honum innan brjósts eins og barni, sem á von á vondum móttökum. Hann nam staðar í ganginum og gægðist gegnum dyragáttina, áður en hann áræddi að stíga inn fyrir. „Komdu inn, maður. Það ræðst enginn á þig," sagði Beta. Loks arkaði hann að hvflunni með húfu sína í annarri hendinni. Katrín brosti ástúðlega og sýndi honum barnið. Þá breiddist gleitt og vandræðalegt bros yf ir andlit hans. En allan liðlangan daginn var hann svo hljóður, að Katrín undraðist það. Samt mælti hún ekki heldur orð f rá vörum. Hún lá aðeins grafkyrr, hvíldist eftir áraunir fæðingarhríðanna og naut hamingjunnar, sem barnið við brjóst hennar veitti henni. Ljósmóðurin og Beta kvöddu og fóru að áliðnum degi, og hjónin urðu tvö ein eftir. vorsólin skein yfir ásinn og stafaði geislum inn um gluggakytrurnar og gerði litla heimilið bjart og hlýlegt. Jóhann sat við hlóðirnar, og Katrín lá í hvílu sinni. Stundum litu þau hvort á annað, en hvorugt þeirra rauf þögnina. Það var eins og hvorugt gæti fengiðsig til þessað rjúfa þessa hátíðlegu þögn. Beta kom annað veifið næstu daga og grennslaðist eftir því, hvort þörf væri á hjálp sinni. Jóhann eldaði matinn. Katrín var steinhissa á því, hve vel honum fórst úr hendi að matreiða. Einu sinni leit hún brosandi upp frá grautardiskinum og mælti: „Þú ert svei mér góður matsveinn, Jóhann". Augu hans Ijómuðu af gleði við þessi hrósyrði. „Ég er líka vanur við mallið. Ég fór fyrst á sjó sem matsveinn. Og svo hef ég líka löngum verið minn eigin matsveinn hér heima á veturna". Katrín veitti því athygli, að angurvær blær færðist yf ir andlit hans, þótt í rauninni sæjust engin teljandi svipbrigði á þvi, og á sömu stundu fylltist hún innilegri samúð með honum. Bernska hennar hafði að minnsta kosti verið góð og áhyggjulaus, en hann veriðeinmana og fátækur allt sitt líf. „Jóhann", sagði hún biðjandi. „Segðu mér eitthvað um móður þína". „0-o....Það er ekki frá neinu að segja...Sjáðu, sjáðu: Strákurinn hennar Betu hefur náð rottu". „Seqðu mér eitthvað um hana". „Nei-ei... það er frá engu að segja... Hvaða voða krumlur eru þetta annars á barninu. Þetta verður áreiðanlega harðskeyttasti strákurinn í allri sókninni". „ Bjó hún hér og vann út um hvippinn og hvappinn eins og við?" „Já, jú. Hún var vinnukona. Hún var vinnukona í Eikiey". „Á Eikivöllum?" „Já. Það var áður en ég fæddist". „Og bjugguð þiðsvo hér, eftir að þú fæddist?" „Já". „Og hvað meira?" „Svo dó hún". „Hvað varst þú þá gamall?" „Ég man það ekki nákvæmlega. — Átta eða níu ára". „Hvað varð þá um þig?" „Ég varð vinnumaður hjá Norðkvist". „Þegar þú varst átta eða níu ára gamall?" „Já. Hann ætlaði að kenna mér að verða vinnumaður, sagði hann". „Og svafstu þá hjá vinnumönnunum í dimma kjallaranum undir húsinu. „Nei, ég svaf hér upp frá". „Aleinn hér, svona lítill dengur?" „Já. Kapteinninn sagði, að fyrst kotið stæði autt og f ullskipað í hvert rúm í kjallaranum, þá væri bezt, að ég svæfi hér". „Og hann, sem á stórt hús með óteljandi herbergjum. — Hver hugsaði þá um þig?" „Hugsaði um mig?" „ Já. Ekki sjá níu ára gömul börn um sig að öllu leyti sjálf". „Ég sá um mig sjálf ur, — hol-ræt. En guð minn góður, hvað ég var oft hræddur, þegar rotturnar voru sem aðsópsmestar". Þanin brjóst Katrínar hófust ofurhægt, og stór tár hrundu niður á brekánið. Jóhann starði forviða á hana. Hún leit á sofandi barnið og mælti klökkum rómi: „Hugsaðu þér bara, ef ég dæi nú, og þú dæir líka, þegar drengurinn okkar er orðinn átta eða níu ára, og Norðkvist eða einhver annar tæki hann í vinnumennsku, og svo yrði hann að sof a hér aleinn í myrkrinu á haustin, þegar tóf urnar væla við kofavegginn, og enginn hirti um hann eða hlynnti að honum!" HVELL G E I R I D R E K I K U B B U R „Þú finnur DREKA EKKÞHann finnur þig. " „Svo hljóöar gamalt frumskógarmáltæki.— Sunnudagur 20. október 8.00 MorgunandaktSéra Pétur Sigurgeirsson vigslubiskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög Nýja sinfóniuhljómsveitin i Lundúnum leikur, Charles McKerras stj. 9.00 Fréttir. Útdráttur úr for- ustugreinum dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veðurfregnir). a. Messa i C- dúr op. 86 eftir Beethoven. Felicity Palmer, Helen Watts, Robert Tear, Christopher Keyte, St. John- kórinn og St. Martin-in-the- Fields hljómsveitin flytja, George Guest stj. b. Sinfónia nr. 1 i D-dúr eftir Schubert. Filharmóniu- sveitin i Vin leikur, Istvan Kertesz stj. 11.00 Messa I Selfosskirkju (hljóðrituð á sunnudaginn var) Séra Tómas Guð- mundsson i Hveragerði prédikar. Séra Sigurður Pálsson vigslubiskup og séra Sigurður Sigurðarson . þjóna fyrir altari. Organ- leikari: Glúmur Gylfason. Forsöngvari: Bjarni Dags- son. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.20 Mér datt það i hug Séra Bolli, Gústafsson i Laufási spjalíar við hlustendur. 13.40 islensk einsöngslög Magnús Jónsson syngur: Olafur Vignir Albertsson leikur á pianó. 13.55 „Bláfjólu má i birkiskóg- num líta”. Böðvar Guð- mundsson gengur um Hall- ormsstaðaskóg i fylgd Sigurðar Blöndals skógar- varðar. 15.00 Miðdegistónleikar: Frá tónlistarhátið i Hollandi Flytjendur: Concertgebouw hljómsveitin i Amsterdam og söngkonan Teresa Berg- anza. Stjórnandi: Jean Fournet. a. Sinfónia nr. 4 I A-dúr op. 53 eftir Albert Roussel. b. Tvær ariur úr óperunni „La Vida Breve” eftir Manuel de Falla. c. Habanera úr óperunni „Carmen” eftir Bizet. d. Sinfónia nr. 36 i C- dúr (K 425) eftir Mozart. 16.00 Tiu á toppnum örn Petersen sér um dægur- lagaþátt. 16.55 Veðurfregnir. Fréttir. 17.00 Barnatimi: Gunnar Valdimarsson stjórnar a. Geta börnin skapað betri heim? Þorsteinn V. Gunn- arsson les kafla úr bókinni „Litla lávarðinum” eftir Burnett I þýðingu Friðriks Friðrikssonar. Svanhildur óskarsdóttir les þjóðsöguna „Sálina hans Jóns mins” og flytur kvæði Daviðs Stefánssonar. Skólakór Hliðaskóla syngur gamla húsganga og þjóðvisur, Guðrún Þorsteinsdóttir stjórnar. b. Útvarpssaga barnanna: „Strokudreng- irnir” eftir Bernhard Stokke Sigurður Gunnarsson lýkur lestri þýðingar sinnar (15). 18.00 Stundarkorn með þýska gitarleikaranum Siegfried Behrend Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Eftir fréttir Jökull Jakobsson við hljóðnemann I þrjátiu minútur. 19.55 tslensk tónlist Sinfóniu- hljómsveit íslands leikur, Páll P. Pálsson stj. a. For leikur að óperunni „Sigurði Fáfnisbana” eftir Sigurð Þórðarson b. Islensk þjóð- lög I útsetningu Jóns Þór- arinssonar. c. Tilbrigði um rimnalag eftir Árna Björns- son. 20.30 Frá þjóðhátið Norður- Þingeyingai Asbyrgi 7. júli. Aðalbjörn Gunnlaugss, setur hátiðina, Stefán Þorláksson frá Svalbarði flytur hátiðar- ræðu, Snæbjörn Einarsson og Þorfinnur Jónsson flytja

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.