Tíminn - 20.10.1974, Síða 30

Tíminn - 20.10.1974, Síða 30
*" ‘TTMINN BETRI TÆKJA- KOST f Ein af efnilegustu popphljóm- sveitum islenzkum er efalitiö hljómsveitin Birta. Heldur hefur þó verið hljótt um hljómsveitina, enda hafa tið mannaskipti verið henni fjötur um fót allt frá stofn- un 1 viðtali við tónlistarsiðuna nú fyrir skemmstu sögðu hljóm- sveitameölimirnir að timabili mannabreytinga væri nú lokið að fuilu, — og að hljómsveitin myndi i næstu framtið koma fram eins og hiin er nú skipuð. í heimsókn hjó hljómsveitinni Birtu Sögðust þeir enn fremur vera mjög bjartsýnir, þvi erfiði siðustu mánaða væri nú farið að koma verulega I Ijós. Inni i litlu herbergi i húsnæði dráttarvélafyrirtækis i Austur- bænum eru fjórir ungir menn með hljóðfæri sin, og þar sem ég kem gangandi inn i salinn, — hvar dráttarvélarnar biða sinna kaup- enda — heyri ég óm af gömlu Bitlalagi Það er laugardagseftirmið- dagur og strákarnir I Birtu eru að taka slðasta tóninn i laginu, þegar ég kem i gáttina. „Við leikum mest létt popp”, segir Björgvin trommuleikari og söngvari, þegar ég hef komið mér fyrir á stól úti i horni. „Við reyndum að leika góð og skemmtileg lög, sem við höldum að falli i góðan jarðveg hjá okkar dansgestum”. „Engu að siður erum við með nokkur frumsamin lög inn á milli’, segir Pétur orgelleikari og söngvari, „og þegar lengra liður, munum við bæta fleiri lögum við prógrammið”. „Aðalatriði fyrir hljómsveit eins og Birtu er að sjálfsögðu að ná vinsældum meðal fólksins”, segir Atli Viðar Bassaleikari. „Og enn sem komið er getur hljómsveitin ekki byggt pró- Hljómsveitin Birta: t.f.v. Atli Viöar Jónsson, Björgvin Björgvlnsson, Kristján Bárður Blöndal og Pétur Hjaltested. gramm sitt eingöngu á frumsömdu efni, vegna þeirrar einföldu staðreyndar, að það er ekki grundvöllur fyrir þvi að leika eingöngu frumsamið efni”. „Við verðum, hvort sem okkur likar betur eða verr, að hugsa fyrst og fremst um okkar gesti, og leika þá tónlist, sem þeir vilja hlusta á hverju sinni”, segir Kristján gítarleikari. „Auðvitað er ekki hægt aö gera það svo öll- um liki, en við vonum, að við höf- um fundið meðalveginn og allir geti fundir eitthvað við sitt hæfi”. Björgvin trommuleikari, eða Venni, eins og kunningjarnir kalla hann er stofnandi hljóm- sveitarinnar Birtu. Sá atburður gerðist fyrir um það bil ári. Aður hafði Björgvin þó reynt ýmislegt i þessum bransa, — byrjaði I skólahljómsveit i Réttó, og fór siðan yfir i Jeremias. — Svo hætti ég i tvö ár, en i fyrrasumar lék ég i hljómsveit, sem nefndist Ólafia og var gerð út frá Húsavik. Hinir strákarnir þrir, Pétur Hjaltested, Atli Viðar Jónsson, og Kristján Bárður Blöndal, hafa allir leikið mikið saman, enda ól- ust þeir allir upp i Vesturbænum og byrjuðu áð leika saman I skólahljómsveitum. — Það sem að minum dómi vantar sérstaklega hér á landi i sambandi við popp- og rokktón- list, — er staður, þar sem hljóm- sveitir og tönlistarmenn geta komið með sina tónlist og leikið fyrir fólk, sem kemur gagngert til að hlusta, segir Alti Viðar,en þess má geta, að hann er bróðir bræðranna i Roof Tops, Ara og Jóns Péturs. Allir sögðu þeir, að undirstaða hljómsveitarstarfsins væri sú, að þeim þætti gaman að tónlist, og HLJÓMPLÖTUDÓMAR DOAAARI: GUNNAR GUNNARSSON Margir tónligtarmenn verAa fyrst frægir eftir dauðann, — og svo er einnig um aðra i heimi listarinnar. Sumir öðlast frægð fyrir eigin verðleika, aðrir eru gerðir aö stjörnum. Jim Croce var orðinn nokk- uð þekktur, er hann lézt. Hann varð heimsfrægur eftir dauð- ann. En Jim Croce var ekki gerður að stjörnu — það voru hans eigin verðleikar, og það sem hann skildi eftir sig hér á jörðinni, sem gerði hann fræg- an. Photographs and Memories inniheldur öll hans beztu og fallegustu lög, sem honum auðnaðist að gera á sinni stuttu ævi, eins og „I’ve got a name”. „Time in a Bottle”, „Lover’s Cross” og 1*11 have to say I love you in a song”. En hér þarf engin orð. Látum tónlist Croce segja það sem á vantar. ★ ★ ★ Little Feat eru svo að segja óþekktir á íslandi, og það er dálitið raunaleg staðreynd, miðað við að þeir hafa gefið út fjórar LP-plötur, hverja ann- arri betri. Þessi nýja plata þeirra er nokkuð tormelt, eins og fyrri afurðir Little Feat, og nauðsynlegt er að hlusta vel á hana til að gera sér grein fyrir gæðunum. Ekki er gott að skilgreina tónlist þeirra, svo fjölþætt er hún. Að nokkru má líkja þeim við The Band, — og ég held ég geti slegið þvi föstu, að þeir eru algjör andstaða við Slade. Feat’s don’t fail me now er góð plata fyrir þá, sem á annað borð vilja vandað og pottþétt rokk. ★ ★ ★ ★ Hichard Betts, gftarleikari Allman Brothers Band, er hér með sina fyrstu sólóplötu, og er ég viss um' að margur Allmans-aðdáandinn rekur upp stór augu, þvi þessi plata á litið sameiginlegt með plötum Allmans Brothers. Siða eitt er meö fjórum léttum og skem mtilegum country-rokkurum (I stil við Ramblin ’Man) og ber eitt lagið af: „Let Nature Sing”, en þar eru hljóðfæri eins og stálgltar, banjó, fiðla og mandólin notuð á mjög skemmtilegan hátt. Rjóminn á plötunni er lagið „Hand Picked”, sem nær yfir 3/4 af siöu tvö, — frábært country- jam, og er unun að hlýða á samspil Vassar Clements á fiðlu og Bett’s á gitarinn. Þar er mýkt og fegurð I hásæti. Richard Betts, á heiður skil- inn fyrir þessa plötu, sem mun án efa vekja áhuga margra á country-rokk. ★ ★ ★ ★ Þar kom að þvl, al Lennon lét eitthvaö verulega gott frá sér fara, — eftir að hafa veriö I miklum öldudal sfðastliðin tvö ár. Þessi nýja plata minnir á margt af þvi bezta, sem Lennon hefur gert. Lagið „9 Dream” er að minum dómi eitt af beztu lögum, sem Lennon hefur gert, og bezta lag þessarar plötu hans. Hljóðfæraleikurinn á plötunni er frábær, enda eru meðal undirleikara margir stórkallar, eins og Jim Keltner, Nicky Hopkins, Klaus Voormann og Elton John. Þó er hlutur Lennons sjálfs stærstur og mestur að vöxtum, og ræður úrslitum á plötunni. Hafi Lennon einhvern tima sungið vel, gerir hann þaö á VValls and Bridges. Þetta er ein heilsteyptasta Lennon-plata, sem enn hefur litið dagsins Ijós. Hljómplötudeild FACO hefur lónað síðunni þessar plötur til umsagnar Baddi EYÐA KAUP- INU í Venni Atli ;,ro? Tin-khunn.iP Sunnudagur. M. oktéher. 1974 Pétur að þeir væru ekki að þessu „ein- göngu fyrir seðlana” eins og Kristján, öðru nafni Baddi, gitar- leikari komst að orði „Hins vegar er kannski rétt að geta þess, að starf okkar miðast aö sjálfsögðu við að þetta sé; arð- bært, þótt obbinn af þeim pen- ingum, sem við höfum aflað, hafi farið I endurbætur á tækjakosti hljómsveitrinnar — og svo mun vist verða enn um sinn”, sagði Björgvin. „Annars er athyglisvert i Islenzku poppi, hversu litil endur- nýjun er á þvi, sem við köllum „toppinn á poppinu”., Það má næstum segja, að þar séu fimm hljómsveitir með rúmlega tuttugu menn, og allar manna breytingar, sem eru mjög miklar — hafa nær eingöngu verið innan þessa hóps. Og það er annað, sem ég vil geta, að á milli þessa tuttugu manna hóps, og allra annarra popptónlistarmanna, er algjör veggur — þeir eru konungur islenzks popps, við erum hirðsveinarnir”. Það var Pétur Hjaltested, sem mælir þessi fleygu orð, en hann er einn af þessum tónlistar- mönnum, sem eru það af lifi og sál, og hyggst nú leggja söng- og tónmennt fyrir sig. Áður en ég yfirgef þessa áhuga- sömu ungu tónlistarmenn, spyr ég þá, hvort þeir hafi ekki orðið varir við stöðnun I poppinu. Ekki vildu þeir samþykkja það, en sögðust hins vegar vita, að þetta væri nokkuð almenn skoðun. Taldi Atli Viðar, að ástæðan fyrir þessum orðrómi gæti verið sú, að á siðustu árum væri orðið mjög erfitt að fygljast með öllu, sem gerðist i poppinu, þvi það væri orðið svo stórt „fyrirtæki”, eins og hann komst sjálfur að orði. Benti Baddi á, að hér fyrr á árum hefðu allir vitað svona nokkurn veginn, hvað væri að gerast I þessum málum, en slikt væri ógjörningur núna. Enn fremur benti Baddi á, að hugsan- leg skýring gæti verið sú, að unga fólkið, hefði ekki neitt sérstakt goð til að dýrka núna, eins og Framhald á bls. 36 OKKUR LAÐIST vlst að geta þess, I slðustu viku, að frestur til að sklla tillögum um nafnið á siöuna er til 1. nóvember. Nú þegar hafa borizt nokkur bréf með nöfnum, — og viljum við þakka þeim, sem þau hafa sent, og jafnframt hvetja alla, sem einhverja hugmynd hafa um nafn fyrir svona tónlistar- siðu, að senda okkur bréf fljótt. Við viljum einnig minna á, að ein stór plata (LP) er i verölaun fyrir bezta nafnið, — og hún er að eigin vali.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.