Fréttablaðið - 28.12.2004, Síða 8
28. desember 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Japanska dómsmálaráðuneytið fjallar um Fischer:
Ákvörðunar að
vænta eftir áramót
UTANRÍKISMÁL Ekki er talið að hreyf-
ing komist á mál skákmeistarans
Bobbys Fischer í Japan fyrr en eft-
ir áramót, að sögn Sæmundar Páls-
sonar, fyrrverandi lögreglumanns
og vinar Fischers.
„Lögfræðingur Fischers fékk
þau svör í dómsmálaráðuneytinu í
Japan að þar þyrftu menn tóm til að
skoða málið og ekki væri von á nein-
um svörum fyrr en eftir áramót,“
sagði Sæmundur. Hann sagði að
Masako Suzuki, lögfræðingur
Fischers, ynni ötullega að málum
hans og hefði komið á framfæri
harðorðum mótmælum vegna máls-
meðferðarinnar sem hann hefur
fengið. „Hún segir að allar lagaleg-
ar forsendur skorti fyrir því að
meina honum að koma til Íslands.“
Stuðningshópur Bobbys Fischer
hér á landi hittist klukkan fjögur í
gær og sagðist Sæmundur myndu
upplýsa fundargesti um viðræður
hans við Fischer og líðan hans yfir
hátíðarnar. Sæmundur og Fischer
eru í daglegu símasambandi og
kvaðst Sæmundur til dæmis hafa
rætt við hann fimm sinnum í síma á
aðfanga- og jóladag. - óká
Skrílslæti áður þekkt
í kringum áramót
Bæjarstjóri Grindavíkur segir allra leiða verða leitað til að koma í veg fyrir að ólæti
um miðnætti á jóladag endurtaki sig. Skrílslæti hafa áður þekkst í Hafnarfirði, á Sel-
fossi og Sauðárkróki í kringum áramót þó að nokkuð langt sé um liðið.
LÖGREGLA Bæjarráð Grindavíkur
hittist á morgun til að ræða ólæti
sem brutust út á jóladagskvöld
fimmtu jólin í röð. Ólafur Örn
Ólafsson bæjarstjóri segir að í
samráði við bæjarbúa verði leitað
allra leiða til koma í veg fyrir að
þetta ástand verði viðvarandi.
Slík skrílslæti hafa þekkst á
gamlárskvöld og þrettándanum á
fleiri stöðum á landinu í gegnum
tíðina.
„Það var auðséð að við réðum
ekkert við ástandið. Þarna voru á
ferð nokkrir ólátabelgir sem
höfðu safnað áhorfendum sem
hvöttu þá til dáða,“ segir Hlöðver
Magnússon, aðstoðarvarðstjóri á
Selfossi, en þar var ástandið
slæmt á þrettándanum um nokk-
urt skeið. Hlöðver meiddist á
auga og á höfði í látum árið 1980
þegar hann fékk tvö klakastykki í
hausinn sem kastað var að lög-
reglumönnunum. Næstu tvö ár á
eftir var fengin hjálp frá lögregl-
unni úr Reykjavík til að vinna bug
á ástandinu. Guðjón Axelsson, hjá
lögreglunni á Selfossi, segir að
ástandið hafi verið orðið gott um
árið 1985. Fram að þeim tíma hafi
óeirðaseggirnir hent drasli og dóti
út á götur, hvolft úr ruslafötum og
brotið rúður í húsum. Hann segir
að upphaflega hafi slík læti verið
bundin við gamlárskvöld þegar
ekkert sjónvarp var. En ólætin
hafi færst yfir á þrettándann þeg-
ar föst dagskrá var í sjónvarpinu
á gamlárskvöld.
Ófremdarástand var í Hafnar-
firði í tuttugu til þrjátíu ár á þrett-
ándanum þar til fyrir um tíu árum
síðan. Þar safnaðist fjöldi ung-
menna saman í miðbænum. Rúður
voru brotnar, bílum velt og bátar
dregnir eftir götum. Ólafur
Emilsson, hjá lögreglunni í Hafn-
arfirði, segir að með samstilltu
átaki margra hafi tekist að vinna
bug á ólátunum og er Hafnar-
fjörður nú friðsæll og til fyrir-
myndar á þrettándanum.
Stríðsástand var á Sauðárkróki
á gamlárskvöld í fjölda ára. Bæj-
aryfirvöldum, sýslumanni og lög-
reglu tókst hins vegar að stöðva
þróunina og hefur ástandið verið
mjög gott síðustu 23 ár að sögn
Guðmundar Óla Pálssonar, varð-
stjóra á Sauðárkróki. Guðmundur
segir að ólætin hafi byrjað um
kvöldmatarleytið á gamlárskvöld
og þau hafi staðið í þrjá til fjóra
klukkutíma. hrs@frettabladid.is
Þú færð þá hjá flugeldasölum
íþróttafélaganna og víða
annars staðar.
GLÓANDI FJÖLSKYLDUPAKKAR
Gull, Silfur og brons
fjölskyldupakkarnir okkar eru þeir fallegustu
og öflugustu sem sést hafa á markaðnum.
VILTU MIÐA!
Sendu SMS skeytið BTL JKF á númerið
1900 og þú gætir unnið.
Vinningar eru Miðar á Jamie Kennedy, DVD myndir,
CD´s og margt fleira.
JÓLAPAKKARNIR
Lilja Nótt þarf kannski að skipta einhverju sem hún fékk í jólagjöf.
JÓLAVERSLUNIN Viðbúið er að margir
leggi leið sína í verslanir nú eftir
jólin til að skila eða skipta illa
heppnuðum jólagjöfum. Bregður þá
sumum í brún að finna vörurnar
sem keyptar voru á fullu verði fyrir
jól, nú á útsöluprís.
„Kassakvittun verður að fylgja
öllum skilavörum. Það er ófrávíkj-
anleg regla ef fólk vill fá fullt verð
fyrir vöruna,“ segir Jóhannes Jó-
hannesson framkvæmdastjóri Ikea.
„Við tökum hins vegar við öllum
vörum sem eru ósamsettar en ef
skilað er án kvittunar gildir það
verð sem er í gangi í búðinni á
hverjum tíma.“
Bækur eru klassískar skipta-
vörur en að sögn Erlu Maríu
Ólafsdóttur verslunarstjóra tek-
ur Mál og menning með glöðu
geði á móti öllum bókum. „Fólk
þarf samt að greiða ákveðið
skilagjald fyrir bækur sem ekki
eru keyptar hjá okkur.“ Skila-
gjaldið er 250 krónur en Erla
leggur áherslu á að þetta sé ein-
göngu kostnaður búðarinnar við
að taka við bókunum og skila
þeim aftur til útgefenda. ■
Skilað og skipt eftir jólin:
Kassakvittun tryggir fullt verð
SÆMUNDUR PÁLSSON
Sæmundur er vinur skákmeistarans
Bobbys Fischer, en þeir kynntust þegar
Fischer atti kappi við Boris Spasskí um
heimsmeistaratitilinn í skák hér á landi
árið 1972. Fischer hefur verið í varðhaldi í
Japan síðan í sumar, þegar hann var hand-
tekinn fyrir að vera með ólöglegt vegabréf.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Í HAFNARFIRÐI
Ungmenni handtekin vegna óláta árið 1989. Í Hafnarfirði, á Selfossi og Sauðárkróki voru
það stálpaðir unglingar sem stóðu fyrir ólátunum. Í Grindavík er það hins vegar fólk á
milli tvítugs og þrítugs sem varð uppvíst að ólátum á jólunum.