Fréttablaðið - 06.01.2005, Síða 43
Fimmtudagur...
... í hádeginu kemur Þórunn Stef-
ánsdóttir söngkona fram í Tónlistar-
skóla Garðabæjar í tilefni af fertugs-
afmæli skólans. Hún syngur gospellög,
söngleikjalög og aríur, en Agnes Löve
skólastjóri leikur með á píanó.
... þeir sem vilja kynna sér hvað
yngri kynslóð íslenskra listamanna er
að fást við ættu endilega að leggja leið
sína í Listasafn Íslands, þar sem nú
stendur yfir sýningin Ný íslensk
myndlist. Klukkan þrjú kemur þar
fram Egill Sæbjörnsson og spjallar við
sýningargesti í tengslum við verk sitt
You Take All My Time.
... um kvöldið er svo hægt að
bregða sér á minningartónleika um
rokkarann mikla, Pétur W. Kristjáns-
son, sem hefjast klukkan 22 á Broad-
way. Þar koma fram hljómsveitir og
listamenn á borð við KK-Sextett,
Kristján Hreinsson skáld, Pops, Svan-
fríður, Björgvin Gísla, Diddi fiðla,
Paradís, Mezzoforte, Start, Bjartmar
Guðlaugsson, Garg, Sálin hans Jóns
míns og Páll Rósinkrans. Kynnar verða
Þorgeir Ástvaldsson, Hermann Gunn-
arsson og Gunnlaugur Helgason.
Föstudagur...
... að ný-
loknum ára-
mótum finnst
mörgum alveg
hreint ómissan-
di að bregða sér
í betri fötin og
skreppa á Vín-
a r t ó n l e i k a .
Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands
stendur sig vel í þeim efnum og heldur
ferna nýárstónleika nú í þessari viku
þar sem Ingveldur Ýr Jónsdóttir syng-
ur ljúfa og skemmtilega valsa frá Vín-
arborg. Næstsíðustu tónleikarnir hefj-
ast klukkan hálfátta á föstudagskvöld-
ið.
... mörg-
um er hlýtt til
Péturs heitins
Kristjánsson-
ar. Ein þekk-
tasta sveit 68-
kynslóðarinn-
ar, unglinga-
hljómsveitin
Pops, ætlar að rokka feitt á Kringlu-
kránni í minningu Péturs og hefur
fengið til liðs við sig sjálfan Rúnar Júl-
íusson. Sannkölluð „sixties“ sveifla
verður á staðnum þegar öðlingarnir
flytja alla gömlu smellina með Bítlun-
um, Stones, Kinks og Small Faces.
... síðan væri
ekki vitlaust að
bregða sér í stuðið
með snúðunum
Atla skemmtana-
löggu og Áka
pain, sem ætla að
halda uppi dúnd-
urstemningu fram
eftir nóttu á Pravda.
Laugardagur...
... klukkan átján verður opnuð sýn-
ing í gallerí Kling og Bang að Lauga-
vegi 23. Þar er á ferðinni Heimir
Björgúlfsson með fjórðu einkasýningu
sína hér á landi, sem hann nefnir „Alca
torda vs. rest“.
... þeir sem
vilja skemmta sér
þegar líða tekur á
laugardagskvöldið
gætu til dæmis
brugðið sér í
Kópavoginn þar
sem Stórsveit
Hermanns Inga gefur gleðinni lausan
tauminn á Café Catalinu.
... á Broadway kveður samt við svo-
lítið annan tón því þar ætla stelpurnar í
Nina Sky að spila ásamt úrvali íslenskra
hip hop tónlistarmanna.
FIMMTUDAGUR 6. janúar 2005
BÍÓ
Jimmy
Fallon
úr Sat-
urday
Night
Live-
þáttunum fer með sitt fyrsta að-
alhlutverk í Hollywood í mynd-
inni Taxi sem einnig verður
frumsýnd á morgun. Taxi, sem er
byggð á franskri samnefndri
mynd eftir handriti Luc Besson,
fjallar um klaufskan lögreglu-
mann í New York (Fallon) sem
setur flest á afturendann. Hann
sest í leigubíl með Belle (Queen
Latifah) eftir að hann fréttir af
bankaráni í grenndinni og fram-
haldið verður afar spaugilegt.
Leikstjóri: Tim Story, sem áður
leikstýrði Barbershop.
Aðalhlutverk: Queen Latifah,
Jimmy Fallon, Jennifer
Esposito, Gisele Bundchen og
Henry Simmons.
Orðspor: Myndin fær heldur
slaka dóma erlendra gagn-
rýnenda sem telja hana ekki
komast á hálfkvisti við frönsku
fyrirmyndina.
BÍÓ
Róman-
tíska gam-
anmyndin
Alfie
verður
frumsýnd
á morgun.
Alfie er
endurgerð
samnefndrar breskrar myndar
frá árinu 1966 með Michael
Caine í aðalhlutverki. Nýja
myndin gerist í New York og
fjallar um bílstjórann Alfie sem
talar við myndavélina á sama
tíma og hann dregur konur
borgarinnar á tálar. Hann þarf
loks að endurskoða líf sitt þegar
hann neyðist til að takast á við
glundroðann sem hann hefur
skapað.
Leikstjóri: Charles Shyer, sem
áður hefur m.a. leikstýrt Baby
Boom og Father of the Bride 2.
Aðalhlutverk: Jude Law,
Marisa Tomei, Jane
Krakowski, Susan Sarandon,
Omar Epps og Nia Long.
Orðspor: Gagnrýnendur eru
flestir ánægðir með frammi-
stöðu Jude Law. Sumir telja þó
að erfitt sé að finna til samúðar
með aðalpersónunni.
3 dagar...