Fréttablaðið - 09.01.2005, Page 4

Fréttablaðið - 09.01.2005, Page 4
4 9. janúar 2005 SUNNUDAGUR Kjötmjölsverksmiðjan á Suðurlandi: Uppsögnum frestað um mánuð LANDBÚNAÐUR Ákveðið hefur verið að fresta um mánuð uppsögnum hjá kjötmjölsverksmiðjunni Kjötmjöli ehf. meðan reynt er til þrautar að ná samningum um sölu verksmiðjunn- ar, að sögn Torfa Áskelssonar verk- smiðjustjóra. Eignarhaldsfélag í eigu KB banka á og rekur verk- smiðjuna, en Sorpstöð Suðurlands hefur hug á að kaupa reksturinn. Verksmiðjan hefur um árabil verið rekin sem förgunarverk- smiðja fyrir sláturúrgang, sem er brenndur og malaður í kjötmjöl sem svo er urðað. Áður var selt kjötmjöl í dýrafóður og gróðuráburð en því var hætt af heilbrigðisástæðum. Torfi telur að bankinn komi til með að þurfa að afskrifa töluverða upphæð áður en til sölu verksmiðj- unnar getur komið, þannig að hún hafi rekstrargrundvöll. Hann segir illa hafa gengið að fá stjórnvöld að málinu. Þrátt fyrir yfirlýsingar úr landbúnaðarráðuneyti um mikil- vægi verksmiðjunnar hafa stjórn- völd ekki komið fram með tillögur til lausnar og virðist sem í stjórn- sýslunni sé ekki sátt um hvort verk- smiðjan skuli heyra undir landbúnaðar- eða umhverfisráðu- neyti. - óká RAFMAGN Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri Rafmagnsveitna ríkisins, segir verðhækkanir á rafmagni til húshitunar verði á bilinu 15-20 prósent, vegna breytinga á lögum um raforkusölu. Kristján Möller, þingmaður Samfylkingar, segir þessa hækkun koma sem rýtingsstungu í bakið á þeim sem búa við þennan upphit- unarkost. Í umræðunni um breytt raforkulög hafi verið áætlaðar 230 milljónir í niðurgreiðslu vegna þessa og alltaf hafi verið talað um ef það dygði ekki til, yrði bætt úr því. „Valgerður Sverrisdóttir og ríkisstjórnin verður að gjöra svo vel og koma með meiri pening. Það segir sig sjálft þegar 230 milljónir duga ekki fyrir þessari hækkun á dreifbýlisupphitun.“ Birkir Jónsson, þingmaður Framsóknarflokks og formaður iðnaðarnefndar, segir iðnaðar- nefnd muni skoða málið. Reynsla í nýskipuðu umhverfi raforkumála eigi eftir að koma í ljós og gjald- skrá orkufyrirtækjanna sé að birt- ast þessa dagana. „Í framhaldi munum við meðal annars athuga stöðu þeirra rafnotenda sem þarna um ræðir. Við fjárlagagerð- ina núna í haust var gengið út frá því að þessar 230 milljónir myndu að öllum líkindum leiða til þess að þessir notendur yrðu jafnsettir og áður. Nú er greinilega komið í ljós að þessir fjármunir eru ekki næg- ir. Það er á hreinu að iðnaðarnefnd á eftir að vinna mikið í þessari lög- gjöf á þessu ári og í framtíðinni.“ Meðalhækkun raforkuverðs RARIK í dreifbýli verður tæp átta prósent, en engin í þéttbýli. Helstu ástæður þessa hækkana er að ekki má lengur selja rafmagn á mis- munandi verði eftir því til hvers rafmagnið er notað. Þá felldi Landsvirkjun niður 34 aura verð- afslátt nú um áramót, sem kemur til með að hækka rafmagnsverð allra. Kristján Haraldsson, for- stjóri Orkubús Vestfjarða, segir að breytingar á verðtöxtum verði kynntar í næstu viku, en hjá þeim sem einnig kaupa almennt raf- magn verði nánast engin hækkun á raforkuverði. Tekjur fyrirtækis- ins munu ekki hækka vegna orku- sölu, heldur mun nýtt verð endurspegla tilfærslur á milli taxta. svanborg@frettabladid.is HÁLKA Á VESTURLANDI Lögregl- an í Borgarnesi, Stykkishólmi og Ólafsvík þurfti um helgina að að- stoða ökumenn vegna minnihátt- ar óhappa sem tengjast mikilli hálku á vegum Vesturlands og Snæfellsness. Hált snjólag er á flestum vegum og eru ökumenn hvattir til að fara með gát. ÓFÆRT Á TRÖLLASKAGA Nánast ófært hefur verið í umdæmi lög- reglunnar í Ólafsfirði og á Dal- vík alla helgina. Mikill snjór hefur verið á þjóðvegunum en stöðug ofankoma og vindur hefur spillt færðinni jafnóðum og rutt er. Lögregla þurfti að aðstoða nokkra ökumenn vegna ófærðar- innar en engin umferðaróhöpp urðu í vetrarríkinu fyrir norðan. VOND FÆRÐ Á SIGLUFIRÐI Snjó kyngdi niður í umdæmi lögregl- unnar á Siglufirði í gær. Spilltist umferð mikið á götum bæjarins og höfðu menn ekki undan að halda helstu umferðaræðum opn- um. Gífurleg hálka er undir snjónum og vill lögregla beina varnaðarorðum til ökumanna í nágrenni Siglufjarðar vegna mik- ils fannfergis og erfiðrar færðar. ÞUNGFÆRT Á HÚSAVÍK Lögreglan á Húsavík hafði í nógu að snúast að draga og ýta pikkföstum bíl- um í Húsavíkurbæ og nágrenni á laugardag. Snjókoma var mikil á svæðinu og hægt gekk að ryðja götur. Mikil hálka er undir snjón- um, en margir ökumenn drifu ekki í gegnum stóra skafla á veg- unum. Lítið þarf til að færð spillist á þessum slóðum ef hvessir og heldur áfram að snjóa. FLUGHÁLKA Í VÍK Lögreglan í Vík í Mýrdal þurfti að aðstoða öku- mann sem hafði misst bíl sinn út af þjóðveginum við Eldhraun í flughálku á laugardag. Ökumann- inum varð ekki meint af. Gler- hált er á Mýrdalssandi og í nágrenni Víkur, og þarf lítið út af að bera til að illa fari ef menn aka ekki miðað við aðstæður. ■ LÖGREGLUFRÉTTIR ■ LÖGREGLUFRÉTTIR DANSfjörið er í Magad ans Bollyw ood Afró Salsa Fun kJazz Magad ans ll l Natasja Edna Maria Dianne Carlos Yesmine Maher TangóFlame ncól Minerva Hany & Bryndís Kramhúsinu www.kramhusid.is Símar: 551-5103 551-7860 Námskeiðin hefjast 10. janúar 2004 Breakd ans Hip ho p Karabí skir dansar : Balkan dansar l Veska BIRKIR JÓN JÓNSSON Formaður iðnaðarnefndar segir að ræða þurfi nýsett raforkulög í iðnaðarnefnd nú á þessu ári og í framtíðinni. Verðhækkanir á bilinu 15 til 20 prósent Þingmaður Samfylkingarinnar segir verðhækkanir á rafmagni til húshitunar rýtingsstungu í bakið á þeim sem búi við þennan upphitunarkost. Formaður iðnaðarnefndar segir stöðu þessara rafnotenda verða skoðaða. BÍLVELTA OG BÍLBRUNI Ökumað- ur missti stjórn á bíl sínum á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogs- læk og velti honum á tíunda tím- anum á föstudagskvöldið. Bíllinn skemmdist nokkuð en engin slys urðu á fólki. Þá var tilkynnt um fólksbíl sem stóð í björtu báli á Smiðjuvegi aðfaranótt laugar- dags. Bíllinn er gjörónýtur en lögregla rannsakar málið sem íkveikju. Í SVÍNABÚI Svínabændur segja fóður- kostnað aukast hjá sér vegna þess að þeir þurfi að kaupa sojaolíu að utan til að blanda í svínafóður, í stað þess að fá að kaupa fitu úr kjötmjölsverksmiðjunni á Suðurlandi líkt og áður var heimilt. UMMERKI ELDSVOÐANS VIÐ HVERFISGÖTU 61 Húsið á Hverfisgötu 61 er steinhús, en eld- urinn var mestur á annarri hæð. Skemmdir eru miklar en húsið reyndist mannlaust er slökkvilið bar að garði. Reykjavík: Eldsvoði á Hverfisgötu ELDSVOÐI Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að brennandi húsi við Hverfisgötu 61 klukkan þrjú aðfaranótt laug- ardags. Efri hæð hússins var al- elda þegar slökkviliðið bar að, en húsið reyndist mannlaust þegar að var gáð. Vegna eldsins þurfti að rýma tvö nærliggjandi hús meðan á slökkvistarfi stóð. Miklar skemmdir urðu á húsinu af völd- um eldsins, en eldsupptök eru enn ókunn. Húsið að Hverfisgötu 61 er bakhús og stendur á horni Hverf- isgötu og Frakkastígs. Vel gekk að slökkva eldinn, en málið er til rannsóknar hjá lögreglu. - þlg RAFMAGN HÆKKAR Verð á rafmagni hefur hækkað. Þeir sem kynda hús sín með rafmagni finna sennilega mest fyrir hækkuninni. KAUP Gengisvísitala krónunnar 113,8162 Heimild: Seðlabanki Íslands SALA GENGI GJALDMIÐLA 08.01.2005 GENGIÐ Bandaríkjadalur 62,89 63,19 Sterlingspund 118,41 118,99 Evra 83,23 83,69 Dönsk króna 11,184 11,25 Norsk króna 10,1 10,16 Sænsk króna 9,205 9,259 Japanskt jen 0,6022 0,6058 SDR 96 96,58

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.