Fréttablaðið - 09.01.2005, Síða 6
6 9. janúar 2005 SUNNUDAGUR
ORKUVEITA Guðlaugur Þór Þórðar-
son, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, segir að kostnaður við
höfuðstöðvar Orkuveitu Reykja-
víkur hafi farið tæp 62 prósent
fram úr áætlun en ekki rúm 30
prósent eins og kynnt var. Kostn-
aðaráætlun á verðlagi í janúar
2005 hafi hljóðað upp á 2.933
milljónir en byggingarkostnaður-
inn hafi verið 4.748 milljónir. Því
hafi verið farið 1.815 milljónir
fram yfir áætlun.
Guðmundur Þóroddsson, for-
stjóri Orkuveitunnar, segir þetta
óeðlilega útreikninga því norður-
húsið, sem er innifalið í lokatöl-
unni, hafi verið keypt áður en
kostnaðaráætlun hafi verið gerð.
Aðalmistök við kostnaðaráætlun-
ina hafi líklega legið í því að Verk-
fræðistofa VSÓ, sem gerði kostn-
aðaráætlunina, hafi miðað við þá
nýbyggt hús Nýherja, en það hafi
allt verið einfaldara og ódýrara.
Þá hafi önnur mistök verið gerð,
eins og að reikna ekki með loft-
ræstingum, og byggingin sé þús-
und fermetrum stærri en gert
hafi verið ráð fyrir í upphafi.
Guðlaugur segir það eftirá-
skýringu að segja að ekki eigi að
taka norðurhúsið með í reikning-
inn. Í allri umræðu um byggingar-
kostnað hafi menn aldrei bara
verið að ræða um aðalbygging-
una.
- ss
Átta hundruð á
hvern Íslending
Samanlögð framlög Íslendinga til hjálparstarfs á hamfarasvæðunum í
Asíu eru minni en flestra Norðurlanda en mun meiri en forystuþjóða
Vesturlanda miðað við höfðatölu.
HAMFARIR Miðað við höfðatölu hef-
ur hver Íslendingur gefið átta
hundruð og tuttugu krónur til að
lina þjáningar bágstaddra eftir
hamfarirnar á annan jí jólum við
Indlandshaf. Heildarupphæð ís-
lenskra framlaga er komin í 240
milljónir króna. Munar þar mestu
um framlag ríkisstjórnarinnar, alls
150 milljónir sem samþykkt var á
föstudag.
Rauði kross Íslands hefur safn-
að um áttatíu milljónum króna hjá
almenningi og fyrirtækjum. Ríkis-
stjórnin samþykkti á fundi sínum á
föstudag að bæta sex milljónum
við þær fimm milljónir sem þegar
höfðu verið af hendi raktar í þá
söfnun og Reykjavíkurborg lagði
til tíu milljónir. Hjálparstarf kirkj-
unnar hefur safnað hálfri fimmtu
milljón, SOS barnahjálp einni millj-
ón og Barnavernd hálfri tveimur
milljónum. Samtals eru því fram-
lög hjálparstofnana og ríkissjóðs á
Íslandi 240 milljónir króna.
Ef litið er til Norðurlanda hafa
Íslendingar látið minna af hendi
rakna en Norðurlandaþjóðirnar að
Svíum undanskildum. Norðmenn
eru gjafmildastir með rúmlega
2.500 krónur á mann og eru næs-
trausnarlegasta þjóð heims á eftir
Áströlum. Framlög okkar eru held-
ur lægri miðað við höfðatölu en Ís-
lendingar hafa látið af hendi rakna
minna fé en Danir og Finnar, um
það bil 1.000 krónur á mann, en
talsvert meira en Svíar með 500
krónur á mann.
Athygli vekur að auðugasta ríki
heims, Bandaríkin, er næstneðst á
lista með aðeins 72 krónur á mann.
Aðeins Frakkar láta minna af hendi
rakna miðað við höfðatölu eða 57
krónur. Reyndar versnar enn sam-
anburðurinn ef tillit er tekið til
þess að Evrópusambandið greiðir
rúma 38 milljarða króna til neyðar-
aðstoðar og uppbyggingar á ham-
farasvæðunum.
Vonir standa til að framlög Ís-
lands eigi eftir að hækka umtals-
vert. Elín Þ. Þorsteinsdóttir, verk-
efnisstjóri söfnunarinnar „Neyðar-
hjálp úr norðri“, segir að ekki sé
stefnt að því að ná neinni ákveðinni
fjárhæð inn í söfnuninni en vonir
standi til að góður árangur náist
enda ætli öll hjálparsamtök að
leggjast á eitt. Söfnunin nær há-
marki með beinum útsendingum
allra sjónvarpsstöðva laugardags-
kvöldið 15. janúar.
a.snaevarr@frettabladid.is
Búferlaflutningar á
Austurlandi:
Héraðsmenn
fjölmennastir
AUSTURLAND Fljótsdalshérað er
nú fjölmennasta sveitarfélagið á
Austurlandi með 3.364 íbúa. Á
síðasta ári sameinuðust sveitar-
félögin Fellahreppur, Norður-
Hérað og Austur-Hérað í Fljóts-
dalshérað. Íbúum þess fjölgaði
um 433 á milli ára, umfram sam-
eininguna og munar þar mestu
um virkjunarsvæðið við Kára-
hnjúka.
Næstfjölmennasta sveitar-
félagið á Austurlandi er Fjarða-
byggð. Þar fjölgaði um 65 á milli
ára og búa þar nú 3.175 manns.
Hornafjörður er þriðja fjöl-
mennasta sveitarfélagið á Aust-
urlandi með 2.225 íbúa en þar
fækkaði íbúum um 79 og var
fækkunin hvergi meiri á Aust-
urlandi. -kk
1. febrúar – 1 vika
Kr. 49.990
Verð á mann, m.v. 2 í íbúð/stúdíó. Innifalið
flug, gisting í 7 nætur og skattar. Netverð.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800
1. febrúar – 2 vikur
Kr. 59.990
Verð á mann, m.v. 2 í íbúð/stúdíó. Innifalið
flug, gisting í 14 nætur og skattar. Netverð.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800
Þökkum ótrúlegar viðtökur. Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina til
Kanaríeyja í 1 eða 2 vikur á hreint ótrúlegu verði. Beint flug til Kanarí.
Þú bókar ferðina og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú gistir. Á Kanarí nýtur þú þjónustu reyndra
fararstjóra okkar allan tímann. Bókaðu strax á www.heimsferdir.is
Stökktu til
Kanarí
1. febrúar
frá kr. 49.990
Tryggðu þér ferð til Kanarí á
lægsta verðinu
VIÐ SAMEININGUNA
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra var
við sameiningu Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri, Rannsóknarstofnun landbúnað-
arins og Garðyrkjuskóla ríkisins. Rektor er
Ágúst Sigurðsson.
Skólar sameinast:
Nýr háskóli
á Hvanneyri
HÁSKÓLANÁM Landbúnaðarháskóli
Íslands tók formlega til starfa um
áramótin. Í honum sameinast
Landbúnaðarháskólinn á Hvann-
eyri, Rannsóknarstofnun landbún-
aðarins og Garðyrkjuskóli ríkis-
ins.
Um 300 nemendur stunda nám
við háskólann. Höfuðstöðvarnar
eru á Hvanneyri og helsta starf-
semi. Auk þess fer kennsla fram
að Reykjum í Ölfusi og Keldna-
holti í Reykjavík.
Um 130 starfsmenn koma að
rannsóknum og kennslu við skól-
ann. ■
Viðhefur Impregilo slæma starfs-
hætti á Íslandi?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Tekurðu þér vetrarfrí?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
12%
88%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
BANDARÍSKT SKIP HELDUR Á HAMFARASVÆÐI
Miðað við höfðatölu greiða Íslendingar þriðjung af því sem Norðmenn láta af hendi rakna
en tífalt framlag hvers Bandaríkjamanns.
AÐSTOÐ VIÐ FÓRNARLÖMB
Í ASÍU:
Aðstoð alls: Á mann:
(í milljörðum) (í krónum)
Ástralía 55 2.730
Noregur 11,5 2.530
Danmörk 4,5 1.000
Finnland 3,9 990
Ísland 240 820
Svíþjóð 4,5 500
Þýskaland 40 493
Japan 30 236
Bretland 6 100
Spánn 4,1 100
Ítalía 5,6 93
Bandaríkin 21 72
Frakkland 3,4 57
NÁMIÐ Á KREDITKORTIÐ Nem-
endur Háskólans í Reykjavík
geta greitt skólagjöld með rað-
greiðslusamningum. Er það nýj-
ung í greiðslu skólagjalda við há-
skólann. Nemendur greiða 89
þúsund krónur fyrir vor- og sum-
arönn, en 99 þúsund fyrir
haustönn í diplóma, BSc eða BA
námi.
ELDUR Í ÖSKUTUNNU Eldur
kviknaði í öskutunnu í rusla-
geymslu við einbýlishús á Mar-
bakkabraut í Kópavogi á laugar-
dag og var slökkvilið höfuðborg-
arsvæðisins kallað til aðstoðar.
Vel gekk að slökkva eldinn.
GLERHÁLKA Á AUSTFJÖRÐUM
Flughált var á vegum á Aust-
fjörðum á laugardag, ekki síst í
Norðfirði þar sem vegirnir voru
eins og gler. Krossaði lögregla
sig fyrir að umferð gengi vel
miðað við ástand vega, en engin
óhöpp urðu hjá ökumönnum.
■ MENNTAMÁL
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
SKIPULAGSMÁL Skipulagsstofnun
hefur ekki sent tillögu Seltjarnar-
nesbæjar að nýju aðalskipulagi til
staðfestingar hjá umhverfisráð-
herra heldur óskað eftir frekari
upplýsingum frá bæjaryfirvöld-
um.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir,
starfandi skipulagsstjóri, segir að
bæjaryfirvöldum hafi verið sent
bréf vegna þessa. Skipulagsstofn-
un telji að bæjaryfirvöld eigi eftir
að bregðast við þeim athugasemd-
um sem stofnunin gerði á sínum
tíma við skipulag Hrólfsskóla-
mela. Þá telji stofnunin einnig að
bæjaryfirvöld eigi eftir að bregð-
ast við athugasemdum almenn-
ings við skipulag svæðisins.
Guðrún Helga Brynleifsdóttir,
oddviti Neslistans, segir þetta
ekki koma á óvart. Neslistinn, líkt
og fjölmargir íbúar Seltjarnar-
nesbæjar, hafi margoft mótmælt
skipulaginu. Sjálfstæðismenn hafi
hins vegar ekki sýnt neinn sátta-
vilja heldur keyrt málið áfram án
þess að láta sig mótmælin miklu
varða.
Jónmundur Guðmarsson bæj-
arstjóri vísar gagnrýni Neslistans
á bug. Hann segir málið hafa ver-
ið í vinnslu í rúm tvö ár og mjög
vel kynnt fyrir íbúum. Jónmund-
ur segir að grundvallaratriðið sé
að Skipulagsstofnun sé ekki að
gera bæjaryfirvöld afturreka
með skipulagið heldur sé verið að
óska eftir frekari upplýsingum.
- th
JÓNMUNDUR GUÐMARSSON
Bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar segir skipu-
lagsmálin hafa verið mjög vel kynnt fyrir
íbúum.
Skipulagsstofnun óskar eftir frekari upplýsingum
frá Seltjarnarnesbæ:
Aðalskipulag hefur
ekki verið staðfest
Hús Orkuveitunnar:
Gleymdu loftræstingu og báru við of ódýru húsi
HÖFUÐSTÖÐVAR ORKUVEITUNNAR
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að nýjar höfuðstöðvar kosti 122,5 prósentum
meira en fékkst fyrir sölu eldri höfuðstöðva.