Fréttablaðið - 09.01.2005, Síða 16

Fréttablaðið - 09.01.2005, Síða 16
16 9. janúar 2005 SUNNUDAGUR Hann situr við veglegt taflborð – sem hann fékk í kveðjugjöf eftir stórmót á Kúbu – á kóngsvængn- um, eins og hann kallar hús- bóndaherbergið með stórfeng- legu útsýni yfir Esjuna og flóann. Á öðrum stað heimilisins er drottningarvængurinn þar sem eiginkonan nýtur fagurs sam- spils borgar og náttúru. Í loftinu dansa klassískir tónar og alls staðar má sjá forvitnilega gripi úr veröldinni og skákverðlaun í formi útskorinna kistla, risatré- hróka og alls hins óhefðbundna. Óskabarn þjóðarinnar Friðrik Ólafsson stórmeistari sýndi barnungur undraverða takta við taflborðið. Hann varð Norðurlandameistari aðeins sautján ára gamall og sigraði á hverju stórmótinu á fætur öðru í kjölfarið. „Þá fór eiginlega allt á hvolf og áhugi á skák reis upp úr öllu valdi,“ segir hann og hlær við. „Ég efast um að meiri skákáhugi hafi vaknað síðar; jafnvel ekki eftir heimsmeistaraeinvígi Spasskís og Fischers 1972.“ Hann viðurkennir að hafa orð- ið stjarna á þeirra ára mæli- kvarða. „Það var svosem ekki mikið að gerast og þótti merki- legt að strákur frá lítilli eyju skytist upp á stjörnuhimininn með þessum árangri. Ég fékk heillaóskaskeyti frá Íslendingum alls staðar að og fannst það mikill styrkur; mér þótti gott að finna stuðninginn og fékk byr undir báða vængi. Sem dæmi voru þetta skeyti frá áhöfnum togara, saumaklúbbum, húsmæðraskól- um og kvennaskólum,“ minnist Friðrik eilítið feimnislega og ját- ar að trúlega hefði ekki verið vandkvæðum bundið að finna kvonfang á þeim tíma, þótt hann hafi síst mælt velgengni í kven- hylli og rómantískri athygli. Sókndjarfur og aggressívur Árið 1958 hlaut Friðrik fyrstur Íslendinga nafnbótina stórmeist- ari, en næsti íslenski stórmeist- arinn varð Guðmundur Sigur- jónsson 1975. Síðan hefur þeim fjölgað um átta. Af ótal viður- kenningum og verðlaunum; sem og riddarakrossi og stórriddara- krossi Hinnar íslensku fálkaorðu, segir Friðrik stórmeistaratitilinn hafa snortið sig mest. „Ég var hreykinn af því að verða stórmeistari enda gífurlegt stökk upp á við. Þetta var svo mikil viðurkenning á þeim tíma og stór áfangi í skákheiminum. Ég hef sjaldan lifað ánægjulegri dag en þegar ég vissi að ég var kominn í hóp stórmeistara svo til- finningalega stendur sú viður- kenning upp úr.“ Þegar Friðrik er spurður hverjum var skemmtilegast að mæta á taflborðinu nefnir hann heimsmeistarann M. Tal. „Hann var geysilega skemmti- legur skákmaður sem sjaldan gat setið á sér og setti allt upp í loft. Djarfur og ótrúlega hugkvæmur. Það var alltaf eins og maður sæti á eldjalli en maður gat ekki ann- að en tekið þátt í leiknum. Ég bæði tapaði fyrir honum og vann. Var sjálfur sókndjarfur og aggressívur skákmaður því logn- molla er ekki minn stíll. Maður hefur þannig gengið of langt í sókndirfskunni á stundum og tap- að, en þá er bara að vinna næstu skák í staðinn.“ Sönn vinátta sjaldgæf í skák- heimi Friðrik kynntist vel fyrrverandi heimsmeistara Bobby Fisher gegnum skákina, en þeir urðu jafnir að vinningum þegar þeir tefldu á millisvæðamótinu í Por- toroz 1958 og fengu réttinn til að taka þátt í áskorendamótinu í skák, sem haldið var í Júgóslavíu ári síðar. Sigurvegarinn í því móti öðlaðist rétt til að tefla við heimsmeistarann um heims- meistaratitilinn, en Tal varð efst- ur í Portoroz og einnig á áskor- endamótinu 1959. Varð svo heimsmeistari 1960. „Sami hópurinn keppti á þess- um stórmótum og yfirleitt gott samband okkar á milli. Fischer opnaði sig ef hann fann að maður var ekki með neinn derring. Vita- skuld vorum við allir keppinaut- ar og fágætt að maður hleypti öðrum inn á sig, nema treysta þeim fullkomnlega. Slík vinátta er sjaldgæf innan skákheimsins.“ Hann segir nokkra einhæfni einkenna líf skákmanna. „Þannig er með alla afreksmenn sem ná langt. Maður er vakinn og sofinn að hugsa um skákina, og dreymir stundum lausnirnar ef maður er ekki búinn að finna þær áður en maður sofnar. Utanaðkomandi finnast þeir kannski vera fagídjótar en menn verða nánast að vera það ef þeir ætla að ná ár- angri. Mönnum tekst svo misvel að leyna því. Þá er alltaf hætta á að menn einangrist inni í sjálfum sér því þeir eru svo agaðir og gera lítið í því að útvíkka sjón- deildarhringinn að öðru leyti. Maður verður að treysta á sig sjálfan og engan annan. Berja í sjálfan sig stálinu og sannfæra sig um að maður geti komist alla leið og borið sigur úr býtum. Það hlýtur að skína í gegn að miklir skákmenn hafa mikið sjálfs- traust en fyrir bragðið verða þeir kannski eitthvað hrjúfari og þola síður að þeim sé mótmælt.“ Hamingjan valin Friðrik hætti að tefla þegar hann tók við starfi forseta Alþjóða- skáksambandsins FIDE, sem hann gengdi frá árinu 1978 til 1982. Áður hafði hann lagt skák- ina á hilluna þegar hann gerðist fjölskyldumaður og nam lög- fræði við Háskóla Íslands. „Ég vildi ekki gera skákina að lifibrauði. Það kostar óhemju sjálfsaga og maður verður að gefa sig allan í það – af lífi og sál. Ég velti fyrir mér hamingjunni; hvort ég fyndi hana í skákinni. Ég er ekki viss um að afreks- menn í íþróttum, seldir og keypt- ir milli félaga séu endilega ham- ingjusamir í því rótleysi sem því fylgir og oft án fjölskyldu. Þeir sem ná langt verða oft einrænir og skortir fyllingu, og því já- kvætt að hafa eitthvað annað með. Að kvænast hafði sínar breytingar í för með sér. Ég gerði upp við mig að kjósa fjölskyldu- lífið, sem þýddi að skákin hafði engan sérstakan forgang lengur.“ Þegar Friðrik hugsar um kostnaðinn í persónulegum fórn- um segist hann ekki sjá eftir því að taka þessa ákvörðun. „Hefði ég brotið allar brýr að baki mér hefði ég trúlega komist langleiðina á toppinn. Það var líka veruleg forsenda fyrir þess- ari ákvörðun að litlir peningar voru í skákinni á þessum tíma. Hefðu þeir verið í líkingu við þær upphæðir sem sjást í skák- heiminum í dag hefði maður kannski hugsað sig svolítið um og verið sæmilega öruggur um að hafa ofan í sig og sína. Sovét- menn höfðu mikla yfirburði á skáksviðinu á þessu tímabili en héldu í rauninni atvinnumennsku í skákinni niðri. Skákin var þjóðaríþrótt hjá þeim – og er reyndar enn – og allir sovéskir skákmeistarar sem eitthvað kvað að þáðu laun hjá ríkinu – voru í rauninni opinberir starfsmenn. Það mætti því kalla þetta dulbúna atvinnumennsku. Sovétmenn lögðust gegn því leynt og ljóst að miklir peningar kæmu í skákina og há verðlaun – og þóknun til skákmeistara fyrir þátttöku í skákmótum var þeim lítið áhuga- mál. Skákin var víst of göfug fyrir slíkt. Þegar sovéskir skák- Stórmeistari á tímamótum Það er sérstaklega bjart yfir alþjóðlega stórmeistaranum og lögfræðingnum Friðriki Ólafssyni. Hann er yfirvegaður hugsuður; eldklár og glæsilegur; fágætur heimsmaður og herramaður í senn. Seinna í janúar ætlar hann í afmælissiglingu um heimshöfin í tilefni sjötugsafmælisins. Hann stendur á tímamótum í mörgum skilningi; er hættur sem skrifstofustjóri Alþingis og stefnir allt eins á endurkomu í skákheiminum. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir naut samvista við Friðrik á síðasta degi jóla. AFTUR VIÐ TAFLBORÐIÐ Friðrik hefur lítið teflt hin síðari ár en fær nú hvatningu víða að um að tefla á ný og taka þátt í skákmótum. Hann segir allt eins líklegt að hann taki þeirri áskorun, og auðvitað tæki hann skák við Bobby Fischer ef Japanar sleppa honum einhvern tímann úr prísundinni til Íslands. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Friðrik Ólafsson stórmeistari í skák Fæddur í Reykjavík 26. janúar 1935 Maki: Auður Júlíusdóttir skrifstofumaður Börn: Bergljót (fædd 1962) og Áslaug (fædd 1969). Stúdentspróf frá MR 1955 Cand.jur. frá Háskóla Íslands 1968 Fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 1968 til 1974 Forseti Alþjóðaskáksambandsins FIDE 1978 til 1982 Skrifstofustjóri Alþingis 1984 til 2005 Veitti forstöðu Skákskóla Friðriks Ólafssonar 1982 til 1984 Alþjóðlegur stórmeistari í skák 1958 Riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 1972 Stórriddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 1980 Ritstörf: Lærið að tefla, ásamt Ingvari Ásmundssyni 1958. Heimsmeistaraeinvígið í skák 1972, ásamt Freysteini Jóhannssyni 1972. Við skákborðið í aldarfjórðung 1976

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.