Fréttablaðið - 09.01.2005, Síða 17
meistarar tefldu utan landsstein-
anna var engin áhersla lögð á það
af þeirra hálfu að há verðlaun
væru í boði. Þetta hét að þeir
væru að útbreiða gospelið um yf-
irburði kommúnismans. Þeir
voru góðir í skák vegna þess að
það var kommúnisminn sem ól
upp þessa snillinga.“
Fischer breytti skákinni
Atvinnumennska og peninga-
flæði í skákheiminum gerbreytt-
ist eftir að Bandaríkjamaðurinn
Bobby Fischer rauf einokun Sov-
étríkjanna og vann Rússann Bor-
is Spasskí í heimsmeistaraein-
víginu á Íslandi 1972.
„Fischer gerði kröfur um
stórar fjárupphæðir í verðlaun
og þátttökuþóknun og fékk. Við
þetta dofnuðu áhrif Sovétríkj-
anna, en því miður fékkst
Fischer ekki til að tefla meira þó
miklar fjárfúlgur væru í boði. Í
einvíginu við Karpov 1975 um
heimsmeistaratitilinn gerði
hann kröfu um að áskorandinn
yrði að sanna yfirburði sína með
tveggja vinninga mun í stað
eins. Auðvitað er réttlátt að
heimsmeistari njóti vissra for-
réttinda þegar hann ver titil sinn
en Alþjóðaskáksambandið féllst
ekki á þessar kröfur. Karpov
varð því heimsmeistari án þess
að tefla við Fischer og við það
dró heldur úr peningaflæðinu í
skákheiminum. Margar tilraunir
voru gerðar til að fá Fischer til
að tefla á nýjan leik en allt kom
fyrir ekki þótt milljónir dala
væru í boði og smám saman fest-
ist hann í þessu fari. Þegar mað-
ur er kominn á toppinn kemst
maður ekki lengra, nema reyna
að ná sambandi við Guð. Fischer
gekk í sértrúarsöfnuð sem mér
skilst að hafi tekið drjúga pró-
sentu af tekjum hans.“
Þeim Fischer og Friðrik varð
vel til vina en Friðrik er átta
árum eldri. „Ég hitti hann fyrst
þegar hann var fimmtán ára í
Portoroz og fannst hann nokkuð
ungæðislegur. Hjá honum eru
hlutirnir annað hvort hvítir eða
svartir. Annað hvort ertu góður
eða slæmur, eins og hann talar
nú um gyðinga og síonista, en
sjálfur er hann gyðingur. Þetta
er einhver sjálfseyðingarhvöt.
Ég varð þess var að Fischer var
haldinn djúpum ótta við að tapa
og það virtist oft valda honum
miklum kvíða.
Ég man að ég sagði einhvern
tímann við hann: „Bobby, það
getur nú varla verið svona
slæmt þótt þér yrði á að tapa
einni skák!“
En þá sagði Fischer: „Ja, þú
getur talað svona, en ég get ekki
leyft mér það!“
Fischer í nauðum staddur
Í aðdraganda þess að íslensk
stjórnvöld hafa boðið Bobby
Fischer landvistarleyfi á Íslandi,
segist Friðrik ekki hafa beitt sér
sérstaklega í því máli.
„Það varð einhver að brjóta ís-
inn og mér fannst það mjög gott
hjá Davíð Oddssyni að bjóða hon-
um dvalarleyfi hér, enda Fischer
hluti af okkar sögu. Hann varð
heimsmeistari hérna á Íslandi og
segja má að hann hafi komið Ís-
landi á heimskortið. Maðurinn er
í nauðum staddur og honum virð-
ast allar bjargir bannaðar. Af
mannúðarástæðum er þetta fylli-
lega réttlætanlegt og vonandi
tekst að koma honum úr þessum
vanda.“
Aðspurður segir Friðrik vel
koma til greina að taka skák við
Fischer ef Japanar sleppa honum
einhvern tímann úr prísundinni.
„Fischer er reyndar orðinn
leiður á venjulegri skák og talar
mest handahófsskák eða random
chess. Þá er taflmönnum í aftari
röð raðað upp af handahófi og
skákin teflist þá með nokkuð öðr-
um hætti en venjuleg skák þótt
manngangurinn sé sá sami. Hins
vegar kemur þetta í veg fyrir að
menn geti fært sér í nyt alla teór-
íuþekkinguna sem er að verða
nánast yfirþyrmandi, og það er
helsti kosturinn við þessa nýju
tegund skákar. Ég er lítt spennt-
ur fyrir þessari skák, enda skák-
in mjög gamalt fyrirbæri sem
hefur verið að þróast í um 1500
ár. Mönnum hefur líka stundum
þótt skákin vera orðin of einföld
fyrir sig og frægt dæmi um það
er þegar Capablanca, sem var
heimsmeistari á árunum 1921 til
1927, stakk upp á að mönnunum
yrði fjölgað upp í 40 í stað 32 og
reitunum upp í hundrað í stað 64.
Ári eftir tapaði hann heims-
meistaratitli sínum í hinni hefð-
bundnu skák, og eftir það heyrð-
ist ekkert meira af tillögum hans
um að breyta taflinu.“
FIDE míní-útgáfa Sameinuðu
þjóðanna
Eftir lögfræðipróf hóf Friðrik
störf í dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu, en síðan gerðist hann
forseti Alþjóðaskáksambandsins
(FIDE), sem var gott meira en
fullt starf.
„Það var vissulega tvíbent að
takast þetta starf á hendur. Það
þýddi að ég varð að hætta að
tefla en þá var ég kominn á tals-
vert flug í skákinni og átti ágæt-
is tímabil sem ég kalla annan
kapítula, frá 1975 til 1978. Sá
fyrri var milli tvítugs og þrítugs.
En ég sé ekki eftir neinu og starf
forsetans víkkaði sjóndeildar-
hringinn. Hins vegar var erfitt
að hætta og auðvitað alltaf spurn-
ing hvort ég átti að fallast á að
gegna þessu embætti, sem ég þó
gerði. Það var gaman en líka
erfitt. Þetta var eins og míní-út-
gáfa af Sameinuðu þjóðunum; al-
veg sömu blokkirnar og mikil
pólitík.“
Haustið 1984 tók Friðrik við
starfi skrifstofustjóra Alþingis,
en um þessar mundir lýkur starfs-
dögum hans þar. Sjálfur segist
hann ekki hafa íhugað þann mögu-
leika að setjast á þing.
„Ég tel ekki að það sé starf sem
ég sé beinlínis lagaður fyrir. Ég
hef auðvitað verið í góðri aðstöðu
til að fylgjast með störfum þing-
manna og geri mér ljósa grein
fyrir hvað það útheimtir. Þetta er
mjög krefjandi starf og ég held að
almennt geri menn sér ekki fulla
grein fyrir því hve gífurleg vinna
felst í því að vera þingmaður. Þeir
eru undir smásjánni og geta
sjaldnast ráðið sínum tíma á þann
hátt sem þeir helst kysu sjálfir.“
Þegar hann er spurður hvar
hann er staddur í pólitík, segist
hann lítt hafa flíkað því enda Al-
þingi ekki heppilegur starfsvett-
vangur til að flíka slíku af augljós-
um ástæðum.
EES og fjölmiðlalögin eftirminni-
legust
Eftirminnilegast frá Alþingisár-
unum segir Friðrik vera ýmsar
snarpar innanhússorrustur eins
og til dæmis EES-málið og fjöl-
miðlafrumvarpið.
„EES-málið var mikill bardagi
á sínum tíma og gekk svo langt að
forseti Íslands stóð frammi fyrir
áskorunum um það að skrifa ekki
undir lögin. Og núna síðastliðið
sumar gerðist það, sem er líka
mjög eftirminnilegt, að forsetinn
hafnaði því að staðfesta fjöl-
miðlalögin, sem auðvitað skapa
alveg nýjar aðstæður á vettvangi
stjórnmálanna.
Það er yfirleitt alltaf eitthvað
að gerast á Alþingi og þar finnast
virkilega mælskir og skemmti-
legir menn sem gaman er að
hlusta á,“ segir Friðrik og bætir
við að margir séu glettilega góðir
skákmenn líka.
Gæfumaður á tímamótum
Stórmeistarinn stendur á tíma-
mótum. Hann verður sjötugur 26.
janúar og ætlar í tilefni afmælis-
ins í skemmtisiglingu um heims-
höfin.
„Ég hef yndi af ferðalögum,
sem og af lestri góðra bóka,
klassískri tónlist og mýmörgu
öðru. Ég verð ekki í neinum
vandræðum að finna eitthvað að
dútla við. Þar verður af nógu að
taka. Ég er mikið hvattur til að
koma aftur í skákina og tefla á
mótum. Það væri nokkurt átak en
gæti vel farið svo að ég tefldi op-
inberlega á ný. Þá er á prjónun-
um bók um skákferil minn, en
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,
forseti Skáksambands Íslands,
ætlar að rekja úr mér garnirnar
og vera ritstjóri verksins. Nú svo
er það náttúrlega fjölskyldan;
barnabörnin eru orðin fimm. Og
lögfræðin mun halda áfram að
verða mér uppspretta fróðleiks
og ánægju.
Friðrik telur sig hafa verið
gæfusaman í lífinu. „Þegar á
heildina er litið get ég vel við
unað, en maður má ekki vera
heimtufrekur. Maður getur alltaf
sagt að maður hefði átt að haga
sér öðruvísi eða taka á málum á
annan hátt, því auðvitað er maður
alltaf að þroskast. Ég hef lifað til-
tölulega viðburðaríku lífi; á ynd-
islega fjölskyldu og marga góða
vini. Meira verður ekki farið
fram á.“ ■
SUNNUDAGUR 9. janúar 2005 17
Skil á upplýsingum
vegna skattframtals
Launamiðar og verktakamiðar
(RSK 2.01). Skilaskyldir eru allir þeir
sem innt hafa af hendi launagreiðslur,
hlunnindi, lífeyri, bætur, styrki,
greiðslur til verktaka fyrir þjónustu
(efni og vinnu), eða aðrar framtals-
skyldar greiðslur.
Bifreiðahlunnindamiðar (RSK
2.035). Skilaskyldir eru allir þeir sem í
rekstri sínum eða annarri starfsemi
hafa haft kostnað af kaupum, leigu
eða rekstri fólksbifreiðar og ekki fylla
út RSK 4.03 vegna hennar.
Hlutafjármiðar (RSK 2.045)
ásamt samtalningsblaði (RSK
2.04). Skilaskyld eru öll hlutafélög,
einkahlutafélög og sparisjóðir.
Stofnsjóðsmiðar (RSK 2.065)
ásamt samtalningsblaði (RSK
2.06). Skilaskyld eru öll samvinnufélög
þ.m.t. kaupfélög.
Launaframtal (RSK 1.05).
Skilaskyldir eru þeir einstaklingar, sem
stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða
starfsemi og ekki skila skattframtali á
rafrænu formi, og lögaðilar sem und-
anþegnir eru skattskyldu og skila ekki
skattframtali RSK 1.04, hafi þeir greitt
laun eða viðbótarframlag í lífeyrissjóð
á árinu 2004.
Skýrsla um viðskipti
með hlutabréf (RSK 2.08).
Skilaskyldir eru bankar, verð-
bréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem
annast kaup og sölu, umboðs-
viðskipti og aðra umsýslu með
hlutabréf.
Takmörkuð skattskylda -
greiðsluyfirlit (RSK 2.025). Skila-
skyldir eru allir þeir sem innt hafa af
hendi greiðslur til erlendra aðila og
annarra, sem bera takmarkaða skatt-
skyldu hér á landi vegna þjónustu eða
starfsemi sem innt er af hendi hér á
landi og greiðslur fyrir leigu, afnot eða
hagnýtingu leyfa og hvers konar rétt-
inda o.fl.
Greiðslumiðar - leiga eða
afnot (RSK 2.02). Skilaskyldir eru allir
þeir sem innt hafa af hendi greiðslur
fyrir leigu eða afnot af lausafé,
fasteignum og fasteignaréttindum,
aflaheimildum, einkaleyfum eða
sérþekkingu.
Hlutabréfakaup skv. kaup-
réttarsamningi (RSK 2.085). Skila-
skyld eru öll hlutafélög sem gert hafa
kaupréttarsamninga við starfsmenn
sína samkvæmt staðfestri kaupréttar-
áætlun.
2005*
RSK
Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að eftirtöldum gögnum
vegna ársins 2004 skuli skilað til skattstjóra eigi síðar en
27. janúar 2005.
Sé gögnunum skilað á rafrænu formi framlengist fresturinn til
7. febrúar 2005.
Upplýsingum þessum skal, ef unnt er, skilað á tölvutæku formi
samkvæmt færslulýsingu sem finna má á vefsíðu ríkisskattstjóra
undir www.rsk.is/vefskil/vefskil.asp en annars á
hinum tilgreindu eyðublöðum sem einnig er þar að finna.
* Útdráttur úr auglýsingu í Stjórnartíðindum um skilaskyldu og skilafresti á árinu 2005 fyrir launa-skýrslur o.fl. sem birt er skv. heimild í 92. og 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og eignarskatt.
STÓRMEISTARINN FRIÐRIK ÓLAFSSON Hefur kvatt starf sitt sem skrifstofustjóri Al-
þingis eftir tuttugu ár í eldlínu lýðveldisns. Hann segist ekki hafa íhugað að fara á þing
sjálfur þar sem hann sé ekki lagaður fyrir það krefjandi starf. Hann styður eindregið að
Bobby Fischer fái dvalarleyfi á Íslandi, en þeir meistararnir kynntust vel í gegnum skák-
heiminn á árum áður.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N