Fréttablaðið - 09.01.2005, Síða 18

Fréttablaðið - 09.01.2005, Síða 18
18 9. janúar 2005 SUNNUDAGUR VEITINGAREKSTUR Þórarinn Hávarðs- son er dugmikill Eskfirðingur á miðjum aldri sem lætur sér fátt fyrir brjósti brenna og er óragur við að feta ókunn spor. Í gegnum tíðina hefur hann tekið sér eitt og annað fyrir hendur til að fram- fleyta sér og sínum, s.s. sjó- mennsku, sjoppurekstur, bygg- ingavinnu, fiskvinnslu, löndun og myndbandagerð en hann á um 1.500 klukkustundir af myndefni frá Austurlandi. Þá hefur hann starfað sem öryggisvörður, bar- þjónn og var lengi vel tökumaður fyrir sjónvarp. Þórarinn á þessa sjálfsbjargarviðleitni ekki langt að sækja því faðir hans heitinn, Hávarður Bergþórsson, var með puttana í flestu sem leitt gat til tekjuöflunar þó hans aðalstörf hafi tengst sjósókn og búskap. Eitt af hans aukastörfum var að hreinsa skorsteina í Neskaupstað og var hann einn af síðustu, ef ekki síðasti, sóturum á Austur- landi. Þórarinn er vakinn og sofinn í þeim verkum sem hann tekur sér fyrir hendur og enginn mun saka hann um að sitja með hendur í skauti. Í eitt skipti var hann hins vegar sakaður um ólöglega fjöl- földun myndbanda, og sakfelld- ur! Það gerðist á síðasta áratug þegar mikið var um að kvik- myndir og sjónvarpsefni væri fjölfaldað fyrir áhafnir skipa. Segir Þórarinn að þetta viðgang- ist víða enn í dag. „Þetta tíðkast vítt og breitt um landið enn þá, þrátt fyrir að ég hafi verið hengdur öðrum til viðvörunar. Yfirvöldum þótti ég kannski helst til stórtækur í þessu en þeg- ar ég var staðinn að verki þá var ég með 33 vídeótæki í gangi. Á þessu ævintýri tapaði ég 1,3 milljónum króna en þetta er nú allt liðin tíð.“ Þensla vegna álvers Eftir að hafa rekið söluturn á Reyðarfirði um hríð ákváðu Þór- arinn og eiginkona hans, Lára Thorarensen, að söðla um á liðnu vori og opna skemmti- og veit- ingastað á Eskifirði. „Hvatinn að þessari ákvörðun okkar var sá að sl. vor áttu verktakar sem komu til Austurlands í vandræðum með að fá mat fyrir starfsmenn sína en mikil þensla er á svæðinu vegna álversins í Reyðarfirði. Við ákváðum því að grípa tæki- færið og keyptum gamalt fisk- vinnsluhús við Strandgötu á Eski- firði og breyttum því í veitinga- og skemmtistað. Reyndar hefur þetta hús, sem byggt var upp úr 1960, hýst margvíslega starfsemi og upphaflega var það byggt und- ir rörasteypu. Síðar var tré- smíðaverkstæði í húsinu, hár- greiðslustofa og skrifstofur en þekktast er það fyrir að þar var harðfiskvinnsla Eskfirðings,“ segir Þórarinn. Hárgreiðslustofan sem í hús- inu var hét Toppurinn, sem er í senn eðlilegt og ágætt nafn á þannig starfsemi. Þórarni og Láru fannst nafnið geta átt vel við veitinga- og skemmtistað og því heitir nýi staðurinn þeirra Toppurinn. „Þegar við vorum að hugsa um hvað staðurinn ætti að heita fannst okkur setningar eins og „KK á Toppnum í kvöld“ hljóma vel og því var það niður- staðan.“ Fáir höfðu trú á hugmyndinni Eftir að Þórarinn og Lára höfðu fundið húsnæði, sem þeim leist vel á, var fjármögnun næsta skrefið. „Það gekk illa framan af að finna bankastofnun til að koma að fjármögnun en þegar við snerum okkur til Íslandsbanka fóru hjólin að snúast. Við keypt- um húsið á 8,3 milljónir króna en eftir gagngerar breytingar var kostnaðurinn við húsnæði, tól og tæki kominn í rúmar 27 milljónir. Sjálf lögðum við til um 6 milljón- ir króna en Íslandsbanki fjár- magnaði afganginn með láni til 20 ára. Það voru reyndar ekki bara sumar bankastofnanir sem höfðu litla trú á að hugmyndin gæti gengið upp því ég held að flestir Eskfirðingar hafi talið að við værum endanlega búin að tapa okkur þegar við réðumst í þetta verkefni. Nú er rúmur mán- uður síðan við opnuðum og ég verð ekki var við annað í dag en flestir séu mjög ánægðir með staðinn og þokkalega bjartsýnir á rekstur hans. Ég finn fyrir mikl- um velvilja hjá bæjarbúum, mun meiri en ég átti von á, og það þyk- ir mér mjög vænt um,“ segir Þór- arinn. Rifu allt út Það fyrsta sem Þórarinn og Lára gerðu eftir að þau keyptu húsið var að ráðast í miklar endurbæt- ur innandyra. Að því verki komu um 20 iðnaðarmenn, auk þeirra hjóna og tveggja sona þeirra. „Við byrjuðum 10. maí á að brjóta niður veggi og henda út nánast öllu því sem fyrir var í húsinu. Við eigum tvo syni, 16 ára og 20 ára, og þeir hjálpuðu okkur mikið við breytingarnar enda í raun um fjölskyldufyrirtæki að ræða. Í húsinu voru frysti- og þurrktæki frá harðfiskvinnslunni og seldum við þann búnað en margt fékk að fjúka.“ Endurbæturnar tóku lengri tíma en þau hjón reiknuðu með í fyrstu, m.a. vegna þess hversu iðnaðarmenn eru umsetnir á Austurlandi um þessar mundir. Þegar liðlega hálft ár var liðið frá því að þau byrjuðu að brjóta nið- ur og henda út var staðurinn loks tilbúinn og þau opnuðu nýjan og glæsilegan skemmti- og veitinga- stað 19. nóvember síðastliðinn. Viðtökur framar vonum Þórarinn segir að þau hafi farið rólega af stað og ekkert auglýst fyrstu vikuna. „Við vildum vera viss um að allt gengi eins og smurð vél og því þótti okkur betra að fara rólega í gang. Það breyttist þó fljótt og strax helg- ina eftir vorum við með jólahlað- borð og gestafjöldinn var rúm- lega 120. Agnes Karen Sigurðar- dóttir, meistarakokkur frá Reykjavík, kom austur til okkar og töfraði fram tæplega 30 rétti og að hlaðborði loknu var dansað fram á nótt. Viðtökur gesta fóru langt fram úr okkar björtustu vonum og margir trúðu ekki að húsnæðið hefði áður verið notað undir fiskvinnslu.“ Þann tíma sem liðinn er frá opnun hefur staðurinn verið mjög vel sóttur að sögn Þórarins. „Hingað koma ekki bara Eskfirð- ingar heldur líka Reyðfirðingar, Norðfirðingar og fólk frá fleiri stöðum á Austurlandi. Framund- an er þétt dagskrá enda stefnan að hafa einhverja áhugaverða uppákomu um hverja helgi, allt árið um kring. Staðurinn er þó alls ekki bara „djammstaður“ því við munum leggjum ríka áherslu á dagskrá af menningarlegum toga. Markmið okkar er að skapa lifandi stemningu í notalegu og vinalegu umhverfi,“ segir Þórar- inn Hávarðsson. kk@frettabladid.is Tóti kominn á Toppinn Þórarinn Hávarðsson og fjölskylda keyptu gamalt fiskvinnsluhús á Eskifirði og breyttu í skemmtistað. Húsið og framkvæmdirnar kostuðu vel á þriðja tug milljóna. Þórarinn er bjartsýnn eins og vanalega. FISKVINNSLUSALURINN Svona leit húsnæðið út þegar Þórarinn og Lára keyptu það. TÓTI Á TOPPNUM Þórarinn Hávarðsson, eigandi Toppsins á Eskifirði. SALURINN TILBÚINN Húsnæðið hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum mánuðum. ,,„ Ég finn fyrir miklum velvilja hjá bæjar- búum, mun meiri en ég átti von á, og það þykir mér mjög vænt um.“

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.