Fréttablaðið - 09.01.2005, Page 44
24 9. janúar 2005 SUNNUDAGUR
Við hrósum...
...Eiði Smára Guðjohnsen sem náði þeim merka áfanga að vera fyrirliði Chelsea gegn
Scunthorpe í enska bikarnum í gær. Þetta er enn ein rósin í hnappagat Eiðs Smára og
vitnisburður um þá virðingu sem hann nýtur innan raða eins besta félagsliðs í heimi.
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
6 7 8 9 10 11 12
Sunnudagur
JANÚAR
Við hrósum...
...Stjörnunni í Garðabæ fyrir frábært framtak í
handboltanum. Félagið hefur staðið fyrir riðli í
Evrópukeppninni í kvennahandbolta og gert það
með sóma. Mikil stemning hefur verið á leikjum og
frammistaða Stjörnuliðsins hefur verið til sóma.
ÍÞRÓTTAMANNVIRKI Hlutafélagið Vals-
menn hf. mun, ef ekkert óvænt
kemur upp á, festa kaup á bygg-
ingarétti á lóð Knattspyrnufélags-
ins Vals á Hlíðarenda fyrir 856
milljónir en samkvæmt deili-
skipulagi er ráðgert að byggja 170
íbúðir auk atvinnuhúsnæðis þar á
næstu árum.
Hluthafafundur félagsins á
reyndar eftir að samþykkja kaup-
in en ekki er talið líklegt að hlut-
hafarnir séu þessu mótfallnir. Það
eina sem gæti haft áhrif á kaupin
er að ákveðið svæði sem bygging-
arréttur er á, er á helgunarsvæði
flugvallarins í Vatnsmýrinni, nán-
ar tiltekið flugbrautar 06-24 og
því er óheimilt að byggja þar eins
og stendur. Helguninni mun hins
vegar að öllum líkindum verða
aflétt á næstunni.
Skuldir greiddar upp
Grímur Sæmundsen, formaður
Vals, sagði í samtali við Frétta-
blaðið að með þessari sölu á bygg-
ingaréttinum væri fjárhagslegur
grundvöllur fyrir uppbyggingu
nýrra og glæsilegra mannvirkja á
svæði Vals tryggður auk þess sem
allar skuldir félagsins yrðu
greiddar upp en þær eru um 260
milljónir.
„Það er auðvitað gleðilegt að
þetta félag, sem er eingöngu skip-
að Valsmönnum, skuli sjá sér hag
í því að festa kaup á þessum bygg-
ingarétti. Það skipti okkur gríðar-
legu máli að selja þennan bygg-
ingarétt enda fjarmögnum við
stærstan hluta mannvirkjanna
með því,“ sagði Grímur.
Hann sagði aðspurður að
kostnaður við byggingu nýs fé-
lagsheimilis, íþróttahúss, stúku
og knattspyrnuvallar væri rúm-
lega milljarður. „Þessi fram-
kvæmd er fjármögnuð með fram-
lögum frá Reykjavíkurborg og
síðan sölu á byggingaréttinum,“
sagði Grímur en framlög Reykja-
víkurborgar til Vals næstu þrjú
árin eru samanlagt 515 milljónir.
Útboð í febrúar
Grímur sagði að stefnan væri
að bjóða út framkvæmdir Vals nú
í febrúar og að hann ætti ekki von
á öðru en að þessi áfangi, sem sést
á myndinni hér til hliðar, verði
klár haustið 2006. Aðspurður um
hvort nýr stórveldistími væri að
renna upp hjá Val sagði Grímur að
allt stórveldistal væri út í hött.
„Við erum félag með sterka hefð
og stefnan hefur alltaf verið að
geta boðið upp á öflugt unglinga-
og æskulýðsstarf í bland við af-
reksstefnu. Við erum afskaplega
ánægðir með okkar svæði sem
verður án nokkurs vafa það glæsi-
legasta á landinu.“
Selt á ákveðnu stigi
Brynjar Harðarson, fasteigna-
sali og stjórnarformaður Vals-
manna hf., sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær að hann liti á
þessi kaup hlutafélagsins á bygg-
ingaréttinum sem tækifæri fyrir
sanna Valsmenn til að þróa og
hafa áhrif á það hvernig Vals-
svæðið liti út í framtíðinni. Brynj-
ar sagði jafnframt að Valsmenn
hf. myndu selja þetta á ákveðnu
stigi en ekki hefði enn verið tekið
ákvörðun um hvenær það yrði.
„Það er gífurlega jákvætt fyrir
félagið að allur byggingarétturinn
sé á einni hendi. Við hyggjumst
þróa þetta áfram með þeim arki-
tektum sem hafa teiknað nýju
íþróttamannvirkin þannig að
hverfið fær heildstæðan svip,“
sagði Brynjar.
Hluthafafundur Valsmanna hf.
hefur ekki enn samþykkt þetta en
Brynjar sagðist ekki búast við
öðru en að kaupin yrðu samþykkt.
Hluti af lóðunum verður bygging-
arhæfur í september á þessu ári
en Brynjar sagðist ekki vera viss
um að byrjað yrði strax að byggja.
Hrein viðskipti
Byggingarétturinn, sem Vals-
menn hf. hafa fest kaup á, nær
yfir 25 þúsund fermetra svæði.
Þar af er gert ráð fyrir 169 íbúð-
um á 18 þúsund fermetra svæði
og sjö þúsund fermetra atvinnu-
húsnæði. Brynjar sagði eigið fé
félagsins vera um 50 milljónir en
allt benti til þess að hlutafé yrði
aukið upp í 100 milljónir kjölfar
þessara viðskipta sem hlutafélgið
vonast til að græða sem mest á.
„Það er auðvitað alveg ljóst að
við erum ekki að leika okkur.
Þetta eru viðskipti og okkar
kappsmál er að byggja upp glæsi-
legt svæði fyrir Valsmenn, bæði
hvað varðar íþróttamannvirki og
íbúðarhúsnæði,“ sagði Brynjar.
Fréttablaðið leitaði til þraut-
reynds fasteignasala til að for-
vitnast hvort þetta kaupverð, 856
milljónir fyrir byggingaréttinn,
væri eðlilegt. Honum reiknaðist
til að byggingarétturinn væri
metinn á bilinu 830 til 850 mill-
jónir þannig að ljóst er að Vals-
menn hf. hafa greitt nálægt mark-
aðsvirði fyrir byggingaréttinn.
oskar@frettabladid.is
STÓRGLÆSILEGT ÍÞRÓTTASVÆÐI Svona mun íþróttavæðið hjá Val líta út haustið 2006. Það er ljóst að svæði annarra íþróttafélaga á
Íslandi líta hálf hjákátlega út við hliðina á þessum glæsilegu mannvirkjum.
Gamlir Valsarar borga brúsann
Hlutafélagið Valsmenn hf. hefur keypt byggingarétt af Knattspyrnufélaginu Val á lóðum félagsins við
Hlíðarenda fyrir 856 milljónir og gert það að verkum að fjármögnun framkvæmda félagsins á svæðinu
er borgið.■ ■ LEIKIR
14.00 Eskisehir Osmangazi og
Spono Nottwill mætast í Ásgarði
í Áskorendakeppni Evrópu í
kvennaflokki í handbolta.
16.15 APS Makedonikos og
Stjarnan mætast í Ásgarði í
Áskorendakeppni Evrópu í
kvennaflokki í handbolta.
18.15 Keflavík og ÍS mætast í
Keflavík í Bikarkeppni KKÍ &
Lýsingar í kvennaflokki í
körfubolta.
19.00 Breiðablik og Grindavík
mætast í Smáranum í
Bikarkeppni KKÍ & Lýsingar í
kvennaflokki í körfubolta.
19.15 Haukar og Njarðvík mætast
á Ásvöllum í Bikarkeppni KKÍ &
Lýsingar í kvennaflokki í
körfubolta.
19.15 Fjölnir og Skallagrímur
mætast í Grafarvogi í Bikarkeppni
KKÍ & Lýsingar í karaflokki í
körfubolta.
19.15 Hamar/Selfoss og
Grindavík mætast í Hveragerði í
Bikarkeppni KKÍ & Lýsingar í
karaflokki í körfubolta.
20.15 Keflavík og Njarðvík
mætast í Keflavík í Bikarkeppni
KKÍ & Lýsingar í karaflokki í
körfubolta.
■ ■ SJÓNVARP
09.40 European PGA Tour á Sýn.
Sýnt frá Deutsche Bank-mótinu á
evrópsku mótaröðinni í golfi.
10.30 Spænski boltinn á Sýn.
Útsending frá leik Valencia og
Levante í spænsku
úrvalsdeildinni í fótbolta.
12.10 NFL-tilþrif á Sýn.
12.40 Bestu bikarmörkin á Sýn.
Bestu mörk Arsenal í ensku
bikarkeppninni í fótbolta í
gegnum tíðina.
13.35 Enski bikarinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Yeading og
Newcastle í ensku
bikarkeppninni í fótbolta.
14.30 Áskorendakeppni Evrópu á
RÚV. Bein útsending frá leik
Eskisehir Osmangazi og Spono
Nottwill í Áskorendakeppni
Evrópu í kvennaflokki í handbolta.
15.40 Enski bikarinn á Sýn.
16.05 Áskorendakeppni Evrópu á
RÚV. Bein útsending frá leik APS
Makedonikos og Stjarnan í
Áskorendakeppni Evrópu í
kvennaflokki í handbolta.
17.50 Spænski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Atletico
Madrid og Real Madrid í
spænsku úrvalsdeildinni í
fótbolta.
19.50 Ítalski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Palermo og AC
Milan í ítölsku A-deildinni í
fótbolta.
21.40 NFL-deildin á Sýn. Bein
útsending frá leik Green Bay
Packers og Minnesota Vikings í
ameríska fótboltanum.
21.50 Helgarsportið á RÚV.
Hlutafélagið Valsmenn hf. hefur verið til í fimm ár og skilað sínu til Vals á þeim tíma sem það hefur starfað:
Hafa borgað 25 milljónir í reksturinn
HLUTAFÉLÖG Hlutafélagið Valsmenn
hf., sem festi kaup á bygginga-
rétti á svæði Vals að Hlíðarenda
fyrir 856 milljónir fyrir skömmu,
er fimm ára gamalt. Félagið sam-
anstendur af 438 hluthöfum, sem
allir eru Valsmenn, og er eigið fé
félagsins um 50 milljónir króna.
Brynjar Harðarson, stjórnar-
formaður félagsins, sagði í sam-
tali við Fréttablaðið að félagið
hefði komið að margvíslegri fjár-
festingastarfsemi síðan það var
stofnað.
„Markmið félagsins er að
styðja við bakið á Knattspyrnu-
félaginu Val og það hefur gengið
vel hjá okkur. Það er samt rétt að
taka það fram að við komum á
engan hátt nálægt rekstri deild-
anna hjá Val. Ef það væri raunin
þá væri hlutafélagið væntanlega
farið á hausinn,“ sagði Brynjar.
Hann sagði aðspurður að
hlutafélagið væri búið að láta
íþróttafélaginu um 25 milljónir í
té á undanförnum fimm árum.
„Ég er ekki með skiptinguna á
milli deilda í kollinum en fótbolt-
inn hefur fengið mest og síðan
handboltinn þar á eftir,“ sagði
Brynjar sem sagðist allt eins bú-
ast við því að hlutafélagið myndi
á einhvern hátt rétta hjálpar-
hönd í þeirri viðleitni Valsmanna
að festa knattspyrnulið sitt í
sessi í Landsbankadeild karla en
félagið vann sér þátttökurétt í
deildinni síðastliðið haust og hef-
ur þeyst á milli deilda undanfar-
in ár.
Meðal þekktra manna í hlut-
hafahópi Valsmanna hf. eru lög-
fræðingurinn og fyrrum at-
vinnumaðurinn Guðni Bergsson,
skartgripasalinn Sævar Jónsson,
rithöfundurinn Þorgrímur Þrá-
insson, handboltakapparnir Geir
Sveinsson og Valdimar Gríms-
son og fjölmiðlamaðurinn Her-
mann Gunnarsson.
- ósk GUÐNI BERGSSON Einn af hluthöfum Valsmanna hf. og er í stjórn hlutafélagsins.
EINS OG STAÐAN ER Í DAG Svona lítur félagsheimili Vals út í dag.