Fréttablaðið - 09.01.2005, Side 45
SUNNUDAGUR 9. janúar 2005 25
Ólafur Þór Guðbjörnsson hefurverið endurráðinn sem þjálfari
U-19 ára landsliðs kvenna í fótbolta.
Ólafur Þór hefur
stýrt liðinu síðan
1999 og verið við
stjórnvölinn í 32
leikjum, öllum leikj-
um þess nema
þeim fyrsta sem
fram fór 1997. Ólaf-
ur Þór hefur stjórn-
að liði Breiðabliks í Landsbankadeild
kvenna undanfarin tvö ár en Úlfar
Hinriksson mun stýra því á komandi
tímabili.
Nígeríski miðjumaðurinn Jay-JayOkocha, sem leikur með Bolton
í ensku úrvalsdeildinni, var í gær val-
inn knattspyrnu-
maður ársins í Afr-
íku árið 2004 af
breska ríkissjón-
varpinu, BBC.
Okocha hafði betur
eftir harða baráttu
við kamerúnska
framherjann Samu-
el Eto’o hjá Barcelona. Þetta er ann-
að árið í röð sem Okocha hlýtur
þessa nafnbót en hann var valinn
leikmaður mótsins í Afríkukeppninni
á síðasta ári og hefur verið aðalmað-
urinn í liði Bolton.
Arsenal hefur fest kaup á varnar-manninnum Emmanuel Eboue
frá Fílabeinsströndinni en hann hefur
leikið með belgíska
liðinu Beveren und-
anfarin ár. Arsenal
borgaði 1,5 milljónir
punda (um 177
milljónir íslenskra
króna) fyrir Eboue
sem er 21 árs gam-
all. Hann skrifaði
undir fimm ára samning við ensku
meistarana og getur spilað sem mið-
vörður, hægri bakvörður eða miðju-
maður.
Stuðningsmenn ManchesterUnited geta andað léttar því nú er
komið í ljós að
meiðsli Ryans
Giggs aftan á læri
eru ekki eins alvar-
leg og fyrst var talið.
Giggs meiddist í
leiknum gegn
Tottenham á þriðju-
daginn og var fyrst
talið að hann yrði frá í sex vikur. Alex
Ferguson, knattspyrnustjóri United,
sagði hins vegar við fjölmiðla í gær
að batinn væri mun hraðari en gert
hefði verið ráð fyrir og að Giggs yrði
klár í slaginn eftir tvær vikur.
Forráðamenn Manchester City hafahafnað fimm milljóna punda (um
590 milljóna króna) tilboði
Newcastle í franska varnarmanninn
Sylvain Distin. Graeme Souness,
knattspyrnustjóri Newcastle, vill fyrir
alla muni styrkja vörnina hjá sér en
forráðamenn City sögðu Distin ein-
faldlega ekki til sölu þar sem hann
ætti tvö og hálft ár eftir af samningi
sínum. Souness hefur þegar keypt
franska miðvörðinn Jean-Alain
Boumsong frá Rangers og nígeríska
bakvörðinn Celestine Babayaro frá
Chelsea og fregnir herma að hann
muni reyna að kaupa Samuel Osei
Kuffour frá Bayern München fyrst
hann fær ekki Distin.
Bandaríski hjólreiðakappinn LanceArmstrong, sem hefur unnið
hina erfiðu Frakklandskeppni (Tour
de France) undanfarin sex ár, segist
ekki ætla að taka
þátt í keppninni
þetta árið. Arm-
strong sagðist vilja
gera annað en að
keppa bara í Frakk-
landi og ætlar að
einbeita sér að því
að keppa í eins
dags mótum á næsta tímabili. „Ég
hef mikla þörf fyrir að einbeita mér
að þess háttar keppnum,“ sagði
Armstrong.
Allt er að verða klárt fyrir vetrar-ólympíuleikana í Tórínó sem fara
fram á næsta ári. Bygging mannvirkja
gengur framar björtustu vonum og
er búið að klára sleðabrautina, skíða-
stökkspallana og allar brautir og
brekkur fyrir alpagreinar og skíða-
göngur. Aðeins á eftir að klára
skautahöllina en þar er rétt lokafrá-
gangurinn sem er eftir. „Í fyrsta sinn í
sögu ólympíuleikanna verða öll
mannvirki klár ári áður en leikarnir
hefjast,“ sagði Mario Pescante, yfir-
maður skipulagsmála á leikunum í
Tórínó, ánægður.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Í takt vi› flínar flarfir
Mætum öll og sjáum hágæ›a körfubolta.
L‡sing hf. er stolt af stu›ningi sínum vi› bikarkeppnina í körfuknattleik
www.lysing.is
H
in
ri
k
P
ét
u
rs
so
n
l
w
w
w
.m
m
ed
ia
.is
/h
ip
BIKARKEPPNI
KKÍ & LÝSINGAR
8 - li›a úrslit í L‡singarbikarnum fara fram um helgina
Meistaraflokkur karla
Lau. 8. jan 2005 Egilssta›ir kl. 15:00 Höttur - Brei›ablik
Sun. 9. jan 2005 Grafarvogi kl. 19:15 Fjölnir - Skallagrímur
Sun. 9. jan 2005 Hverager›i kl. 19:15 Hamar/Selfoss - Grindavík
Sun. 9. jan 2005 Keflavík kl. 20:15 Keflavík - Njar›vík
Meistaraflokkur kvenna
Lau. 8. jan 2005 Laugarvatn kl. 14:00 Laugdalir - Tindastóll
Sun. 9. jan 2005 Ásvellir kl. 19:15 Haukar - Njar›vík
Sun. 9. jan 2005 Keflavík kl. 18:15 Keflavík - ÍS
Sun. 9. jan 2005 Smárinn kl. 19:00 Brei›ablik - Grindavík
Knattspyrnumaðurinn Sigþór Júlíusson söðlar um eftir átta ár í Vesturbænum:
Í raðir Valsmanna á nýjan leik
FÓTBOLTI Knattspyrnumaðurinn Sig-
þór Júlíusson hefur gert munn-
legt samkomulag við Valsmenn
um að spila með þeim næstu tvö
árin.
Börkur Edvardsson, formaður
knattspyrnudeildar Vals, staðfesti
þetta í samtali við Fréttablaðið í
gær og sagði að það yrði skrifað
undir samninginn við Sigþór á
morgun.
„Koma Sigþórs til liðsins styrk-
ir félagið mikið og liður í þeirri
ætlun okkar að festa félagið í
sessi á meðal þeirra bestu,“ sagði
Börkur.
Sigþór, sem hefur leikið með
KR-ingum síðan árið 1997, spilaði
ekki einn einasta leik með KR-ing-
um á síðasta tímabili vegna
meiðsla á hné en er á góðri leið
með að ná fullum styrk á nýjan
leik.
Sigþór sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær að hann hefði
spilað sextán leiki með háskólaliði
sínu í Bandaríkjunum síðastliðið
haust og þótt hann væri enn í end-
urhæfingu hefði hann ekki trú á
því að meiðslin myndu koma til
með að há honum næsta sumar.
Aðspurður um ástæðu þess að
hann valdi Val sagði hann félagið
einfaldlega hafa sýnt mestan
áhuga.
„Þeir vildu ólmir fá mig á með-
an mér fannst lítill áhugi vera
fyrir hendi hjá KR-ingum,“ sagði
Sigþór sem lék með Valsmönnum
í efstu deild tímabilin 1995 og
1996 áður en hann fór til KR.
Hann hefur spilað 144 leiki í
efstu deild með KA, Val og KR og
skoraði í þeim tólf mörk. Sigþór,
sem verður þrítugur á þessu ári, á
að baki tvo A-landsleiki.
Hann er fimmti leikmaðurinn
sem gengur í raðir Valsmanna frá
því að tímabilinu lauk í haust en
áður höfðu þeir Atli Sveinn Þórar-
insson, Guðmundur Benediktsson,
Kjartan Sturluson og Steinþór
Gíslason skrifað undir samning
við Hlíðarendaliðið auk þess sem
nýr þjálfari, Willum Þór Þórsson,
stýrir liðinu á komandi tímabili.
-ósk
SIGÞÓR JÚLÍUSSON Genginn í raðir
Valsmanna á nýjan leik.