Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.01.2005, Qupperneq 47

Fréttablaðið - 09.01.2005, Qupperneq 47
SUNNUDAGUR 9. janúar 2005 27 Undarlegt tvíeyki ... Real Madrid hefur ráðið Arrigo Sacchi og Vanderlei Luxemburgo Fáar mannaráðningar í knattspyrnuheim- inum hafa vakið jafn mikla og almenna undrun og ráðning Arrigo Sacchi sem yfir- manns knattspyrnumála Real Madrid. Og enn jókst undrunin þegar Sacchi lét sitt fyrsta verk verða að ráða Brasílíumann- inn Vanderlei Luxemburgo sem þjálfara liðsins. Stíll þessara manna og skaphöfn er með þeim hætti að erfitt er að sjá að þeir passi inn í hina þægilegu stétt fyrirmenna sem ráða ríkjum hjá fé- laginu undir stjórn forsetans Florentino Perezar. Jafnframt eru þessir tveir menn svo ólíkir að erfitt er að sjá hvernig þeir ætla að starfa saman. Fyrst spurðu menn hvað Perez hefði verið að spá þegar hann réð Sacchi og svo spurðu menn hvað Sacchi hefði verið að spá þegar hann réð Luxemburgo! Gjaldþrot ofurboltastefnunnar Ráðning Sacchi þótti vísbending um að forsvarsmenn Real Madrid væru búnir að afskrifa núverandi tímabil og vildu ráða mann sem gæti með skynsömum hætti brotið upp stöðnunina hjá ofurboltunum og ákveðið með kaldri rökvísi hverja ofur- boltanna væri best að kyssa bless. Sumsé, klára þetta tímabil og hreinsa svo til. En þolinmæði er ekki ein af höfuðdyggðum Perezar forseta og ráðning hans og Sacchi á Luxemburgo bendir til þess að freista eigi þess með öllum tiltækum ráðum að hrista upp í mannskapnum og landa alla- vegana einum titli í vor. Luxemburgo kjör- inn til þess, sigursæll þjálfari með svo mik- ið sjálfsálit að leitun er að öðru eins nema ef vera skyldi hjá Jose Morinho. Luxemburgo og Sacchi eiga sjálfsálitið og egóið sameiginlegt. Þeir eru báðir mikl- ar prímadonnur sem hafa það mottó að enginn leikmaður sé ómissandi. Þetta auk reynslu þeirra og sigursældar eru eflaust þeir kostir sem Perez forseti hefur séð í þeim. Með ráðningu þeirra hefur Perez við- urkennt gjaldþrot ofurboltastefnu sinnar og játast þeirri gömlu speki að heildin er sterkari en summa partanna; að 11 ofur- boltar geta aldrei myndað sterka liðsheild. Langlífi ólíklegt Nú verður litlu um það spáð hvernig sam- vinna Sacchi og Luxemburgo mun ganga og hvort þeir verði langlífir í embættum. Flestir efast um það enda tvíeykið svo und- arlegur kokkteill að engan samjöfnuð er að finna í knattspyrnuheiminum. Sacchi hinn skipulagði kerfisþjálfari með ofurtrú á und- irbúning og að menn haldi sig við fyrirfram ákveðið leikskipulag – Luxemburgo hinn hvatvísi berserkur sem blæs mönnum sín- um baráttuanda í brjóst og breytir liðsupp- stillingu samdægurs eftir því hvernig skapi hann er í. Sameiginlegt eiga þeir að hafa slátrað stjörnum í gríð og erg. Frægustu af- tökur þeirra eru meðferð Sacchi á Roberto Baggio á HM 1994 og útskúfun Lux- emburgo á Romario þegar hann stýrði brasílíska landsliðinu. Þess ber að geta að þessar aðgerðir þjálfaranna öfluðu þeim mikilla óvinsælda meðal samlanda sinna og Sacchi t.a.m. hefur aldrei endurheimt virðingu landa sinna eftir meðferðina á Baggio enda óumdeilt að það var fyrir ein- staklingsafrek Baggios og ekkert annað að Ítalir náðu í úrslitaleikinn á HM 1994. Fleiri hallast að langlífi Sacchi, jafnstór karl og hann hafi einfaldlega ekki tekið að sér verkefnið nema vera með loforð og áætlun uppá vasann til einhverra ára. Ör- lög Luxemburgo muni hinsvegar ráðast á næstu fjórum mánuðum og ef hann nái ekki framúrskarandi árangri verði hann lát- inn fara og Sacchi finni framtíðarmann í sumar. Fá dæmi eru þess að suður-amerískir þjálf- arar hafi náð skjótum ár- angri með evrópsk stórlið – það ætti Sacchi að vita manna best eftir að hafa reynt að hreinsa til í rúst- unum sem Argentínumaðurinn Tabarez skildi eftir sig hjá AC Milan fyrir átta árum. Fókusinn hefur nú færst af ofurboltunum hjá Real Madrid yfir á tvíeykið og verður í meira lagi fróðlegt að fylgjast með þeim næstu mánuði. EINAR LOGI VIGNISSON Unglingakór og Gospelkór KFUM og KFUK Nýir félagar boðnir velkomnir Unglingakór KFUM og KFUK fyrir 16-20 ára Lögð verður áhersla á söng og leikræna tjáningu. Settur verður upp söngleikur um páskana. Æfingar verða á miðvikudögum kl. 18.30-20.00 í félagsheimili KFUM og KFUK við Holtaveg. Verð 6.000 kr. fyrir misserið. Gospelkór KFUM og KFUK fyrir 20 ára og eldri Sungin verða sígild gospellög og nýrri lofgjörðartónlist. Æfingar verða á miðvikudögum, kl. 20.00 - 22.00 í félagsheimili KFUM og KFUK við Holtaveg. Verð er 10.000 kr. fyrir misserið. Áheyrnarpróf fer fram miðvikudaginn 12. janúar kl. 20.00- 22.00. Kórstjóri er Keith Reed, listrænn stjórnandi KFUM og KFUK. Allir sem hafa áhuga á tónlist eru velkomnir í kórana og ekki nauðsynlegt að vera félagi í KFUM og KFUK. Skráning fer fram á skrifstofu KFUM og KFUK, Holtavegi 28, 104 Reykjavík eða í síma 588 8899 og á netfanginu skrifstofa@krist.is HASAR Keflavík gegn Njarðvík í kvöld. Bikarkeppni KKÍ: Stórslagur í Keflavík KÖRFUBOLTI Erkifjendurnir í Kefla- vík og Njarðvík mætast í Keflavík í kvöld í átta liða úrslitum Bikar- keppni KKÍ. Þetta er stórleikur umferðarinnar en liðin hafa lengi eldað grátt silfur saman. Liðin hafa mæst tvívegis í vet- ur og unnið hvort sinn leikinn. Keflavík vann deildarleikinn í Njarðvík, 78-73, en Njarðvík vann leik liðanna í undanúrslitum Hóp- bílabikarsins, 78-74, í Laugardals- höllinni. Keflvíkingar eru á toppi Intersportdeildarinnar en bæði þessi lið hafa átján stig ásamt Snæfelli og eru í nokkrum sér- flokki. ■ Keflavík með DVD-disk: Kynna Ísland FÓTBOLTI Forráðamenn knatt- spyrnudeildar Keflavíkur hafa látið gera DVD-disk til að til að kynna þann valkost fyrir erlend- um liðum að æfa og keppa í knatt- spyrnu á Íslandi yfir vetrarmán- uðina. Efni diskins var frumsýnt á Fjörukránni á föstudag. Ásmund- ur Friðriksson, framkvæmda- stjóri knattspyrnudeildar Kefla- víkur, sagði í samtali við Frétta- blaðið að aðstaðan á Íslandi væri, með tilkomu knattspyrnuhall- anna, orðin frábær og það væri mun gáfulegra fyrir fræg erlend lið að koma til Íslands heldur en að þvælast í fyllerísferðir til Spánar. Keflvíkingar munu með hjálp góðra aðila kynna efnið er- lendis og vonast eftir góðum við- tökum. ■ Ekkert Tyrkjarán í Garðabæ Stjarnan vann öruggan sigur, 30–23, á tyrkneska liðinu Eskisehir Osmangazi í gær og er nánast öruggt með eitt af tveimur efstu sætum riðilsins. HANDBOLTI Kvennalið Stjörnunnar er nú nánast öruggt í sextán liða úrslit Áskorendakeppni Evrópu eftir léttan sigur, 30-23, á tyrk- neska liðinu Eskisehir Osmangazi í Garðabæ í gær. Stjörnuliðið hafði mikla yfirburði nær allan leikinn og hefði að ósekju átt að vinna mun stærri sigur. Stjarnan þarf nú aðeins að vinna gríska lið- ið APS Makedonikas í dag en gríska liðið hefur tapað báðum sínum leikjum til þessa stórt. Stjörnustúlkur virtust örlítið taugaveiklaðar í byrjun en eftir að Tyrkirnir höfðu skorað fyrstu tvö mörkin tóku þær öll völd og skoruðu átta af næstu níu mörk- um. Góð vörn og frábær marka- varsla Jelenu Jovanovic gerði það að verkum að liðið fór með fimm marka forystu, 13-8, í hálfleik. Stjörnuliðið hélt síðan upp- teknum hætti í síðari hálfleik og náði mest þrettán marka forystu, 25-12, þegar hálfleikurinn var hálfnaður. Lykilmanneskjur voru hvíldar síðasta stundarfjórðung- inn í leiknum og botninn datt úr leiknum. Þær tyrknesku náðu að- eins að klóra í bakkann en komust ekki nær en sjö mörk. Kristín Clausen og Kristín Guðmundsdóttir voru bestar í liði Stjörnunnar ásamt Jelenu í mark- inu en allt liðið stóð annars vakt- ina vel í vörninni. Tyrkneska liðið var slakt. Ebre í vinstra horninu var yfirburða- leikmaður auk þess sem mark- vörðurinn Fatme varði ágætlega á köflum. Kristín Clausen var að vonum ánægð að leik loknum þegar Fréttablaðið ræddi við hana. „Það er frábært að spila þessa Evrópuleiki hér í Garðabænum. Stemningin er stórkostleg og ekki skemmdi fyrir að sigra svona ör- ugglega eftir vonbrigðin gegn svissneska liðinu í gær þegar við misstum unninn leik niður í jafntefli. Við vissum að tyrkneska liðið var gott og því var ekkert vanmat af okkar hálfu. Núna þurf- um við að klára leikinn á morgun og þá erum við komnar áfram. Ég vona bara að það verði jafn mikil stemning í þeim leik,“ sagði Krist- ín við Fréttablaðið eftir leikinn í gær. oskar@frettabladid.is KRISTÍN CLAUSEN Átti mjög góðan leik hjá Stjörnunni og sést hér skora eitt af átta mörkum sínum í leiknum. Fréttablaðið/E. Ól Áskorendakeppni Evrópu STJARNAN–ESKISEHIR 30–23 Mörk Stjörnunnar: Kristín Clausen 8/5, Kristín Guðmundsdóttir 7/2, Anna Blöndal 3, Elísabet Gunnarsdóttir 3/1, Anna Einarsdóttir 2, Harpa Sif Eyjólfs- dóttir 2, Hekla Daðadóttir 2, Ásdís Sigurð- ardóttir 2, Rut Steinsen 1. Varin skot: Jelena Jovanovic 21, Helga Vala Jónsdóttir 6. Mörk Eskisehir: Ebru 7, Derya 5/1, Ozge 5, Fevziye 3, Vildani 3. Varin skot: Fatma 16. MAKEDONIKOS-SPONO 11–43 STAÐAN SPONO 2 1 1 0 67–35 3 STJARNAN 2 1 1 0 54–47 3 ESKISEHIR 2 1 0 1 53–43 2 MAKEDON. 2 0 0 2 24–73 0 ALFREÐ AFTUR Á AKUREYRI Alfreð Gíslason sneri aftur á fornar slóðir og leiddi sína menn í KA-liðinu frá árinu 1995 til sigurs gegn núverandi liði í KA-heimilinu í gær en leikurinn var spilaður í tilefni af 77 ára afmæli félagsins. Gullaldarlið KA fór á kostum á Akureyri í gær : Lengi lifir í gömlum glæðum HANDBOLTI Það var mikið um dýrðir í KA-heimilinu í gær þegar bikar- meistaralið KA frá 1995 tók á móti núverandi meistaraflokksliði fé- lagsins. Rúmlega 1100 manns troðfylltu kofann og skemmtu sér konunglega yfir sýningunni sem boðið var upp á. Létt var yfir mönnum í leikn- um og meiri áhersla var lögð á að skemmta sér en að vinna leikinn. Engu að síður var talið og fór svo að lokum að „gömlu“ mennirnir sigruðu leikinn, 30-28. „Þetta var alveg meiriháttar gaman,“ sagði landsliðsmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson sem lék sem gestur með gullaldarliðinu í gær. Þótt hann hefði af skiljanleg- um ástæðum farið sér hægt þá setti hann sex mörk gegn sínum gömlu félögum. „Það var ótrúlega gaman að koma aftur til Akureyrar og mót- tökurnar voru frábærar. Það var mikill heiður að fá að leika með þessum heiðursmönnum sem kunna enn ýmislegt fyrir sér í boltanum,“ sagði Guðjón en hver var bestur? „Það voru margir góð- ir. Sigmar Þröstur lokaði markinu í síðari hálfleik, Alfreð og Erling- ur voru sem klettar í vörninni og svona gæti ég haldið lengi áfram. Þetta eru allt snillingar.“ - hbg

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.