Fréttablaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 28
06 { HEILSA 2005 } Dísa í World Class mætir hækkandi sól í tækjasalnum.
Barnadansar &
brasilískt jiu-jitsu
NÝTTfráFuturebiotics
Hindrar að líkaminn taki sykur og fín kolvetni
úr fæðunni. 2 hylki fyrir máltíð.
Fæst í apótekum, Fjarðakaupum
og Hagkaupum Kringlunni
HÁGÆÐA AMERÍSK FÆÐUBÓTAREFNI
vinnur gegn fílapenslum og bólum.
Bindur bakteríur og húðflögur og dregur þær til sín.
Silicol Skin
Þannig getur þú haldið húð
þinni mjúkri og hreinni og
komið í veg fyrir bólur.
Fæst í apótekum.
Sala og neysla á
verkjalyfjum hefur
aukist undanfarin ár.
Sala parkódíns hefur aukist um
62% á Íslandi síðustu 10 ár,
sala á íbúprófeni í lausasölu
um 96% og sala kódeins í
samsettum verkjalyfjum um
72%. Þetta eru niðurstöður
rannsóknar sem gerð var að
áeggjan Landlæknisembættis-
ins á notkun og viðhorfum Ís-
lendinga til
verkjalyfja.
A f s t a ð a
fólks til
verkjalyfja
r e y n d i s t
misjöfn, en
í fæstum
t i l f e l l u m
var hún neikvæð. Ef fólk hafði
neikvæða afstöðu var það yfir-
leitt vegna slæmrar reynslu.
Fólk vissi almennt ekki mikið
um mismunandi verkjalyf og
muninn á milli samsetningar
og virkni einstakra lyfja. Flest-
ir þátttakendur vissu þó eitt-
hvað um aukaverkanir. Þó
nokkuð margir vissu ekkert um
kódein en talað var um að
misnotkun væri til staðar í
þjóðfélaginu. Fólk þekkti helst
mest seldu tegundirnar. Ís-
lendingar nota verkjalyf ekki
meira en aðrir Norðurlandabú-
ar en neysla þeirra virðist samt
stöðugt vera að aukast hér-
lendis.
Notkun Íslendinga
á VERKJALYFJUM
eykst
Hafdís Jónsdóttir hjá World Class-líkamsræktar-
stö›vunum segir margt bera hátt í dagskránni flar
í vetur.
„Fyrst vil ég nefna Peak pilates sem er eitt af pilates-kerfunum sem eru í
gangi í heiminum í dag. Þetta er rólegt æfingakerfi og góð styrking fyrir
bæði karla og konur, sérstaklega þá sem eiga við bakvandamál að stríða
vegna slappra kviðvöðva og mjúkt æfingakerfi sem teygir og lengir vöðv-
ana. Dansfjör eru æðislega fjörugir og skemmtilegir tímar fyrir þá sem
hafa gaman af dansi. Svo bjóðum við upp á brennslukickbox og jóga;
venjulegt kripalujóga, kraftjóga og meðgöngujóga. Ein helsta nýjungin hjá
okkur er brasilískt jiu-jitsu, sjálfsvarnartækni þar sem það eru ekki kraft-
arnir sem ráða úrslitum heldur tæknin og svo er þetta auðvitað fínasta lík-
amsrækt líka. Svo erum við með dansa og leiki fyrir 5 og 6 ára, frístæl og
fönk frá 7 ára og upp úr og barnajóga þar sem foreldrarnir koma með
börnunum.“ Hafdís segir tækjasalina líka hafa allt sem hægt er að hugsa
sér. „Kortin ganga í allar stöðvarnar; í Laugar, Spöngina og svo Hús orku-
veitunnar, svo það er hægt að fara á milli og breyta til.“
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is