Fréttablaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 1
FÍKNIEFNI Tæplega þrítugur Ung- verji situr í gæsluvarðhaldi eftir að hann var tekinn í Leifsstöð með tæpt kíló af kókaíni innvortis þegar hann kom til landsins í lok síðasta mánaðar. Er þetta mesta magn sem vitað er til að maður hafi komið með innvortis hingað til lands. Nígeríumaður var handtekinn í Reykjavík síðastliðinn fimmtudag í tengslum við málið. Ungverjinn gleypti efnin, sem pakkað hafði verið í rúmlega átta- tíu hylki, á Kanaríeyjum þar sem hann er búsettur. Frá Kanaríeyjum flaug maðurinn til Madridar, þaðan til Parísar og loks til Íslands. Á ferð sinni tókst honum ekki að halda fíkniefnapakkningunum innvortis og skilaði um þriðja hluta efnanna út úr líkamanum á leiðinni. Hann lét það hins vegar ekki á sig fá held- ur skolaði af hylkjunum og gleypti aftur. Í Leifsstöð vaknaði grunur tollvarða um að maðurinn hefði fíkniefni í fórum sínum og var hann sendur í röntgenskoðun þar sem grunur tollvarðanna var staðfestur. Meltingarvegur Ungverjans var stútfullur af fíkniefnum. Á gamlárskvöld hafði Ungverjinn náð að skila öllum pakkningunum úr líkamanum. Hann var úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald. Fíkniefnapakkningarnar reynd- ust vera ótraustar þegar þær byrj- uðu að skila sér og vöknuðu áhyggj- ur meðal lögreglumanna um að þær myndu bresta. Rannsókn málsins beinist meðal annars að því hverjir voru væntanlegir kaupendur kókínsins hér á landi. Nígeríumaðurinn kom til Íslands á miðvikudaginn fyrir tæpri viku síðan og var hann hand- tekinn daginn eftir og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald á föstudag. - hrs Með metmagn efna innvortis Þrítugur Ungverji situr í gæsluvarðhaldi fyrir að flytja inn tæpt kíló af kókaíni innvortis. Hann skilaði hluta efnanna frá sér á leið sinni til landsins en skolaði þau og gleypti aftur. Nígeríumaður situr einnig í gæsluvarðhaldi. MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI ÞRIÐJUDAGUR ÞJÓÐRÍKI OG VALDBEITING Erlingur Erlingsson sagnfræðingur flytur erindi á hádegisfundi Sagnfræðingafélags í Norræna húsinu þar sem hann fjallar um þjóðríki og valdbeitingu – hernað frá Clausewitz til Creveld. Fyrirlesturinn hefst klukkan 12:05. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG 11. janúar 2005 – 9. tölublað – 5. árgangur ALVARLEGAR ATHUGASEMDIR Verkfræðistofa gerði alvarlegar athuga- semdir við starfsemi klórverksmiðju Mjallar- Friggjar í haust. Í skýrslum hennar kemur meðal annars fram að búnaði verksmiðj- unnar hafi verið ábótavant sem og áhættu- mati. Sjá síðu 2 MIKIÐ VERK FRAMUNDAN Mahmoud Abbas vann yfirburðasigur í palestínsku forsetakosningunum. Nú liggur fyrir honum að semja frið við Ísraela og fá palestínska vígamenn til að láta af ofbeldi gegn Ísraelum. Kjöri hans var fagnað inn- anlands og utan. Sjá síðu 6 RÁÐUNEYTIÐ ÞARF TÍMA ASÍ bíður eftir viðbrögðum félagsmálaráðuneytisins við greinargerð um gagnrýnina á Impregilo. Vonast er eftir viðbrögðum eða fundi í dag. Fjallað verður um málið á miðstjórnarfundi á morgun. Sjá síðu 8 Kvikmyndir 30 Tónlist 28 Leikhús 28 Myndlist 28 Íþróttir 24 Sjónvarp 32 VÍÐA ÉL EÐA SNJÓKOMA Síst þó suðvestanlands. Frost 1-7 stig kaldast til landsins. Hvessir í kvöld einkum suð- austan- og austan til. Sjá síðu 4 Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 VIÐSKIPTI Danska símafyrirtækið TDC, sem áður hét Tele Danmark, hugleiðir hvort það eigi að koma að kaupum á Símanum þegar hann verður einkavæddur á þessu ári. Aðstoðarforstjóri TDC, Torben Holm, kom til landsins síðastliðinn fimmtudag og átti fundi með inn- lendum aðilum áður en hann hélt utan á föstudag. „Það liggur hins vegar ekkert fyrir um það hvort við munum hafa áhuga á að taka þátt í kaupum á fyrirtækinu,“ segir Torben Holm. Hann segir að þótt TDC hafi þekkt vel til Símans fyrir þremur árum þegar fyrir- tækið skoðaði alvarlega kaup á kjölfestuhlut, þá gildi sú þekking ekki lengur. Hann vill ekki gefa upp hverja hann hitti og segir vangaveltur um aðkomu TDC ótímabærar. Talið er að hópur undir forystu Meiðs muni bjóða í Símann. Meðal þeirra sem eru að skoða aðkomu að hópnum eru VÍS og Straumur, en fjárfestar vilja lítið gefa út um fyr- irtætlanir sínar, enda hvorki ljóst hver verðhugmynd seljanda er, né hvaða kvaðir munu fylgja kaupum. Morgan Stanley er ráðgjafi einkavæðingarnefndar við söluna. Búist er við því að fyrsta hluta ráðgjafavinnunnar ljúki í lok febrúar og þá hefjist eiginlegt söluferli. - hh/sjá síðu 20 DAGAR EFTIR AF JANÚARTILBOÐI TOYOTA Corolla Sedan, 1,4 l Tilboðsverð 1.709.000 kr. MEÐ EINN VÆNAN Á LOFTI Óskar Guðmundsson sýnir ljósmyndara vænan þorsk sem hann veiddi inni í Kollafirði í gær. Óskar gerir út á Sigrúnu RE, 11 tonna netabát. Miltisbrandur í jörðu: Fjöldi staða talinn sýktur HEILBRIGÐISMÁL Yfirdýralæknis- embættinu hafa borist tilkynning- ar um 80 staði á landinu þar sem grunur leikur á að miltisbrandur sé í jörðu. Talið er nokkuð víst að 50 til 60 staðanna séu sýktir en meiri vafi leikur á svæðunum 20 til 30 sem eftir eru. Staðirnir eru dreifðir um allt land, þó svo að flestir séu á Suð- vestur- og Vesturlandi. Sigurður Sigurðarson, dýra- læknir sauðfjár- og nautgripa- sjúkdóma hjá Yfirdýralæknis- embættinu, vinnur að skráningu staða þar sem grunur er um sýk- ingu, en miltisbrandur hér er rak- inn til innflutnings á stórgripa- húðum frá Afríku í kringum alda- mótin 1900. Sjá síðu 4 Netaveiðar færast fram: Vorboðinn snemma SJÁVARÚTVEGUR „Rauðmaginn, vor- boðinn, er snemma á ferðinni og við höfum verið að fá mikið af honum,“ sagði Óskar Guðmunds- son útgerðarmaður. „Við erum farnir að fá rauðmaga í desember.“ Óskar segir hrogn í fiskinum, sem nú sé verið að veiða allt upp í fjöru, og bætir við að hann komi fyrr inn til hrygningar en áður. „Fiskurinn hér inni í Kollafirði hefur verið að elta æti sem vestan- áttin um áramótin bar inn,“ sagði hann og kvað viðbúið að hann færði sig út aftur, en þá eltu menn bara. Óskar taldi ekki ólíklegt að hlýnun sjávar hefði þessi áhrif á göngur fiska, en áður fyrr var algengt að ekki væri byrjað á neta- veiðum fyrr en í febrúar eða mars. - óká Aðstoðarforstjóri TDC fundaði á Íslandi: Danski Síminn hugleiðir kaup á þeim íslenska Heilsublaðið: ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Fylgir Frétta- blaðinu í dag Björn Bragi Arnarson: ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Einbeitir sér að náminu í vetur ● nám Hugleikur Dagsson: ▲ SÍÐA 30 Velur bestu mynda- sögurnar 2004 ● fékk frið fyrir íslenskum karlmönnum Kate Winslet: ▲ SÍÐA 34 Skemmti sér í Reykjavík ● heilsa ● líkamsrækt ● mataræði ● grant morrison toppar með viðbjóðnum SIGURÐUR SIGURÐARSON FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.