Fréttablaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 42
Sr. Hannes Örn Blandon er 56 ára í dag. Við hringdum í hann og spurðum fyrst hvort hann væri ekki önnum kafinn við að æfa eitthvert hlutverk hjá leikfélag- inu í Eyjafjarðarsveit, þar sem hann er prestur. „Nei, ég er ekkert með í þessu núna. Ja, nema þá í einhverju baktjaldamakki. Ætli þetta séu ekki bara aldursmerkin, maður fær ekki lengur hlutverk prinsanna í ævintýrunum. Ann- ars er auðvitað verið að æfa leik- rit hérna, „Taktu lagið Lóa“ en ég er ekki í hlutverki þar. Nú svo er auðvitað því við að bæta að í söngleiknum „Ólíver“ sem verið er að sýna hjá Leikfélagi Akur- eyrar, þá er þó nokkur fjöldi krakka héðan úr sveitinni sem tekur þátt í þeirri sýningu. Hvað búa margir í Eyjafjarð- arsveit? „Það eru um 1000 manns.“ Verðurðu var við mikinn áhuga á sameiningu sveitarfélaga í Eyjafirði? „Ég held reyndar að fólkið í sveitinni sé ekkert upprifið yfir þessu. Ég veit að það er heilmikill áhugi á Akureyri en ég held að út um sveitirnar þyki fólki að við stöndum bara þokkalega vel og það er ekki mjög áfram um þetta. Eyjafjarðarsveit er afskaplega gróið og gott landbúnaðarhérað, hér er fimmtungur mjólkurfram- leiðslunnar í landinu og enginn bilbugur á bændum.“ Hvað hefurðu svo haft fyrir stafni um hátíðirnar? „Það var nú svo merkilegt um þessi jól, að við þurftum að aflýsa messum vegna veðurs. Það er sjaldgæft og nú brosir veðrið við okkur. Nú við vitum yfirleitt hvað við höfum að gera um jólahátíð prestarnir. Hér hjá mér var það sérstaklega gleðilegt, að unga fólkið sem er við nám annars staðar kemur heim í leyfi og notar þá tækifærið og lætur skíra börnin sín. Ég framkvæmdi sjö skírnir um hátíðarnar.“ Hvað um lestur? „Ég var nú linur við skáldsög- urnar þessi jól. Las þó „Bella- donna-skjalið. Annars var ég að líka að lesa um íslam, bók um búddisma og svo las ég nýja þýð- ingu á „Bókinni um veginn“ eftir Laó Tse eftir Njörð P. Njarðvík. Þessi þýðing er svolítið öðruvísi en gamla þýðingin hans Sörens. Það er kannski við hæfi að kveðja þig með spakmæli úr þessari sí- gildu bók: „Sá sem veit talar ekki, sá sem veit ekki talar. Er þetta ekki ágætis áminning?“ ■ 22 11. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR ALEXANDER HAMILTON (1755-1804), fyrsti fjármálaráðherra Bandaríkjanna, fædd- ist þennan dag. Hann féll fyrir kúlu Aarons Burr í einvígi. Fær ekki lengur að leika prinsa SR. HANNES ÖRN BLANDON ER 56 ÁRA Í DAG: „Skuldir verða þjóðinni til blessunar ef þær eru ekki yfirþyrmandi.“ Mynd hans er á 10 dala seðlinum. En þjóð hans hefur aldrei skuldað meira en nú. timamot@frettabladid.is JARÐARFARIR 13.00 Pétur V. Sigurðsson verður jarð- sunginn frá Langholtskirkju. 13.30 Valgerður Frímann, Suðurbyggð 13, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju. 14.00 Maríus Sigurjónsson, Háteigi 2b, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju. 15.00 Ingólfur A. Þorkelsson, fyrrv. skólameistari, Espigerði 4, Reykja- vík, verður jarðsunginn frá Kópa- vogskirkju. 15.00 Stefán Þórðarson, Reykjahlíð 10, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju. AFMÆLI Guðmundur Georgsson prófessor er 73 ára í dag. Bertram H. Möller, fyrrverandi lögreglu- varðstjóri, söngvarinn „Berti Möller“, er 62 ára. Guðný Guðmundsdóttir konsertmeistari er 57 ára. Jakob Smári sálfræðingur er 55 ára. Ágúst Einarsson pró- fessor er 53 ára. Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi er 48 ára. Gunnar Smári Egilsson forstjóri er 44 ára. Pétur Hrafn Árnason sagnfræðingur er 31 árs. ANDLÁT Hulda B. Guðmundsdóttir lést þriðju- daginn 28. desember. Útförin fór fram í kyrrþey. Aðalbjörg Stefanía Jakobsdóttir, Hóla- braut 15, Akureyri, lést föstudaginn 31. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Ólafur Kristjánsson, Bakkahlíð 39, Akureyri, lést laugardaginn 1. janúar. Þórður Jónsson, Norðurbrún 1, lést miðvikudaginn 5. janúar. Vildís Jónsdóttir, áður til heimilis í Dals- gerðI 3b, Akureyri, lést fimmtudaginn 6. janúar. Íris Birta Eyjólfsdóttir, Þverholti 14, Keflavík, lést föstudaginn 7. janúar. Sigríður Guðmundsdóttir, Skógarbæ, áður Bárugötu 36, Reykjavík, lést laugar- daginn 8. janúar. Þuríður Axelsdóttir sjúkraliði, Marklandi 2, Reykjavík, lést laugardaginn 8. janúar. SÉRA HANNES ÖRN BLANDON: „Sá sem veit talar ekki,....“ Þennan dag 1928 sendi Jósep Stalín erkifjanda sinn, Trotskí, í útlegð til Alma Ata í Mið-Asíu. Lengi hafði verið grunnt á því góða með þeim byltingarbræðr- um, Stalín og Trotskí, þótt ekki hafi kastað tólfunum fyrr en eftir dauða Leníns. Trotskí var úkraínskur gyðingur og hét réttu nafni Lev Davidovitsj Bron- stein. Hann tók þátt í undirróðursstarfi kommúnista strax fyrir aldamótin 1900 og var dæmdur í útlegð aldamótaárið en slapp til Englands. Hann notaði falsað vegabréf með nafninu Leon Trotskí og gekk undir því síðan. Í London starfaði hann með Vladimir Iljitsj Lenín en tók síðan afstöðu með mensévíkum, gegn Lenin og bolsévik- um hans. Í byltingunni 1917 sneri hann heim til Rússlands og var þá í liði með bolsévikum. Trotskí var einn af leiðtog- um Rauða hersins og átti stóran þátt í sigri hans á hvítliðum. Hann var áhrifa- mikill í miðstjórn flokksins en tapaði í valdabaráttunni eftir dauða Leníns. 1927 var hann rekinn úr kommúnista- flokknum, ári seinna sendur í útlegð til Alma-Ata og loks 1928 gerður útlægur frá Sovétríkjunum. Hann settist fyrst að í Tyrklandi, fór svo til Noregs og loks til Mexíkó. Þá hafði ofsóknaræði Stalíns náð hámarki og eftir eitt misheppnað banatilræði tókst loks útsendara Stalíns að myrða Trotskí, á hryllilegan hátt, seint í ágúst 1940. Morðinginn var spænskur kommúnisti, Ramon Mercader að nafni. TROTSKÍ: SENDUR Í ÚTLEGÐ ÞENNAN DAG 1928 ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1897 Leikfélag Reykjavíkur stofnað. 1918 Bjarndýr ganga á land í Núpasveit í Öxarfirði. Næstu daga gengu þau á land um allt Norður- og Austurland. 1927 Eignir Charlie Chaplin kyrr- settar vegna skilnaðar hans við Litu Grey Chaplin. Chaplin bjó í 42 ár í Bandaríkjunum en var aldrei bandarískur þegn. 1937 Óeirðir brjótast út í verkfalli í verksmiðju General Motors í Flint í Michigan. Verkfallinu lauk með sigri verkalýðsfélaganna. 1944 Togarinn Max Pemberton ferst út af Snæfellsnesi með allri áhöfn, 29 manns. 1945 Vopnhlé tekur gildi í gríska borgarastríðinu. 1989 Ronald Reagan flytur kveðjuræðu sína sem for- seti Bandaríkjanna. Stalín sendir Trotskí í úlegð Tilkynningar um merkisat- burði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér á síðunni má senda á net- fangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 8. janúar. Jarðar- förin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 14. janúar kl. 14.00. Skarphéðinn Agnars, Birna Skarphéðinsdóttir, Margrét Skarp- héðinsdóttir, Þórður Ingimarsson, Jónína Skarphéðinsdóttir, Ólafur V. Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ólöf Björnsdóttir Garðvangi, Garði, áður til heimilis að Hringbraut 67, Keflavík, Elskulegur eiginmaður minn, stjúpfaðir og bróðir, Jóhann Ásmundsson safnstjóri Minjasafns Egils Ólafssonar, Hnjóti, Örlygshöfn, lést þann 31. desember síðastliðinn á líknardeild LSH, Kópavogi. Magnea Einarsdóttir, Árni Klemensson, Einar Dagfinnur Klemensson, Hildur Sonja Guðmundsdóttir, Jenný Ásmundsdóttir, Guðmundur Benediktsson, Hildur Hanna Ásmundsdóttir, Gylfi Jónsson, Benedikt Grétar Ásmundsson og Kristín Jóhannesdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Inga Jónasína Pálmadóttir Vestursíðu 2a, Akureyri, lést á Landspítala Háskólasjúkrahúsi laugardaginn 8. janúar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 14. janúar kl. 13.30. Guðmundur L. Blöndal, Ingólfur Freyr Guðmundsson, Herdís Ívars- dóttir, Sunna Guðmundsdóttir, Hrefna Fönn Guðmundsdóttir, Hlín Guðmundsdóttir og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.