Fréttablaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 47
ÞRIÐJUDAGUR 11. janúar 2005 In GoodCompany od any In Good Company *Aðalvinningur verður dreginn út úr öllum innsendum SMS skeytum • Vinningar verða afhendir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið Klikkaður útsölu-leikur! Allir sem taka þá tt fá glaðning! Aðal- vinnin gur er MEDI ON XX L tölva með 1 7” flatsk já! Það er gömul skemmtan að ríða gæðingum á ís og gömlu menn- irnir töldu engar aðstæður jafn- góðar til að kenna hestum skeið. Fáir notfæra sér ís lengur til að gera hesta vakra en nú er í tísku að ríða svokallað „ístölt“, innan- dyra sem utan. Fyrir nokkrum árum fékk snjall maður þá hug- mynd að færa upp keppni í ístölti í Skautahöllinni í Reykjavík. Hestamót þetta varð feikivinsælt og fleiri skautahallir fylgdu for- dæminu, ekki bara hér heima heldur líka í útlöndum, og eru nú stórar sýningar á íslenskum hest- um á ís haldnar í skautahöllum er- lendis, vestan hafs sem austan. Það er þó engan veginn sam- bærilegt að ríða á skautahallar- svelli og náttúrulegum ís á stöðu- vatni eða í fjarðarbotni. Náttúru- legur ís hefur fjöðrun og mýkt en ís í skautahöll er aðeins þunnt lag ofan á steinsteyptu gólfi – er „dauður“ og harður og sennilega ekki mjög hestvænn af þeim sök- um. En ístöltið innan dyra hefur orðið til þess að vekja áhuga fólks á hinni fornu íþrótt og nú keppast menn við að finna áhugaverða staði úti í náttúrunni, ísi lögð vötn, til að halda á ísmót að vetrarlagi. Mývatn open hefur fest sig í sessi og nú keppast Freyfaxa- menn á Héraði við að markaðs- setja ístölt á Lagarfljóti, nánar til- tekið í Egilsstaðavíkinni. Fyrstu verðlaun þar eru að sjálfsögðu Ormsbikarinn, í höfuðið á hinum dulúðuga Lagarfljótsormi, sem ýmsir hafa séð en engum hefur tekist að sanna að sé til. Þeir Frey- faxamenn héldu ísmót í fyrra og það næsta er dagsett 19. febrúar. Fræknir knapar hafa boðað þátt- töku, til dæmis Olil Amble, Berg- ur Jónsson og Vignir Siggeirsson. Ekki má heldur gleyma að Hans Kjerúlf og Ragnheiður Samúels- dóttir eru þarna á heimavelli. Bergur Már Hallgrímsson, for- maður Freyfaxa, segist búast við góðri aðsókn á mótið, bæði af keppendum og áhorfendum. Gata keppenda frá afskekktari stöðum, eins og Reykjavík og nágrenni, verður greidd hvað varðar flutn- ing á hrossum og gistingu fyrir menn og hesta. Mikill og þykkur ís er nú á Lag- arfljóti og segja heimamenn að engin hláka fái haggað honum næstu vikur og mánuði. Já, ísreið er aftur höfð í hávegum og er það vel. Reiðmennska er ein helsta þjóðaríþrótt okkar Íslendinga og að taka hest til kostanna á ísi lögðu vatni undirstrikar sérstöðu íslenska gæðingsins. Vonandi gleyma Freyfaxamenn ekki skeið- inu. ■ JENS EINARSSON FJALLAR UM HESTA OG HESTAMENNSKU Á HESTBAKI Ísreið á Lagarfljóti GUÐRÚN ÁSDÍS EYSTEINSDÓTTIR Ríður tölt á ís en þessi forna íþrótt hefur sótt í sig veðrið á undanförnum árum. 14 stöðvar Ha s a r m y n d a -hetjan Jet Li hefur tjáð sig opin- berlega eftir að hafa rétt sloppið frá flóð- bylgjunum í Asíu í síð- asta mánuði. „Öldurn- ar komu mjög hratt. Ég hélt á dætrum mín- um og hljóp af stað. Ég var rétt lagður af stað þegar sjórinn var kominn upp að mitti. Ég hélt áfram að hlaupa og sjórinn var kominn upp að munni,“ sagði Li, sem nýverið gaf tæpar tíu milljónir króna til hjálparstarfs á svæð- inu. FRÉTTIR AF FÓLKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.