Fréttablaðið - 31.01.2005, Page 2
2 31. janúar 2005 MÁNUDAGUR
Páll Magnússon:
Hvorki kynjabarátta né innanflokksátök
STJÓRNMÁL Páll Magnússon, vara-
þingmaður Framsóknarflokksins
í Suðvesturkjördæmi, segist ekki
hafa gert upp við sig hvort hann
sækist eftir að leiða lista flokks-
ins í næstu bæjarstjórnarkosn-
ingum í Kópavogi. Ýmsir innan
flokksins telja að tilgangur
hallarbyltingar í Freyju, félagi
framsóknarkvenna í Kópavogi í
liðinni viku, hafi verið að tryggja
honum oddvitastöðu í bænum.
Eiginkona Páls og sambýlis-
kona Árna Magnússonar, félags-
málaráðherra og bróður Páls,
tóku þátt í meintri hallarbylt-
ingu. Páll segir að þær hafi verið
þar á eigin forsendum og að-
dróttanir um annað geri lítið úr
Sigurbjörgu Vilmundardóttur,
bæjarfulltrúa flokksins, sem
þær hafi verið að styðja í stjórn-
arkjöri. „Mér finnst lítið gert
með framboð Sigurbjargar því
það er skýringin fyrir niðurstöðu
fundarins. Hún tilkynnti for-
manni Freyju það viku fyrir
fundinn að hún vildi í stjórn
félagsins og fékk þau svör að
hún ætti þá að bjóða sig fram.
Það varð úr og tilgangslítið að
svekkja sig yfir því eftir á og
snúa þessu upp í kynjabaráttu
eða stórfelld innanflokksátök
eins og sumir hafa gert.“
- ghg
Steingrímur Hermannsson um Íraksmálið:
Erum ekki lengur
með hreinan skjöld
STJÓRNMÁL Steingrímur Her-
mannsson, fyrrverandi forsæt-
isráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins, telur það hafa
verið við hæfi að jafn mikilvægt
mál og stuðningur Íslands við
innrásina í Írak hefði verið tekið
upp og rætt í ríkisstjórn.
„Ég tel það vera augjóst að
Davíð og Halldór hafi tekið
ákvörðunina einir og ég tek það
fram að það þarf ekki samþykkt
ríkisstjórnarinnar fyrir ein-
staka ákvarðanir ráðherra,“
segir Steingrímur þótt hann telji
að mikilvægt sé að leita sam-
þykkis í viðkomandi þingflokk-
um og sjálfsagt sé að bera svona
stórt mál undir utanríkismála-
nefnd.
„Við höfum talið okkur vera
friðlausa og herlausa þjóð og ég
hef verið mjög stoltur af því. Nú
getum við hins vegar talið okkur
þátttakendur í árásarstríði, við
erum ekki lengur með hreinan
skjöld,“ segir Steingrímur og
bætir við að til margra ára tók
Ísland ekki þátt í hernaðarráðu-
neyti Nató vegna þess að Íslend-
ingar væru ekki hernaðarþjóð.
- keþ
Rödd frelsis
ómar frá Írak
Forseti Bandaríkjanna lýsti yfir mikilli ánægju með framkvæmd kosninganna
í Írak í gær. Hann heitir Írökum áframhaldandi aðstoð. Öldungardeildar-
þingmaður demókrata vill hermennina heim.
BANDARÍKIN, AP George W. Bush,
forseti Bandaríkjanna, lýsti í gær
yfir mikilli ánægju með fram-
kvæmd kosninganna í Írak. Hann
lofaði því að Bandaríkin myndu
áfram reyna að tryggja öryggi
almennra borgara í landinu.
„Heimurinn heyrir nú rödd
frelsis óma frá Írak,“ sagði Bush
við blaðamenn í Hvíta húsinu eftir
að kjörstöðum hafði verið lokað í
Írak. Hann hrósaði þeim Írökum
sem kusu þrátt fyrir að uppreisn-
armenn hefðu hótað árásum á
kjörstaði. Alls létust 44 í sjálfs-
morðsárásum og sagði Bush að
þeir kjósendur hefðu látist hafa
fórnað sér fyrir mikilvægasta
málstaðinn – frelsið.
Líkt og á laugardaginn sagði
Bush að kosningarnar myndu ekki
binda enda á hryðjuverkaárásir
öfgamanna. Bandaríkjamenn
myndu hins vegar hjálpa Írökum
til þess stöðvar árásirnar og koma
á friði þar til hið nýja lýðræðisríki
gæti sjálft borið ábyrgð á öryggi
borgaranna.
Edward Kennedy, öldungar-
deildarþingmaður demókrata,
sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar
sem hann segir að Bush verði að
líta lengra fram í tímann. Nauð-
synlegt væri að sýna Írökum fram
á það að Bandaríkjamenn hefðu
ekki uppi önnur áform í landinu
en að koma á lýðræði. Besta leiðin
til þess væri að byrja strax á því
að senda hluta hermannanna heim
til Bandaríkjanna. ■
RÚÐUR BROTNAR Talsverður erill
var hjá lögreglunni í Reykjavík
aðfaranótt sunnudags en mikið
var af fólki í miðbænum. Ölvun
var talsverð og þurfti lögreglan
að fjarlæga fíkniefni af nokkrum
aðilum. Rúður voru brotnar á
Laugaveginum og skemmdir voru
unnar á vinnuvélum og sex rúður
brotnar. Einnig var eitthvað um
slagsmál í bænum.
EKIÐ YFIR DRENG 10 ára drengur
á Akureyri rann í hálku og lenti
undir bíl seinnipartinn í gær.
Bifreiðin var ekki á mikilli ferð
en var ekið yfir drenginn sem
slapp með lítilsháttar meiðsli
FJÁRMÁLARÁÐHERRA MEÐ
FJÁRLÖGIN 2005
Ætlað er að um 30 milljörðum króna sé
árlega stungið undan skatti.
Alþingi í dag:
Skattsvik
rædd
STJÓRNMÁL Skattsvik og aðgerðir
gegn þeim verða til umræðu á
Alþingi í dag. Starfshópur sem fjár-
málaráðherra skipaði að undan-
genginni samþykkt Alþingis skilaði
viðamikilli skýrslu um umfang
skattsvika í desember, rétt eftir að
þingið fór í jólaleyfi. Í skýrslunni
kemur fram að árlega svíki Íslend-
ingar í kringum 30 milljarða króna
undan skatti en það er svipuð
fjárhæð og kostar að reka allt
íslenska skólakerfið. Nefndin lagði
til nokkrar leiðir til að sporna við
skattsvikum og verða þær og fleiri
ræddar í þinginu í dag. - bþs
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
Dúndur tilboð
Rauðmagi
80,- kr. pr. stk
opið laugardaga frá 10-14.30
SPURNING DAGSINS
Ingibjörg, vilt þú áfram vera
vinkona Össurar?
Ég vissi ekki að annað stæði til.
Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar-
innar, sagði á fundi flokksmanna á Akureyri í gær
að hann og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir yrðu
áfram vinir ef hann fengi einhverju um það ráðið.
Á GÓÐRI STUND Í FRAMSÓKN
Siv Friðleifsdóttir vakti athygli á því að konur bræðranna Páls og Árna Magnússonar hefðu
tekið þátt í hallarbyltingu í kvenfélagi innan flokksins. Viðmælendur blaðsins benda á að
ættingjar Sivjar sitji og hafi setið víðs vegar í stjórnum Framsóknarflokksins.
STEINGRÍMUR HERMANNSSON
Fyrrverandi forsætisráðherra landsins
segir samþykkt ríkisstjórnar ekki
nauðsynlega fyrir ákvörðun ráðherra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
IRON MAIDEN
Verða með tónleika í Egilshöll í sumar
Rokk og ról í Reykjavík:
Iron Maiden
til landsins
TÓNLIST Breska rokkhljómsveitin
Iron Maiden heldur tónleika í Egils-
höll þriðjudaginn 7. júní. Fyrirtækið
R&R flytur sveitina til landsins, en
að því standa Ragnheiður Hanson
og Halldór Kvaran. Þau hafa áður
flutt fjölda listamanna til landsins,
til dæmis Metallica, David Bowie
og Robbie Williams.
Iron Maiden hefur starfað með
hléum í um 30 ár og hélt tónleika í
Laugardalshöll sumarið 1992.
Nýlega var gefinn út mynddiskur
með efni frá fyrstu árum sveitar-
innar og er tónleikaförin nú farin
til að kynna efni hans. bþs■ LÖGREGLUFRÉTTIR
GRIPU Í TÓMT Lögreglan á Egils-
stöðum fékk boð í gegnum neyð-
arlínuna aðfaranótt sunnudags
vegna fólks í vanda á Öxi. Ekkert
símasamband er á Öxi en erlend-
ir vegfarendur komu að fólki í
vanda sem bað um að haft yrði
samband við neyðarlínuna. Lög-
reglan kallaði björgunarsveitina
út en þegar hún kom á staðinn
var ekkert fólk að finna.
VIRTI EKKI BIÐSKYLDU Tvö um-
ferðaróhöpp áttu sér stað á Akur-
eyri á sunnudag. Í fyrra skiptið
virti ökumaður ekki biðskyldu og
keyrði í veg fyrir annan bíl. Í
seinna skiptið var bifreið ekið
beint á aðra bifreið á ferð. Bílar-
nir skemmdust talsvert en engin
meiðsli urðu á fólki.
ÍRÖSKU KOSNINGARNAR
· Kosið var stjórnlagaþing og kjörtímabil-
ið er 11 mánuðir
· 275 þingmenn sitja á þinginu
· Þingið velur forseta og tvo varaforseta
· Forsetarnir velja forsætisráðherra og
ríkisstjórn sem þingið þarf að sam-
þykkja
· Þingið mun skrifa nýja stjórnarskrá
· Stjórnarskráin verður lögð fyrir þjóðar-
atkvæðagreiðslu í október
· Ef stjórnarskráin verður samþykkt verða
þingkosningar í desember
· Ef stjórnarskránni verður hafnað verður
aftur kosið stjórnlagaþing
SVARAÐI EKKI SPURNINGUM
George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, svaraði ekki spurningum blaðamanna í
Hvíta húsinu í gær.