Fréttablaðið - 31.01.2005, Qupperneq 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
61,99 62,29
117,02 117,58
80,88 81,34
10,88 10,93
9,81 9,86
8,90 8,95
0,60 0,60
94,30 94,86
GENGI GJALDMIÐLA 28.1.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
111,25-0,22%
4 31. janúar 2005 MÁNUDAGUR
Alþingismenn um varðskip á rekstrarleigu:
Tekið undir hugmyndir Georgs
VARÐSKIP „Ég fagna mjög sjónar-
miðum Georgs um að íhuga leigu
á skipi,“ segir Magnús Þór Haf-
steinsson, þingmaður Frjáls-
lynda flokksins. Georg Kr. Lár-
usson, forstjóri Landhelgisgæsl-
unnar, sagði í viðtali við Frétta-
blaðið á laugardag að hag-
kvæmara væri að leigja nýtt
varðskip í stað þess að kaupa
það. Leigan gæti numið um 150
milljónum króna á ári en ætlað
er að það kosti 3 milljarða að
kaupa nýtt skip.
Magnús léði sjálfur máls á
þessari leið í viðtali við Frétta-
stofu Útvarps í fyrrasumar.
Hann segir Norðmenn hafa
farið þessa leið í langan tíma og
meðal annars leigt fiskiskip til
landhelgisgæslu. Telur hann
mögulegt að leigja togara eða
nótaskip í eigu íslenskra útgerða.
„Við eigum mörg skip sem gætu
nýst til gæslustarfa með smá-
vægilegum breytingum.“
Guðmundur Hallvarðsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks,
tekur líka jákvætt í hugmyndina.
„Ef það fæst skip sem hentar
okkur tel ég eðlilegt að skoða
málið vel. Við þekkjum þetta í
kaupskipaflotanum þar sem skip
eru leigð til lengri eða skemmri
tíma.“
- bþs
200 fyrirtæki í
eigu ríkisins
Ríkið á eignarhlut í 206 fyrirtækjum. Ríkissjóður á 24 fyrirtæki. Þingmaður
Sjálfstæðisflokks segir að sameina eigi Byggðastofnun og Nýsköpunarsjóð.
Sjóðirnir fjárfesti jafnvel í sömu fyrirtækjunum.
RÍKISEIGNIR Ríkið á eignarhlut í rétt
um 200 hlutafélögum og einkahluta-
félögum. Ríkissjóður átti hlut í 24
fyrirtækjum 1. desember síðastlið-
inn. Ríkisstofnanir í A-hluta eiga frá
0,9% til 100% í 29 fyrirtækjum.
Fyrirtæki Byggðastofnunar eru 78
og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
á 64. Ellefu voru í eigu annarra
ríkisfyrirtækja.
Sigurður Kári Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir
ríkið of fyrirferðarmikið í íslensku
atvinnulífi. Sameina eigi Byggða-
stofnun og Nýsköpunarsjóðs at-
vinnulífsins. Sjóðirnir fjárfesti í of
líkum fyrirtækjum, jafnvel þeim
sömu. Mesta athygli hefði þó 20 pró-
senta hlutur ÁTVR í Endurvinnsl-
unni vakið í svörum fjármálaráð-
herra um eignaumfang ríkisins í
hlutafélögum og einkahlutafélög-
um. Hann segir niðurstöðu fyrir-
spurnarinnar hafa komið sér á
óvart.
„Ríkið á hlut í félögum sem reka
baðhús, hótel, fiskeldi, endur-
vinnslu, flugþjónustu, saumastofur,
upplýsinga- og tæknifyrirtæki. Rík-
ið á einnig hlut í félagi sem á í sjáv-
arútvegi og öðru sem rekur bakarí,“
segir Sigurður. Hann óski skýringa
á því hvers vegna ríkið hafi verið
svo stórtækt í fyrirtækjafjárfest-
ingum.
Pétur Blöndal, formaður efna-
hags- og viðskiptanefndar Alþingis,
segir eign ríkisins í samkeppnis-
fyrirtækjum vera ósið. Eign þess í
mörgum fyrirtækjanna, s.s. Flug-
skóla Íslands, sé fráleidd. Eins sé
með eigu ríkisins í fjölda hótela.
Verið sé að veita dulbúna styrki:
„Menn þurfa að vera agaðir. Þeir
eiga ekki að beita ríkisfjármálum á
þennan hátt.“
Ögmundur Jónasson, sem situr
fyrir Vinstrihreyfinguna-grænt
framboð í efnahags- og viðskipta-
nefnd, segir menn almennt sam-
mála um að eignarhluti ríkisins í til
dæmis hótelum á landsbyggðinni sé
ekki keppikefli þess.
„En hvernig er þetta til komið?
Er það vegna þess að þessum hót-
elum og fyrirtækjum var veitt að-
stoð til að koma í veg fyrir at-
vinnuhrun,“ spyr Ögmundur. Slík
fyrirtæki lúti öðrum lögmálum en
stórfyrirtæki í eigu ríkisins, því
þau litlu megi selja skapist til
þess tækifæri.
gag@frettabladid.is
SAMIÐ VIÐ ALCAN Nýr kjara-
samningur til tæplega þriggja
ára milli stéttarfélaga og Alcan,
sem rekur álverið í Straumsvík,
hefur verið undirritaður. Alls
komu átta stéttarfélög að samn-
ingnum. Samningurinn nær til
um 400 starfsfólks álversins.
LÖGREGLA Á VETTVANGI
Aðskilnaðarhreyfing Baska lýsti yfir ábyrgð
á sprengingunni.
ETA sprengir á hóteli
á Spáni:
160 sluppu
naumlega
MADRÍD, AP Einn slasaðist í spreng-
ingu á hóteli í strandbænum
Denia, skammt frá Alicante á
Spáni, í gær.
Sprengjan sprakk hálftíma
eftir að hótun barst símleiðis, en
160 gestir voru fluttir af hótelinu
í skyndi og sluppu því með
skrekkinn. Aðskilnaðarhreyfing
Baska, ETA, hefur lýst yfir
ábyrgð á sprengjunni. ETA er
talið bera ábyrgð á 800 morðum í
landinu síðan árið 1960, en hreyf-
ingin berst fyrir sjálfstæði Baska
á Norður-Spáni. ■
BÍLAR Á FLOTI Slökkviliðið í
Reykjavík var kallað út um tíu-
leytið á sunnudagsmorgun því
mikið vatn hafði flætt inn í
geymsluhúsnæði Fornbíla-
klúbbsins sökum leysinga. Það
tók slökkviliðið um tvo klukku-
tíma að losa út vatnið og um há-
degi var mest vatn farið.
Seinnipart sunnudags fór
slökkviliðið aftur að húsnæðinu
til að ljúka við hreinsun og los-
un á því vatni sem eftir var.
VARÐSKIPIÐ ÓÐINN
45 ára afmæli Óðins var fagnað á fimmtudag. Ægir er 37 ára og Týr 30 ára.
■ KJARAMÁL
Hamfarirnar í Asíu:
Kalla á
breytingar
RÁÐSTEFNA Viðbrögð vegna hörm-
unganna í Suðaustur-Asíu voru
meðal umræðuefna á höfuð-
borgaráðstefnu Norðurlandanna
fyrir helgi.
Stefán Jón Hafstein, forseti
borgarstjórnar, sat ráðstefnuna
og segir í tilkynningu að ráða-
menn höfuðborganna geti lært
margt af því sem gerðist. Undir-
búningur almannavarna og
sjálfboðaliða hafi ekki náð til
þeirra aðgerða sem var krafist
eftir flóðbylgjuna. Til dæmis
hafi verið ótrúlega erfitt að afla
upplýsinga af vettvangi þrátt
fyrir nútímatækni.
- gag
MEIRA ATVINNULEYSI Atvinnu-
leysi í Svíþjóð er aðeins meira nú
en fyrir ári. Atvinnuleysi mæld-
ist 5,3 prósent í desember, 0,2
prósentustigum meira en í fyrra.
Atvinnuleysið mældist undir
fimm prósentum í nóvember, eða
4,9 prósent.
■ NORÐURLÖND
TEKNIR MEÐ HASS Lögreglan í
Keflavík handtók tvo menn sem
voru að hefja kannabisneyslu í
bifreið sinni aðfaranótt sunnu-
dags. Lögreglan lagði hald á
smáræði af tóbaksblönduðu
hassi við handtökuna.
ÖLVAÐIR VIÐ STÝRI Þá sömu
nótt tók lögreglan tvo menn,
annan í Njarðvík og hinn í
Keflavík, vegna gruns um ölv-
unarakstur. Eftir blóðtöku og
yfirheyrslu voru mennirnir
frjálsir ferða sinna.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Ríkissjóður Eignarhluti
Baðfélag Mývatnssveitar 54,0%
Barri hf. 22,4%
Endurvinnslan 17,8%
– auk ÁTVR sem á 20%
Flugskóli Íslands 42,2%
Flugstöð Leifs Eiríkssonar 100%
Geca hf. 12,8%
Stofnanir í A-hluta
Eignarhaldsfélag Verðbréfaþings 0,9%
Fiskeldi Eyjafjarðar hf. 9,1%
Internet á Íslandi ehf. 0,6%
Spölur ehf. 11,6%
Byggðastofnun
Baðfélag Mývatnssveitar 23,5%
Dalagisting 16,3%
– auk eignarhlutar í fjölda hótela
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
Frumkvöðlasetur Austurlands 13%
Geca 33%
DÆMI UM FYRIRTÆKI
Í EIGU RÍKISINS
SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON
Segir eignarhlut ÁTVR í Endurvinnslunni
hafa komið mest á óvart.
ÖGMUNDUR JÓNASSON
Segir rangt hafa verið að selja fjármála-
stofnanir. Ekki eigi að selja Símann.