Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.01.2005, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 31.01.2005, Qupperneq 6
6 31. janúar 2005 MÁNUDAGUR Launanefndin og Kennarasambandið verða að samþykkja sérsamninga: Sérkjör kennara ekki í höndum Garðabæjar KJARAMÁL Sérsamningur við kenn- ara í Sjálandsskóla, nýjum grunn- skóla Garðabæjar, getur ekki orð- ið að veruleika nema launanefnd sveitarfélaga og Kennarasam- band Íslands samþykki hann. Eiríkur Jónsson segir að vilji starfsfólk grunnskólanna almennt breytt fyrirkomulag og sveitar- félög séu tilbúin að greiða veru- lega hærri laun, án þess að rétt- indum sé fórnað, sé Kennarasam- bandið tilbúið að skoða málin. Samningar verði ekki staðfestir nema skilyrðin séu uppfyllt: „Við förum ekki að selja það frelsi sem þó er eftir af vinnutímanum fyrir ekki neitt.“ Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, formaður launanefndar sveitar- félaganna, segir fagnaðarefni ef bæjarstjórnin í Garðabæ vilji hafa forgöngu um breytt fyrir- komulag. Hve há laun verði greidd lúti samþykki launanefnd- arinnar: „Þetta er eitthvað sem verður að skoða og krónutalan hlýtur að draga einhvern dám af vinnufyrirkomulagi og vinnu- tíma.“ - gag NÁTTÚRAN Gjósi Katla af öllum mætti gæti flóðbylgja skollið á suðurströnd landsins. Þessi mögu- leiki er fjarlægur en engu að síð- ur raunhæfur og út frá honum verður unnið þegar aðgerðir vegna hugsanlegs Kötlugoss verða ákveðnar. Von er á skýrslu Almanna- varna ríkisins um mögulegar af- leiðingar goss í Kötlu en með henni verður mönnum möguleg áhrif betur ljós. Yfirmenn al- mannavarnamála í Vík í Mýrdal, Vestmannaeyjum, á Hvolsvelli, Selfossi og Reykjanesi hafa þó þegar gefið málinu gaum. „Við vitum ekki nákvæmlega á hverju við eigum von en við þurf- um að vera við öllu búin,“ segir Ólafur Helgi Kjartansson sýslu- maður í Árnessýslu. Hugsanlega þarf að rýma byggðirnar við ströndina, allt frá Vík til Grindavíkur. Ólafur Helgi leggur ríka áherslu á að fólk verði upplýst um alla möguleika um leið og því sé gerð grein fyrir að ekki sé þar með sagt að eitthvað gerist. „Við erum ekki að tala um eitthvað sem verður heldur eitthvað sem gæti hugsanlega orðið.“ Ekki hefur áður verið hreyft við þeim möguleika að áhrif Kötlugoss geti náð jafn langt með suðurströndinni og nú er talið hugsanlegt. bþs Varðskipin með Dettifoss til hafnar Björgunaraðgerðir Landhelgisgæslunnar báru árangur í gær eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir við að koma dráttartaug yfir í flutningaskipið Dettifoss. Veðrið gekk niður um miðjan dag í gær og búist var við skipunum til Eskifjarðar í nótt. BJÖRGUN Búist var við því í gær- kvöld að varðskipin Týr og Ægir kæmu með flutningaskipið Detti- foss í togi til hafnar á Eskifirði í nótt. Þau voru stödd í mynni Reyðarfjarðar um klukkan sjö í gærkvöld. Stýrisblað skipsins brotnaði af um klukkan átta á föstudags- kvöld þar sem það var statt aust- ur af landinu á leið til Eskifjarð- ar frá Reykjavík. Þá var þungt í sjóinn og mikið rok. Þrisvar tókst að koma dráttartaug á milli Dettifoss og Týs en hún slitnaði ávallt. Um miðjan dag í gær gekk veðrið niður og þá tókst loksins að koma taug á milli skipanna og sigla til lands. Karl Gunnarsson, svæðis- stjóri Eimskips á Austurlandi, sagði í gærkvöld að siglingin gengi vel þrátt fyrir að enn væri þungt í sjóinn. Kafarar um borð í Tý ætluðu að kafa niður að hlið- arskrúfu Dettifoss þegar komið væri inn í Reyðarfjörð. Skrúfan bilaði á meðan skipið rak og er talið að dráttartóg sem slitnaði úr skipinu hafi flækst í skrúf- unni. Mikilvægt er að skrúfan virki þegar Dettifoss leggst að bryggju á Eskifirði. Þrettán menn eru í áhöfn Dettifoss, allir Íslendingar. Karl segir þá hafa það gott enda hafi verið lögð áhersla á að þeir færu varlega á meðan óveður geysaði. Í samtali við blaðið í gær sögðu menn um borð að mörgum væri brugðið enda veður vont. Dettifoss flytur 850 gáma með um 6.000 tonn af útflutnings- vörum, mest fiski og áli. Skemmdir á skipinu verða skoðaðar þegar það kemur í höfn. Viðgerðir á því fara þó að líkindum fram erlendis. Skipið verður því væntanlega aftur dregið yfir hafið þar sem hægt er að taka það í þurrkví. Karl segist vita til þess að stýrisblöð hafi áður dottið af fraktskipum. „Það virðist hafa færst í vöxt. Ég veit ekki hvort smíðagalla er um að kenna eða málmþreytu.“ ghg@frettabladid.is ÁSDÍS HALLA BRAGADÓTTIR Segir ekki liggja fyrir hvernig brugðist verði við falli hugmynd þeirra að sérsamningi ekki í kramið. KÍ og launanefndin: Verða að bíða samningsins KJARAMÁL Algerlega ótímabært er fyrir samninganefndir kennara og sveitarfélaga að tjá sig um hvernig þeim lítist á sérkjarasamning í Sjá- landsskóla fyrr en þeir hafi hann í höndunum, segir Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri í Garðabæ. Ásdís segir bókun nýja kjara- samningsins um sérsamninga fela í sér að báðar samninganefndirnar hafi áhuga á slíkum samningum: „Það hefur ekkert komið til okk- ar sem gefur okkur ástæðu til að halda að menn ætli ekki að vinna í samræmi við þessa bókun. Á meðan svo er treystum við því að fullur hugur hafi verið í mönnum þegar þeir kláruðu síðustu samninga.“ - gag Ertu sátt(ur) við árangur ís- lenska landsliðsins á HM? SPURNING DAGSINS Í DAG: Heldurðu að ástandið batni í Írak þeg- ar nýkjörin stjórn tekur við völdum? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 61% 39% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 27 00 4 0 1/ 20 05 *Innifalið: Flug, flugvallarskattar og eldsneytisgjald Verð frá 36.900 kr.* Netsmellur til USA Bandaríkjaferðir á frábæru verði Bókaðu á www.icelandair.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N KENNARAR Í KJARAVIÐRÆÐUM VIÐ SVEITARFÉLÖGIN Samninganefnd kennara situr hér á fundi á 28. degi verkfalls kennara. Hún fær fyrir- hugaðan sérsamning kennara í Sjálands- skóla til umsagnar og staðfestingar. TÝR OG DETTIFOSS Á efri myndinni sést Dettifoss á reki í miklum sjó. 850 gámar með 6.000 tonn af vörum eru um borð í skipinu. Á neðri myndinni sést varðskipið Týr og Dettifoss. Eftir að veðrið gekk niður um miðjan dag í gær tókst að koma dráttartaug á milli skipanna og stefnan var sett á Reyðarfjörð. ÓLAFUR HELGI KJART- ANSSON SÝSLUMAÐUR „Við vitum ekki nákvæmlega á hverju við eigum von en við þurfum að vera við öllu búin.“ Viðbrögð vegna hugsanlegs Kötlugoss undirbúin: Flóðbylgja gæti náð til Grindavíkur M YN D IR /L AN D H EL G IS G Æ SL AN FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.