Fréttablaðið - 31.01.2005, Side 8
1Hvaða flutningaskip varð stjórnlaustfyrir austan land um helgina?
2Hvenær ætla Ariel Sharon og Mah-moud Abbas að funda?
3Hvers var minnst í Póllandi áfimmtudaginn?
SVÖRIN ERU Á BLS. 30
VEISTU SVARIÐ?
8 31. janúar 2005 MÁNUDAGUR
Afvopnunarfulltrúi Bandaríkjanna:
Íran ógn við
Mið-Austurlönd
BAHARIN, AP John Bolton, öryggis-
og afvopnunarmálafulltrúi í
bandarísku stjórninni, sagði á
fundi í Barein í vikunni að löndum
í Mið-Austurlöndum stafaði veru-
leg hætta af kjarnorkuvopnaeign
Írana.
Bolton fór í vikunni í heimsókn
til þriggja Mið-Austurlanda þar
sem hann hitti ráðamenn og ræddi
þróun kjarnorkuvopna í Íran.
Hann segir stuðning Írana við
hryðjuverkahópa gera málið enn
alvarlegra. „Það er sama hvort
þeir hyggjast gera sín eigin kjarn-
orkuvopn eða útvega hryðju-
verkahópum þau, hvort tveggja er
jafn slæmt.“
Frakkar, Bretar og Þjóðverj-
ar hafa staðið í viðræðum við
Írana um að þeir stöðvi auðgun
úrans gegn tæknilegri, póli-
tískri og fjárhagslegri aðstoð.
Íranar urðu við beiðninni meðan
á viðræðunum stóð en hafa ít-
rekað neitað að frysta áætlanir
sínar.
Fyrr í mánuðinum var haft
eftir Bush Bandaríkjaforseta að
hann útilokaði ekki hernaðar-
aðgerðir gegn Íran vegna auðgun-
ar úrans sem Bandaríkjamenn
telja að sé ætluð til nota í kjarn-
orkuvopnagerð. ■
FRAKKLAND, AP 16 manns hefur
verið stefnt fyrir dómstóla í
Frakklandi vegna eldsvoða í
Mont Blanc-göngunum árið 1999.
Eldsvoðinn varð 39 manns að
bana. Sakborningar eru ákærðir
fyrir manndráp og sækjendur
munu fara fram á sektir og allt að
þriggja ára fangelsi. Búist er við
að réttarhöldin taki að minnsta
kosti þrjá mánuði, en undirbún-
ingur hefur staðið í fjögur og
hálft ár.
Eldurinn kviknaði í Volvo-
flutningabíl í göngunum en talið
er upptökin megi rekja til fram-
leiðslugalla í bílnum. Meðal sak-
borninga eru sænska fyrirtækið
Volvo, ökumaður flutningabíls-
ins og franskir og ítalskir
stjórnarmenn ganganna.
Aðstandendum fórnarlamba
hafa þegar verið greiddar 13,5
milljónir punda í skaðabætur. ■
Magnús Þorkell
Bernharðsson
Í Píslarvottum
nútímans er rakið
samspil trúar og
stjórnmála í Írak og
Íran, ljósi varpað á
sjálfsmorðsárásir og
píslarvættisdauða,
hugmyndafræði
íslamista og margt fleira
sem leynist handan
fyrirsagna fjölmiðlanna.
Þessi bók sætir miklum
tíðindum, enda er hér
skrifað af mikilli
þekkingu á
aðgengilegan hátt um málefni
sem brenna á allri heimsbyggðinni.
Hvað gerist í Írak og Íran?
Aðeins
2.990 kr.
1. sæti
Allar bækur
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
19. – 25. jan.
Þakplötur fuku og
malbik flettist af
Mikið hvassviðri og vatnsveður var víðast hvar um landið bæði á laugardag og
sunnudag og olli talsverðum skemmdum. Loka þurfti veginum við Mýrdals-
sand vegna mikilla vatnavaxta og þakplötur fuku af húsum á Akureyri.
HVASSVIÐRI Hvassviðri var víðast
hvar um landið um helgina og loka
þurfti veginum við Mýrdalssand
sökum vatnavaxta aðfaranótt
sunnudags. Á Akureyri fuku þak-
plötur af raðhúsalengjum og
vörubifreið fauk út af veginum
rétt norðan við bæinn. Grjóthnull-
ungar tókust á loft í vegaskarði
við Möðrudal og skemmdust þar
tveir bílar talsvert. Veðrið hafði
þó gengið niður á flestum stöðum
landsins um hádegi á sunnudag.
Starfsmenn vegagerðarinnar í
Vík lokuðu veginum við Mýrdals-
sand um eittleytið aðfaranótt
sunnudags af öryggisástæðum,
en mikið leysingavatn rann yfir
veginn á 300 metra kafla. Mikil
rigning var og heitt í veðri og
sökum þess hversu mikill snjór
var fyrir á sandinum ruddist
vatn ásamt klaka yfir veginn og
þegar vatnshæðin var sem mest
sást rétt aðeins í glitmerki á veg-
astikum. Lögreglan í Vík vaktaði
veginn en vegagerðin tók hann í
sundur á einum stað til að hleypa
vatninu í gegn, og var vegurinn
settur saman þegar vatnsstraum-
urinn hafði minnkað. Smávægi-
legar skemmdir urðu á veginum
og þá helst að kantar losnuðu
upp. Opnað var fyrir umferð um
klukkan ellefu á sunnudagsmorg-
un og var eðlileg umferð komin á
skömmu eftir það. Skemmdir
urðu einnig vegna hvassviðris á
veginum í kringum Kvísker
sunnan við Vatnajökul en í gær-
morgun náðu vindhviður á því
svæði allt að 48 metrum á sek-
úndu. Á Möðrudalsöræfum, á
veginum á milli Egilsstaða og
Mývatns, fletti vindurinn malbik-
inu af veginum í heilu lagi og
lagðist það saman, en um mið-
nætti á laugardag náði vindurinn
þar 37 metrum á sekúndu í mestu
hviðunum.
kristineva@frettabladid.is
ÍRANAR NEITA AÐ HÆTTA AUÐGUN ÚRANS
Vekur ugg hjá öðrum þjóðum.
VEGURINN Í SUNDUR VIÐ MÝRDALSSAND
Vegagerðin þurfti að taka veginn í sundur við Mýrdalssand á meðan mikið leysingavatn ásamt klaka ruddist yfir veginn.
M
YN
D
/S
IG
G
I H
JÁ
LM
AR
S
VIÐ MONT BLANC-GÖNGIN EFTIR BRUNANN
Göngin voru lokuð í þrjú ár eftir eldsvoðann sem kostaði 39 manns lífið.
Eldsvoðinn í Mont Blanc:
16 sóttir
til saka