Fréttablaðið - 31.01.2005, Side 10
KÍNVERSK FEGURÐ
Opna kínverska meistaramótið í fegurð fór
fram um helgina. Stúlkur víðs vegar að úr
heiminum tóku þátt en skilyrði fyrir þátt-
töku var að þær væru af kínversku bergi
brotnar. Sú er framar stendur fór með sig-
ur af hólmi en hún er búsett í Vancouver í
Kanada.
10 31. janúar 2005 MÁNUDAGUR
Jóhannes Páll páfi II á Péturstorgi:
Gekk illa að sleppa
friðardúfunum
VATÍKANIÐ, AP Jóhannes Páll páfi II hugð-
ist ásamt tveimur börnum sleppa hvít-
um dúfum út um glugga á íbúð sinni í
Páfagarði í gær, en dúfurnar vildu ekki
út í kuldann sem hefur ríkt í Róm und-
anfarið og flugu aftur inn í hlýjuna.
Athöfnin var liður í átaki kaþólskrar
hreyfingar á Ítalíu sem valdi janúar-
mánuð sem mánuð til að undirstrika
frið í heiminum.
Þúsundir ungra barna höfðu safnast
saman á Péturstorginu til að fylgjast
með páfa og börnunum tveimur og
hlógu svo undir tók í Péturstorginu
þegar dúfurnar flugu inn en ekki út.
Páfi greip eina dúfuna og ýtti henni
blíðlega út úm gluggann, en eftir stutt
flug yfir Péturstorginu sneri hún við
og hvarf enn á ný inn um gluggann.
Páfinn hló með börnunum og hafði
greinilega gaman af öllu saman. ■
Til skammar
fyrir landið
Það er til skammar fyrir landið hve lítið íslenskir læknar gera af því
að tilkynna um aukaverkanir lyfja, segir Sif Ormarsdóttir læknir
í sérfræðinefnd Evrópsku lyfjastofnunarinnar.
HEILBRIGÐISMÁL Tilkynningar um
aukaverkanir gigtarlyfsins Vioxx
hér á landi munu fara í sérstakan
gagnabanka í Evrópusambandinu
þegar fram líða stundir, að sögn
Rannveigar Gunnarsdóttur for-
stjóra Lyfjastofnunar. Lyfið er ekki
lengur á markaði.
Tilkynnt hefur verið um þrjá ein-
staklinga, sem fengu hækkaðan
blóðþrýsting og útbrot af völdum
lyfsins. Vitað er að tveir þeirra náðu
sér, en ekki er vitað um þann þriðja,
að sögn Rannveigar. Hún sagði, að
viðkomandi læknir eða læknar ættu
að fylgja því eftir, því þeir bæru
ábyrgð á sjúklingum sínum.
Varðandi aðstandendur tveggja
sjúklinga sem höfðu samband við
Lyfjastofnun vegna gruns um að
sjúklingarnir hefðu skaðast af notk-
un á Vioxx sagði Rannveig, að
Lyfjastofnun myndi ekkert gera í
því máli. Ekki hefði borist formleg
tilkynning, heldur hefði verið um
nafnlausar fyrirspurnir að ræða.
Viðkomandi hlytu að hafa haft sam-
band við þá lækna sem komið hefðu
að þeim tilvikum eða þá snúið sér til
Landlæknisembættisins ef um rök-
studdan grun væri að ræða.
Rannveig sagði enn fremur, að
stofnaður hefði verið sérstakur
gagnabanki í Evrópusambandinu.
Þangað bæri lyfjastofnunum að til-
kynna alvarlegar aukaverkanir.
Þessi gagnabanki væri ekki fullbú-
inn, en þegar það yrði myndi hann
taka við slíkum upplýsingum um öll
lyf. Aðalatriðið væri þó að safna
upplýsingum um þau lyf sem væru
á markaði og sem sjúklingar væru
að nota. Ef fullsannað þætti að eitt-
hvert lyf hefði ákveðnar aukaverk-
anir, væru þær settar inn í texta
sem fylgdi lyfinu, læknum og sjúkl-
ingum til leiðbeiningar.
Sif Ormarsdóttir læknir, sem
sæti á í sérfræðinefnd Evrópsku
lyfjastofnunarinnar, sagði að verið
væri að athuga öll COX – 2 hemlalyf-
in nánar með tilliti til aukaverkana,
en Vioxx var í þeim flokki. Banda-
ríska lyfjastofnunin væri að vinna
sömu vinnu innan sinna vébanda.
Sif sagði að sérfræðingar söfn-
uðu gögnum, meðal annars um
aukaverkanir þessara lyfja. Sér-
fræðinefndin fengi þau síðan til um-
fjöllunar og ætti lokaorðið um með-
ferð mála hverju sinni. Með tilliti til
þeirrar gífurlegu notkunar sem ver-
ið hefði á COX – 2 lyfjum hér á
landi, hefðu fáar tilkynningar um
aukaverkanir borist.
„Það er almennt mjög lítið til-
kynnt um aukaverkanir lyfja hér,“
sagði hún. „Það er hálfgert vanda-
mál og er til skammar fyrir landið.“
jss@frettabladid.is
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
SÍ
A
Gegnheil gæði
og gott verð
Kynntu þér fjölda freistandi tilboða! Sími 540 5400
Opið frá kl. 12-16 laugardaga
1.795.000 kr.
Mazda3 T 5 dyra 1,6 l
kostar aðeins
– hefur þú séð DV í dag?
Syrgjandi faðir vill réttlæti eftir dótturmissi:
Dóttir mín var drepin
og enginn gerir neitt
Ökumaðurinn var langt yfir 90 þar sem
hámarkshraði er 35 en heldur þó prófinu
KÚARIÐA Evrópskir vísindamenn
staðfestu á dögunum að Creutz-
feldt-Jakob sjúkdómurinn
(kúariða) hefði í fyrsta sinn
greinst í geit. Áður var talið að
sjúkdómurinn legðist aðeins á
kýr. Halldór Runólfsson yfirdýra-
læknir telur hættuna þó ekki
mikla hérlendis.
„Mesta hættan vegna þessa er í
löndum þar sem geitur eru mjólk-
aðar. Við teljum ekki að þetta hafi
nein áhrif hérlendis í sambandi
við sauðfé.
Ísland er vel statt að þessu
leyti því aldrei hefur komið upp
kúariða hérlendis og ætti heldur
ekki að koma upp í sauðfé. Ástæð-
urnar eru sennilega hversu ein-
angrað landið er og auk þess eru
innflutningsreglurnar afar
strangar,“ sagði Halldór.
Ísland er eitt fjögurra landa
sem hafa fengið góðan stimpil frá
Alþjóða dýraheilbrigðisstofnun-
inni fyrir að hafa alltaf verið laus
við kúariðu. Hin löndin eru
Argentína, Úrúgvæ og Singapúr.
- bg
TILKYNNINGAR
Tilkynningar um aukaverkanir gigtarlyfsins Vioxx fara í gagnabanka í Evrópusambandinu,
ásamt upplýsingum um öll önnur lyf.
Kúariða greindist í geit:
Ísland ekki í hættu
HALLDÓR RUNÓLFSSON
YFIRDÝRALÆKNIR
Hann telur litla hættu á að íslenskt sauð-
fé sé í hættu á að smitast af kúariðu.
Hingað til hefur aldrei greinst kúariða í
kúm á Íslandi.
ÁKVEÐNAR DÚFUR
Páfinn hló með börnunum þegar
dúfurnar flugu aftur inn um gluggann.