Fréttablaðið - 31.01.2005, Side 61

Fréttablaðið - 31.01.2005, Side 61
20 31. janúar 2005 MÁNUDAGUR Við fögnum því … … að Ólafur Gottskálksson skuli vera heill heilsu og alls ekki týndur eins og forráðamenn Torquay hafa haldið fram á vefsíðu sinni. Ólafur sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að hann væri við hestaheilsu og dveldi í góðu yfirlæti hjá fyrrum félögum sínum í Edinborg í Skotlandi. Ólafur sagði að forráðamenn Torquay vissu vel hver hann væri og sagði jafnframt að hann hefði að öllum líkindum spilað sinn síðasta leik fyrir félagið. „Ég er á leiðinni heim á næstunni. Það er orðið gott því skrokkurinn er kominn fram yfir síðasta söludag,“ sagði Ólafur hress í bragði.sport@frettabladid.is LEIKIR GÆRDAGSINS HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 28 29 30 31 1 2 3 Mánudagur JANÚAR HANDBOLTI Í leiknum gegn Slóven- um á þriðjudag kom upp atvik sem vakti athygli mina. Það voru örfáar sekúndur eftir af fyrri hálfleik þegar Viggó Sigurðsson tók leikhlé og freistaði þess að ná að bæta við einu marki áður en flautað var til hálfleiks. Strákarn- ir hópuðust saman og Viggó til- greindi hvaða fjórir útileikmenn ættu að vera inni á, en á þessum tímapunkti höfðu tveir leikmenn íslenska liðsins verið reknir út af. Að því loknu dró Viggó sig í hlé og upp í pontu steig Dagur Sigurðs- son, fyrirliði íslenska liðsins. Það var síðan hann sem ákvað leik- fléttuna sem notast ætti við og jafn einkennilega og það hljómar þá var það engu líkara en að Dag- ur væri þjálfari liðsins. Stýrði leikhléum liðsins Þetta atvik fékk mig til að velta vöngum yfir því hvort tilverurétt- ur Dags Sigurðssonar í íslenska landsliðinu grundvallist að ein- hverju leyti af þjálfarahæfileik- um hans, en fyrir þá sem ekki vita er Dagur spilandi þjálfari Bregenz í Austurríki. Dagur býr yfir miklum karakter og móralskt mikilvægi hans í landsliðshópnum er ótvírætt. En er það nóg? Eftir á að hyggja var þetta síður en svo eina tilvikið á HM í Túnis þar mál- um var háttað á þennan veg – það er að Dagur hreinlega stjórnaði leikhléum íslenska liðsins. Til- gangur leikhléa í handbolta er mjög misjafn og fer að sjálfsögðu eftir aðstæðum hverju sinni. Venjan er samt sem áður sú að leikhlé séu notuð til að koma ein- hverjum taktískum skilaboðum áleiðis til leikmanna. Í þeim leik- hléum íslenska liðsins sem nást hafa í sjónvarpsútsendingunum byrjar Viggó oftast á því að stappa stálinu í sína menn á klisjukenndan hátt; segir þeim að gefast ekki upp og halda áfram að berjast. Að því loknu tekur Dagur við og það er hann sem segir mönnum til, hvað sé jákvætt og hvað það er sem betur megi fara. Það sem vegur á móti þessum pælingum er að Dagur er leik- stjórnandi sem og fyrirliði liðsins. Sumir þjálfarar, þó svo að það sé ekki algengt, kjósa að láta þá leik- menn sem þeir treysta best segja samherjum sínum til þar sem þeir viti kannski betur hvað það ná- kvæmlega er sem laga þarf inni á vellinum. Það tel ég af hinu góða og er það mjög ánægjulegt þegar slíkt traust er sjáanlegt milli leik- manna og þjálfara. Sem dæmi má nefna að nánast undantekningar- laust var það Magnus Wislander sem stjórnaði leikhléum sænska landsliðsins á síðustu árum þess tíma sem Bengt Johansson var við stjórnvölinn hjá liðinu. Í dag hef- ur Stefan Lövgren tekið við því hlutverki og er óumdeilanlega leiðtogi sænska hópsins, en hann hefur einmitt verið fyrirliði liðs- ins í nokkur ár. Hálfgerður farþegi Það sem þessir leikmenn hafa hinsvegar fram yfir Dag er að þeir voru og eru algjörir lykil- menn í sænska landsliðinu, öðru- vísi með okkar mann, sem hefur í sannleika sagt verið hálfgerður farþegi með íslenska landsliðinu upp á síðkastið. Skemmst er að minnast greinar í DV fyrir skemmstu sem sýndi að Dagur sat á bekknum 80% leiktímans á stór- mótum síðasta árs. Eftir að hafa yfirgefið Wuppertal í þýsku úr- valsdeildinni árið 2000 hefur Dag- ur leikið í Japan og í Austurríki, þar sem deildarkeppnirnar eru taldar vera í svipuðum gæða- flokki og sú íslenska, ef ekki lak- ari. Í ár hefur Dagur skorað tæp þrjú mörk að meðaltali í leik fyrir Bregenz. Þegar Viggó tók við liðinu á síðasta ári lýsti hann strax yfir miklu trausti á Dag, sagðist ætla honum lykilhlutverk í liðinu og að hann myndi spila í sinni kjörstöðu – leikstjórnandanum. Það virðist hafa skilað einhverjum árangri. Dagur spilaði mun meira en áður á World Cup í Svíþjóð sl. nóvem- ber og stóð sig ágætlega þótt ekki sé hægt að segja að hann hafi spil- að sérlega vel. Og ef rýnt er í töl- fræði Dags úr leikjunum sem skiptu máli á HM í Túnis er fátt sem gleður augað. Í fyrsta leikn- um gegn Tékkum átti Dagur skelfilegan leik, skoraði eitt mark úr fimm skottilraunum og átti tvær stoðsendingar á 35 mínútum. Það var ekki fyrr en Arnór Atla- son leysti hann af sem leikur Ís- lands breyttist til batnaðar. Dagur var engu að síður í byrjunarliðinu í næsta leik gegn Slóvenum. Þar stóð hann sig betur og steig meðal annars upp í tvígang á krítískum augnablikum, rétt eins og í leikn- um gegn Rússum á föstudag. Sumir höfðu á orði að þarna hefð- um við fengið að sjá Dag í réttu ljósi. Staðreyndin er hinsvegar sú að í leiknum gegn Slóvenum skor- aði Dagur 3 mörk í 6 tilraunum og gaf tvær stoðsendingar á þeim 40 mínútum sem hann spilaði. Gegn Rússum skoraði Dagur 2 mörk úr 5 skottilraunum á þeim 19 mínút- um sem hann spilaði. Þá átti hann ekki eina einustu stoðsendingu. Það þarf meira til frá aðalleik- stjórnanda landsliðs sem ætlar sér að vera á meðal þeirra sex efstu í alþjóðlegum handknattleik í dag. Mun meira. Hinn eini sanni aðstoðarmaður Tilgangur þessa pistils er hvorki að rægja Dag Sig- urðsson sem leikmann, né þá ákvörðun Viggós um að velja hann í hópinn fyrir HM. Það er skylda landsliðsþjálfara að velja besta hóp sem völ er á hverju sinni og hef ég enga trú á öðru en að Viggó geri það. Hinsveg- ar er hægt að finna rök með því að Dagur gegni veigameira hlutverki innan hópsins en aðrir leikmenn; rök sem lúta að öðru en getu hans sem leikmanns. Viggó tók sér sinn tíma í að finna aðstoðar- mann eftir að hann var ráðinn landsliðsþjálfari og á endanum bað hann Bergsvein Bergsveins- son, fyrrverandi landsliðsmark- vörð og mann með tiltölulega litla reynslu af þjálfun, um að aðstoða sig. Það var ekkert launungarmál að stærsta hlutverk Bergsveins væri að sjá um markmannsþjálf- un liðsins. Og af hverju skyldi Viggó ekki hafa valið sér meiri „alhliða“ aðstoðarmann? Kannski vegna þess að hann á einn slíkan fyrir, og það sem meira er – hann er inni á vellinum. Sá maður er Dagur Sigurðsson. vignir@frettabladid.is Hver er dagsskipunin? Hvert er hlutverk Dags Sigurðssonar í íslenska landsliðinu í handbolta? Er hann frekar þjálfari en leik- maður? Vignir Guðjónsson íþróttafréttamaður veltir fyrir sér hlutverki Dags í landsliði Viggós. ■ ■ LEIKIR  19.15 Keflavík og ÍR mætast í Keflavík í 1. deild kvenna í körfuknattleik.  19.30 ÍS og Grindavík mætast í Kennaraháskólanum í 1. deild kvenna í körfuknattleik. ■ ■ SJÓNVARP  16.40 Helgarsportið á Rúv.  17.30 Þrumuskot – ensku mörkin á Skjá 1.  18.30 NBA-boltinn á Sýn. Útsending frá leik Miami Heat og Houston Rockets í NBA-deildinni í körfubolta.  20.30 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn.  22.00 Olíssport á Sýn.  23.15 Boltinn með Guðna Bergs (e) á Sýn. Intersportdeildin GRINDAVÍK–FJÖLNIR 98–102 Stig Grindavíkur: Darrel Lewis 25, Terrel Taylor 19, Páll Axel Vilbergsson 17, Morten Szmiedowicz 16. Stig Fjölnis: Jeb Ivey 35, Nemanja Sovic 25, Darrell Flake 23. HAMAR/SELFOSS–NJARÐVÍK 78–79 Stig Hamars/Selfoss: Damon Bailey 23, Chris Woods 16 (11 frák.), Sævar Pálsson 10. Stig Njarðvíkur: Brenton Birmingham 27, Friðrik Stefánsson 16, Páll Kristinsson 15, Matt Sayman 10. KFÍ–HAUKAR 95–101 Stig KFÍ: Joshua Helm 35, Pétur Már Sigurðsson 32, Baldur Ingi Jónasson 12, Sigurður G. Þorsteinsson 10. Stig Hauka: Michael Manciel 27, Sævar Ingi Haraldsson 23, Kristinn Jónasson 16, Mirko Virijevic 14. KR–TINDASTÓLL 114–82 Stig KR: Cameron Echols 28 (27 fráköst), Aaron Harper 27, Jón Ólafur Jónsson 12, Brynjar Þór Björnsson 12, Steinar Kaldal 11, Níels Dungal 9, Lárus Jónsson 8 (15 stoðs.), Ólafur Már Ægisson 3, Ellert Arnarson 2, Sindri Sigurðsson 2. Stig Tindastóls: Brian Thompson 31 (12 frák.), Bethuel Fletcher 16 (10 frák., 9 stoðs.), Kristinn Friðriksson 10, Björn Einarsson 9, Ísak Einarsson 8, Axel Kárason 6, Andri Þ. Árnason 2. ÍR–KEFLAVÍK 93–101 Stig ÍR: Grant Davis 22 (14 frák.), Theo Dixon 19, Ólafur Sigurðsson 18 (8 stoðs.), Eiríkur Önundarson 16, Ólafur Þórisson 11. Stig Keflavíkur: Gunnar Einarsson 26, Magnús Gunnarsson 19, Anthony Glover 19 (10 frák.), Nick Bradford 13, SNÆFELL–SKALLAGRÍMUR 77–73 Stig Snæfells: Calvin Clemmons 22 (10 frák.), Hlynur Bæringsson 7, Michael Aimes 12, Helgi Reynir Guðmundsson 10 (8 frák.), Magni Hafsteinsson 8, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 5, Sigurður Þorvaldsson 5. Stig Skallagríms: Clifton Cook 24, Jovan Zdravesvki 17, George Byrd 12 (19 frák.), Ragnar Steinsson 7, Pálmi Sævarsson 6. STAÐAN KEFLAVÍK 15 12 3 1364–1186 24 SNÆFELL 16 12 4 1403–1296 24 NJARÐVÍK 16 11 5 1465–1284 22 FJÖLNIR 16 11 5 1510–1445 22 ÍR 16 9 7 1462–1429 18 SKALLAGR. 16 9 7 1348–1318 18 KR 16 8 8 1436–1388 16 GRINDAVÍK 16 7 9 1456–1484 14 HAM./SELF. 16 6 10 1431–1488 12 HAUKAR 15 5 10 1277–1301 10 TINDAST. 16 4 12 1327–1511 8 KFÍ 16 1 15 1332–1685 2 1. deild kvenna í körfu HAUKAR–NJARÐVÍK 57–59 Stig Hauka: Ebony Shaw 22 (10 frák.), Helena Sverrisdóttir 19 (9 frák.), Pálína Guðlaugsdóttir 11, Ösp Jóhannsdóttir 3, Hanna Hálfdánardóttir 2. Stig Njarðvíkur: Jaime Woudstra 26 (11 frák.), Vera Janjic 22 (10 frák.), Sigurlaug Guðmunds- dóttir 5, Ingibjörg Vilbergsdóttir 4. STAÐAN KEFLAVÍK 13 12 1 1073–776 24 GRINDAVÍK 14 9 5 858–832 18 ÍS 13 8 5 831–773 16 HAUKAR 15 7 8 984–1035 14 NJARÐVÍK 15 5 10 893–966 10 KR 14 1 13 763–1016 2 VIGNIR GUÐJÓNSSON ÍÞRÓTTAFRÉTTAMAÐUR ÍÞRÓTTASKÝRING HVERT ER HLUTVERK DAGS SIGURÐSSONAR HJÁ ÍSLENSKA LANDSLIÐINU Í HANDKNATTLEIK? Í þeim leikhléum ís- lenska liðsins sem nást hafa í sjónvarpsútsendingunum byrjar Viggó oftast á því að stappa stálinu í sína menn á klisjukenndan hátt; segir þeim að gefast ekki upp og halda áfram að berjast. Að því loknu tekur Dagur við og það er hann sem segir mönnum til, hvað sé já- kvætt og hvað það er sem betur megi fara.“ ,, HVERT ER HLUTVERK DAGS SIGURÐSSONAR? Dagur Sigurðsson sést hér reyna að komast framhjá einum varnarmanna Slóveníu í leik liðanna í HM í Túnis á þriðjudaginn. Spurningin sem menn spyrja sig að núna er að hversu miklu leyti Dagur Sigurðsson stýrir íslenska landsliðinu í handknattleik. Fréttablaðið/Uros Hrocvar VIGGÓ SIG- URÐSSON Treystir mikið á Dag Sigurðs- son og lét hann stýra flestum leik- hléum í HM í handbolta í Túnis.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.