Fréttablaðið - 31.01.2005, Síða 71
30 31. janúar 2005 MÁNUDAGUR
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
Flugfreyjur á flótta
Flýja glæpa-
hverfi í
Baltimore
– hefur þú séð DV í dag?
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 68
1
3
2
Dettifoss
8. febrúar
Frelsunar gyðinga úr útrým-
ingarbúðunum í Auschwitz.
Sjónvarpskonan geðþekka, Eva
María Jónsdóttir, snýr aftur á
skjáinn í kvöld, eftir tveggja ára
fjarveru, með þáttinn Einu sinni
var sem sýndur verður á Stöð 2.
„Við fjöllum um mál sem
gerðust á síðustu öld. Það geta
verið stór fréttamál eða stór mál í
lífi einstaklinga sem vöktu mikla
athygli á sínum tíma,“ segir Eva
María. „Við verðum með mörg
mótíf, bæði sorgleg og gleðileg.“
Fyrsti þátturinn verður um
Þverárundrin svokölluðu. „Þetta
var draugagangur sem var umtal-
aður á þessum árstíma árið 1928.
Málið rataði upp á æðstu dómstig
landsins. Laxness gerði þetta mál
kannski hvað frægast þegar hann
skrifaði senur sem voru ágætlega
nákvæmar lýsingar á því sem gerð-
ist. Hann gerði sér skáldamál úr
þessu máli,“ segir sjónvarpskonan.
Eva María segir þættina
byggða á viðtölum við fólk sem
hefur upplifað eitthvað eða man
eitthvað af eigin raun, sem það
deilir síðan með áhorfendum.
„Þetta er miklu meira viðtalsþátt-
ur en heimildarmynd,“ segir Eva
María sem styðst samt við ýmis
rit og dagblöð sem og gamalt
myndefni. „Þetta blandast allt
saman en munnlegar heimildir
verða heldur meira í hávegum
hafðar en í hefðbundnu
akademísku starfi.“
Eva María hefur verið ein ást-
sælasta sjónvarpskona landsins.
Hún hætti í Kastljósinu fyrir um
tveimur árum síðan og hefur nú
ráðið sig til starfa hjá Stöð 2. Eva
María segist samt lítið þekkja til
fyrirtækisins. „Það er fyrirtækið
Storm, sem er staðsett niðr í bæ,
sem framleiðir þættina og ég hef
ekki enn komið upp á Stöð 2. Það
er kannski svolítið hallærislegt,“
segir Eva María hlæjandi. „En ég
hef hitt yfirmenn mína og mér líst
vel á hvað þeir eru metnaðarfullir
í að gera íslenska dagskrá miðað
við það að þetta er áskriftarsjón-
varp. Þeir gætu reynt að keyra
stöðina á ömurleikaþáttum frá út-
löndum en þeir vita að áhorfendur
vilja íslenskt efni.“
Fyrsti þátturinn af Einu sinni
var hefst í kvöld klukkan 21.30.
Eva María segist ekki vita hversu
margir þættirnir verða en býst þó
við að fyrsta þáttaröð verði fram
á sumar. „Svo sjáum við til með
framhaldið. Kannski verð ég þá
búin að taka allt það sem finnan-
legt er en kannski er þetta óþrjót-
andi auðlind. Það verður bara að
koma í ljós.“ ■
EVA MARÍA JÓNSDÓTTIR: SNÝR AFTUR Á SKJÁINN
Áhorfendur vilja íslenskt efni
Óskarsverðlaunin eru jafnan umdeild og sýnist sitt
hverjum um það hve vel Akademíunni í Hollywood
tekst að hitta í mark í vali sínu hverju sinni. Oft hefur
fjarvera sumra helstu meistara kvikmyndasögunnar á
sviðinu verið meira áberandi en þeir sem fengu
styttu í hendurnar, en þeim mun ánægjulegra er
þegar Akademían sér að sér og bætir fyrir gamlar
vanrækslusyndir.
„Hin mistæka Akademía hitti vel í mark þegar hún
bætti ráð sitt og veitti heiðursviðurkenningar þremur
leikstjórum sem aldrei höfðu fengið Óskar,“ segir
Ólafur H. Torfason, sem hefur um langa hríð fylgst
grannt með Óskarsveitingum og þeim umræðum
sem fylgt hafa þeim.
Hann á þar við meistarana Alfred Hitchcock, Orson
Welles og Charlie Chaplin sem af einhverjum
ástæðum höfðu alltaf orðið útundan þrátt fyrir að
hafa búið til mörg af stórbrotnustu meistaraverkum
kvikmyndasögunnar.
Árið 1967 veitti Akademían Alfred Hitchcock viður-
kenningu sína. „Þetta var eina viðurkenningin frá
Akademíunni til snillingsins og var hún reyndar fyrir
framleiðslu en ekki leikstjórn.“
Árið 1970 var röðin komin að Orson Welles, sem
fékk engin verðlaun árið 1941 þegar hann gerði hina
frægu mynd sína Citizen Kane, og árið eftir fékk
Charlie Chaplin loks viðurkenningu Akademíunnar
fyrir ómetanlegt ævistarf sitt í þágu kvikmyndanna.
Hann hafði þá verið í útlegð frá Bandaríkjunum í tvo
áratugi.
„Einnig telst til
hápunkta þegar Aka-
demían áttaði sig
loks eftir 20 ár á
tveimur guttum:
Steven Spielberg
þegar hann fékk
fyrsta Óskarinn árið
1993, fyrir Schindler’s
List, tæpum 20 árum
eftir að hann byrjaði
að sýna meistara-
verkin; og svo Al
Pacino þegar hann
fékk fyrst Óskar árið
1992 fyrir leik sinn í
Scent of a Woman,
um 20 árum eftir að
hann byrjaði ferilinn
fína.“
Ólafur H. Torfason segir Akademíunni hafa tekist best upp þegar hún veitti helstu snillingum kvikmyndasögunnar viðurkenningu sína
ÓSKARSVERÐLAUNIN
Síðbúnu stytturnar kærkomnastar
… fær handboltalandsliðið fyrir
að ljúka þátttöku sinni á heims-
meistaramótinu í handbolta með
stæl og valta yfir Alsír með 34
mörkum gegn 25.
HRÓSIÐ
Bláa lónið varð fyrir valinu sem
besta náttúrulega heilsulind í
heimi af lesendum breska ferða-
tímaritsins Condé Nast Traveller.
Þetta er í annað skipti sem verð-
launin eru veitt en í fyrra varð
Bláa lónið í áttunda sæti. Í öðru
sæti varð hið virta og fræga spa-
hótel, Perme Di Saturnia Spa
Resort, í Toscana héraði á Ítalíu.
„Þetta er í annað skipti sem
blaðið biður lesendur sína að
velja áhugaverðustu heilsulind í
heimi og við lentum í fyrsta sæti
meðal þeirra heilsulinda sem
byggja á heitu vatni. Við erum
þarna í góðum félagsskap og efst
í okkar flokki. Þetta sýnir hvað
útlendingum þykir Ísland vera
áhugaverður staður að heim-
sækja,“ sagði Anna G. Sverris-
dóttir aðstoðarframkvæmda-
stjóri Bláa lónsins.
Bláa lónið er sífellt að bæta við
starfsemi sína og í vor verður
opnuð ný húðlækningastöð. „Við
erum líka að byggja yfir vöru-
framleiðsluna okkar og sífellt að
bæta við nýjum vörum. Það besta
við lónið er hin einstaka samsetn-
ing af blágræna þörungnum,
kísilnum og saltinu í vatninu sem
er svo gott fyrir líkama og sál.“
Það er greinilegt að Bláa lónið
hefur unnið sér sess sem einstök
heilsulind á heimsmælikvarða.
Anna segir þó að lesendurnir sem
settu Bláa lónið í fyrsta sæti hafi
ekki endilega sjálfir komið þang-
að. „Nei það þarf ekki að vera. Það
er frekar þannig að þetta er
staður sem fólki langar til að
heimsækja og vonandi munu sem
flestir láta verða af því.“ ■
Besta náttúrulega heilsulind í heimi
BLÁA LÓNIÐ Vermdi fyrsta sæti í kosningu ferðatímaritsins Condé Nast Traveller um
bestu náttúrulegu heilsulind í heimi.
Lárétt: 1 þekk,5inn,6sa,7nn,8tau,9
rump,10má,12gum,13eld,15rá,16
naum,18góði.
Lóðrétt: 1þingmenn,2enn,3kn,4kaup-
máli,6samur, 8tug,11ála,14dug,17mó.
Lárétt:
1 þæg, 5 að utan, 6 átt, 7 ónefndur, 8
fataefni, 9 rass, 10 leyfist, 12 mont, 13
loga, 15 slá, 16 tæp, 18 elskulegi.
Lóðrétt:
1 starfa við Austurvöll, 2 ennþá, 3 skáld,
4 samningur, 6 eins, 8 tíu, 11 spíra, 14
kraft, 17 eldsneyti.
Lausn:
CHARLIE CHAPLIN Einn af
hápunktunum í sögu Óskarsins
var þegar Chaplin sneri aftur til
Hollywood árið 1971 til þess að
taka við heiðursverðlaunum
Akademíunnar.
UNNIÐ AÐ ÞÆTTINUM Eva María Jónsdóttir og samstarfsfólk hennar á Storm hefur síðustu daga unnið hörðum höndum við að gera þættina klára.