Fréttablaðið - 11.02.2005, Page 2
2 11. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR
Tveir Palestínumenn fallnir og tvær árásir gerðar á landnemabyggðir:
Vopnahlé ótryggt vegna átaka
MIÐ-AUSTURLÖND, AP Vopnahléið
sem Ísraelar og Palestínumenn
lýstu yfir á þriðjudag er ótryggt
eftir að tveir Palestínumenn
féllu fyrir hendi ísraelskra her-
manna og palestínskir víga-
menn skutu úr sprengjuvörpum
á byggð ísraelskra landtöku-
manna á Gaza.
Mahmoud Abbas, forseti
palestínsku heimastjórnarinnar,
fyrirskipaði öryggissveitum í
gær að koma í veg fyrir frekari
árásir á Ísraela. Þannig vildi
hann reyna að viðhalda vopna-
hléinu. Ísraelar hafa sett það
skilyrði fyrir frekari framþróun
í friðarátt að Palestínumenn
ráðist ekki á Ísraela.
Ariel Sharon, forsætisráð-
herra Ísraels, lýsti því yfir í við-
tali við ísraelska blaðið Haaretz
að hann væri reiðubúinn að
sleppa lausum Palestínumönn-
um sem gert hefðu árásir á Ísra-
ela. Þetta er stefnubreyting af
hans hálfu því áður hafði hann
sagt að slíkt kæmi ekki til
greina. Með þessu kemur hann
til móts við kröfur Palestínu-
manna.
Hamas-liðar skutu 56
sprengjum og eldflaugum að
tveimur landnemabyggðum
Ísraela á Gaza án þess að nokk-
ur særðist og sögðu það hefnd-
arráðstöfun fyrir tvo Palestínu-
menn sem Ísraelar felldu.
Annars vegar var Hamas-liði
skotinn þar sem hann var með
sprengiefni og hins vegar
óbreyttur borgari þegar hann ók
í gegnum vegatálma Ísraela. ■
FJÖLMIÐLAR Ný útvarpsstöð, Tal-
stöðin, hefur útsendingar í dag.
Útvarpsstöðin sendir út á tíðin-
inni FM 90,9.
Illugi Jökulsson útvarpsstjóri
segir útvarpsstöðina fyrst og
fremst snúast um talað mál. Þó
verði lag og lag í góðu lagi.
„Við ætlum að reyna að höfða
til allra sem hafa áhuga á að
hlusta á skikkanlega djúpa um-
ræðu um lífið í landinu, samfélag-
ið sem við lifum í, umhverfið og
umheiminn,“ segir Illugi.
Útsending hefst í morgunsárið,
fimm mínútur yfir sjö. Fréttir
verða stundarfjórðungslega frá
þeim tíma til níu á morgnana.
Fastir dagskrárgerðarmenn
stöðvarinnar eru sjö en fjöldi
manna verður með þætti á stöð-
inni. Sjálfur ætlar Illugi að
stjórna þættinum Á kassanum
mínútu fyrir sex síðdegis: „Þar
verður farið í gegnum það sem
hefur verið að gerast á stöðinni
hjá okkur.“
Illugi stjórnar einnig nær tutt-
ugu ára gömlum þætti sínum,
Frjálsar hendur, sem áður var á
dagskrá RÚV á sunnudagskvöld-
um.
Talstöðin er í eigu 365 – ljós-
vakamiðla. - gag
Trúverðugleiki
dreginn í efa
Trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar var dreginn í efa á Alþingi í gær. Stjórnarandstað-
an hélt því fram að forsætisráðherra hefði staðfest í viðtali á Stöð 2 að þrýstingur frá
Bandaríkjamönnum hefði leitt til ákvörðunarinnar um stuðning við innrásina í Írak.
ALÞINGI „Við erum að tala um trú-
verðugleika ríkisstjórnarinnar og
hvort hæstvirtur forsætisráð-
herra Íslands fari með rétt mál,“
sagði Ögmundur Jónasson, þing-
maður Vinstri grænna, í umræðu
um Íraksmálið á Alþingi í gær.
Tilefnið var viðtal við Halldór Ás-
grímsson forsætisráðherra sem
sýnt var á Stöð 2 kvöldið áður, er
rætt var um aðdraganda ákvörð-
unar forsætisráðherra og utanrík-
isráðherra um stuðning Íslands
við innrásina í Írak í mars 2003.
Össur Skarphéðinsson, formað-
ur Samfylkingarinnar, benti á að í
viðtalinu hefði Halldór staðfest að
það hefði verið þrýstingur Banda-
ríkjamanna sem leiddi til þessarar
ákvörðunar. „Það kom líka fram að
varnarhagsmunir hefðu blandast
inn í. Forsætisráðherra afsakaði
þetta með því að segja að ef beiðni
frá 60 ára vinaþjóð hefði verið
hafnað hefði orðið veruleg stefnu-
breyting í öryggis- og varnarmál-
um okkar. Það er rangt. Þarna var
um ólögmætt innrásarstríð að
ræða eins og Kofi Annan, ritari
Sameinuðu þjóðanna, hefur manna
best rökstutt. Það sem felur í sér
stefnubreytingu er það að Ísland
skuli styðja einhliða innrásarstríð,
sem er ólögmætt, og það er líka
stefnubreyting að ákvörðunin skuli
hafa verið tekin án lögskipaðs sam-
ráðs við utanríkismálanefnd,“
sagði Össur.
Halldór sagði að Össur færi
með rangt mál. „Ég sagði í þessu
viðtali að það væru engin bein
tengsl. Ef það kemur honum á
óvart að það sé náið samstarf í
varnarmálum milli Bandaríkj-
anna og Íslands þá er ég furðu
lostinn yfir því,“ sagði Halldór.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, benti á að
ekki væri stafkrókur bókaður um
málið í Stjórnarráði Íslands. „Það
eru engin skrifleg gögn til. Það
var aldrei tekin nein formleg
ákvörðun á fundi,“ sagði hann.
Össur spurði að því hvers
vegna ákvörðunin hefði ekki verið
rædd í ríkisstjórn. „Getur skýr-
ingin verið sú að innan ríkis-
stjórnarinnar hafi verið menn
sem hafi verið andstæðir þessu,
eins og hæstvirtur landbúnaðar-
ráðherra Guðni Ágústsson? Hver
er skýringin á því að það var ekki
lagt í að ræða þetta í þingflokkn-
um? Getur hún verið sú að það
hafi verið fimm þingmenn Fram-
sóknarflokksins sem ekki hafi
verið sammála þessu? Er skýring-
in sú að hæstvirt ríkisstjórn hafði
ekki þingmeirihluta fyrir þessu?“
sagði Össur.
sda@frettabladid.is
Donald Rumsfeld:
Sætir ekki
rannsókn
ÞÝSKALAND, AP Þýskir saksóknarar
hyggjast ekki hefja rannsókn á því
hvort Donald Rumsfeld, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, sé
ábyrgur vegna fangapyntinga í Abu
Ghraib-fangelsinu í Írak.
Bandarískir lögmenn kærðu
Rumsfeld í Þýskalandi þar sem þeir
töldu löggjöfina gefa kost á að láta
hann svara til saka. Samkvæmt
þýskum lögum er hægt að ákæra
menn fyrir stríðsglæpi og mann-
réttindabrot óháð því hvers lenskir
þeir eru og hvar brotin eru framin.
Þýski ríkissaksóknarinn segir
hins vegar réttast að málið verði
tekið fyrir í Bandaríkjunum eða
fyrir alþjóðlegum dómstól. ■
PÁFA ÓSKAÐ BATA
Fólk tók sér stöðu fyrir framan sjúkrastofu
páfa í fyrrinótt og óskaði honum góðs bata.
Jóhannes Páll II:
Páfi heim af
spítala
ÍTALÍA, AP Læknar á Gemelli-sjúkra-
húsinu í Róm útskrifuðu Jóhannes
Pál II páfa í gær af sjúkrahúsinu.
Þar hafði hann dvalið í tíu daga eftir
að hann var fluttur á sjúkrahús
vegna þess að hann var með flensu
og átti erfitt með andardrátt.
Joaquin Navarro-Valls, talsmað-
ur páfa, sagði að páfi hefði náð sér
af öndunarerfiðleikum og að heilsu
hans almennt hefði farið fram.
Hann sagði páfa hafa gengist undir
margvíslegar rannsóknir og að þær
hefðu leitt í ljós að hann þjáðist ekki
af neinum nýjum sjúkdómum. ■
SPURNING DAGSINS
Hjörleifur, á ég ekki bara að
lána þér 1.500 kall og málið er
dautt?
Það er gott að eiga góða að. Ég þakka
rosalega gott boð en réttlætiskennd mín
leyfir mér ekki að taka lánið. Því miður.
Hjörleifur Hallgríms, ritstjóri Vikudags á Akureyri,
hefur stefnt Bifreiðasjóði Akureyrar vegna 1.500
króna sektar. Engir stöðumælar eða merki sem
bönnuðu bifreiðastöðu hafi verið við kantstein
gegnt Landsbanka Íslands á Akureyri.
29.956,-*
Subaru Legacy Wagon sjálfskiptur 2.590.000
2.790.000Ver› á›ur
Ver› nú
200.000
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON FORSÆTISRÁÐHERRA Á ALÞINGI Í GÆR
Hart var deilt á forsætisráðherra á Alþingi í gær í kjölfar viðtals við hann sem sýnt var á
Stöð 2 kvöldið áður. Stjórnarandstaðan hélt því fram að þar hefði hann sagt að hagsmun-
ir Íslendinga vegna varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli hefðu spilað inn í ákvörðunina um
stuðning við Bandaríkin vegna innrásarinnar í Írak.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
STAÐIÐ YFIR ELDFLAUG
Palestínumenn skutu 20 heima-
smíðuðum eldflaugum að land-
nemabyggðinni í Neva Dekalim,
þessi sprakk ekki.
Frjósöm móðir:
Tvö börn á
59 dögum
RÚMENÍA Rúmensk kona eignaðist
syni með tveggja mánaða millibili.
Konan er með tvö leg og þó ein af
hverjum 50 þúsund konum sé talin
vera með tvö leg telja læknar þetta
vera í fyrsta skipti sem kona verður
ófrísk að tveimur börnum, sitt í
hvoru leginu, samtímis.
Að sögn breska blaðsins The
Independent átti Maria Tescu son-
inn Valentin fyrir tveimur mánuð-
um og soninn Catalin 59 dögum síð-
ar. Barneignirnar eru ekki síst
merkilegar fyrir þær sakir að lækn-
ar sögðu henni fyrir átta árum að
hún gæti ekki eignast börn. ■
Loðnan:
Komin að
Ingólfshöfða
LOÐNUVEIÐAR Loðnan hefur síðustu
daga verið á hraðri vesturleið og er
nú komin að Ingólfshöfða. Veiðarn-
ar hafa gengið fremur erfiðlega síð-
ustu daga vegna þess hversu dreifð
loðnan hefur verið en sjómenn
binda vonir við að hún fari að þétta
sig. Flest loðnuskipin eru komin
með grunnar loðnunætur enda loðn-
an að ganga á grunnslóð. - kk
Næsti Harry Potter:
Selst mikið í
forsölu
BRETLAND, AP Þrátt fyrir að enn séu
fimm mánuðir þar til sjötta bókin
um Harry Potter kemur út hafa
meira en hundrað þúsund manns
pantað eintak af henni hjá Bret-
landsdeild netbókaverslunarinnar
Amazon.
Tilkynnt var um útgáfudag bók-
arinnar 22. desember síðastliðinn
og fór hún þegar í efsta sæti sölu-
listans. Hún er gefin út með einni
kápu fyrir börn og annarri fyrir
fullorðna, en barnabókin hefur
haldið fyrsta sætinu frá fyrsta degi
og fullorðinsútgáfan ekki farið neð-
ar en í fimmta sæti. Síðasta bók
seldist í 420 þúsund eintökum áður
en hún kom út. ■
STARFSMENN TALSTÖÐVARINNAR
Útvarpsstjóri segir nokkurra vikna undir-
búning hugsanlega ekki þykja mikið er-
lendis en þau séu tilbúin í slaginn. Hér má
sjá nokkra dagskrárgerðarmenn stöðvar-
innar: Helga Vala Helgadóttir, Ragnheiður
Gyða Jónsdóttir, Oddur Ástráðsson og Hall-
grímur Thorsteinsson.
Talstöðin:
Ný útvarpsstöð í loftið
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
. Ó
L.