Fréttablaðið - 11.02.2005, Side 25

Fréttablaðið - 11.02.2005, Side 25
FÖSTUDAGUR 11. janúar 2005 Erum að taka upp nýja sendingu Efni í spari- og hvunndagsfatnað ÚTSALA ER HAFIN Í VERSLUNINNI SEYMU Á LAUGAVEGI 71. Þrjátíu til fimmtíu prósenta afsláttur er nú á efnum í versluninni Seymu. „Við höfum vönduð og góð efni í allan fatn- að, allt frá hversdagsfatnaði upp í sam- kvæmisklæðnað,“ segir verslunar- stjórinn og nefnir meðal annars jers- ey-efni, kjólaefni af öllum sortum, herrafataefni og ullarefni. Einnig segir hún 30% af- slátt vera af fínum silkiefnum þessa dagana þótt þau séu sum hver nýkomin. Eftirspurn eftir efnum segir hún mikla því fólk þori að vera klætt eins og því sýnist og það hafi gaman af að skapa sín föt sjálft, eða að minnsta kosti láta sauma þau eftir sínu höfði. Galakjólar á afslætti FLASH Á LAUGAVEGI ER ENN MEÐ ÚTSÖLU Á ÝMSUM FATNAÐI. „Við erum með gala- kjóla á 20% afslætti og þeir lækka al- veg um 5.000 kall, eða úr 19.900 í 14.900,“ segir af- greiðslukonan í Flash á Lauga- vegi 54 aðspurð um helstu tilboð hjá henni. Auk þessara fínu árs- hátíðakjóla kveðst hún selja fína toppa á hálf- virði enn þá. „Svo eru tvær slár með fatnaði, ann- ars vegar á 1.000 og hins vegar 1.990 og á þeim eru buxur, toppar, stuttir kjólar og ýmislegt fleira,“ segir hún. Ástarhelgi á Örkinni MATSEÐILL Í ANDA MYNDARINNAR KRYDDLEGIN HJÖRTU. Í tilefni af Valentínusardeginum á mánudag býður Hótel Örk upp á róm- antískt kvöld með þriggja rétta máltíð og gistingu í kvöld, föstu- dagskvöld. á tilboðsverði, 4.900 fyrir manninn og innifalinn er morgunverður af hlaðborði. Lofað er lifandi tónlist og stuði fram eftir nóttu. Laugardagskvöldið var í boði líka en er upppantað. Matreiðslumennirnir Tómas Þóroddsson og Jakob V. Arnar- son hafa sett saman matseðil fyrir elskendur í anda myndarinnar Krydd- legin hjörtu, þannig að nú er tækifærið að gera vel við elskuna sína. Pantanir eru í síma 483 4700. Vertu þú sjálf! Vertu bella donna Hlíðasmára 11, Kópavogi sími 517 6460 www.belladonna.is Opið mán.-föst. 11-18 • laug. 12-16 Ný sending af nærfatnaði fráLisca

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.