Fréttablaðið - 11.02.2005, Síða 38
ANDLÁT
Bolli Ágústsson lést á hjúkrunarheimil-
inu Ási, Hveragerði, mánudaginn 24.
janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Signý Sveinsdóttir, Laugarásvegi 7,
Reykjavík, lést laugardaginn 29. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Jóhanna Þorgilsdóttir, Sóltúni 2, lést
sunnudaginn 30. janúar. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey.
Guðmundur Ármann Böðvarsson, vél-
stjóri, Vallargötu 14, Vestmannaeyjum,
lést laugardaginn 5. febrúar.
Guðrún Sigríður Jónsdóttir, hjúkrunar-
heimilinu Eir, áður Hlaðhömrum, Mos-
fellsbæ, lést sunnudaginn 6. febrúar.
Kristbjörg Guðmundsdóttir, Búlandi 8,
Djúpavogi, lést sunnudaginn 6. febrúar.
Magnea Dagmar Tómasdóttir, Engi-
hjalla 19, Kópavogi, lést sunnudaginn 6.
febrúar.
Ólafía Gyða Oddsdóttir, Stóragerði 21,
Reykjavík, lést sunnudaginn 6. febrúar.
Páll Pálsson, frá Smiðsgerði, Gilstúni
16, Sauðárkróki, lést sunnudaginn 6.
febrúar.
Baldur Sigurðsson, frá Lundarbrekku,
Hrafnagilsstræti 24, Akureyri, lést mánu-
daginn 7. febrúar.
Jón Guðjónsson, frá Vestri-Dysjum,
Garðabæ, lést á dvalarheimilinu Fells-
enda, mánudaginn 7. febrúar.
Rósey S. Helgadóttir, Dalbraut 14,
Reykjavík, lést mánudaginn 7. febrúar.
Auður Kristinsdóttir, Brautarholti,
Kjalarnesi, lést þriðjudaginn 8. febrúar.
Álfhildur Kristjánsdóttir, Hrafnistu,
Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 8. febrúar.
Helga Ruth Magnúsdóttir Wynveen,
Baldwin, Wisconsin, Bandaríkjunum, lést
þriðjudaginn 8. febrúar. Útförin fer fram
í Baldwin í dag.
Ingibjörg Hjörleifsdóttir, Holtsgötu 10,
Njarðvík, lést þriðjudaginn 8. febrúar.
Sigurgeir Hannesson, bóndi, Stekkjar-
dal, lést þriðjudaginn 8. febrúar.
Sigurlína Dagný Sigurjónsdóttir (Lóa),
Gránufélagsgötu 41, Akureyri, lést
þriðjudaginn 8. febrúar.
Arnór Þorkelsson, frá Arnórsstöðum, Skipa-
sundi 87, lést miðvikudaginn 9. febrúar.
JARÐARFARIR
11.00 Svanborg Tryggvadóttir, Aðal-
stræti 8, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju.
13.00 Gíslína Lára Kristjánsdóttir, Sól-
vangi, Hafnarfirði, verður jarð-
sungin frá Fossvogskapellu.
13.00 Halldór Marías Ólafsson, múr-
arameistari, Brekkugötu 12,
Hafnarfirði, verður jarðsunginn
frá Seljakirkju.
13.00 Margrét Ingimundardóttir ,
Hrafnistu, Hafnarfirði, áður
Skeiðarvogi 131, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaða-
kirkju.
13.00 María Brynjólfsdóttir, tónskáld,
dvalarheimilinu Droplaugarstöð-
um, verður jarðsungin frá Lága-
fellskirkju í Mosfellsbæ.
13.00 Ólafur J. Ólafsson, löggiltur
endurskoðandi, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju.
13.00 Valgerður Þórðardóttir, Funa-
lind 13, Kópavogi, verður jarð-
sungin frá Kópavogskirkju.
13.00 Vilhjálmur S. Heiðdal, Drop-
laugarstöðum, verður jarðsung-
inn frá Neskirkju.
14.00 Birgir Viktor Hannesson, Bjark-
argrund 24, Akranesi, verður
jarðsunginn frá Akraneskirkju.
14.00 Júlíana Jónsdóttir (Lúlla í
bókabúðinni), Garðvangi, Garði,
áður Aðalgötu 5, Keflavík, verð-
ur jarðsungin frá Keflavíkur-
kirkju.
14.00 Þóra Tómasdóttir, frá Reykja-
bakka, Hrunamannahreppi,
verður jarðsungin frá Hruna-
kirkju.
15.00 Hörður Runólfsson, Hrafnistu,
Hafnarfirði, áður Hraunbæ 103,
verður jarðsunginn frá Grafar-
vogskirkju.
15.00 Steinunn Guðmundsdóttir , fv.
prentsmiðjustjóri, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju.
15.00 Una Magnúsdóttir, Heiðarbæ
7, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Árbæjarkirkju.
Í dag er haldinn í fyrsta sinn hér á
landi 112 dagurinn, en hann á sér
hefð í nokkrum löndum Evrópu.
„Þetta er náttúrlega samræmt Evr-
ópskt neyðarnúmer og menn hafa í
nokkur ár haldið upp á þennan dag
og þaðan kemur hugmyndin,“ segir
Garðar H. Guðjónsson verkefnis-
stjóri 112 dagsins. „Við notum tæki-
færið til að benda á þetta víðtæka
net hjálpar- og viðbragðsaðila sem
almenningur getur náð til í gegnum
þetta samræmda númer. Þetta eru
aðilar sem bæði eru tilbúnir að
bregðast við, en sinna einnig marg-
víslegu forvarnarstarfi,“ bætti
hann við og nefndi hluti á borð við
skyndihjálparkennslu, eldvarnir,
slysavarnir, forvarnir lögreglu og
fleira. „Þannig að í þetta fyrsta sinn
sem haldið er upp á daginn verður
þetta á almennum nótum og vakin
athygli á mikilvægi starfseminnar
og fólki kynnt neyðarnúmerið og
hvað á bak við það stendur.“ Garðar
sagðist vonast til að fólki þætti dag-
skráin forvitnileg, en megintil-
gangurinn væri fræðsla, bæði um
þá þjónustu sem fólki stendur til
boða hjá Neyðarlínunni og eins um
hvernig eigi að bera sig að þegar
þjónustan væri notuð. „Síðan er
meiningin að þessi dagur vinni sér
sess og verði árviss viðburður 11.
febrúar héðan í frá.“
Milli klukkan tvö og sex verður
viðamikil dagskrá í Smáralind, ann-
ars vegar í göngugötunni og hins
vegar á bílaplaninu að norðan-
verðu, við Smárabíó. Meðal annars
sýnir þyrla Landhelgisgæslunnar
björgun og viðamikil tækjasýning
verður á búnaði slökkviliðs, lög-
reglu, björgunarsveita og Land-
helgisgæslu. Þá sýna sjúkraflutn-
ingamenn búnað og fram fer sýni-
kennsla í skyndihjálp og margt
fleira, auk þess sem val Rauða
kross Íslands á skyndihjálpar-
manni ársins 2004 verður kynnt
klukkan tvö. Til viðbótar við uppá-
komurnar í Smáralind verða stöðv-
ar lögreglu og slökkviliðs opnar
víða um land. ■
22 11. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR
THOMAS ALVA EDISON (1847-1931)
fæddist þennan dag.
TÍMAMÓT: 112 DAGURINN Í FYRSTA SINN
Björgunarsýning og fleira
„Ég er stoltur af því að hafa
aldrei fundið upp drápstól.“
Edison lýsti upp líf nútímamannsins með því að finna upp og mark-
aðssetja ljósaperuna. Hann var sjálfur skráður fyrir yfir þúsund
einkaleyfum, en uppfinningarnar voru oft betrumbættar útgáfur
eldri einkaleyfa búnar til af starfsmönnum hans. Edison mátti þola
töluverða gagnrýni fyrir að deila ekki heiðrinum af uppfinningunum.
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Kári Jónasson ritstjóri
er 65 ára í dag.
Geir Magnússon, fv.
forstjóri Olíufélagsins,
er 63 ára í dag.
Valur Valsson, fv.
bankastjóri, er 61 árs í
dag.
Bragi Líndal Ólafsson fóðurfræðingur
er sextugur í dag.
Þennan dag árið 1945 lauk Jalta-
ráðstefnunni sem staðið hafði frá
4. september, en mikil leynd
hvíldi yfir fundinum og fundar-
staðnum. Fimmtudaginn 8. sept-
ember 1945 greindi Morgunblað-
ið frá fundinum í aðalfrétt á for-
síðu með fyrirsögninni: „Hinir
„þrír stóru“ eru á fundi einhvers
staðar við Svartahaf.“ Undir sam-
komulagið skrifuðu Franklin
Roosevelt Bandaríkjaforseti, Win-
ston Churchill forsætisráðherra
Breta og Jósef Stalín leiðtogi Sov-
étríkjanna, en með samkomulag-
inu var sagt að stórveldin hefðu
komið sér saman um hvernig
skipta bæri heiminum eftir áhrifa-
svæðum landanna. Megintilgang-
urinn var engu að síður að
ákveða hvernig standa ætti að
endurreisn þjóðanna sem Þjóð-
verjar höfðu lagt undir sig í
heimsstyrjöldinni auk skipulagn-
ingar hersetunnar í Þýskalandi.
Leiðtogarnir þrír komu sér saman
um að skipta Þýskalandi í svæði
sem hver þjóðanna þriggja stjórn-
aði. Pólland fékk sjálfstæði og
Júgóslavía eigin ríkisstjórn. Sovét-
ríkin staðfestu fyrirætlanir sínar um
að segja Japan stríð á hendur
gegn því að halda áhrifum á
ákveðnum svæðum. Meðal skil-
yrða var að óbreytt ástand héldist í
Ytri-Mongólíu, endurheimta yfirráð
yfir suðurhluta Sjakalín og aðliggj-
andi eyja, Kúríleyjar átti að af-
henda Rússum og fleiri atriði sem
sneru að samstarfi Sovétríkjanna
og Kína. Bandaríkin og Bretland
féllust líka á að styðja Úkraínu og
Hvíta-Rússland sem aðskilin ríki
innan Sameinuðu þjóðanna.
11. FEBRÚAR 1945
Churchill, Roosevelt og Stalín eftir
undirritun Jalta-samkomulagsins.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1254 Breska þingið kemur sam-
an í fyrsta sinn.
1531 Henry VIII er viðurkenndur
sem höfuð kirkjunnar í
Englandi.
1906 Hið íslenska bókbindara-
félag stofnað í Reykjavík.
1929 Ítalía skrifar undir Lateran-
sáttmálann, með honum
er stofnuð sjálfstæð Vatík-
an-borg.
1911 Kvennaskólinn á Blönduósi
brennur til kaldra kola.
1971 63 þjóðir undirrita með við-
höfn í Washington, London
og Moskvu, samkomulag
um bann við kjarnorku-
vopnum á sjávarbotni.
1975 Margrét Thatcher verður
fyrsta konan til að leiða
Breska íhaldsflokkinn.
1990 Mannréttindabaráttumað-
urinn Nelson Mandela er
látinn laus eftir 27 ára
fangelsisvist í Suður-Afríku.
Stórveldi samþykkja heimsskipan
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is
MOSAIK
af legsteinum
gegn staðgreiðslu
í janúar og febrúar
Sendum myndalista
15% afsláttur
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Sigríður Gísladóttir
Safamýri 48,
lést aðfaranótt 5. febrúar í Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 16. febrúar kl. 13.
Unnar Þór Sigurleifsson,
Margrét Sigurleifsdóttir, Elías Hartmann Hreinsson,
Elísa Sirrý Elíasdóttir.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Brynheiðar Ketilsdóttur
frá Ketilsstöðum, Mýrdal, Austurgerði 1,
Vestmannaeyjum.
Hjartans þakkir til alls starfsfólks við Heilbrigðisstofnum Vestmannaeyja
fyrir einstaklega góða umönnun liðinna nær 10 ára. Alúðar þakkir til allra
annarra er aðstoðað hafa okkur. Guð blessi ykkur öll.
Arnfrið Heiðar Björnsson, Guðlaugur Grétar Björnsson
og aðrir ástvinir.
90 ára
Þann 13. febrúar
næstkomandi verður níræð
Gróa Helga Kristjánsdóttir,
Hólmi Austur-Landeyjum
Afmæli
Af því tilefni ætla ég og fjölskylda mín að taka á
móti gestum í Félagsheimilinu Goðalandi Fljótshlíð
frá kl: 14.
Gjafir vinsamlegast afþakkaðar.
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1917 Sidney Sheldon,
rithöfundur.
1920 Farouk I, síðasti
konungur Egypta.
1921 Eva Gabor, leikkona.
1936 Burt Reynolds,
leikari.
1937 Tina Louise, leik-
kona.
1941 Sergio Mendes, tónskáld.
1962 Sheryl Crow, söngkona.
1969 Jennifer Aniston,
leikkona.
1979 Brandy, söng- og
leikkona.
1980 Matthew Lawrence, leikari.
1980 Natasha Bobo, leikkona.
1997 Michael Jackson yngri, sonur
poppgoðsins. OPIÐ HÚS Á 112 DAGINN:
Björgunarmiðstöðin Skógarhlíð kl. 14-18
Lögreglan í Reykjavík, Hverfisgötu kl. 14-16
Slökkvistöðin á Sauðárkróki kl. 14-18
Slökkvistöðin á Ísafirði kl. 14-18
Slökkvistöðin á Akureyri kl. 14-18
Slökkvistöðin í Keflavík kl. 14-18
Lögreglan á Akureyri kl. 14-18
Lögreglan í Vestmannaeyjum kl. 14-17
Lögreglan á Sauðárkróki kl. 14-18
Lögreglan á Blönduósi kl. 14-16
Lögreglan og fleiri á Húsavík kl. 13-18
ÞYRLA LANDHELGISGÆSLUNNAR Með símtali í 112 er unnt að virkja á augabragði
lögreglu, slökkvilið, almannavarnir, Landhelgisgæslu, sjúkraflutningamenn, lækna, hjálpar-
lið sjálfboðaliða og barnaverndarnefndir.