Fréttablaðið - 11.02.2005, Side 42
26 11. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR
Við óskum...
... Heiðari Helgusyni, framherja Watford og íslenska landsliðsins í knattspyrnu, til
hamingju með að vera valinn besti leikmaður janúarmánaðar í ensku 1. deildinni
af stuðningsmönnum ensku liðanna.
sport@frettabladid.is
LEIKIR GÆRDAGSINS
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
8 9 10 11 12 13 14
Föstudagur
FEBRÚAR
Við hrósum...
... Grindvíkingnum Guðlaugi Eyjólfssyni fyrir að þora að segja sína
skoðun á endalausum straumi erlendra leikmanna í körfuna. Hann
er hættur vegna fjölda útlendinga hjá liðinu.
KÖRFUBOLTI Haukar tóku á móti
ÍR í Intersportdeildinni í körfu-
knattleik á Ásvöllum í gær-
kvöld. Gestirnir sáu aldrei til
sólar í leiknum og voru kjöl-
dregnir af spræku liði heima-
manna. Lokatölur voru 107-73.
Haukarnir voru mjög einbeittir
frá fyrstu mínútu og ekki að sjá
að hér væri á ferðinni lið í neðri
hluta deildarinnar. Sævar Ingi
Haraldsson og nýr erlendur
leikmaður Hauka, Demetric
Shaw, fóru á kostum í fyrsta
leikhluta. Staðan eftir fjórð-
unginn var 30-11 og ljóst hvert
stefndi.
ÍR-ingar náðu sér aðeins á strik
í öðrum leikhluta og tókst að
minnka muninn í 12 stig en þá
skiptu Haukarnir í pressuvörn
og náðu þægilegu forskoti á ný
með þá Shaw og Michael Manc-
iel í broddi fylkingar. Shaw
skoraði 18 stig í fyrri hálfleik.
Það sama var uppi á teningnum
í síðari hálfleik og liðsmenn ÍR
voru einfaldlega slegnir
allrækilega út af laginu og náðu
sér aldrei almennilega á strik
eftir að Haukarnir höfðu valtað
yfir þá með öflugri pressuvörn.
Sævar Ingi skoraði 15 stig, var
með 12 stoðsendingar og sjö
stolna bolta. Shaw og Manciel
skoruðu hver um sig 29 stig en
Theo Dixon var atkvæðamestur
ÍR-inga með 19 stig en tapaði
boltanum 8 sinnum og átti, rétt
eins og samherjar sínir, ekki
góðan dag. ■
ÍR-ingar kjöldregnir
Haukar og ÍR áttust við í Intersportdeildinni í körfuknattleik á Ásvöllum í
gærkvöld. Sterk pressuvörn heimamanna tryggði þeim örugga forystu
sem þeir létu aldrei af hendi.■ ■ LEIKIR
19.00 HK/Víkingur og KR mætast í
Egilshöllinni á Reykjavíkurmóti
kvenna í fótbolta.
20.00 Huginn og Hvöt mætast í
Boganum á Powerade-mótinu í
fótbolta.
21.00 Fylkir og Fjölnir mætast í
Egilshöllinni á Reykjavíkurmóti
kvenna í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
17.45 Olíssport á Sýn. Endurtekinn
þáttur frá því í gærkvöld þar sem
farið er yfir allt það helsta í íþrótta-
heiminum.
18.00 Upphitun á Skjá einum.
Hitað upp fyrir leiki helgarinnar í
ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
19.00 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
Allt það hesta í íþróttaheiminum í
máli og myndum.
19.30 Motorworld á Sýn. Allt um
akstursíþróttaheiminn í þætti sem
enginn akstursáhugamaður ætti að
láta fram hjá sér fara.
20.00 World Supercross á Sýn.
23.15 Enski boltinn á Sýn.
Útsending frá leik úr þriðju umferð
ensku bikarkeppninnar í fótbolta.
01.00 NBA-boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Cleveland
Cavaliers og Denver Nuggets í
NBA-deildinni í körfubolta.
Intersportdeildin í körfu
KEFLAVÍK–KR 88–79
Stig Keflavíkur: Nick Bradford 25 (19 frák.),
Magnús Þór Gunnarsson 22 (11 í 4. leikhluta.),
Anthony Glover 21 (15 frák.), Jón Nordal
Hafsteinsson 8 (7 frák., 5 stoðs.), Arnar Freyr
Jónsson 6, Gunnar Einarsson 4, Sverrir Sverrisson
2.
Stig KR: Aaron Harper 26 (11 frák., 5 stoðs., 5
stolnir.), Cameron Echols 12 (11 frák. á 20
mínútum), Jón Ólafur Jónsson 10, Láru Jónsson 8
(8 stoðs.), Brynjar Þór Björnsson 6, Steinar Kaldal
6, Ólafur Ægisson 5, Níels Dungal 4, Tómas
Hermannsson 2 (5 frák. á 9 mínútum).
*Brynjar Þór var rekinn út úr húsi fyrir
óíþróttamannslega framkomu.
KFÍ–SNÆFELL frestað
TINDASTÓLL–GRINDAVÍK 101–102
Stig Tindastóls: Brian Thompson 26 (9 frák., 6
stoln.), Bethuel Fletcher 19 (11 stoðs.), Svavar
Birgisson 19 (6 frák.).
Stig Grindavíkur: Darrell Lewis 34, Terrel Taylor
24 (15 frák.), Páll Axel Vilbergsson 19.
HAUKAR–ÍR 107–73
Stig Hauka: Demetric Shaw 29 (13 frák., 5
stoðs.), Michael Manciel 29, Sævar Ingi
Haraldsson 15 (12 stoðs., 7 stolnir.), Kristinn
Jónasson 15,
Stig ÍR: Theo Dixon 19 (6 frák., 8 tapaðir.), Grant
Davis 14 (8 frák.), Fannar Helgason 8.
STAÐAN
KEFLAVÍK 17 14 3 1556–1344 28
FJÖLNIR 17 12 5 1607–1541 24
NJARÐVÍK 17 12 5 1531–1350 24
SNÆFELL 16 12 4 1403–1296 24
SKALLAGR. 17 9 8 1414–1394 18
ÍR 17 9 8 1535–1536 18
GRINDAVÍK 17 8 9 1558–1585 16
KR 17 8 9 1515–1476 16
HAM./SELF. 17 6 11 1527–1585 12
HAUKAR 17 6 11 1463–1478 12
TINDAST. 17 4 13 1428–1613 8
KFÍ 16 1 15 1332–1685 2
KÖRFUBOLTI Fjölnismenn sætta sig
ekki við neitt annað en að Laugar-
dalshöllin verði full út úr dyrum á
úrslitaleiknum í Bikarkeppni KKÍ
og Lýsingar sem fram fer næsta
sunnudag en þetta er fyrsti úr-
slitaleikurinn í sögu félagsins.
„Við erum með hátt í 20 þúsund
manna hverfi í í kringum Fjölni
og vitum að í hverfinu er mikill
íþróttaáhugi og treystum á að
Gravarvogsbúar láti ekki sitt eftir
liggja,“ segir Jón Oddur Davíðs-
son formaður Körfuknattleiks-
deildar Fjölnis.
„Svo treystum við á að allir
körfuknattleiksáhugamenn á höf-
uðborgarsvæðinu styðji okkur
gegn Suðurnesjarisanum. Þetta
ætti að geta orðið frábær leikur,
Suðurnes gegn Reykjavík,“ bætir
Jón Oddur við en Fjölnismenn
ætla að láta sína stuðningsmenn
vera vel sjáanlega í Höllinni.
„Þetta er stærsti einstaki leik-
ur tímabilsins í körfuboltanum og
það er algjört ævintýri að vera
allt í einu komnir í þennan leik
sem alla dreymir um að fá að spila
einhvern tímann á ferlinum. Það
verður mikið um dýrðir í Höllinni
og mikið fjör. Við ætlum að gefa
boli þeim 300 sem mæta fyrstir,
við verðum með trommur og
fleira og þetta verður örugglega
svakalega skemmtilegt hvernig
sem leikurinn fer en við ætlum
samt að vinna,“ segir Jón Oddur
að lokum. ■
Bikarúrslitaleikur milli Fjölnis og Njarðvíkur:
Fjölnismenn ætla
sér að fylla Höllina
FYRSTU 300 FÁ FRÍA FJÖLNISBOLI Jón Oddur Davíðsson, formaður Körfuknattleiks-
deildar Fjölnis, með bol eins og þeir 300 fyrstu fá gefins þegar þeir mæta í Höllina á
sunnudaginn.
BARIST UM BOLTANN UNDIR KÖRFUNNI ÍR-ingar sóttu ekki gull í greipar Hauka á
Ásvöllum í gær og máttu þola stórt tap, 107-73. Hinn nýi leikmaður Hauka, Demetric
Shaw sem er fremstur á myndinni, skoraði 29 stig í sínum fyrsta leik.