Fréttablaðið - 11.02.2005, Qupperneq 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
1
8
4
1
Hva› langar flig a› gera
www.spar.is
flegar flú hættir a› vinna?
fiví fyrr sem flú hugar a› framtí›inni fleim mun meiri eru
möguleikarnir á a› láta framtí›ardraumana rætast. Lífsval,
lífeyrissparna›ur Sparisjó›sins er traust lei› fyrir flig til a›
ná fjárhagslegu öryggi á efri árum. fijónustufulltrúar
Sparisjó›sins hjálpa flér vi› a› velja hentuga ávöxtunarlei›.
Láttu draumana rætast me› Lífsvali
Engin upphafsflóknun
Gó› ávöxtun
Sparna›ur greiddur vi› örorku
Sveigjanleg starfslok
Sömu lífsgæ›i á efri árum
Sparna›urinn erfist
Helstu kostir Lífsvals
Bobbla
Ritunartími Bobbys sögu Fischer(Bobbla) er genginn í garð. Land-
laus villingurinn á að sjálfsögðu
griðastað hér þegar ofríkir forsetar
hans eigin lands bregða sér í skæði
Haralds hins hárfagra og heimta að
koma yfir hann höndum og böndum.
Bobby karlinn er ekki á því að láta ná
sér. Hvað við skiljum hann. Við höf-
um aldrei verið þjóð sem lætur ná
sér. Við skrifum doðranta um það
hvernig við látum ekki ná okkur. Það
eina sem Bobby vantar er fley og
fagrar árar til þess að komast til okk-
ar blíða heiðarbýlis í henni veröld.
HEIMILDIR í sögu þessa næsta
landnema, sem í nútíðinni er kallaður
nýbúi, eru þegar farnar að berast okk-
ur. Einhver Ilya Gurevich, fyrrum
heimsmeistari unglinga í skák, er að
munda sín vopn til þess að verða næsti
Snorri Sturluson. Sendir gervallri ís-
lensku þjóðinni bréf þar sem hann
kvartar yfir því að við skulum ætla að
leyfa Bobby að búa hér. Söguritarinn
Ilya segir Bobby haldinn kynþáttafor-
dómum, hafa fagnað hryðjuverka-
árásinni á tvíburaturnana, og hafa vís-
vitandi brotið lög í sínu heimalandi til
þess að græða þrjár milljónir dollara.
OG hvað með það? Okkar land byggð-
ist upp á mönnum sem voru haldnir
kynþáttafordómum gagnvart Írum,
rændu þeim sem þeir drápu ekki og
hnepptu í þrældóm. Þeir gerðu hryðju-
verkaárásir á lönd og strendur hvar
sem slíkt var að finna í Evrópu og
brutu þau lög sem sett voru í Noregi.
Heldur Ilya að við hrökkvum upp af
standinum þótt hann upplýsi okkur um
að Bobby „okkar“ sé ribbaldi?
SVO segir Ilya hann geðveikan. Það
eru nú bara skilgreiningarspursmál. Í
dag þættu okkar landnámsmenn geð-
veikir, brjótandi lög í Noregi, rænandi
og ruplandi, lemstrandi og drepandi,
siglandi síðan á sínum skektum til lít-
illar eyjar norður við íshaf þar sem
engin lög voru til. Við skilgreinum þá
sem hetjur.
BARA betra ef Bobby er ekki heill á
geði – sem Ilya veit auðvitað ekki að
hér á landi heitir að vera öryrki. Við
erum kurteis þjóð. Í stað þess að vera
hundeltur og ofsóttur af yfirvöldum
getur hann snúið dæminu við, gengið
til liðs við íslenska öryrkja sem hund-
elta og ofsækja yfirvöld.
SEM kann að vera ástæðan fyrir því
hvað hann er lítið að flýta sér hingað,
þrátt fyrir margítrekuð boð um að
senda þotu eftir honum til Japan. Hann
hefur örugglega frétt hvernig við för-
um með þá sem minnst mega sín. ■
SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR
BAKÞANKAR