Fréttablaðið - 20.02.2005, Blaðsíða 1
NÝR FOR-
MAÐUR
Fjögur at-
kvæði skildu
menn að í
kosningu um
formanns-
embætti í Fé-
lagi grunnskólakennara. Ólafur Loftsson tek-
ur við af Finnboga Sigurðssyni. Sjá síðu 2
SKILYRÐI UPPFYLLT Öll skilyrði sem
sjávarútvegsráðuneytið setur um byggða-
kvóta eru uppfyllt af bæjarstjórn Sandgerð-
is, að sögn Árna M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra. Sjá síðu 2
MANNSKÆÐAR ÁRÁSIR Að minnsta
kosti 50 manns létust í sprengjuárásum
uppreisnarmanna í Írak í gær þegar As-
houra, trúarhátíð sjía-múslíma, náði há-
marki. Sjá síðu 4
FRAM ÚR BJÖRTUSTU VONUM
Lokakeppni Food and Fun hátíðarinnar var
haldin í gær í Hafnarhúsinu í Reykjavík og
sótti mikill mannfjöldi keppnina. Hátíðin
gekk framar vonum. Sjá síðu 4
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Kvikmyndir 30
Tónlist 30
Leikhús 30
Myndlist 30
Íþróttir 24
Sjónvarp 32
SUNNUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
20. febrúar 2005 – 48. tölublað – 5. árgangur
DÁLÍTIL SÚLD VESTAN TIL og þung-
búið. Bjartviðri um austanvert landið. Milt í
veðri og hiti víðast 3-8 stig. Sjá síðu 4
NJARÐVÍK Í GRAFARVOGI Fimm
leikir verða í Intersport-deild karla í körfu-
bolta klukkan 19.15. Fjölnir tekur á móti
Njarðvík, KR sækir KFÍ heim, Keflavík og
Hamar/Selfoss mætast, Tindastóll tekur á
móti Skallagrími og Snæfell sækir ÍR heim.
Dagblaðalestur
á sunnudögum*
63%
50%
*Landið allt skv. fjölmiðlakönnun Gallups, nóv. 2004.
SMÁBÁTAÚTGERÐ Dragnótaveiðar eru
að öllu jöfnu bannaðar innan við
Hríseyjarvita. Brim fiskeldi hefur
fengið tímabundna undanþágu þar
til veiða á 100 tonnum af þorski til
áframeldis, segir Þórður Eyþórs-
son, deildarstjóri í sjávarútvegs-
ráðuneytinu. Undanþágan er
bundin við Sólborgu ÞH og tíma-
bilinu 15. febrúar til 8. apríl.
„Við erum að liðka fyrir með
þessu og reyna að gera þeim
kleift að ná fiskinum sem næst
kvíunum. Þannig er hugsanlega
hægt að koma í veg fyrir óþarfa
afföll. Sólborg getur hins vegar
veitt 100 tonnin hvar sem er og því
óvíst hversu mikið veiðist á svæð-
inu,“ segir Þórður.
Pétur Sigurðsson, formaður
Kletts, félags smábátaeigenda á
Norðurlandi eystra, segir mjög al-
menna óánægju meðal smábátaeig-
enda í Eyjafirði með undanþáguna.
„Veiðar með dragnót og veiðar
smábáta fara ekki saman og hætta
er á að dragnótin skemmi veiðar-
færi smábáta. Undanþágan getur
kostað að við getum ekki stundað
veiðar innst í Eyjafirði á meðan
undanþágan er í gildi og það sættum
við okkur ekki við. Einnig höfum við
áhyggjur af hafsbotninum en veiðar
með dragnót innst í Eyjafirði geta
raskað lífríki svæðisins og skemmt
ómetanlegar náttúruminjar eins og
hverastrýtur sem þar eru,“ segir
Pétur.
Eftir að smábátasjómenn í Eyja-
firði höfðu samband við ráðuneytið
tilkynnti Brim að Sólborg myndi
ekki stunda veiðar innan við Hrísey-
jarvita frá mánudeginum en Pétur
segir að yfirlýsingin nægi ekki.
„Málið snýst ekki um að við
séum reiðir út í Brim heldur erum
við illir út í ráðuneytið. Við viljum
að undanþágan verði afturkölluð
strax.“ - kk
Vinur Dóra fékk Grammy-verðlaunin:
Blúspíanóleikarinn Pinetop Perkins, sem tók upp sína fyrstu sólóplötu með hljómsveitinni Vinum Dóra árið
1992, fékk heiðursverðlaun fyrir æviframlag sitt til tónlistar á nýafstaðinni Grammy-verðlaunahátíð.
Komin á toppinn
í flugheiminum
SÍÐA 12
Dýrkar æsku
og heilbrigði
SÍÐA 18
Nýr forstjóri Flugleiða: Ingólfur Guðbrandsson:
SÍÐA 34
Menn vopnaðir hnífum rændu lyfjum í apóteki:
Of miklir klaufar til
að ná peningum
KONUDAGURINN ER Í DAG Hjartadeildin var opnuð yfir helgina í Blómabúðinni
Blómálfinum í tilefni konudagsins og gat þar að líta hjörtu af öllum stærðum og gerðum.
Blómabændur hafa frá því á sjötta áratug síðustu aldar hvatt karlmenn til að gleðja konu
sína með blómum á konudaginn og hafa þeir brugðist vel við þeim tilmælum. Búast má
við að örtröð verði í blómabúðum landsins í dag og opnuðu þær margar snemma.
LÖGREGLUMÁL Tveir menn ógnuðu
starfsfólki með hnífum í Árbæjar-
apóteki í hádeginu í gær og höfðu
á brott með sér
talsvert magn að
örvandi lyfjum.
„Þeir reyndu að
opna peninga-
hirslur en báru
sig svo klaufalega
að þeir brutu þær
bara en náðu eng-
um peningum,“
sagði Kristján
S t e i n g r í m s s o n
apótekari.
Mennirnir sem
taldir eru vera
um tvítugt voru
klæddir í sam-
festing og með grímu. Eftir að
þeir höfðu látið greipar sópa
hlupu þeir og hurfu sjónum
starfsfólksins. Ekki sáust þeir
fara inn í bíl eða hvort þeir notuðu
annað farartæki. Engin myndavél
er í apótekinu en úr því verður
bætt hið fyrsta eftir þennan at-
burð, sagði Krist-
ján. Myndavél
hefði þó litlu
breytt í þessu til-
felli þar sem þeir
voru með öllu
óþekkjanlegir.
Lögreglan hefur
því engar grun-
semdir um hverj-
ir þjófarnir eru.
Tvær stúlkur
voru við af-
greiðslu og voru
þær að vonum
skelkaðar en
apótekinu var
lokað skömmu síðar og þær fengu
að fara heim að jafna sig.
Ekki var búið að finna ræningj-
ana þegar blaðið fór í prentun í
gærkvöld. - jón
ÁRBÆJARAPÓTEK
Tveir grímuklæddir menn ógnuðu
starfsfólki með hnífum og hurfu á
brott með örvandi lyf.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
ÞORSKUR SETTUR Í FISKELDISKVÍAR BRIMS Í EYJAFIRÐI
Sólborg ÞH-270 er 116 brúttótonna stálbátur, smíðaður í Kína árið 2001.
Pétur Sigurðsson, talsmaður smábátasjómanna, er á innfelldu myndinni.
Ósáttir með leyfi
Brims til veiða
Smábátasjómenn eru ævareiðir vegna leyfis til dragnótaveiða í innan-
verðum Eyjafirði. Ráðuneytið vildi koma til móts við fiskeldi Brims en
smábátasjómenn segja afkomu sinni ógnað og lífríki sé í hættu.
SKAUTADANS
Börn sýndu listir sínar í Skautahöllinni á
Vetrarhátíð í gær.
Vetrarhátíð:
Síðasta
andvarpið
HÁTÍÐ Vetrarhátíð í Reykjavík lýk-
ur í dag og hefur dagskráin verið
afar fjölbreytt og skemmtileg.
Opið hús verður víða í dag í
tengslum við hátíðina og verður
meðal annars opið hús hjá
Slökkviliði Reykjavíkur, Land-
helgisgæslunni og hjá Söngskól-
anum í Reykjavík. Hátíðinni lýkur
svo í kvöld í Perlunni með verkinu
Síðasta andvarpið, þar sem Sig-
tryggur Baldursson og fleiri
trommuleikarar munu flytja verk
fyrir endurvarpsparabolur og
brotajárn sem tvinnast við leik
Ghostigital. Brot úr myndinni
Sumarsólstöður eftir Emiliano
Monaco verður ennfremur sýnt.
Sjá síðu 31
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M