Fréttablaðið - 20.02.2005, Blaðsíða 22
4
ATVINNA
Byggingaverkamenn
Vegna aukinna verkefna óskar
JB Byggingafélag
eftir að ráða byggingaverkamenn.
Upplýsingar gefur Páll Róbert Matthíasson
í síma 693-7014. Einnig er hægt að sækja um
á www.jbb.is.
JB Byggingafélag, Bæjarlind 4, s: 544-5333.
Viðskiptafræðingar
Netbókhald.is óskar eftir að ráða viðskiptafræðing.
Starfsvið:
Umsjón með netbokhaldi.is
Kynningar og námskeið.
Umsjón með bókhaldi og innheimtu.
Hæfniskröfur:
Viðskiptafræði eða sambærileg menntun.
Reynsla eða þekking af bókhaldshugbúnaði.
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Góð enskukunnátta.
Leitað er að drífandi og metnaðfullum einstaklingi.
Hlutastarf kemur til greina.
Umsóknir sendist á gk@netbokhald.is fyrir 28. febrúar.
Pípulagningameistari
Hrafnistuheimilin óska eftir að ráða
pípulagningameistara til starfa nú
þegar. Aðeins aðili með meistarapróf
kemur til greina.
Nánari uppl. veitir Sævar Guðmundsson
s: 693-9555. Umsóknarfrestur til 28. febrúar
2005. Umsóknareyðublöð má nálgast á
heimasíðu Hrafnistu http://www.hrafnista.is
Ráðgjafi við barnavernd
Laus eru til umsóknar störf ráðgjafa hjá Barnavernd
Reykjavíkur. Um er að ræða tvö störf sem laus eru
nú þegar, auk starfs við afleysingu frá 1.maí nk. til
1. ágúst 2006.
Verksvið:
Skrifstofa barnaverndar ber ábyrgð á meðferð ein-
stakra mála sem unnin eru á grundvelli barnavernd-
arlaga. Ráðgjafar skrifstofunnar annast m.a. móttöku
og mat tilkynninga um óviðunandi aðbúnað
barna/unglinga, könnun á aðbúnaði þeirra, gerð og
eftirfylgd meðferðaráætlana, meðferð, stuðning og
eftirlit í alvarlegum barnaverndarmálum. Þá sjá þeir
um málefni fósturbarna, vistanir á meðferðar/einka-
heimili auk umsagna í ættleiðingar, forsjár- og um-
gengnismálum.
Starfsmenn barnaverndar annast bakvaktir vegna
barnaverndarmála.
Menntun og hæfni:
Umsækjandi þarf að hafa háskólamenntun á sviði
barnaverndar t.d. í félagsráðgjöf, eða í skyldum grein-
um og æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af
fjöldskyldumeðferð eða fjölskyldustuðningi.
Starfið gerir kröfur til jákvæðs viðmóts, mannúðlegra
viðhorfa og góðra hæfileika til mannlegra samskipta.
Sjálfstæði og frumkvæði í starfi eru miklir kostir
ásamt getu skýrrar tjáningar munnlega og skriflega.
Grunnþekking á notkun tölvu er nauðsynleg. Bílpróf
er einnig nauðsynlegt.
Laun:
Skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðkom-
andi stéttafélags.
Umsóknir sendist til: BARNAVERNDAR REYKJAVÍK-
UR, SKIPHOLTI 50 b, 105 Reykjavík. Umsóknarfrest-
ur er til 1. mars nk.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdarstjóri barna-
verndarnefndar Guðrún Frímannsóttir, í síma 535-
2600. Netfang: gudrunfr@fel.rvk.is
Sjá einnig almennar upplýsingar um laus störf og
starfsmannastefnu Félagsþjónustunnar á vefsíðunni:
www.felagsthjonustan.is
Bifvélavirki
Kynnisferðir óska eftir að ráða vanan
bifvélavirkja, sem getur gengið í öll
viðhaldsstörf, bæði almenn og sértæk.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst,
en þeir eiginleikar sem sóst er eftir eru:
• Bifvélavirkjamenntun
• Reynsla af rafmagnsviðgerðum, réttingum og
sprautun er kostur, en ekki skilyrði
Umsóknareyðublöð fást hjá Kynnisferðum ehf.,
Vesturvör 6, 200 Kópavogi og skulu þær sendar þangað
fyrir kl. 17:00, 28. febrúar 2005, merktar
„Verkstæði 2005“.
Einnig er hægt að senda umsóknir á netfangið
sigridur@re.is. Upplýsingar um starfið veitir
starfsmannastjóri á skrifstofutíma,
upplýsingar eru ekki veittar gegnum síma.
Haft verður samband við alla umsækjendur,
eftir að umsóknarfrestur er runninn út.
Óskum eftir að ráða sem fyrst kjötiðnaðar-
mann eða mann vanan nautakjötsskurði.
Einnig óskum við eftir nemum sem hafa áhuga á að
komast á samning. Umsóknir berist Kjötbankanum,
Flatahrauni 27, 220 Hafnarfirði, fyrir 23. febrúar.
Nánari upplýsingar í síma 565 2011 eftir kl. 13.00.
Kjötbankinn er framsækið og traust matvælafyrirtæki,
sem leggur áherslu á framúrskarandi vöru og þjónustu.