Fréttablaðið - 20.02.2005, Side 57

Fréttablaðið - 20.02.2005, Side 57
SUNNUDAGUR 20. febrúar 2005 29 Ronald Belford Scott fæddist 9. júlí árið 1946 í smábænum Kirriemuir í Skotlandi. Scott var af músíkölsku bergi brotinn og smitaðist af tónlist- aráhuga föður síns, Charles Scott, sem var trommuleikari. Þegar pilturinn var sex ára gam- all fluttist fjölskyldan til Ástralíu en Ronald fékk fljótlega viðurnefnið The Bonnie Scot sem seinna var stytt í Bon. Strákurinn hafði mikinn áhuga á tónlist og eftir stutta við- komu á píanói urðu trommurnar fyrir valinu. Það fór ekki á milli mála að athygli féll honum vel í geð og kom hann iðulega fram með skólahljómsveitum á sínum yngri árum. Nám var Bon ekki að skapi og lagði hann það endanlega á hilluna 15 ára gamall. Fjölmörg miður spennandi störf biðu hans eftir það, sjómennska og dráttarvélaakstur svo eitthvað sé nefnt. Hljómsveitin The Spectors var sú fyrsta sem fékk að njóta krafta hans en Bon gekk til liðs við sveit- ina sem trymbill árið 1966, þá tví- tugur að aldri. Bon stoppaði stutt við í The Spectors og réð sig sem söngvara í The Valentines ári síðar. Ekki þótti sú sveit hafa upp á mikið að bjóða hvað frumleika snerti og eftir að hljómsveitin lagði upp laupana lá leið Bon í blúsrokksveit- ina Fraternity. Meðlimir Fraternity voru öllu iðnari við kolann en The Valentines en höfðu þó ekki erindi sem erfiði. Bon Scott batt enda á dvöl sína með hljómsveitinni þegar hann lenti í slæmu mótorhjólaslysi og var í dái í þrjá daga. Eftir að hafa rankað við sér bauðst Bon til að gerast bílstjóri fyrir unga sveit að nafni AC/DC. Hann hreifst strax af hljómsveit- inni og þá sérstaklega af litla geð- sjúklingnum í skólabúningnum, Angus Young, sem þeyttist sviðs- enda á milli. Bon lét sér ekki nægja að taka stöðu trommarans Pete Clark í hljómsveitinni heldur sann- færði Angus og bróður hans, Malcolm Young, höfuðpaur AC/DC, um að hljómsveitin þyrfti á nýjum söngvara að halda. Young-bræðurn- ir voru á sama máli og var Bon fljót- ur að stinga upp á sjálfum sér í stöð- una í stað Dave Evans, sem upp- fyllti ekki þær hugmyndir sem Young-bræðurnir höfðu um góðan rokksöngvara. Klúr textasmíði Bon Scott smell- passaði við blússkotið rokk AC/DC og ekki skemmdi fyrir að hann þótti skemmtikraftur af guðs náð. Leið hljómsveitarinnar lá nú óð- fluga upp á stjörnuhimininn og löng tónleikaferðalög tóku sinn toll þar sem sukk og svínari réð lögum og lofum. Þegar frægðarsól Bon Scott var farin að skína sem hæst eftir meistaraverkið Highway to Hell reið harmurinn yfir. Að kvöldi 18. febrúar 1980 fór Bon Scott ásamt vini sínum, Alistair Kinnear, á næturlangt sukk í London en þar vann AC/DC hörðum höndum að nýrri plötu. Þegar heim var kom- ið gat Kinnear ekki vakið Bon og skildi hann eftir sofandi í bílnum fyrir utan heimilið sitt í Dulwich. Þegar að var komið daginn eftir var Bon meðvitundarlaus. Félagi hans brunaði með hann á Kings College sjúkrahúsið, þar sem söngvarinn var úrskurðaður látinn. Rokkheim- urinn syrgði lengi eftir fráfall Bon og enn þann dag í dag lifa lög Bon Scott góðu lífi á tónleikum AC/DC og andi hans aldrei langt undan hjá unnendum sveitarinnar. ■ Ég er eldingin í miðjunni Bon Scott hafði óbeit á flestum starfsmönnum plötufyrirtækja og því bransafólki sem var sífellt í kringum AC/DC. Eftir vel heppnaða tónleika í Bandaríkjunum gaf einn starfsmaður Sony sig á tal við Scott, yfir sig hrif- inn af frammistöðu hljómsveitarinn- ar. „Þetta var frábært en segðu mér, hvort ert þú AC eða DC?“ spurði starfsmaðurinn, fremur glórulaus. „Hvorugt,“ svaraði Scott. „Ég er eld- ingin í miðjunni!“ bætti hann við og gaf kappanum einn á lúðurinn. Botnlangakast á tónleikum Leið Brians Johnson inn í AC/DC lá í gegnum Bon Scott en hljómsveitir þeirra, Geordie og Fraternity, léku saman á tónleikum á Bretlandi árið 1973. Brian var einkar illa upplagður þetta kvöld og fékk botnlangakast á miðjum tónleikum. Kall- inn lá í gólfinu og emjaði úr sér lungun á meðan Scott stóð til hliðar og fylgdist með, agndofa af aðdáun. Johnson var síðan fluttur á spítala strax eftir tónleikana. Scott var hins vegar frá sér numinn af frammistöðu Johnsons en hafði ekki hug- mynd um að kappinn hafi verið veikur. Bon bar félögum sínum í AC/DC söguna nokkrum árum seinna, að á Englandi leyndist einhver albesti rokksöngvari heims. 25 ár frá dauða Bon Scott Í gær voru liðin 25 ár frá því að Bon Scott, söngvari áströlsku rokksveitarinnar AC/DC, lést í Dulwich á Englandi. Scott hafði unnið hug og hjörtu ungmenna um allan heim fyrir líflega framkomu. Smári Jósepsson rifjar upp helstu afrek Scotts í rokkbransanum. BON SCOTT Hann var þekktur fyrir líflega framkomu, hvort sem var á sviði eða í einkalífinu. Lög Scotts lifa góðu lífi enn þann dag í dag.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.