Fréttablaðið - 24.02.2005, Síða 21

Fréttablaðið - 24.02.2005, Síða 21
Dolce og Gabbana hættir saman Löngu ástarsambandi er lokið en tískukóngarnir ætla að halda áfram að vinna saman. Fatahönnuðurnir Domenico Dolce og Stefano Gabbana hafa staðfest sögusagnir þess efnis að nítján ára ástarsambandi þeirra sé lokið. Tískugúrúarnir munu samt sem áður halda áfram að reka Dolce & Gabbana áfram sem þeir stofnuðu árið 1985 og er meðal umsvifamestu tískuhúsa heimsins. „Við erum ennþá saman á faglegu sviði. Við vinnum mjög vel saman og skiljum hvor annan. Sterk ást bindur okkur sam- an,“ lét Dolce hafa eftir sér en bætti við að þeir byggju ekki lengur saman og væru byrjaðir að fara á stefnumót. Meðal viðskiptavina tískuhússins eru stórstjörnur á borð við Kylie Minogue, Madonnu, Victoriu Beck- ham og Whitney Houston. ■ Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 9 Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Góðan dag! Í dag er fimmtudagur 24. febrúar, 55. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 8.52 13.41 18.31 AKUREYRI 8.42 13.26 18.10 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag „Fyrst og fremst myndi ég nefna hettupe- ysurnar, stórar, litlar, þröngar, víðar, síðar, stuttar – alls kyns hettupeysur sem eru ómissandi í fataskápnum mínum. Ég er rosa hettupeysustelpa og geng örugglega í hettupeysum að minnsta kosti fimm daga vikunnar. Núna eru þessar stóru kósí alveg ómissandi og framarlega í fataskápnum hjá mér,“ segir Ingibjörg, eða Imba eins og hún er kölluð, en hettupeysurnar koma alls staðar að. „Það er mjög blandað hvaðan hettupeys- urnar eru en Nikita-peysurnar eru auðvitað alltaf í meirihluta þar sem sýnishornin streyma inn og út úr skápnum. Svo var ég í Köben um síðustu helgi og náði þá að bæta tveimur æðislegum í safnið, grárri Wood Wood-hettupeysu og piparmintulitaðri Alis- hettupeysu. Báðar eru með mjög skemmti- legri áletrun. Ég er alveg ýkt „happy“ með þær. Hettupeysurnar hverfa aldrei úr skápnum hjá mér.“ Ingibjörg lætur ekki bjóða sér hvað sem er þegar kemur að fötum og veit nákvæm- lega hvað hún vill. „Þessa stundina á ég meira af joggingbuxum og leggings en galla- buxum – hálf fyndið í öllu gallabuxnaæðinu. En ég er mjög pikkí á buxur og finn ekki margar gallabuxur sem ég fíla. Ég vill hafa buxur frekar víðar eða alveg þröngar. Þá hentar mér oft vel að sauma þær sjálf sem ég og geri. Annars er ég algjört „sneaker freak“, eða strigaskófrík, fram yfir allt ann- að. Ég horfi alltaf fyrst á skóna og finnst þeir skipta miklu máli. Ég safna „old school“ strigaskóm og á mest af Adidas og Nike. Þeir sem eru mest í uppáhaldi hjá mér núna eru Adidas Hi-Top Attitude, bleikir, svartir og gulllitaðir,“ segir Ingibjörg, sem fer út um allan heim vinnu sinnar vegna og á því auð- velt með að krækja í sjaldgæf föt og skópör. „Ég ferðast mikið og á auðvelt með að safna skemmtilegum skóm og týpum sem ekki fást hvar sem er. Ég kem aldrei heim með minna en eitt til tvö pör.“ lilja@frettabladid.is Hettupeysurnar hverfa aldrei úr skápnum Ingibjörg Finnbogadóttir, fatahönnuður hjá Nikita, dýrkar hettupeysurnar sínar en er líka mjög sólgin í alls kyns strigaskó. Hún á greiðan aðgang að skemmti- legum skóm og fötum þar sem hún ferðast mikið vegna vinnunnar. ferdir@frettabladid.is Stúdentaferðir bjóða upp á vinsæla ferð í haust þar sem könnuð eru Andes-fjöllin frá miðbaug og farið þaðan til Eld- lands, Tierra del Fuego, syðst í Suður-Ameríku. Síðan er hald- ið upp Atlantshafsströndina til Rio de Janeiro. Farið er um Ekvador, Perú, Bólivíu, Argentínu, Chile, Parag- væ og Brasilíu. Ferðin er áttatíu nætur og er verðið 313.200 krónur. Flug til og frá Íslandi er ekki innifalið. Skráningargjald í ferðina er tíu þúsund krónur og staðfestingargjald tíu prósent af verði ferð- arinnar. Brottfarardagar á þessu ári eru 11. október og 6. des- ember. Nánari upplýsingar er að finna á exit.is. Stuðmenn spila í Royal Albert Hall í London 24. mars næst- komandi, á skírdag. Sérstök Stuðmannakjör eru í boði hjá Icelandair en flug og miði á tónleikana kostar 26.900 krónur. Í boði eru sæti til London 22., 23. og 24. mars og frá London 25. og 26. mars. Vegna mikillar eftirspurnar hefur Icelandair bætt við sig leiguvél frá Loftleiðum og fer hún frá Keflavík 24. mars og frá London daginn eftir, 25. mars. Nánari upplýsingar eru á icelandair.is. ÍT ferðir bjóða upp á ferð í Knattspyrnu- skóla Bobby Charlton í sumar. Farið er 29. júlí og kom- ið aftur heim 7. ágúst. ÍT ferðir hafa lækkað verðið talsvert og er það nú 107.500 krónur en ferðin er tilvalin fyrir pilta og stúlkur á aldrinum þrettán til sautján ára. Skólinn er í Myerscough College í Preston en þangað er hálftíma akstur frá Manchester. Ferðamálaráð Íslands ætlar að bjóða íslenskum fyrirtækjum til samstarfs við sig um gerð og birtingu auglýsinga. Auglýsing- arnar eiga að hvetja lands- menn til ferðalaga innanlands en um er að ræða hluta af kynningarherferðinni „Ísland – sækjum það heim“. Ferða- málaráð hyggst verja tólf milljónum króna til verkefn- isins á tímabilinu 15. maí 2005 til 30. apríl 2006 en nánari upplýsing- ar um verkefnið er að finna á heima- síðu Ferðamála- ráðs, ferdamal- arad.is. Ingibjörg er fatahönnuður hjá Nikita og því á hún alltaf nóg af Nikita- hettupeysum, sem eru í uppáhaldi. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is LIGGUR Í LOFTINU í ferðum FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl. Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is KRÍLIN Skítt með skálina, kara- mellurnar eru í heilu lagi! Börn þurfa góða stóla BLS. 3 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI Dolce og Gabbana eru ennþá vinir þótt ástarsambandinu sé lokið.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.