Fréttablaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 46
„It won’t do to dream of caramel, to think of cinnamon and long for you.“ 30 24. febrúar 2005 FIMMTUDAGUR Í spilaranum hjá ritstjórninni The Mars Volta: Francis the Mute, The Game: The Documentary, Can: Monster Movie, De La Soul: The Grind Date og Mercury, Rev: The Secret Migration, Tori Amos: The Beekeper, Eric Clapton: Sessions for Robert J, Emiliana Torrini: Fishermans’s Wife. Þeir eru með Dorrit Moussaieff í aðdáendaklúbbi sínum og óopin- ber umboðsmaður þeirra er her- togaynja frá Austurríki. Hver einn og einasti liðsmaður sveitar- innar er snillingur á sínu sviði sem er við það að springa úr sköp- unargáfu. Þegar þeir spila á tón- leikum getum við alveg eins átt von á því að söngvarinn hristi á sér brjóstin, bassaleikarinn komi fram í tígrísþveng og að sviðið sé hlaðið sprengjuefnum. Þeir voru kirsuberið í einni veislu forsetans á Bessastöðum og eiga stóran hóp aðdáenda hér á landi, þrátt fyrir að hafa aðeins gefið út eina breið- skífu, fyrir löngu síðan. Já, Ísland hefur aldrei áður átt sveit eins og Trabant, það er alveg á hreinu. Stökkbreytt sveit Piltarnir hafa verið að vinna að næstu plötu sinni í þónokkurn tíma. Þeir hafa síðasta árið mótað nýju lögin á tónleikum og síðustu sex mánuðina hafa þeir verið að vinna þau í hljóðverinu. Þessum mönnum finnst gaman að dunda sér og hika ekki við að taka sér sinn tíma. „Við erum núna að búa til power-ballöðu,“ segir Viðar Hákon bassaleikari og upptöku- stjóri sem segir sveitina stundum semja beint inn á band þó svo að grunnur flestra laganna hafi verið tilbúinn. „Við vorum búnir að klára plötuna og svo þegar við renndum henni í gegn þá fannst okkur eins og það vantaði eitth- vað. Við gætum alveg gefið plöt- una núna, en við erum bara aðeins að leika okkur meira. Þannig að við bættum einu lagi við, maður er hvort eð er alltaf að vinna... skilurðu? Það skiptir engu máli hvort þetta lag endi svo á þessari plötu eða næstu.“ Sitt lítið af hverju Platan hefur vinnuheitið Pump You Up og er reiðubúin fyrir út- gáfu. Ekki hefur verið ákveðið hver gefur plötuna út en sveitin hefur verið í viðræðum við 12 Tóna. Trabant er ein þeirra sveita sem hefur aðstöðu í KlinK og BanK. Þar hafa þeir komið sér upp ágætis hljóðveri og hafa því fengið tækifæri til þess að liggja vel á plötunni. Útkoman er hreint út sagt stórkostleg og ólík öllu öðru sem hefur áður heyrst frá ís- lenskri sveit. Það er erfitt að renna fingur á hvers konar tónlist er þarna á ferð, ekki rokk, ekki fönk, ekki 80’s popp, ekki teknó en samt sitt lítið af hverju. „Við segjumst bara alltaf vera að gera popptónlist. Þetta er kannski ekki hið týpíska Bylgju- popp en ég held að þó að það sé svolítið sérstakur hljómur á þessu þá er þetta popp. Greddupopp. Við erum að leika okkur með hluti sem fæddust í poppi. Það er alveg hægt að vera með tilraunir, bara tilraunanna vegna. Þó að við séum ekkert að kóvera eða stæla neitt, erum við að leika okkur með sömu hluti og Prince, Michael Jackson, Queen og Mick Jagger. Þess vegna lítum við á að þetta sé „kick ass“ popp. Þetta er leikur að þessum stæl- um, sem eru svo almennir í poppi.“ Ástin það eina sem skiptir máli Viddi segir að það séu mörg ástar- lög á plötunni, textarnir nálgist allir ástina að einhverju leyti. „Ástin er það eina sem skiptir máli. Það er eina leiðin að góðu kynlífi,“ segir Viddi og hlær. „Maður verður ástfanginn bara til að fá sér almennilega að ríða, svo getur maður flækt þetta fyrir sér. Þess vegna er gott að gera plötu um þetta. Þetta eru ástartextar, en í grunninn bara kynlíf.“ Sem sagt, það fer að koma tími fyrir Trabant til þess að setja lykilinn í raufina og renna af stað. biggi@frettabladid.is Trabant setur lykilinn í raufina Beðið er eftir væntanlegri breiðskífu Trabant með eftirvæntingu. Von er á plötunni í hlað á næstu vikum. OL’ DIRTY BASTARD Rapparinn knái úr Wu-Tang Clan lést seint á síðasta ári. Liðsmenn Wu-Tang eru búnir að hljóðrita lag í minningu hans. Wu-Tang minnist Ol’ Dirty Liðsmenn Wu-Tang Clan eru búnir að hljóðrita lag í minningu Ol’ Dirty Bastard sem lést seint á síðasta ári. Áætlað er að gefa lagið út á smáskífu bráðlega, og verður það þá fyrsta útgáfan frá rappsveitinni í þrjú ár. Lagið verður einnig að finna á síðustu sólóplötu Ol’ Dirty sem kemur út 22. mars næstkom- andi. Hann var langt kominn með plötuna þegar hann dó. Þeir sem koma að laginu eru RZA, GZA, Method Man, Ra- ekwon, Cappadona og Masta Killa. Sveitin var á leiðinni að hljóðrita nýtt efni og áttu upp- tökur að hefjast 13. nóvember, en þeim var svo frestað eftir að Ol’ Dirty hneig niður í hljóðveri sínu 12. nóvember. RZA greindi frá því í viðtali við MTV að búið væri að setja Wu-Tang aftur á hilluna, en hann vildi ekki útiloka að sveitin kæmi myndi hljóðrita meira efni í lok ársins. ■ 50 CENT Næsta plata rapparans kemur út 3. mars, eftir rétt rúma viku. Nýja plata 50 Cent lekur á netið Önnur breiðskífa 50 Cent átti upp- haflega að koma út 15. febrúar, en ekki náðist að klára plötuna í tíma. Henni var því seinkað aftur til 8. mars. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að flýta útgáfunni fram til 3. mars, þar sem nokkur lög af plötunni láku á netið. Platan heitir The Massacre og eitt lag á plötunni er sérstaklega vinsælt til að hlaða niður. Það heitir Piggy Bank og þar lofaði 50 Cent að skjóta harðlega á Fat Joe, Nas, Jadakiss, Ja Rule og Shyne. Fat Joe hefur þegar lofað að svara fyrir sig á plötu sem kemur út á sama degi og plata 50 Cent. Íslandsvinurinn býst svo auðvitað við svörum frá öllum þeirra. Það er því mikil spenna í rappheimum þessa dagana. ■ - Suzanne Vega leggur línurnar í ástarmál- um sínum í laginu Caramel af plötunni 9 Objects of Desire frá árinu 1997. Lagið er notað sem aðallag myndarinnar Closer. TRABANT Hljómsveitin Trabant tók upp hluta plötunnar í Geimsteini hjá sjálfum Herra Rokk, Rúna Júll.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.