Fréttablaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 28
Hjördís Harðardóttir göngu- garpur ætlar að leiða hóp Ís- lendinga um stórbrotna nátt- úru Slóveníu. Hún veit ekkert skemmtilegra en gönguferðir á framandi slóðum. „Ég byrjaði að ganga fyrir rúmum áratug og hef verið með algjöra göngudellu æ síðan. Ég var fertug og formið var ekki upp á sitt besta. Ég hætti að reykja, byrjaði að fara í göngutúra sem urðu með tíman- um lengri og lengri,“ segir Hjör- dís Harðardóttir, göngukona með meiru. Hjördís hefur gengið vítt og breitt um Ísland en hún lætur það ekki duga því síðustu þrjú árin hefur hún skipulagt og stýrt gönguferðum um Pýreneafjöllin á Spáni á vegum ÍT-ferða. Hún er að skipuleggja enn eina ferð í Pýre- neafjöllin í haust en í millitíðinni ætlar hún að prófa spennandi gönguslóðir í Slóveníu. „Slóvenía er mjög spennandi enda náttúran alveg einstök. Við leggjum upp 16. júní með 45 manna hóp og ætlum að ganga í sex daga um hinn fræga Triglav- þjóðgarð sem er austasti hluti Alpafjallanna. Það er mikil menn- ing og saga á þessum slóðum og við fetum í fótspor Hemingways því bók hans, Vopnin kvödd, gerist á þessum slóðum,“ segir Hjördís. Hún segir innfædda leiðsögumenn fylgja hópnum allan tímann. Ekki er hægt að bæta farþegum í þenn- an hóp en vegna fjölmargra fyrir- spurna kann að svo að fara að efnt verði til annarrar ferðar í sumar. Hjördís segir gönguferð af þessu tagi ekki mjög erfiða en vissulega sé fólk á göngu mestan- part dagsins. „Hver og einn þarf að bera föt til skiptanna og hingað til hefur fólk ekki kvartað undan því. Það er ekki hægt að hugsa sér skemmtilegri ferðamáta og fólk nýtur náttúrunnar og umhverfis- ins með allt öðrum hætti en þegar ferðast er í bíl eða lest. Það mynd- ast ótrúlega skemmtileg stemning í gönguhópnum og fólk nýtur úti- verunnar og samverunnar til hins ítrasta.“ Hún segir mikilvægt að fólk komi sér í form fyrir ferðina, þá verði lífið léttara og þar með skemmtilegra. „Ef fólk kemst upp á Esjuna og getur hreyft sig daginn eftir þá er allt í fína lagi. Esjan er góður mælikvarði,“ segir Hjördís Harðardóttir. Hægt er að kynna sér gönguferðirnar á heimasíðu ÍT-ferða á netinu. ■ Króatía Lonely Planet sem gefur út þekktar ferðahandbækur fékk starfsfólk sitt til að velja fimm áhugaverðustu áfangastaðina fyrir árið 2005. Króatía var þar efst á lista og þykir einn fallegasti staðurinn í Evrópu. Kína kom næst á listanum og Argentína þar á eftir.[ ] Síðdegisgöngur, dagsferðir, skíðaferðir, helgarferðir, sumarleyfisferðir, jeppaferðir, hjólaferðir .......... Kíktu á utivist.is Laugavegi 178, sími 562 1000 www.utivist.is Bankastræti 10 + Sími 562 23 62 + info@exit.is + www.exit.is Færð þú MasterCard Ferðaávísun? Au pair býr hjá gistifjölskyldu, aðstoðar við barnagæslu og heimilisstörf og tekur þátt í daglegu lífi gistifjölskyldunnar. Að launum fær au pair vasapening, frítt fæði og húsnæði, frítt flug til og frá Bandaríkjunum auk 500 USD námsstyrks. Allar nánari upplýsingar liggja frammi á skrifstofu okkar eða á www.exit.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 27 00 4 0 1/ 20 05 *Innifalið: Flug, flugvallarskattar og eldsneytisgjald Verð frá 36.900 kr.* Netsmellur til USA Bandaríkjaferðir á frábæru verði Bókaðu á www.icelandair.is hertzerlendis@hertz.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H ER 2 72 20 02 /2 00 5 14.300 Vika á Ítalíu * Opel Corsa eða sambærilegur 50 50 600 1000 Vildarpunktar til 12. mars kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. *Verð á viku miðað við 14 daga leigu. Esjan mælir best getu fólks www.plusferdir.is 29.495 kr. N E T Alicante - páskar 19.-31. mars Netverð - flugsæti Plúsferðir • Hlí›asmára 15 • 201 Kópavogur • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is á mann. Innifalið: Flug og flugvallarskattar. Verð miðast við að bókað sé á netinu, ef bókað er í síma eða á skrifstofu bætast 2.000 kr. við hverja bókun. Náttúrufegurðin þykir einstök í Triglav-þjóðgarðinum. Kjartan fararstjóri mun sjá til þess að fjölskyldustemning ríki innan sem utan vallar. Fjölskyldan spilar golf Nýr áfangastaður á Spáni þar sem unglingar fá frítt á golfvöllinn. Fjölskyldugolf á Spáni er nýj- ung sem ferðaskrifstofan Úr- val Útsýn boðar í vor. Hug- myndin er að skapa fjöl- skyldustemningu innan sem utan golfvallar undir styrkri stjórn Kjartans L. Pálssonar. Áfangastaðurinn heitir Valle del Este og er nýtt golfsvæði í um liðlega tveggja tíma akstursfjarlægð frá flugvell- inum í Alicante. Innifalið í ferðinni er ótak- markað frítt golf fyrir 18 ára og yngri. Kjartan mun blanda unglingum og foreldrum sam- an í ráshópa auk þess að bjóða skemmtilegar skoðunarferðir. Fyrsta ferðin í fjölskyldugolf verður farin 25. maí nk. og hægt er að dvelja í eina til þrjár vikur. ■ Smáauglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is Hjördís Harðardóttur ásamt sínum besta félaga á göngu, heimilishundin- um Emil. Þau hafa farið vítt og breitt um landið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.