Fréttablaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 38
Í byrjun næsta mánaðar verða kynntar síðustu niðurstöður rann- sóknar um gagnsemi þess að kæla sjúklinga sem lent hafa í hjarta- stoppi, en þær sýna að lífslíkur sjúklinga hafa aukist um meira en helming. Meðferðin snýst um að sjúklingum sem misst hafa meðvit- und í hjartastoppi er haldið sofandi á meðan líkami þeirra er kældur niður í 32 gráður í einn sólarhring. Felix Valsson, sérfræðingur í svæfingalækningum á Landspítala – háskólasjúkrahúsi við Hring- braut, fer fyrir hópnum sem unnið hefur rannsóknina. „Við verðum með kynningu á síðu á ársþingi svæfinga- og gjörgæslulækna og skurðlækna 11. og 12. mars. Síðustu niðurstöður sýna að kælingin hefur stórbætt árangur þessa sjúklinga- hóps, frá því að vera að í kringum 30 prósent lifðu af gjörgæslu- dvölina, upp í að yfir 75 prósent lifa af,“ segir hann og segir lækna mjög stolta af þessari nýju læknisaðferð. „Við fundum þetta mjög fljótlega. Sjúklingar sem maður vissi í gamla daga að væru vonlausir, koma núna gangandi með konfektkassa til okkar.“ Rannsóknin á gagnsemi kæling- ar fékk í fyrra 200 þúsund króna styrk frá Vísindasjóði Landspítala – háskólasjúkrahúss, en hafið var að kæla sjúklinga með þessum hætti í mars/apríl 2002. „Þetta hefur verið mitt helsta rannsóknarverkefni eftir að ég kom heim úr námi,“ segir Felix, en hann er með doktorspróf frá há- skólanum í Gautaborg. Kælimeð- ferðin hefur nokkrum sinnum kom- ist í hámæli eftir að hafnar voru til- raunir með hana hér. Til dæmis þótti með ólíkindum að unglingur sem lá við drukknun í Breiðholts- laug skyldi ná sér að fullu og svo naut líka skemmtikrafturinn Hermann Gunnarsson góðs af kæli- meðferð eftir hjartastopp. Felix segir ekki að fullu ljóst hvað kælingin gerir. „En hún virð- ist snúa við og hindra skemmdir sem verða vegna súrefnisskorts til heilans,“ segir hann, en þegar súr- efnisflæði stöðvast fara strax eftir fjórar mínútur að verða miklar skemmdir á heilanum sem hingað til hefur verið talið að væru óaftur- kræfar. „Svo virðast þessar skemmdir halda áfram miklu lengur en maður bjóst við og eru í gangi í marga klukkutíma og jafn- vel sólarhringa eftir að áfallið verður.“ Felix segir kælinguna eina merkustu nýjung sem komið hefur fram í gjörgæslumálum síðustu ár og jafnvel áratugi, en núna er henni beitt við alla sjúklinga sem ekki vakna upp af sjálfsdáðum eftir hjartastopp. „Hér á landi hafa núna verið kældir niður yfir 80 sjúkling- ar,“ segir hann, en eftir meðferðina er fólk hitað upp í hálfan annan sólarhring áður en það er svo vakið úr svæfingu. Felix segir þó nokkra leggja fyrir sig svæfingalækningar enda sé þar um að ræða afar fjölbreytt starf innan læknisfræðinnar. „Ég er formaður Svæfinga- og gjör- gæslulæknafélags Íslands og í því eru allavega 50 meðlimir. Ætli við séum ekki í kringum þrjátíu starf- andi á landinu núna,“ segir hann og telur góða endurnýjun í faginu. „Það er alltaf fólk í útlöndum að læra fagið. Þetta er ein af allra skemmtilegustu sérgreinum læknisfræðinnar, tel ég, en ég er auðvitað svolítið litaður.“ Að sögn Felix sjá svæfingalæknar alfarið um gjörgæslu sjúkrahúsanna. „Við komum því að öllum bráða- atvikum, gjörgæslu og sjáum um veikustu sjúklingana á sjúkrahús- unum.“ Hin hliðin á starfinu segir hann svo vera þjónustu við fólk á leið í aðgerð, svo sem um- sjá svæfinga og deyfinga. „Svo kemur þar inn í alls konar verkja- meðferð, til dæmis fyrir konur í fæðingu, þannig að starfið er mjög fjölbreytt.“ ■ 22 24. febrúar 2005 FIMMTUDAGUR STEVEN PAUL JOBS (1955-) fæddist þennan dag. Rannsakar gagnsemi kælingar sjúklinga TÍMAMÓT: FIMMTUGUR SVÆFINGALÆKNIR „Það er ekki hægt að spyrja fólk hvað það vill og reyna svo að uppfylla óskir þess. Þegar maður er tilbúinn með hlutinn, þá vill fólk nefnilega fá eitthvað nýtt.“ Steve Jobs er best þekktur fyrir að hafa í félagi við Steve Wozniak stofn- að Apple-tölvufyrirtækið. Hann er af mörgum talinn til markverðustu frumkvöðla heims á sviði tölvu- og upplýsingatækni. timamot@frettabladid.is FELIX VALSSON Felix Valsson svæfingalæknir sem í dag fagnar fimmtugsafmæli sínu í faðmi fjölskyldunnar kynnir innan skamms nýjustu niðurstöður rannsóknar um gildi þess að kæla sjúklinga sem lent hafa í súrefnisskorti og er hætt við heilaskaða af þeim sökum. Þennan dag árið 1981 bundu prinsinn af Wales og lafði Díana Spencer enda á vangaveltur sem staðið höfðu mánuðum saman um samband þeirra. Boðað var til blaðamannafundar við Buckingham-höll og trúlofun þeirra gerð opinber. Karl Bretaprins hafði beðið lafði Díönu þremur vikum fyrr í kvöldverðarboði áður en hún átti að halda til Ástralíu. Hann hafði hugsað sér að hún gæti nýtt ferða- lagið til að hugleiða bónorðið, en hún samþykkti þegar ráðahaginn. Þrátt fyrir mikinn áhuga fólks tókst þeim að halda trúlofuninni leyndri um sinn. Þau giftu sig svo í „brúðkaupi aldarinnar“ 29. júlí sama ár. Við athöfnina voru um 3.500 gestir, en áætlað er að um 750 milljón manns um heim allan hafi fylgst með í beinni útsendingu sjónvarps. Frumburður þeirra Karls og Díönu, Vilhjálmur, kom svo í heiminn innan við ári síðar, 21. júní 1982. Um það leyti sem Harry prins kom í heiminn, 15. september 1984, var hins vegar orð- ið ljóst að brestir voru komnir í hjónabands- sæluna. Karl og Díana skildu að borði og sæng árið 1993 og formlega árið 1996. Díana upplýsti um eigið framhjáhald og Karls í heimildarþætti í breska ríkisútvarpinu í nóvember árið 1995. Eftir skilnaðinn var Díana áfram áberandi persóna í fjölmiðlum. Hún tók þátt í margvíslegu hjálparstarfi, svo sem fyrir börn, útigangsfólk, fatlaða og alnæmissjúka og -smitaða. Þá barðist hún ötullega fyrir banni við notkun og framleiðslu jarðsprengja. Lafði Díana Spencer fórst svo í bílslysi í París 31. ágúst 1997. 24. FEBRÚAR 1981 Karl og Díana tilkynntu um trúlofun sína og fyrirhugaða giftingu. ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1630 Skálholtsstaður brann til kaldra kola. Þrettán hús eyðilögðust og mikið af verðmætum munum. 1863 Forngripasafn Íslands stofnað. Á fimmtíu ára af- mælinu var nafninu breytt í Þjóðminjasafn Íslands og þjóðháttadeild stofnuð á hundrað ára afmælinu. 1920 Stjórnmálahreyfing nasista verður til í Þýskalandi. 1924 Styttan af Ingólfi Arnarsyni afhjúpuð á Arnarhóli. 1924 Íhaldsflokkurinn stofnaður af fimm þingmönnum sem síðar mynduðu Sjálfstæðis- flokkinn með þingmönn- um Frjálslynda flokksins. 1946 Juan Peron er kjörinn for- seti Argentínu og situr í þrjú kjörtímabil. 1957 Sjómannasamband Íslands stofnað. Trúlofun Karls og Díönu opinberuð Ástkær faðir minn, Stefán Eiríksson Aðalbraut 36, Raufarhöfn, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 21. febrúar. Hildur Rannveig Stefánsdóttir og fjölskylda. Okkar hjartfólgni faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Ingvar Björnsson frá Gafli, lést 9. febrúar sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins lá- tna. Þökkum hlýju og vinsemd. Smári Þröstur Ingvarsson, Gréta Alfreðsdóttir, Úlfheiður Kaðlín Ingvars- dóttir, Richardt Svendsen, Auðbjörg Nanna Ingvarsdóttir, Þorbergur Leifsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir og amma, Þórey Ólöf Halldórsdóttir Skálateig 1, Akureyri, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut þann 15. febrúar síðastliðinn, verður jarðsungin frá Glerárkirkju föstudaginn 25. feb. kl. 14.00. Halldóra St. Gestsdóttir, Katrín Anna Sigurðardóttir, Sigurður J. Sigurðsson, Margrét Harpa Jónsdóttir, Sólrún Dögg Jónsdóttir, Halldór Árnason, barnabörn og aðrir aðstandendur. ANDLÁT Arnþrúður Sigurðardóttir, hjúkrunar- heimilinu Eir, lést miðvikudaginn 9. febr- úar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Oddur Kristjánsson, Steinum, Stafholts- tungum, lést fimmtudaginn 17. febrúar. Guðni Friðþjófur Pálsson lést föstudag- inn 18. febrúar. Sigursteinn G. Melsteð, Ásvegi 21, Breiðdalsvík, lést föstudaginn 18. febrúar. Valgerður Pálsdóttir, Kálfafelli, lést sunnudaginn 20. febrúar. Hersteinn Pálsson, fyrrverandi ritstjóri, Eiðismýri 30, Seltjarnarnesi, lést mánu- daginn 21. febrúar. Katrín Jónsdóttir, Eskihlíð 26, Reykjavík, lést mánudaginn 21. febrúar. Stefán Eiríksson, Aðalbraut 36, Raufar- höfn, lést mánudaginn 21. febrúar. Unnur Guðmundsdóttir, Sunnuhvoli, Stokkseyri, lést mánudaginn 21. febrúar. Sigurveig Jóhannesdóttir, Árskógum 6, Reykjavík, lést þriðjudaginn 22. febrúar. Steinunn Jónsdóttir, Kleppsvegi 62, áður Skipasundi 30, lést þriðjudaginn 22. febrúar. JARÐARFARIR 13.00 Jón Eiríksson, frá Þrasastöðum í Fljótum, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju. 13.00 Tryggvi Sverrir Thorarensen, Bergþórugötu 16, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu. 13.30 Sigríður Jónsdóttir Trampe, frá Litla Dal, dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju. 14.00 Sigfús Guðni Sumarliðason, frá Ólafsvík, verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju. 15.00 Friðgeir Grímsson, verkfræðingur, fyrrverandi öryggismálastjóri ríkis- ins, Hrafnistu Hafnarfirði, áður Sundlaugavegi 24, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Hallgríms- kirkju. FÆDDUST ÞENNAN DAG AFMÆLI Gunnar Eyjólfsson leikari er 79 ára í dag. Engilbert Jensen söngvari er 64 ára í dag. Ingimundur Gíslason augnlæknir er sextugur í dag. Bolli Þór Bollason, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneyti, er 58 ára í dag. Valgerður Magnúsdóttir sálfræðingur er 56 ára í dag. ■ LEIÐRÉTTING Þau leiðu mistök urðu í mynda- texta á tímamótasíðunni í gær að nýr formaður Félags eldri borg- ara var rangfeðraður. Hún heitir Margrét og er Margeirsdóttir. Hún tekur við formennsku í fé- laginu af Ólafi Ólafssyni, fyrrum landlækni. 1304 Ibn Battuta, arabískur landkönnuður. 1463 Giovanni Pico della Mirandola, heimspekingur. 1619 Charles Le Brun, listmálari. 1786 Wilhelm Grimm, rithöfundur. 1852 George Augustus Moore, rithöf- undur. 1887 Mary Ellen Chase, fræðikona og rithöfundur. 1922 Steven Hill, leikari. 1934 Bettino Craxi, fyrsti forsætisráð- herra sósíalista á Ítalíu. 1938 James Farentino, leikari. 1945 Alain Prost, kappakstursökumaður. 1945 Barry Bostwick, leikari. 1947 Edward James Olmos, leikari. 1951 Debra Jo Rupp, leikkona. 1951 Helen Shaver, leikkona. 1959 Beth Broderick, leikkona. 1964 Todd Field, leikari og leikstjóri. 1966 Billy Zane, leikari. 1973 Oscar de la Hoya, hnefaleikakappi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.