Fréttablaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 40
24 24. febrúar 2005 FIMMTUDAGUR
Við vorkennum...
... Eiði Smára Guðjohnnsen sem sat á varamannabekknum hjá Chelsea fyrstu sjötíu og
fimm mínútur leiksins gegn Barcelona í gærkvöld jafnvel þótt Jose Mourinho,
knattspyrnustjóri liðsins, hefði tilkynnt að hann yrði í byrjunarliðinu daginn fyrir leik. Eiður
Smári kom inn á sem varamaður á 75. mínútu og komst aldrei í takt við leikinn.
„Þetta var alls ekki mikill hasar og það var
hlægilegt af Hlyni að gefa krossinn út af þessu.“
Haraldur Þorvarðarson, línumaður Selfyssinga, fékk krossinn í leik Selfoss og
Stjörnunnar á föstudaginn og var fyrir vikið dæmdur í þriggja leikja bann
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
21 22 23 24 25 26 27
Fimmtudagur
FEBRÚAR
FÓTBOLTI Barcelona bar sigurorð af
Chelsea, 2–1, í fyrri leik liðanna í
sextán liða úrslitum meistara-
deildarinnar á Nou Camp í
gærkvöld. Leikmenn Barcelona
voru mun sterkari aðilinn í
leiknum og það bætti ekki úr skák
að liðið þurfti að spila einum
manni færri síðustu 35 mínútur
leiksins.
Barcelona byrjaði leikinn af
krafti og bæði Ronaldinho og
Samuel Eto’o fengu góð færi á
fyrstu fjórum mínútum leiksins
sem þeim tókst ekki að nýta.
Barcelona hafði mikla yfirburði
og fyrsta hálftímann virtist að-
eins vera tímaspursmál hvenær
heimamenn skoruðu fyrstu
markið.
Það var því eins og köld
vatnsgusa framan í leikmenn
Barcelona þegar Chelsea komst
yfir á 33. mínútu. Frank Lampard
átti þá frábæra sendingu inn fyrir
vörn Barcelona þar sem Damien
Duff var á auðum sjó. Duff sendi
boltann fyrir markið þar sem
brasilíski bakvörðurinn Julio
Belletti varð fyrir því óláni að
setja boltann í eigið mark. Leik-
menn Barcelona virtust vera
slegnir út af laginu því mínútu
síðar fékk Didier Drogba, sem var
í byrjunarliði Chelsea í stað Eiðs
Smára Guðjohnsen, dauðafæri
sem honum tókst ekki að nýta.
Leikmenn Chelsea réðu lögum og
lofum á vellinum það sem eftir
lifði hálfleiksins en náðu ekki að
auka muninn.
Það dró til tíðinda þegar ellefu
mínútur voru liðnar af síðari hálf-
leik. Þá fékk Didier Drogba, fram-
herji Chelsea, sitt annað gula
spjald og rautt í framhaldinu. Við
það fóru leikmenn Chelsea í skot-
grafirnar og héldu leikmenn
Barcelona uppi mikilli pressu að
marki Chelsea. Sú pressa bar
árangur á 67. mínútu þegar vara-
maðurinn Maxi Lopez jafnaði
metin eftir góðan undirbúning hjá
Samuel Eto’o og Ronaldinho.
Kamerúnski framherjinn Samuel
Eto’o, sem var með miklar yfirlýs-
ingar fyrir leikinn, stóð síðan við
stóru orðin sex mínútum síðar
þegar hann kom Barcelona yfir
með fallegu marki. Hann skaust
á milli John Terry og Ricardo
Carvalho og sendi boltann í netið
framhjá Petr Cech, markverði
Chelsea eftir að Lopez hafði sent
boltann inn í teiginn.
Eiður Smári Guðjohnsen kom
inn á sem varamaður þegar stund-
arfjórðungur var til leiksloka
fyrir Damien Duff en náði ekki að
setja mark sitt á leikinn enda
erfitt þar sem Chelsea lagði litla
áherslu á sóknarleikinn síðustu
fimmtán mínútur leiksins.
Barcelona sótti stíft undir
lokin en tókst ekki að bæta við
mörkum.
Leikmenn Chelsea geta prísað
sig sæla að sleppa með eins marks
tap frá Nou Camp og eru í góðri
stöðu fyrir síðari leikinn á
Stamford Bridge eftir tvær vikur.
oskar@frettabladid.is
SAMUEL ETO’O VAR HETJA BARCELONA Kamerúnski framherjinn sést hér fagna
sigurmarki sínu gegn Chelsea í gærkvöld.
Eto’o stóð við stóru orðin
Kamerúnski framherjinn Samuel Eto’o hjá Barcelona var með stórkarlalegar
yfirlýsingar fyrir leikinn og stóð undir þeim með sigurmarki leiksins gegn tíu
manna Chelsea-liði á Nou Camp í meistaradeildinni í gærkvöld. LEIKIR
19.00 ÍR og Fylkir mætast í
Egilshöll á Reykjavíkurmóti kvenna í
knattspyrnu.
19.15 Skallagrímur og Keflavík
eigast við Borgarnesi í
Intersportdeild karla í körfuknattleik.
19.15 Hamar/Selfoss og Haukar
eigast við í Hveragerði í
Intersportdeild karla í körfuknattleik.
19.15 KR og ÍR eigast við í DHL-
höllinni í Intersportdeild karla í
körfuknattleik.
19.15 UMFN og Tindastóll eigast
við í Njarðvík í Intersportdeild karla í
körfuknattleik.
19.15 Snæfell og Fjölnir eigast við
í Stykkishólmi í Intersportdeild karla í
körfuknattleik.
20.00 Stjarnan og Keflavík
mætast á Stjörnuvelli á Faxaflóamóti
kvenna í knattspyrnu.
20.00 FH og ÍA mætast á
Kaplakrikavelli á Faxaflóamóti
kvenna í knattspyrnu.
SJÓNVARP
16.45 Handboltakvöld á Rúv.
18.30 World Football Show
Fótbolti um víða veröld á Sýn.
19.00 Inside the US PGA Tour
Bandaríska mótaröðin í golfi á Sýn.
19.30 European PGA Tour
Evrópska mótaröðin í golfi á Sýn.
20.30 Þú ert í beinni á Sýn.
21.30 Íslandsmótið í bekkpressu
á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
23.15 Þú ert í beinni á Sýn.
Meistaradeild Evrópu
BARCELONA–CHELSEA 2–1
0–1 Juliano Belletti, sjálfsm. (33.), 1–1 Gaston
Maxi Lopez (67.), 2–1 Samuel Eto’o (73.).
MAN. UTD–AC MILAN 0–1
0–1 Hernan Crespo (79.).
WERDER BREMEN–LYON 0–3
0–1 Sylvain Wiltord (9.), 0–2 Mahamadou Diarra
(78.), 0–3 Juninho Pernambucano (80.)
PORTO–INTERNAZIONALE 1–1
0–1 Obafemi Martins (24.), 1–1 Ricardo Costa
(62.)
1. deild kvenna í körfu
GRINDAVÍK–HAUKAR 55–77
Stig Grindavíkur: Ólöf Helga Pálsdóttir 16, Erla
Þorsteinsdóttir 10, Erla Reynisdóttir 9, Sólveig
Gunnlaugsdóttir 9.
Stig Hauka: Helena Sverrisdóttir 22 (16 frák., 9
stoðs.), Ebony Shaw 20 (8 frák.), Pálína
Gunnlaugsdóttir 10, Kristrún Sigurjónsdóttir 7.
KEFLAVÍK–ÍS 71–68
Stig Keflavíkur: Alex Stewart 23, Anna María
Sveinsdóttir 17, María Ben Erlingsdóttir 13, Birna
Valgarðsdóttir 9, Bryndís Guðmundsdóttir 5 (9
frák.), Rannveig Randversdóttir 4 (8 frák.)
Stig ÍS: Angel Mason 19 (11 frák.), Stella Rún
Kristjánsdóttir 16, Signý Hermannsdóttir 14 (15
frák.), Alda Leif Jónsdóttir 9, Þórunn Bjarnadóttir
8.
NJARÐVÍK–KR 77–52
Stig Njarðvíkur: Jamie Woudstra 17 (10 frák.),
Ingibjörg Elfa Vilbergsdóttir 16, Margrét Kara
Sturludóttir 10, Emma Hanna Einarsdóttir 9, Vera
Janjic 8.
Stig KR: Hanna Kjartansdóttir 14, Gréta María
Grétarsdóttir 10, Sigrún Skarphéðinsdóttir 7,
Helga Þorvaldsdóttir 6.
STAÐAN
KEFLAVÍK 18 15 3 1435–1142 30
GRINDAVÍK 18 12 6 1109-1092 24
ÍS 18 10 8 1168–1099 20
HAUKAR 18 9 9 1210–1238 18
NJARÐVÍK 18 6 12 1101–1169 12
KR 18 2 16 1044-1330 4
Danski handboltinn
SKJERN–ÅRHUS GF 28–23
Jón Þorbjörn Jóhannsson skoraði fimm mörk og
Ragnar Óskarsson skoraði fjögur mörk fyrir
Skjern en Róbert Gunnarsson skoraði þrjú mörk
fyrir Århus.
Framlag íslenskra og erlendra leikmanna í Intersportdeild karla í körfubolta er mismikið og mismikilvægt:
Mikilvægi Sævars Inga hjá Haukum er mest
KÖRFUBOLTI Tölfræði körfuboltans
er margvísleg og gefur mönnum
margskonar upplýsingar um
frammistöðu leikmanna í Inter-
sportdeild karla. Það er enginn
einn tölfræðiþáttur sem nær yfir
mikilvægi leikmanna fyrir sín lið.
Framlagsjafna NBA-deildarinnar
metur heildarframlag leikmanna
til síns liðs en það þarf þó ekkert
að hafa bein tengsl við gengi liðs-
ins.
Fréttablaðið hefur hins vegar
fundið leið til að meta mikilvægi
leikmanna með því að skoða gengi
liðanna þegar leikmenn skila góð-
um leikjum (yfir 20 í framlagi) í
samanburði í gengi liðsins þegar
þeir eiga lakari leiki (undir 20 í
framlagi). Menn verða að hafa
skilað að minnsta kosti fjórum
leikjum yfir 20 í framlagi til þess
að komast á listann.
Það er hinn 21 árs gamli fyrir-
liði Haukanna, Sævar Ingi
Haraldsson, sem er efstur á blaði
þegar þessi mælikvarði á mikil-
vægi leikmanna er skoðaður.
Sævar Ingi hefur skorað 12,7 stig
og gefið 6,9 stoðsendingar að með-
altali og er með meðalframlag
upp á 16,3 stig hjá Haukunum í
vetur. Sævar Ingi hefur verið yfir
20 stig í framlagi í sex leikjum og
Haukarnir hafa unnið fimm
þeirra (83,3%) en í þeim leikjum
sem Sævar Ingi hefur ekki náð
framlagi sínu upp í 20 stig þá hafa
aðeins 2 af 13 leikjum unnist hjá
Haukum (15,4%). Hér munar
67,9% á gengi liðsins.
Friðrik Stefánsson hefur
einnig veigamiklu hlutverki að
sinna hjá Njarðvík og liðið hefur
þannig unnið 10 af 11 leikjum þar
sem hann hefur náð yfir 20 í fram-
lagi (90,9%) en aðeins 37,5%
leikjanna (3 af 8) hafa unnist þeg-
ar Friðrik Stefánsson er undir
meðallagi en hann er með 13,6
stig, 9,7 fráköst og 2,7 varin skot
að meðaltali í leik í vetur.
Darrel Lewis hefur gríðarlega
mikilvægu hlutverki að gegna hjá
Grindavík en liðið hefur tapað öll-
um þremur leikjunum sem hann
hefur ekki náð yfir 20 í framlagi
en hann er með 27,8 stig, 7,9 frá-
köst og 5,2 stoðsendingar að með-
altali í leik til þessa í vetur.
Fjórði maðurinn sem er í sér-
flokki á þessum lista er Marvin
Valdimarsson hjá Hamri/Selfoss
en hann hefur leikið mjög vel í
vetur og framlag hans skiptir lið-
ið miklu máli. Það munar þannig
48,3% á sigurhlutfalli liðsins
hvort hann nær yfir 20 í fram-
laginu eða ekki en Marvin er með
13,9 stig að meðaltali og hefur
nýtt 52% skota sinna og 83%
vítanna.
Hjá erlendu leikmönnunum er
mikilvægi Darrel Flake gríðar-
lega mikið, liðið hefur ekki unnið
leik í þau þrjú skipti sem hann
hefur farið undir 20 í framlagi en
75% hinna leikjanna sextán. Fé-
lagi Flake hjá Fjölni Nemanja
Sovic er í þriðja sætinu en á milli
þeirra er nýi Kaninn hjá Skalla-
grími George Byrd sem hefur
styrkt liðið með komu sinni.
Það vekur þó mikla athygli að
frammistaða Kananna hjá toppliði
Keflavíkur hefur lítið með gengi
liðsins að gera, Keflavíkurliðinu
gengur betur í þeim leikjum þar
sem Anthony Glover (-27,3%) og
Nick Bradford (-15,4%) eru að
gera minna sem sýnir kannski enn
frekar hversu breidd liðsins er
Keflvíkingum mikils virði. -óój
MIKILVÆGASTIR:
Íslenskir leikmenn
Sævar I. Haraldsson, Haukum +67,9%
Friðrik Stefánsson, Njarðvík +53,4%
Darrel Lewis, Grindavík +50%
Marvin Valdimarss., Ham./Self. +48,3%
Páll Axel Vilbergss., Grindav. +35,9%
Brenton Birmingh., Njarðvík +27,4%
Ómar Sævarsson, ÍR +21,7%
Magnús Þ. Gunnarss., Keflav. +21,4%
Eiríkur Önundarson, ÍR +17,9%
Pétur Már Sigurðsson, KFÍ +17,9%
Erlendir leikmenn
Darrel Flake, Fjölni +75%
George Byrd, Skallagrími +42,9%
Nemanja Sovic, Fjölni +41,7%
Damon Bailey, Hamar/Selfoss +41,2%
Clifton Cook, Skallagrími +38,6%
MIKILVÆGASTI MAÐURINN Sævar Ingi Haraldsson hjá Haukum hefur skilað stóru
hlutverki með mikilli prýði í vetur, auk 12,7 stiga og 6,9 stoðsendinga að meðaltali þá
munar það öllu fyrir liðið að hann eigi góðan leik.
LEIKIR GÆRDAGSINS
LEIKIR GÆRDAGSINS
DHL-deild karla
ÍBV–ÞÓR AK. 29–30
Mörk ÍBV: Samúel Ívar Árnason 6/2, Kári Kristján
Kristjánsson 5, Davíð Þór Óskarsson 4, Robert
Bognar 4, Zoltan Belanyi 3, Sigurður Ari
Stefánsson 2, Svavar Vignisson 2, Sigurður
Bragason 1, Grétar Eyþórsson 1, Tite Kalandaze
1.
Mörk Þórs Ak.: Bjarni Gunnar Bjarnason 7, Árni
Þór Sigtryggsson 5, Aigars Lazdins 4, Cedric
Åkerberg 3, Goran Gusic 3, Sindri Haraldsson 3,
Sindri Viðarsson 2, Elvar Alfreðsson 2, Sigurður B.
Sigurðsson 1.
STAÐAN
HK 9 6 0 3 290-266 12
HAUKAR 9 5 1 3 285-268 11
KA 9 4 2 3 271-270 10
ÍR 9 5 0 4 281-275 10
VALUR 9 4 0 5 233-249 8
ÞÓR AK. 9 4 0 5 256-278 8
ÍBV 9 3 1 5 269-264 7
VÍKINGUR 9 3 0 5 245-260 6
Þýski handboltinn
WILHELMSHAVENER–KIEL 32–42
Gylfi Gylfason skoraði ekki fyrir Wilhelmshaven-
er.
POST SCHWERIN–PFULLINGEN 22–23
ESSEN–HAMBURG 30–25
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö mark fyrir
Essen.
MINDEN–GÖPPINGEN 22–26
Patrekur Jóhannesson skoraði eitt mark fyrir
Minden en Jaliesky Garcia skoraði þrjú mörk
fyrir Göppingen. Andrius Stelmokas, fyrrum
línumaður KA, skoraði fjögur mörk fyrir
Göppingen.
LÜBBECKE–WETZLAR 27–27
Róbert Sighvatsson skoraði tvö mörk fyrir Wet-
zlar.
DÜSSELDORF–GROSSWALLSTADT 26–26
Alexander Petersson skoraði fimm mörk fyrir
Düsseldorf og Einar Hólmgeirsson skoraði fimm
mörk fyrir Grosswalstadt.
LEMGO–NORDHORN 31–27
Logi Geirsson skoraði níu mörk fyrir Lemgo og
var markahæstur í liðinu.