Fréttablaðið - 24.02.2005, Side 45
FIMMTUDAGUR 24. febrúar 2005 33
Hugsaðu
smátt!
*Miðað við 12 jafnar vaxtalausar greiðslur á Visa eða Mastercard skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist með jöfnum greiðslum yfir samningstímann.
www.sonycenter.is
Kauptu Sony
hjá Sony
DSC-T1
Stafræn Myndavél
• 5 milljón pixlar
• 3x aðdráttur um Carl Zeiss linsu
• 2,5" Skjár • tengistöð.
Verð 4.165 krónur
vaxtalaust* í 12 mán. eða 49.980 krónur staðgreitt.
•
Sony CyberShot DSC-T1
Vasavélin með
stóra skjánum
EISAverðlaunin 2004-2005!
Stamina tæknin
hjá Sony sparar orku
og tryggir þér lengri
endingu á rafhlöðunum.
Carl Zeiss linsa
með 3x optical
aðdrætti frá stærsta
linsuframleiðanda heims.
256MB minniskort
á aðeins 995 krónur með
myndavél. Venjluegt verð er
8.495 krónur.
DSC-L1
Stafræn Myndavél
• 4,1 milljón pixlar
• 3x aðdráttur um Carl Zeiss linsu
• 1,5" skjár
Verð 3.499 krónur
vaxtalaust* í 12 mán. eða 41.988krónur staðgreitt.
Segja vélina einu myndavélina
sem umsagnaraðili bar alltaf á sér.
Sony CyberShot DSC-L1
Hönnun og stíll
Hönnun
sem tek
ið
er eftir!
995 krónur
með mynda-
vél!
995 krónur
með mynda-
vél!
Þessa dagana stendur yfir kynn-
ing á spænskum og portúgölskum
í Vínbúðunum undir yfirskriftinni
Olé! Vert er að benda á fróðlegan
bækling sem dreift er í búðunum
og ágætum framsetningum á vín-
um frá svæðinu sem eru sérmerkt
í hillum og á sérstöku kynningar-
verði. Þau þrjú vín sem kynnt eru
hér eru öll á kynningarverði en
þau eru vel kunn íslenskum vín-
áhugamönnum sem taka eflaust
þessu framtaki Vínbúðanna fagn-
andi.
Portúgal næsta
stjörnulandið?
Það hallar töluvert á portúgölsk vín á
íberískum dögum sem standa nú yfir í
Vínbúðunum. Nágrannar þeirra á Spáni
fá töluvert meira pláss enda spænsk vín
verið afar vinsæl hérlendis um árabil á
meðan portúgölsk vín hafa átt undir
högg að sækja ef undan eru skilin port-
vín sem ævinlega njóta töluverðra vin-
sælda. Úrvalið á íberískum dögum end-
urspeglar þetta en þar eru í boði fjögur
portvín, eitt rósavín – hið kunna
Mateus, en aðeins eitt rauðvín, Prima-
vera Bairrada Reserva. Það virðist því
sem sú ætlun stjórnenda Vínbúðanna
að beina sjónum einnig að Portúgal
hafi ekki hlotið mikinn meðbyr innflytj-
enda en val þeirra endurspeglar aftur á
móti erfiða stöðu portúgalskra vína á ís-
lenskum markaði.
Sjötti stærsti framleiðandi heims
Er þetta miður því mikil gerjun hefur
verið í portúgalskri víngerð. Árum sam-
an hafa vínskríbentar verið að leita að
næsta „stjörnulandinu“ í vínheiminum.
Margir hafa litið til Portúgals og þeirrar
framþróunar sem þar á sér stað. Vín
þaðan hafa löngum verið hefðbundin
borðvín, einkum ætluð fyrir innan-
landsmarkað og portúgölsk léttvín ekki
lagt af baki margar mílur í vínheimum.
Þaðan hafa komið nokkur athyglisverð
vín undanfarin ár, með litlum gassa-
gangi þó. Það kemur sjálfsagt mörgum
á óvart hversu mikið er framleitt af víni
í Portúgal en landið er sjötti stærsti
vínframleiðandi heims þrátt fyrir lítið
landrými. Um fjórðungur af þeim sem
starfa að landbúnaði í landinu starfa
að vínrækt.
Góðir dómar
Í lokin skulum við líta á hvað nokkrir
heimsþekktir vínrýnar hafa að segja
um portúgölsk vín.
„Þrjóskan við að selja sig undir alþjóð-
lega tísku og það hversu óvænt vínin
eru gera Portúgal að jafn spennandi
vínlandi og raun ber vitni.“
Oz Clarke
„Portúgalar hafa ævinlega haft þann
undarlega sið að hugsa bara um að
vínin falli öðrum Portúgölum í geð
fremur en að búa til þær gerðir að vín-
um sem venjulega falla hinum dæmig-
erða alþjóðlega neytanda í geð.“
Jancis Robinson
„Landslagið og þrúgurnar í Portúgal er
ákaflega fjölbreytt. Beri Portúgalir gæfu
til þess að leyfa fjölbreytninni að end-
urspeglast í víninu og halda sínu striki
eru möguleikarnir óendanlegir.“
Kathryn McWhirter, Charles Metcalfe:
The Wines of Spain and Portugal
Las Campanas Crianza
Ótrúlega margslungið vín
frá Navarra. Oft kallað
„tapasvínið“ vegna þess
hve vel það passar með
fjölbreyttum mat. Vín
sem er sniðið fyrir
veislur þar sem smá-
réttir eru í boði.
Kynningarverð 1.040 kr.
Campo Viejo Reserva:
Vín sem fyrir löngu hefur
unnið hug og hjörtu lands-
manna. Kemur frá uppá-
haldsvínsvæði Íslendinga,
Rioja. Frábært vín fyrir þá
sem eru að leita eftir
mjúkum en í senn kraft-
miklum karakter.
Kynningarverð 1.290 kr.
Vín á kynningarverði á íberískum dögum
Marques de Arienzo Gran Reserva:
Nú gefst fólki kostur á að smakka
eitt ástsælasta vín Spánar á tilboðs-
verði. Frábært vín frá Rioja sem
margan hefur glatt bæði sem ne-
ysluvara og ekki síður sem gjöf,
þar sem útlit flöskunnar er glæsi-
legt.
Kynningarverð 1.590 kr.