Fréttablaðið - 25.02.2005, Síða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
60,7 60,98
115,72 116,28
80,39 80,83
10,80 10,86
9,75 9,81
8,86 8,91
0,58 0,58
92,75 93,31
GENGI GJALDMIÐLA 24.02.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
109,8 -0,29%
4 25. febrúar 2005 FÖSTUDAGURß
Dómur hæstaréttar í máli Blaðamannafélagsins gegn Frétt ehf:
Ber að virða ráðningarsamning
en ekki að greiða vangoldin laun
DÓMSMÁL Frétt ehf ber ekki að
greiða laun sem Fréttablaðið ehf
skuldaði blaðamanni þegar félagið
keypti rekstur Fréttablaðsins af
Fréttablaðinu ehf sem komið var í
þrot. Hins vegar ber Frétt ehf að
virða ráðningarsamning blaða-
mannsins við fyrri útgefanda og
greiða blaðamanninum laun frá
þeim tíma sem Fréttablaðið var
keypt þar til nýr samningur var
gerður. Einnig ber Frétt ehf að
greiða júlí- og desemberuppbót.
Með dómnum er viðurkennt að
aðilaskipti urðu þegar Frétt ehf
yfirtók rekstur Fréttablaðsins ehf.
Frétt ehf var því bundið af ráðning-
arsamningum en ekki af launa-
skuldum samkvæmt dómi hæsta-
réttar. Kröfum um vangoldin laun á
að beina að Ábyrgðarsjóði launa
sem hafnaði greiðslu þeirra
sumarið 2003.
Atli Gíslason, lögmaður Blaða-
mannafélagsins sem sótti málið, er
mjög ósáttur við niðurstöðuna sem
hann segir þrengja mjög gildissvið
laga um starfskjör við aðilaskipti á
fyrirtækjum. „Ég tel að þessi dómur
sé ekki í samræmi við tilskipanir
ESB, sem dómurinn byggir á. Það
var okkar skoðun að launaskuldirnar
falli á Frétt ehf en ekki Ábyrgðar-
sjóð launa. Við erum að íhuga að fá
því svarað hjá EFTA-dómstólnum,
hvort þessi niðurstaða standist.“
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður
Fréttar ehf, segist mjög sáttur við
þessa niðurstöðu hæstaréttar að
yfirtöku á rekstri fyrirtækis fylgi
ekki krafa um að greiða launaskuld-
ir gamla fyrirtækisins. - ss
Þjóðir bregðist
við hættunni
Þróun fuglaflensunnar, sem herjað hefur á Asíulönd, er óbreytt, að sögn for-
manns framkvæmdastjórnar WHO. Hann segir að þjóðir heims þurfi að
gera þær ráðstafanir sem hægt sé. Mesta hætta á heimsfaraldri frá árinu 1968.
HEILBRIGÐISMÁL Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunin telur ekki hafa verið
meiri hættu á heimsfaraldri síðan
á árinu 1968 vegna fuglaflens-
unnar. Þetta staðfestir Davíð
Á. Gunnarsson formaður fram-
kvæmdastjórnar Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar, WHO.
Davíð var síðast í sambandi við
stofnunina í Genf í gær. Hann
sagði að samkvæmt upplýsingum
þaðan væri ástandið óbreytt frá
síðasta fundi stjórnarinnar 20.
janúar 2005.
Davíð kvaðst telja að nýleg orð
dr. Shigeru Omi, fulltrúa stofnun-
arinnar, um vaxandi hættu væru
einungis sögð í framhaldi af því
sem rætt hefði verið á fundi fram-
kvæmdastjórnarinnar í janúar.
Þar væru ekki á ferðinni ný tíð-
indi. Hitt beri að hafa í huga að
þörf er á að vera á varðbergi
vegna yfirvofandi faraldurs.
„Nauðsynlegt er að þjóðir heims-
ins fari yfir viðbúnaðaráætlanir
og geri þær ráðstafanir sem hægt
er,“ sagði Davíð.
Hann sagði enn fremur að á
fundinum hefðu orðið umræður
um hvernig ætti að fjármagna lyf
og bóluefni ef fuglaflensa smitað-
ist milli manna. Rauði þráðurinn í
þeim umræðum hefði verið sá að
þjóðir heims ættu að eiga aðgang
að ódýrum lyfjum og bóluefni,
jafnt fátækari löndin sem hin
efnaðri.
Á fundinum var lögð fram
skýrsla um stöðu mála, að sögn
Davíðs. Hann sagði að niðurstaða
umræðna um hana hefði leitt til
samþykktar tillögu þess efnis að
öll aðildarríkin væru hvött til að
koma á viðbúnaði vegna heims-
faraldurs á inflúensu. Hann
skyldi miða að því að draga úr
heilsutjóni, svo og efnahagslegum
og félagslegum afleiðingum slíks
faraldurs. Stjórnin hefði lýst á
þessum fundi áhyggjum af al-
mennum ónógum viðbúnaði vegna
inflúensufaraldurs. Herða þyrfti
alþjóðlegt eftirlit í því tilliti.
„Þetta samþykkti stjórnin sem
tillögu til 58. þings Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar sem haldið
verður í maí næstkomandi,“ sagði
Davíð. „Tillagan verður áreiðan-
lega samþykkt á því þingi.“
jss@frettabladid.is
FAGNA NÝJU NAFNI
Jón B. Stefánsson skólameistari og
Þorgerður Katrín fengu sér kaffi og köku
ásamt nemendum Fjöltækniskólans.
Nýtt skólanafn:
Fjöltækni-
skóli Íslands
MENNTAMÁL Fjöltækniskóli Íslands
er nýtt nafn sameinaðs Stýrimanna-
skóla og Vélskóla Íslands. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir menntamála-
ráðhera svipti hulunni af nýja nafn-
inu í gærmorgun.
Skólarnir hafa verið reknir sem
ein heild síðan 2003 en haldið nöfn-
um sínum þar til nú. Nýja nafnið er
liður í því að skapa skólanum nýja
ímynd. Auk þess hefur tveimur
námsbrautum verið bætt við, sjávar-
útvegssvið og tæknisvið. Fyrir voru
skipstjórnarsvið, tæknisvið og end-
urmenntunarsvið. - bs
Félagsmálaráðherra:
Íhugar lög
um lóðaverð
LÓÐAVERÐ Árni Magnússon félags-
málaráðherra telur koma til
greina að setja lög um grunnlóða-
verð til að gera
verðmyndun lóða
gagnsæja.
„Ég vil skoða
það með sveitar-
félögunum hvort
ástæða sé til að
setja í lög hvaða
grunngildi það
eru sem eiga að
mynda verðlagn-
ingu lóða. Ég er
ekki að tala um
ríkisverðmiða,“
segir hann.
„Þetta grunn-
gildi liggur þá
lóðaverðinu til
grundvallar. Verðmyndun lóða er
þá gagnsæ. Þetta er þjónusta sem
sveitarfélagið á að veita en á ekki
að vera því til tekjuöflunar.“
- ghs
ÓGNVALDURINN MIKLI
Fuglaflensan hefur dregið tugi manna til
dauða í Víetnam og Taílandi, þar sem
myndin er tekin.
DAVÍÐ Á. GUNNARSSON „Nauðsynlegt
er að þjóðir heimsins fari yfir viðbúnaðar-
áætlanir og geri þær ráðstafanir sem
hægt er.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Friðarverðlaun Nóbels:
Aldrei fleiri
tilnefningar
NOREGUR, AP 199 einstaklingar og
félagasamtök voru tilnefnd til frið-
arverðlauna Nóbels þetta árið og
hefur fjöldi tilnefninga aldrei verið
meiri. Tilnefningarnar skiptust
milli 163 einstaklinga og 36 sam-
taka.
„Fjölgunin sýnir að það er enn
mikill áhugi fyrir verðlaununum,“
sagði Geir Lundestad, ritari nefnd-
arinnar sem velur verðlaunahafann.
Tilkynnt verður um hann í október.
Ekki er gefið upp hverjir eru til-
nefndir en vitað er til þess að Colin
Powell, fyrrum utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og írski söngvarinn
Bono voru tilnefndir. ■
Brotthvarf frá Gaza:
Ekki rífa
fyrirtækin
ÍSRAEL, AP Shimon Peres, varafor-
sætisráðherra Ísraels, hvatti til
þess á fundi með fjármálanefnd
ísraelska þingsins að eignir ísra-
elskra landnema yrðu ekki eyði-
lagðar eftir brotthvarfið frá Gaza
heldur seldar Palestínumönnum.
Ekki hefur verið tekin ákvörð-
un um hvað verði um heimili og
fyrirtæki á landnemabyggðum en
sumir hafa sagt að réttast sé að
eyðileggja byggingarnar. Þessu
andmælti Peres og sagði eyðilegg-
ingu án þess að nokkuð gott hefð-
ist af henni. „Ef hungur og fátækt
aukast daginn eftir brotthvarfið
frá Gaza eykst óánægjan og gref-
ur undan líkunum á friði.“ ■
ÁRNI
MAGNÚSSON
Félagsmálaráðherra
vill setja lög um
grunngildi sem
eiga að mynda
verðlagningu lóða.
Sýning í kvöld!
FYRSTA HÚSNÆÐI FRÉTTABLAÐSINS
Frétt ehf ber ekki að greiða vangoldin laun
Fréttablaðsins ehf við blaðamenn. Hins
vegar ber nýju félagi að virða ráðningar-
samning við fyrri útgefanda og greiða júlí-
og desemberuppbót.