Fréttablaðið - 25.02.2005, Blaðsíða 57

Fréttablaðið - 25.02.2005, Blaðsíða 57
Íslensk börn hafa löngum skemmt sér yfir ljóðum Þórarins Eldjárn. Hann er ekki svo lítill sá sjóður sem Þórarinn hefur af hugmyndaauðgi sinni og orðkynngi skapað handa krökkum á öllum aldri til að ausa úr. Ljóðaframlagið sem krakkarnir sjálfir setja í kassa fyrir sýningu bera þess merki að ljóðið er ekki á undan- haldi í málvitund íslenskra barna og kunnu áhorfendur vel að meta þegar leikararnir lásu upp ljóðin sem dreg- in voru úr kassanum í sýningarlok. Taumlaus flaumur orða svífur um leikrýmið. Rím og ljóðstafir á stöðug- um þeytingi og tónlist Atla Heimis lyfti þeim á enn hærra plan svo úr varð skemmtileg og skondin heildar- mynd þar sem leikararnir gáfu hverju orði og hverju ljóði líf og lit. Skræpóttir búningar í stíl við stór- an lírukassa sem þjónaði sýningunni vel. Aldrei fum, aldrei fát, ekkert lát á glettni og gamansemi. Ekki einasta eru ljóð Þórarins sniðuglega saman sett og bera því vitni hve höfundur- inn hefur þau vel á valdi sínu, heldur öðluðust þau mörg hver nýja dýpt og hver ný uppgötvun í hreyfingu eða í notkun á leikmunum gáfu orðunum aukna merkingu í tíma og rúmi. Sýning Möguleikhússins er í alla staði til fyrirmyndar. Leikararnir gáfu hvergi eftir og augljóst að leik- stjórinn er hugmyndaríkur og hefur næmt auga fyrir því sem virkar í leik- húsi. Það var ekki til sú athöfn á svið- inu sem ekki hafði skýrt markmið og skýran tilgang. Samleikur þeirra þriggja leikara sem sjást á sviðinu nær allan tímann var prýðilegur og hvert einasta orð hitti á-horfandann fyrir og kallaði fram bros. Það má segja að þessi sýning brosi til manns allan tímann. Aldrei neitt offors, allt svona mátulegt og kókett. Á sýningunni sem ég sá voru börn úr 2. bekk að stórum hluta en einnig bæði yngri og eldri. Það var ljóst að allir skemmtu sér vel. Möguleikhúsið hefur starfað í fjöldamörg ár og mun vonandi starfa lengi enn því ekki megum við verða eftirbátar granna okkar í því að búa til leikhús fyrir börn. Þessi sýning er með þeim betri sem ég hef séð í Möguleikhúsinu við Hlemm og hvet alla þá sem vilja ala börnin á kjarngóðu íslensku orða- fóðri til að storma í litla leikhúsið við Hlemmtorg til að njóta sýningar leik- hópsins á „Landinu vifra“. TÓNLEIKAR  17.00 Hljómsveitin Astara kemur fram í Smekkleysu Plötubúð við Laugaveginn.  20.00 Hljómsveitirnar Hölt Hóra, Benny Crespo's Gang og Coral leika í Húsinu á Akureyri.  22.30 Ampop kynnir nýtt efni af væntanlegri breiðskífu í Stúdenta- kjallaranum. Hljómsveitin Hraun kemur einnig fram.  23.00 Plat, P.J. Valentine og Skum koma fram á Grand Rokk.  23.00 Franska danshljómsveitin NoJazz verður með tónleika á Nasa ásamt Jagúar. LEIKLIST  20.00 Freyvangsleikhúsið í Eyja- fjarðarsveit frumsýnir verkið Taktu lagið, Lóa! í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar.  21.00 Sænska leikkonan Annika B. Lewis flytur einleik sinn Blændverk í Klink og Bank, Brautarholti 1. LISTOPNANIR  17.00 Jón Óskar myndlistarmaður opnar sýninguna "Delaware" í 101 gallery að Hverfisgötu 18a.  17.00 Einar Þorláksson sýnir í Kubbnum, sýningarrými Listaháskól- ans í Laugarnesi. SKEMMTANIR  23.00 Einn frægasti rokkari Íslands fyrr og síðar, Rúnar Júlíuson, verður með stórdansleik á Kringlukránni.  Spilafíklarnir leika í kjallaranum á Celtic Cross, Garðar trúbador sér um stuðið á efri hæðinni.  Hljómsveitin Tilþrif spilar í Vélsmiðj- unni á Akureyri.  Plötusnúðurinn Benni sér um tjúttið og trallið á efri hæðum Café 22. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. FÖSTUDAGUR 25. febrúar 2005 33 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 22 23 24 25 26 27 28 Föstudagur FEBRÚAR Sýnd með íslensku og ensku tali Sendu SMS skeytið JA SMF á númerið 1900 og þú gætir unnið! Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið Vinningar eru miðar fyrir 2 á Grímuna 2 •Varningur tengdur myndinni • DVD myndir og margt fleira! Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna! KRINGLUKRÁIN UM HELGINA • Fjölbreyttur sérréttamatseðill öll kvöld vikunnar • Tilboðsmatseðill fyrir Leikhúsgesti • Hópamatseðill • Sérsalur fyrir hópa Borðapantanir í síma 568-0878 www.kringlukrain.is ROKKSVEIT RÚNARS JÚLÍUSSONAR UM HELGINA Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala frá kl. 10 virka daga. 5. sýn. 25. feb. kl. 20 – Uppselt – 6. sýn. 27. feb. kl. 19 – Uppselt 7. sýn. 4. mars kl. 20 – Uppselt – 8. sýn. 6. mars kl. 19 – Uppselt 9. sýn.12. mars kl. 19 - Uppselt - Síðasta sýning AUKASÝNING: Mið. 2. mars kl. 20 AUKASÝNING: Fim. 10. mars kl. 20 – Styrkt af Vinafélagi Íslensku óperunnar Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýningin hefst DVD sýning Vinafélags Íslensku óperunnar í samvinnu við Wagner félagið Laugardaginn 26. febrúar kl. 13.00-18.15 Tristan und Isolde eftir Richard Wagner. Sýningin er á hliðarsvölum Íslensku óperunnar (gengið er inn um aðalinngang). Allir velkomnir Miðasala á netinu: www. opera.is Sögur kvenna frá hernámsárunum Sunnudagur 27/2 kl. 14.00 Miðvikudagur 2/3 kl. 14.00 Sunnudagur 6/3 kl. 14.00 ÁstandiðTenórinn Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir: Sun. 27. feb. kl. örfá sæti Sun. 6. mars kl. 20 Síðasta sýning LEIKLIST VALGEIR SKAGFJÖRÐ Landið vifra Möguleikhúsið v/ Hlemm Byggt á barnaljóðum Þórarins Eldjárn / Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir / Tónlist: Atli Heimir Sveinsson / Leikmynd bún- ingar og leikmunir: Bjarni Ingvarsson og Katrín Þorvaldsdóttir / Leikarar: Aino Freyja, Alda Arnardóttir og Pétur Eggerz. Niðurstaða: Það má segja að þessi sýn- ing brosi til manns allan tímann. Aldrei neitt offors, allt svona mátulegt og kókett. Leikur að orðum LANDIÐ VIFRA Aino Freyja Järvelä, Pétur Eggerz og Alda Arnardóttir í hlutverkum sínum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.