Fréttablaðið - 25.02.2005, Blaðsíða 30
4 ■■■ { FERMINGAR } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Engin „trend“ ríkjandi þegar
kemur að veitingunum
Gamaldags matar- og kaffihlaðborð halda velli í fermingarveislum þessa árs, með
örlitlum breytingum þó. Kransakakan er á leið út – marsípantertan inn.
Fermingargjöf sem þú býrð að alla ævi
B a n k a s t r æ t i 1 0 - 1 0 1 R e y k j a v í k – S í m i 5 6 2 2 3 6 2 – i n f o @ e x i t . i s
Stúdentaferðir bjóða málanám sérstaklega hannað fyrir ungt fólk á aldrinum
10 - 17 ára. Málanámið samanstendur af tungumálanámi, afþreyingu og ferðum.
Gisting er á heimavist eða hjá fjölskyldum. Málanám erlendis er reynsla sem þú
býrð að alla ævi. Þú lærir tungumál og upplifir ævintýri.
Færð þú MasterCard
Ferðaávísun?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
74
98
2/
20
05
Ferming
Fartölva
að verðmæti
150.000 kr.
Munið lukkuleikinn
Áletrun á kerti
og servíettur!
Kristín Rós Gu
nnarsdóttir
Vogatungu 2
0
200 Kópavog
ur
Mikið af nýjum fermingarvörum
í öllum verslunum Blómavals
Ég vil hafa snyrtilegar og fallegar
hendur þess vegna vel ég LCN nagla
gel á mínar neglur.
Sigrún Ungfrú Reykjavík.
Þar er hægt að leita sér upplýsinga
um hinar ýmsu veisluþjónustur,
kíkja á ljósmyndara og gjafavörur
sem gætu komið sér vel í ferming-
arpakkann.
Einnig getur fermingarbarnið
gert óskalistann á vefsíðunni og
þannig hafa allir ættingjarnir að-
gang að honum. Það auðveldar því
bæði fermingarbarninu og boðs-
gestum mikla fyrirhöfn. Síðan er
hægt að leita sér upplýsinga bæði
um borgaralega fermingu og
kirkjulega fermingu og kanna
markaðinn af blómasölum og
hreingerningarþjónustu. Öll skipu-
lagning stóra dagsins getur því
nánast farið fram í gegnum netið.
Fermingarveislur á Íslandi hafa
ekki tekið miklum breytingum frá
því seint á sjötta áratugnum, þegar
allri áfengisneyslu var hætt í slík-
um veislum. Veislurnar hafa síðan
ýmist verið í formi matar- eða
kaffihlaðborða og veitingarnar
sjálfar ekki breyst að ráði. Ingibjörg
Pétursdóttir, eigandi veisluþjónust-
unnar Mensu, segir að helsta breyt-
ingin þar á bæ sé að kalkúnninn sé
nú langvinsælastur. „Það er allur
gangur á því hvað fólk pantar, en
mér virðist að fleiri séu með mat en
kaffi og fæstir með pinnamat.
Kalkúninn berum við fram kaldan
en hann er tekinn í sundur, fylltur
og settur saman aftur, og með
honum er borið fram heitt kart-
öflugratín. Fólk vill gjarnan vera
með eitthvað sem allir hafa smekk
fyrir, bæði börn og fullorðnir. Í for-
rétt er reyktur lax með spínatjafn-
ingi vinsælastur og í eftirrétt sýnist
mér að súkkulaðikaka með þeyttum
rjóma sé algengust.“ Ingibjörg segir
hádegisverðarboð algengari en
áður en sömu veitingar, bara örlítið
léttari. „Þá eru fleiri bökur og soðni
heili „sixties“-laxinn er alltaf mjög
vinsæll.“
Valdimar Steinsson, eigandi
veisluþjónustunnar Gafl-inn, segir
skiptast í tvö horn hjá sér. „Það er
annars vegar hefðbundið sex rétta
matarhlaðborð, þrír fiskréttir og
þrír kjötréttir með salötum, eða
kaffihlaðborð. Mér finnst að kaffi-
hlaðborðin séu vinsælli í ár en
verið hefur. Þá erum við að tala um
snittur, brauðtertur, tertur og flat-
kökur. Þetta hefur verið mjög svip-
að í gegnum árin, það eru kannski
ákveðnar tertur vinsælli en aðrar
en í heildina er þetta mjög svipað.
Kransakakan er þó að víkja fyrir
marsipantertunni.“
Valdimar segist ekki verða var
við að fók vilji hollustuveitingar í
fermingarveislurnar. „Það er
enginn að hugsa um það á þessum
degi,“ segir Valdimar.
Linda Magnúsdóttir, yfirmaður
veisluþjónustu Jóa Fel, segir að þar
sé ítalskt pinnahlaðborð vinsælast.
„Það eru heitir og kaldir léttir réttir,
ostasalöt, brauð og brauðterta, og
svo eru auðvitað kökuhlaðborðin
sívinsæl, en þar erum við líka með
ítölsku snitturnar. Aðallega finnst
mér þó að fók vilji hafa þetta ein-
falt og gott og ekki of mikla fyrir-
höfn.“
Fermingin skipulögð á netinu
Vefsíðan fermingar.is hefur allt til alls til að skipuleggja
ferminguna.
Kaffihlaðborðið er alltaf vinsælt í fermingarveislum. Hér sést Jón Árelíusson kökumeistari með flotta kransaköku og marsipantertu.
Ingibjörg Pétursdóttir segir fók vilja vera
með eitthvað sem bæði börnum og full-
orðnum þykir gott.
Heilsoðinn lax í „sixties“-stíl er sívinsæll í fermingarveislum. Rjómaterta með fjölda berjategunda er algert sælgæti.
Fjöldasöngur og dans í veislunni
Fermingar þurfa ekki að vera stíf spjallboð stórfjölskyldunnar.
Fermingar geta verið ofboðslega skemmtilegar. Við mælum með að nánustu ætt-
ingjar fermingarbarnsins taki sig til og skipuleggi nokkra leiki.
Það er alltaf gaman að syngja saman. Sniðugt er að búa til litla söngbók með
vinsælum íslenskum lögum og dreifa til allra gesta. Síðan er tekinn hópsöngur
á milli marsipantertusneiða og kransakökuhringja. Voða stuð.
Síðan er það blessaður dansinn sem aldrei klikkar. Fugladansinn eða Konga-
dans er tilvalinn til að halda uppi stuði og fá sem flesta með í sprellið.
Myndasýning klikkar ekki. Foreldrar fermingarbarnsins ættu að taka sig til
nokkrum dögum fyrir fermingu og safna saman haug af gömlum myndum af
fermingarbarninu. Skannið inn myndirnar, setjið í Power Point-skjal, fáið lán-
aðan myndvarpa og varpið myndunum upp í stærstu stærð á vegginn. Frábær
skemmtun fyrir alla – meira að segja fermingarbarnið.