Fréttablaðið - 25.02.2005, Síða 6

Fréttablaðið - 25.02.2005, Síða 6
6 25. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR Rannsókn á orsökum bruna sem varð ungum manni að bana er lokið: Ríkissaksóknari er kominn með málið BRUNI Lögreglan hefur lokið rann- sókn sinni á orsökum brunans sem varð í einbýlishúsi á Sauðárkróki í byrjun desember. Maður um tvítugt lést í brunanum. Björn Mikaelsson, yfirlögreglu- þjónn á Sauðárkróki, segir að máls- gögn hafi verið send ríkissaksókn- ara. Það ætti að verða ljóst eftir fáeinar vikur hvort ákært verður í málinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er vitað að eldurinn kviknaði af mannavöldum en hins vegar eru engin sönnunargögn í málinu sem benda til þess að um íkveikju hafi verið að ræða. Tækni- deild lögreglunnar í Reykjavík tók sýni á vettvangi. Niðurstöður úr sýnatökunni benda ekki til þess að eldhvetjandi efni hafi verið í stof- unni þar sem eldsupptök voru. Nokkur ungmenni voru í húsinu nóttina og morguninn sem bruninn varð. Vitað er að töluvert var reykt í húsinu um morguninn og eru líkur á því að eldurinn hafi kviknað út frá sígarettuglóð. Ungur maður, sem slapp ómeiddur úr brunanum, fékk rétt- arstöðu grunaðs manns skömmu eftir að bruninn varð. Björn segir að staða hans sé óbreytt og breytist ekki fyrr en eftir að ríkissaksókn- ari hafi lokið sinni vinnu. - th Lögreglan í Hafnarfirði: Tveir teknir með fíkniefni LÖGREGLUMÁL Tveir menn á fer- tugsaldri voru handteknir með tvö grömm af amfetamíni og lítil- ræði af hassi í Hafnarfirði um tíuleytið í gærmorgun. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði hafa báðir mennirnir komið við sögu lögreglunnar áður og þótti ástæða til afskipta þegar þeir sáust á gangi. Mennirnir voru teknir til yfir- heyrslu og kom í ljós að annar þeirra var eftirlýstur og átti að mæta í dómssal. Lögreglan keyrði honum á áfangastað en hinum var sleppt að lokinni skýrslutöku. - bs MORÐVETTVANGUR RANNSAKAÐUR Þingmenn ræða morðið á Rafik Hariri næsta mánudag og greiða þá atkvæði um framtíð stjórnarinnar. Líbanska stjórnin: Möguleiki á afsögn LÍBANON, AP Omar Karami, forsæt- isráðherra Líbanons, segist reiðu- búinn að verða við kröfum stjórn- arandstæðinga um að segja af sér, að því gefnu að þing landsins komist að samkomulagi um nýja stjórn. Fyrst ætlar hann þó að fara þess á leit við þingmenn að þeir greiði atkvæði um traust eða vantraust á stjórnina. Stjórn Karami nýtur stuðnings meirihluta þingmanna en talið er að það kunni að breytast vegna morðsins á Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra, sem stjórnar- andstæðingar kenna sýrlenskum og líbönskum stjórnvöldum um. ■ AUKIÐ SAMSTARF VIÐ ÍSRAEL Atlantshafsbandalagið vill auka samstarf sitt við Ísraela en á slíkt má þó ekki líta sem aðdraganda þess að Ísrael verði aðili að bandalaginu sagði Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri Nató. Hann sagði að til dæmis mætti auka samstarf í baráttu gegn útbreiðslu gjöreyðingar- vopna. RÉTTAÐ YFIR TÁNINGI Átján ára piltur mætti fyrir dómara ákærð- ur um að skipuleggja hryðjuverka- árásir í Hollandi. Honum er gefið að sök að vera félagi í samtökum íslamskra hryðjuverkamanna sem myrtu kvikmyndagerðarmanninn Theo van Gogh í fyrra vegna um- deildrar heimildarmyndar hans. Á að einkavæða Landsvirkjun? SPURNING DAGSINS Í DAG: Á að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 92% 8% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN ALMANNATRYGGINGAR Ríkisstjórnin hefur ákveðið að láta kanna hvort ekki sé rétt að setja hluta af við- fangsefnum Tryggingastofnunar ríkisins undir félagsmálaráðu- neytið. „Við erum að láta skoða hvort ekki sé heppilegt að flytja lífeyristryggingarnar og örorku- tryggingarnar hingað yfir, en sjúkratryggingarnar heyrðu á- fram undir heilbrigðisráðuneytið,“ segir Árni Magnússon félagsmála- ráðherra. „Þetta yrði meiriháttar breyting á verkaskiptingu þessara tveggja ráðuneyta og myndi stækka félags- málaráðuneytið gríðarlega. Heil- brigðismálaráðneytið minnkaði að sama skapi, en færa má rök fyrir því að það sé nægjanlegt við- fangsefni eitt og sér að fást við heilbrigðismál,“ segir hann. „Ekki er ólíklegt að málin þróuðust með þeim hætti að mál- efni aldraðra og öryrkja heyrðu undir félagsmálaráðuneytið enda er hvorugt fyrst og fremst heil- brigðismál, heldur miklu frekar félagsmál,“ segir Árni. Hann bend- ir á að málefni fatlaðra heyri nú þegar undir félagsmálaráðuneytið, sömuleiðis búsetumál og því sé skynsamlegt að hafa umsjóna allra félagslegra bóta á einum stað. Árni segir að þessi áform teng- ist ekki fyrirætlunum ríkisstjórn- arinnar að skoða til hlítar auknar greiðslur örorkubóta undanfarin ár. Verði niðurstaðan hins vegar sú að hluti viðfangsefna Trygginga- stofnunar verði færð undir félags- málaráðuneytið þá verði þau sam- ræmd kerfi sem þegar er í vinnslu, og gengur meðal annars út á það að kanna hvort atvinnuleysisbóta- þegar séu á réttum stað í kerfinu. Til marks um hve mikið félags- málaráðuneytið muni stækka, verði tilfærslan að veruleika, nema lífeyristryggingar nú um 35 milljörðum á ári. Þær ná yfir aldr- aða, öryrkja og foreldra eða fram- færendur með börn sem njóta fé- lagslegrar aðstoðar. „Til að setja þetta í samhengi kostar fæðingar- orlofið nú allt 6,5 milljarða og at- vinnuleysisbætur um 4 milljarða. Þetta yrði því margföld aukning,“ segir Árni. Breytingarnar gætu orðið að veruleika í lok þessa árs eða byrjun þess næsta. sda@frettabladid.is ÁRNI MAGNÚSSON FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA „Þetta yrði meiriháttar breyting á verkaskiptingu þessara tveggja ráðuneyta og myndi stækka félagsmálaráðuneytið gríðarlega. Heilbrigðismálaráðuneytið minnkaði að sama skapi, en færa má rök fyrir því að það sé nægjanlegt viðfangsefni eitt og sér að fást við heilbrigðismál.“ Öryrkjar heyri undir félagsmál Verið er að kanna hvort flytja skuli lífeyristryggingar og örorkutryggingar frá heilbrigðisráðuneytinu til félagsmálaráðuneytis. Félagsmálaráð- herra segir að allar félagslegar bætur væru þá á einum stað. Höfðabakka 1 - sími 587 50 70 - alltaf ódýrastir - STÓR HUMAR og risarækjur Opið laugardag 10-14 VOTMÚLI Lokið var við að rífa húsið í vikunni. Bruninn á Blönduósi: Enginn grunaður BRUNI Ekki er enn vitað hver kveikti í atvinnuhúsnæðinu Votmúla á Blönduósi að sögn Kristjáns Þorbjörnssonar, yfirlög- regluþjóns á staðnum. Stærsti hluti hússins brann til grunna en í þeim hluta var mat- vælaverksmiðja Vilkó, pakkhús Kaupfélagsins og Bílaþjónustan með starfsemi. Nú í vikunni var lokið við að rífa þann hluta húss- ins sem brann. Ekki liggur fyrir hvort húsið verður byggt að nýju. Þótt enginn sé grunaður um íkveikjuna segist Kristján ekki vera búinn að gefa upp alla von. Dæmi séu um að mál leysist tveimur til þremur árum eftir að þau komi upp. - th Herve Gaymard: Afsögn ekki á dagskrá FRAKKLAND, AP Franski ráðherrann Herve Gaymard þvertekur fyrir að segja af sér í kjölfar uppljóstrana um að ríkissjóður hafi greitt leiguna fyrir lúxusíbúð sem hann býr í á sama tíma og hann leigði út sína eigin íbúð í nágrenninu. Gaymard sagðist í viðtali ekkert hafa gert rangt og að mannorð sitt væri eins hreint og nýslegin mynt. Hann sagði einnig að hann nyti trausts forsetans og stuðnings for- sætisráðherrans, því væri afsögn hans ekki á dagskrá. ■ ELDSVOÐINN Á SAUÐÁRKRÓKI Ungur maður lést þegar eldur kom upp í einbýlishúsi við Bárustíg á Sauðárkróki sunnudagsmorguninn 5. desember. ■ EVRÓPA Brim sýknað fyrir dómi og fær greiddan málskostnað: Vélstjórafélagið mun stefna Sólbaki SÓLBAKUR Félagsdómur hefur sýknað Brim hf. af kröfum Vél- stjórafélags Íslands í Sólbaks- málinu. Vélstjórafélaginu er gert að greiða Brimi 200 þúsund krónur í málskostnað. Helgi Laxdal, formaður Vél- stjórafélags Íslands, sagði dóm- inn vonbrigði, en við frekar skoð- un megi túlka hann sem ákveðinn sigur. Í rökstuðningi dómsins er vísað til þess að forsvarsmenn Útgerðarfélagsins Sólbaks, sem er dótturfélag Brims, hafi brotið gegn lögum. Þeir hafi gert samn- inga undir lágmarkslaunum og ekki virt hafnarfrísákvæði sjó- mannanna í september. Því muni Vélstjórafélagið höfða annað mál í Félagsdómi á hendur Útgerðarfélaginu Sól- baki. Árni Bjarnason, formaður Farmanna- og fiskimannasam- bandsins, sagði dóminn bjóða upp á enn meiri átök: „Ekki síst í ljósi þess að ég hef heyrt að gert sé upp við mennina á Sólbaki í blóra við gildandi kjarasamninga. Því hafi í engu verið breytt þrátt fyrir dóm sem krefjist þess.“ Ekki náðist í Guðmund Krist- jánsson forstjóra Brims. - gag VIÐ UPPKVAÐNINGU FÉLAGSDÓMS Félagsdóm tók einungis um þrjár mínútur til að kveða upp sýknudóm í máli Vélstjórafé- lags Íslands geng Brimi hf. Hér sitja Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags Íslands, og Friðrik Á. Hermannsson, lögmaður félagsins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.