Fréttablaðið - 25.02.2005, Qupperneq 10
Lotus Professional
Hagkvæm heildarlausn fyrir snyrtinguna
Mán
udag
a til
föstu
daga
frá k
l. 8:0
0 til
18:00
Laug
arda
ga fr
á
kl. 10
:00 t
il 14:
00
Nýr o
pnun
artím
i
í ver
slun
RV:
R
V
20
28
Lotus WC Compact statíf
Lotus sápuskammtari
Tilbo
ð
febrú
ar 20
05
20%
afslát
tur af
öllum
Lotus
Profe
ssiona
l papp
írs-
og sá
puskö
mmtu
rum f
yrir
snyrti
ngun
a.
Lotus miðaþurrkuskápur
Marathon
1.591.-
1.591.-
1.591.-
Aukið hreinlæti –
minni kostnaður
25. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR
Félag grunnskólakennara:
Vilja sérsamning
Ísaksskóla burt
KJARAMÁL Grunnskólakennarar
vilja að samninganefnd þeirra
staðfesti ekki sérsamning Ísaks-
skóla. Þeir vilja að látið verði
reyna á réttmæti hans fyrir dóm-
stólum, reynist þess þörf. Ályktun
þess efnis var samþykkt á aðal-
fundi Félags grunnskólakennara á
Selfossi um síðustu helgi.
Jenný Guðrún Jónsdóttir, trún-
aðarmaður kennara í Ísaksskóla,
segir sorglegt ef hagsmunafélag
þeirra vilji standa í vegi fyrir því
að laun í Ísaksskóla hækki.
„Ályktunin breytir ekki
ánægju okkar kennara með samn-
inginn og þeim vonum sem við
bindum við hann,“ segir Jenný.
Grunnskólakennarar gagnrýna
í ályktuninni að aldursafsláttur,
lækkun kennsluskyldu og hækkuð
grunnlaun sem þeir hafi barist
hart fyrir í verkfallinu séu afnum-
in í sérsamningnum.
Jenný segir aðstæðurnar í
Ísaksskóla aðrar en í almennum
grunnskólum þar sem samningur-
inn nái einungis til tíu starfs-
manna: „Við erum að semja á
grundvelli trausts og virðingar og
hæpið að ætla að semja á sama
hátt fyrir 4.500 manns.“ - gag
JENNÝ GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
Trúnaðarmaður kennara Ísaksskóla spyr
hvort tilgangur hagsmunafélags sé að taka
fram fyrir hendurnar á félagsmönnum
sínum og koma í veg fyrir að félagsmenn
fái hærri laun.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
EFNAHAGSMÁL Verðbólgumælingin í
landinu gefur falska mynd af hinni
raunverulegu stöðu. Verðbólgan er í
dag 4,5 prósent og þar með yfir vik-
mörkum Seðlabankans en í raun og
veru er hún innan við 2,5 prósent.
Þetta er skoðun Guðmundar Ólafs-
sonar hagfræðings.
Innan neysluverðsvísitölu er
reiknaður liður sem heitir reiknuð
leiga á eigin húsnæði. Starfsmenn
Hagstofunnar reikna út leigu í
eigin húsnæði og tilfæra
sem kostnað. Guðmundur
segist telja óeðlilegt að gera
þetta nema reikna tekjurnar á
móti.
„Ef maður borgar leigu í eig-
in húsnæði hlýtur maður að
þurfa að reikna hana sem tekjur
líka, ekki bara gjöld, þannig að
þetta ætti að jafnast út. Þessi liður
vegur upp undir tíu prósent í vísi-
tölunni, að mig minnir, og gerir það
að verkum að verðbólgan er yfir
fjórum prósentum. Ef hann væri
það ekki þá væri verðbólgan innan
við 2,5 prósent, að mér sýnist. Þessi
eini reikningsliður keyrir reiknaða
verðbólgu upp og hún verður mun
hærri en ella,“ segir hann.
Guðmundur segir að með
þessum útreikningi starfsmanna
Hagstofunnar sé verðbólgan keyrð
upp og þar af leiðandi hækki lán, en
bankarnir taki til sín gengishagnað-
inn. „Skuldirnar hækka en innlán
bankanna eru í fæstum tilvikum
vísitölutryggð.“
Neysluverðsvísitalan mælir
meðaltal fjárhagslegra skuldbind-
inga einstaklinga. Fasteignaverð
hefur snarhækkað upp á síðkastið
og fjölskyldurnar í landinu hafa
skuldsett sig meira en nokkru sinni
áður. Um leið hefur hættan á
fjárhagslegum erfiðleikum ein-
staklinganna aukist verulega.
Guðmundur telur hættuna
meiri og sterkari en áður og
telur framhaldið ráðast af því
hvort gengi krónunnar lækki og
hvort húsnæðisverð lækki á
næstunni eða stöðugleiki ríki í
þessum efnahagsmálum.
ghs@frettabladid.is
Hagstofan keyrir
upp verðbólguna
Í vísitölu neysluverðs er húsaleiga vegna eigin húsnæðis reiknuð til gjalda en
ekki tekna. Guðmundur Ólafsson segir þetta valda því að vísitalan sýni verð-
bólgu upp á rúm fjögur prósent þegar hún sé í raun aðeins um 2,5 prósent.
VÍSITALA NEYSLUVERÐS
Sýnir ekki bara þróun matarverðs heldur
hefur húsnæðisverð þar líka áhrif.